Morgunblaðið - 21.05.1999, Side 22
22 FÖSTUDAGUR 21. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
______________________________________VIÐSKIPTI
Valur Valsson, bankastjóri íslandsbanka, um þenslu og útlán
Aukningin innan-
hússvandi ríkisins
EFNAHAGS- og framfarastofnun
Evrópu, OECD, hefur eins og fram
hefur komið varað við líkum á auk-
inni verðbólgu hér á landi og hvatt
til aðhalds í peningamálum og ríkis-
fjármálum, auk þess sem stofnunin
segir mikilvægt að eftirlit verði haft
með útlánum viðskiptabankanna.
Valur Valsson, bankastjóri fs-
landsbanka hf., sagði í samtali við
Morgunblaðið að hann teldi ábyrgð
ríkisbankanna mikla í þessu máli.
„Pað er vissulega ástæða til að
hafa áhyggjur af mikilli útlánaaukn-
ingu því hún ýtir undir þenslu. Út-
lánaaukning lánastofnana var mikil
á síðasta ári en þá þróun mátti sjá
fyrir. Strax í septembermánuði 1997
voru að mati okkar hjá íslands-
banka komin fram ýmis merki um
að samkeppni um útlán væri að leiða
lánastofnanir inn á erfiða braut, þar
sem að saman færi langur lánstími
og of lágt vaxtaálag. Þá þegar, þ.e. í
september 1997, ákváðum við að
sýna sérstaka aðgæslu í lánastarf-
seminni og þess vegna höfum við
aukið útlán okkar minna en flestir
aðrir. Þessu til viðbótar gerðist það
á síðasta ári að stjómvöld ákváðu að
gefa ríkisbönkunum þremur sér-
stakt svigrúm til að auka útlán sín.
Hlutafjáraukningin í Landsbanka
og Búnaðarbanka hafði þann til-
gang að auðvelda þeim að auka um-
svif sín og frá ársbyrjun 1998 hafði
FBA [Fjárfestingarbanld atvinnu-
lífsins] þá stefnu að stórauka sín út-
lán. Þessi viðhorf ríkisbankanna
koma meðal annars fram í útboðs-
lýsingum þeirra vegna hlutafjársölu
á síðasta ári og mátti því öllum vera
ljóst að hverju stefndi. Útlánaaukn-
ingin á síðasta ári er þvi að hluta til
innanhúsvandi ríkisins."
í viðtah sem birtist í Viðskipta-
blaði Morgunblaðsins í síðustu viku
kemur fram að Yngvi Öm Kristins-
son, yfirmaður peningamálasviðs
Seðlabankans, telur að ekki hafi
verið skynsamlegt að seija ný bréf í
ríkisbönkunum á síðasta ári og
fremur hefði átt að bjóða út eldri
bréf.
Um þetta er einnig fjallað í Við-
skiptablaði Morgunblaðsins í gær
en þar segist Margeir Pétursson
skilja orð Yngva á þann veg að hann
telji að bankamir hafi verið hrædd-
ir um að verða yfirteknir af öðmm
bönkum og því lagt áherslu á að
stækka. Það hafi þeir gert með því
að auka útlán sín eins og þeir gátu.
„Það er ansi hart fyrir íslensku við-
skiptabankana að sitja bæði undir
því að vera grunaðir um að lána of
mikið og vitlaust og eiga þar að auki
sök á þenslunni,“ segir Margeir
m.a. í grein sinni.
Eiginfjárstaða var
orðin of lág
Halldór J. Kristjánsson segir al-
gerlega rangt að kenna hlutafjár-
aukningu í ríkisbönkunum um út-
lánaþensluna undanfarið, a.m.k.
hvað varðar Landsbankann. „Þama
verður að gera nokkum greinar-
mun á stöðu Landsbankans og Bún-
aðarbankans. í byrjun annars árs-
fjórðungs 1998 var eiginfjárstaða
Landsbankans orðin of lág og CAD-
hlutfallið að nálgast 8%. Það var
aldrei neitt vafamál að við þessar
aðstæður varð að koma til aukið
hlutafé í bankanum.
