Morgunblaðið - 21.05.1999, Síða 20
MORGUNBLAÐIÐ
20 FÖSTUDAGUR 21. MAÍ 1999
____________________VIÐSKIPTI_________________
Starfsfólki íslandsbanka hf. boðið að kaupa hlutabréf í bankanum
Fjármagnað með vaxtalaus-
um lánum tíl þriggja ára
§f|ÉÍÍ£É
RÁÐAMENN íslandsbanka telja jákvætt að starfsmenn hafi hag af því að fyrirtækið gangi vel.
t PARKER
SONNET
BANKARÁÐ íslandsbanka hf. hef-
ur ákveðið að bjóða starfsfólki
bankans og dótturfélaga hans að
kaupa hlutabréf í bankanum með
hagstæðum greiðsluskilmálum og
mun starfsfólkinu einnig bjóðast að
kaupa bréf á næsta ári. Yfirlýstur
tilgangur bankans með þessu er tví-
þættur, annars vegar að veita
starfsfólki aukna ánægju í starfi og
hins vegar að tengja hag hluthafa
við hag starfsmanna.
Að sögn Vals Valssonar, banka-
stjóra Islandsbanka“ hefur mál
þetta verið í undirbúningi í talsvert
langan tíma og segir hann að það sé
í samræmi við þá stefnu sem bank-
inn hafi mótað um að leggja áherslu
á hag hluthafa.
Hverjum starfsmanni býðst að
kaupa hlutabréf í ár og næsta ár fyr-
ir allt að 55.700 kr. að nafnvirði
hvort ár. í ár er miðað við gengið
4,31, sem er nálægt markaðsgengi
bréfanna um þessar mundir, og er
kaupverð bréfanna þá 240.067 kr. og
er það u.þ.b. sú fjárhæð sem árlegur
skattafrádráttur vegna hlutafjár-
kaupa hjóna miðast við. Þeim býðst
einnig kaupréttur fram til júní árið
2000 og er þá miðað við núverandi
gengi framreiknað með 5,6% álagi.
íslandsbanki býður starfsfólki
vaxtalaus lán til þriggja ára til að
fjármagna kaupin. Fyrir starfs-
menn sem vilja nýta tækifærið bæði
árin er boðið upp á jafnar greiðslur
vegna kaupanna, tæplega 10.300
króna greiðslu á mánuði í 48 mánuði
miðað við hámarksfjárhæð. Þeir
sem nýta hámarksfjárhæðina nú, en
gera ekki ráð fyrir að gera það aftur
á næsta ári, geta dreift kaupunum
yfir 36 mánuði og greiða þannig
tæplega 56.700 krónur á mánuði.
Bankinn hefur þegar keypt bréf á
markaði til að selja starfsmönnum
og munu þeir eignast um 1-2% hlut í
bankanum ef meirihluti þeirra
gengur að tilboðinu.
Jákvætt að starfsfólk
bankans sé virkir hluthafar
„Þetta hefur verið í undirbúningi
í töluvert langan tíma og er í sam-
ræmi við þá stefnu sem við höfum
mótað að leggja áherslu á hag hlut-
hafa. Ég tel að það sé mjög jákvætt
að starfsfólk bankans sé virkir hlut-
hafar í eigin fyrirtæki og hafi bein-
an hag af því að fyrirtækið gangi
vel. Það er líka skemmtilegra að
vera vinna fyrir sjálfan sig;“ segir
Valur Valsson, bankastjóri Islands-
banka, og bætir við að viðbrögð hafi
ekki látið á sér standa og séu marg-
ir þegar búnir að skrá sig.
„Ég hef ítrekað orðið var við að
starfsmenn íslandsbanka hafa mjög
mikinn áhuga á bankanum og vel-
gengni hans og á von á að þátttakan
verði almenn,“ segir Valur.
Hann segir að sú leið hafi orðið
íyrir valinu að bjóða starfsmönnum
vaxtalaus lán vegna þess að niður-
greitt gengi hefði að líkindum kost-
að kaupendur bréfanna skatt.
„Við einfaldlega keyptum bréf á
markaði til að bjóða starfsmönnum
og bjóðum þeim þau á markaðskjör-
um, því ella, ef við biðum þeim bréf-
in á lægra gengi, væri mismunurinn
líklega skattskyldur," segir Valur.
Hann segir ennfremur að eignar-
hlutfall starfsmanna megi vissulega
verða hærra í framtíðinni. „Við sjá-
um fyrir okkur að þetta sé bara
byrjunin og að starfsfólk muni á
komandi árum reglulega kaupa
hlutabréf í bankanum.“
Varaformaður
Sambands bankamanna
Ottast upp-
sagnir í kjöl-
far samruna
EINN stærsti banki Bretlands,
Barcleys, tilkynnti í gær að 6000
starfsmönnum yrði sagt upp á næst-
unni í einstaklings- og fýrirtækja-
þjónustu bankans en það eru um tíu
prósent starfsfólks í þessum deild-
um, að því er fram kemur í fréttum
BBC í gær. Rekstur Barcleys bank-
ans hefur gengið nokkuð brösuglega
undanfarið en að sögn BBC koma
uppsagnirnar einnig í kjölfar örrar
tæknivæðingar í breskum bankavið-
skiptum sem hafa m.a. þýtt að við-
skipti um síma og netið hafa færst
mjög í vöxt.
Helga Jónsdóttir, varaformaður
Sambands íslenskra bankamanna,
segir að innan sambandsins hafi orð-
ið miklar umræður um hvaða áhrif
hugsanlegir samrunar fjármálafyrir-
tækja hér komi til með að hafa á
starfsfólk bankanna og hafi menn
talsverðar áhyggjur af mögulegum
uppsögnum í kjölfar þeirra.
„Á móti kemur að lítið hefur verið
ráðið af almennu starfsfólki til stóru
bankanna undanfarið en þeir hafa
frekar verið að bæta við sig sérfræð-
ingum á ýmsum sviðum," segir
Helga.
Hún minnir á að þær tæknibreyt-
ingar sem nú eru að verða í Bret-
landi hafi í raun þegar átt sér stað
hér á landi.
,jVð mörgu leyti stöndum við
framar öðrum þjóðum, t.d. Norður-
landaþjóðunum, hvað varðar tækni-
stig í bankaviðskiptum og satt að
segja óttumst við frekar afleiðing-
arnar af hugsanlegum sameiningum
fyrirtækja í greininni heldur en auk-
inni tæknivæðingu,“ sagði Helga.
ÞESSI AUGLtSING E R BIRT 1 UPPLÝSINGASKYNI
VERÐTRYGGÐ EINGREIÐSLUBRÉF FBA
GJALDDAGI 10. APRÍL 1999
VERÐBRÉFAÞING ÍSLANDS
HEFUR SAMÞYKKT AÐ TAKA TIL SKRÁNINGAR
VERÐTRYGGÐ EINGREIÐSLUBRÉF FBA:
1. flokkur 1999
Krónur 2.000.000.000,00
Gjalddagi 10. apríl 2005
Fjárfestingarbanki atvinnLilífsins tekur að sér markaðsmyndun
á ofangreindum flokki og hefst viðskiptavaktin eigi síðar en
10. apríl 2003.
Skuldabréfaflokkurinn verður skráður 26. maí 1999.
Skráningarlýsingu og önnur gögn s.s. samþykktir og síðasta
ársreikning er hægt að nálgast hjá FBA, Ármúla 13A, Reykjavík,
umsjónaraðila skráningarinnar.