Eiginfjárstaða Landsbankans
eftir hlutafjáraukninguna var mjög
traust og við höfum byggt á því síð-
an. I framhaldinu höfum við átt
þess kost að styrkja eiginfjárstöð-
una með töku víkjandi lána þar sem
við höfum áfram nokkurt svigrúm.
Án þess að ég vilji fara út í stöðuna
hjá Búnaðarbankanum, þá er ljóst
að hún var ekki sú sama og hjá okk-
ur,“ segir Halldór.
„Það hefði vafalaust komið til
greina að hefja einkavæðingarferlið
með sölu hlutabréfa en lögin veittu
sem kunnugt er ekki heimild til
þess. En það er rangt að halda því
fram að hlutafjáraukningin í rílds-
bönkunum eigi sök á útlánaþensl-
unni, enda skeram við okkur ekki
úr hvað útlán varðar,“ segir Halldór
og getur þess einnig að nokkur tími
verði að líða áður en áhrifin af að-
haldsaðgerðum Seðlabankans komi
fram. „Eg hvet menn til að skoða
hvemig tölurnar fyrir maí verða og
álykta þá af því hvort þær aðgerðir
sem þegar hefur verið gripið til hafi
skilað árangri.“
Ekld náðist í bankastjóra Búnað-
arbankans í gær út af þessu máli.
Erlendur Magnússon hjá Fjár-
festingarbanka atvinnulífsins segir
að FBA hafi gætt þess að fara var-
lega í útlánum sínum á síðasta ári.
„Það er auðvitað ljóst að við það
að hlutafé ríkisbankanna var aukið
opnaðist möguleiki á auknum útlán-
um en þetta á auðvitað ekki við um
FB A því hér var ekki um aukningu á
hlutafé að ræða heldur einungis sölu
á hálfum eignarhlut ríkisins. Hvað
útlán varðar, þá fórum við mjög var-
lega í útlánaaukningu á síðasta ári
og var okkar aukning hér innanlands
þannig minnst af öllum bönkunum.
Raunar var heildarútlánaaukning
okkar nokkra meiri en íslandsbanka
en munurinn felst því að við voram
að hluta til að stækka safn okkar
með því að taka þátt í lánveitingum á
alþjóðamörkuðum og skilaði það fé
sér því ekki inn í íslenska hagkerfið.
Þetta gerðum við til að auka
áhættudreifingu okkar og ekki síður
vegna þess að ávöxtun miðað við
áhættu var betri erlendis en hér á
tímabili á síðasta ári. Við töldum
okkur með þessu móti fara betur
með hlutafé bankans heldur en ef
við hefðum dælt fjármunum inn á ís-
lenska markaðinn," segir Erlendur.
Þess má geta að útlán og mark-
aðsverðbréf innlánsstofnana hér á
landi jukust um ríflega 104 millj-
arða króna milli ára, námu í lok
mars 1998 294.365 milljónum króna
en voru komin upp í 398.788 milljón-
ir í mars á þessu ári, að því er fram
kemur í nýjasta hefti af Hagtölum
mánaðarins.
íslenska járnblendifélagió hf.
Samþykkt
að greiða ekki
arð um sinn
ÁRIÐ 1998 var sjötta árið í röð sem
verksmiðja Islenska jámblendifé-
lagsins sldlaði hagnaði. Stefnt er að
því að taka þriðja ofn verksmiðj-
unnar á Grandartanga í notkun í
haust. Þetta kom meðal annars
fram í ræðu stjómarformanns fyr-
irtækisins, Guðmundar Einarsson-
ar, á aðalfundi þess í Reykjavík í
gær. Tap varð á fyrsta fjórðungi
þessa árs er nam 157 milljónum
króna og ekki gert ráð fyrir hagn-
aði á árinu, að því er fram kom í
svari stjómarformanns við fyrir-
spurn á fundinum.
Samþykkt var einróma tillaga
stjómar um að af þessum ástæðum
skyldi ekki greiddur út arður auk
þess sem ráðist hefði verið í miklar
fjárfestingar í fyrra. Eiginfjárhiut-
fall lækkaði nokkuð í fyrra vegna
fjárfestinga og var um áramótin
75%.
„Stjóm félagsins hefur skilning á
því að óþolinmæði kunni að gæta
meðal hluthafa. Það er almenn
stefna Elkem að greiða ríflegan arð
til hluthafa þegar vel gengur en
halda fjármunum innanborðs þegar
gefur á. Hluthafar í Islenska jám-
blendifélaginu geta því vænst góðra
arðgreiðslna þegar afkoma félags-
ins snýst til betri vegar,“ sagði Guð-
mundur.
Með nýja ofninum kemst verk-
smiðjan í röð hinna stærstu og full-
komnustu í heimi á þessu sviði. Af-
köst nýja ofnsins era áætluð 42-45
þúsund tonn og er hann hannaður
og smíðaður af tæknideild norska
fyrirtækisins Elkem, sem nú á
meirihluta í Jámblendiverksmiðj-
unni. Einnig eiga íslenska ríkið og
japanska fyrirtækið Sumitomo stór-
an hlut.
Framleiðsla á kísiljámi var 62
þúsund tonn og framleiðsla á
hreinsuðum málmi með lágu kolefn-
is- og álinnihaldi tvöfaldaðist og
nam um 16 þúsund tonnum. Fram-
leidd vora um 13 þúsund tonn af
kísilryki og tókst að selja alla þá
Morgunblaðið/Ásdís
Guðmundur Einarsson, sijórnar-
fomaður íslenska jámblendifélags-
ins, í ræðustól.
framleiðslu, þar af keypti Sements-
verkmiðjan á Akranesi helminginn.
Stjórnarformaðurinn fjallaði um
orkumálin í ræðu sinni og sagði að
samkeppni hefði harðnað á alþjóða-
mörkuðum. Hefði því verið útilokað
fyrir Jámblendiverksmiðjuna að
búa við að slökkt væri bótalaust á
framleiðslutækjum hennar vegna
orkuskorts eins og gerðist í fyrra.
Nýr orkukaupasamningur við
Landsvirkjun hefði verið ein af
meginforsendum þess að Elkem
keypti meirihluta í fyrirtækinu og
ákveðið var að ráðast í stækkun.
„Nýi samningurinn tók gildi 1.
apríl á þessu ári og gildir hann til 20
ára,“ sagði Guðmundur. „Samning-
inánn byggist eingöngu á tryggðri
orku og réttur Landsvirkjunar til
stórvægilegrar og óbættrar orku-
skerðingar er því úr gildi fallinn en
jámblendifélagið greiðir á hinn bóg-
inn hærra verð fyrir orkuna."
Stjómarmenn fá 400 þúsund
krónur á ári hver fyrir störf sín, for-
maður þó 750 þúsund. Stjórnin var
endurkjörin. Elkem á fjóra af sjö
fulltrúum í stjóminni en varafor-
maður er Jón Sveinsson lögmaður.
Um 30 manns sátu aðalfundinn en
alls era hluthafar um 1.200.
V<tvl v\ú ekkl ^oH-
S\fc\yclé ölllAVA SÍfaVöI L\V\L\ÞA SlV\t\FA
|>ó iav sé eWi UeIiM<?i!
Með símtalsflutningi Símans er hægt að vísa öllum hringingum
í þinn síma, í annað númer hvar sem er á landinu.* Hægt er að
vísa símtölunum í venjulegan síma, farsíma, talhólf, svarhólf
eða boðtæki og sá sem hringir verður ekki var við flutninginn.
Sækja þarf um símtalsflutning hjá Símanum.
Símtal flutt: □ 21 □. Númerið sem á að flytja hringinguna
í er valið og síðan ýtt á □.
Þjónusta gerð óvirk: □ 210.
Sá sem hringir í númer sem flutt hefur verið greiðir fyrir það símtal, en eigandi
númersins sem flutt er úr greiðir fyrir símtal í það númer sem flutt er í.
www.simi.is
LEIÐBEININGAR UM NOTKUN SIMTALSFLUTNINGS
ÞÚ GETUR PANTAÐ SÉRÞIÓNUSTU Á ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐVUM SÍMANS OG í GJALDPRJÁLSU NÚMERI 7000