Morgunblaðið - 21.05.1999, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 21. MAÍ 1999 25
ÚR VERINU
að koma með nýjungar inn á þenn-
an markað.
Vantaði meira
vöruúrval
Framtíðarstefnan, sem mörkuð
var áður en við keyptum þessa
verksmiðju, byggðist á því að fs-
lenzkar sjávarafurðir voru hvorki í
framleiðslu né markaðssetningu á
framhaldsunnum sjávarafurðum á
meginlandi Evrópu. Við töldum
það vera visst veikleikamerki hvað
varðar vöruúrval og vöruform, sem
við getum boðið viðskiptavinum
okkar upp á. Við höfum um árabil
verið að bjóða viðskiptavinum okk-
ar upp á náttúrulegan fullpakkaðan
físk að heiman, en höfðum ekki tök
á því að bjóða viðskiptavinum okk-
ar í smásölu eða á veitingarhúsa-
markaðnum framhaldsunnar sjáv-
arafurðir. Hvorki fisk í sósu né
hjúpaðan eða brauðaðan fisk.
Keppinautar okkar gátu boðið
sömu aðilum og við mun breiðara
vöruúrval en við höfðum tök á á
þeim tíma. Því litum við svo á að
það væri mjög heppilegur kostur
að fjárfesta í framhaldsvinnslu, svo
framarlega að hægt væri að sýna
fram á að hægt væri að reka slíka
vinnslu með hagnaði til lengri tíma
litið. Það teljum við okkur geta
gert með þetta fyrirtæki.“
Mikil þýðing fyrir
framleiðendur á Islandi
Hvaða þýðingu hafa kaupin á
Gelmer fyrir framleiðendur á ís-
landi?
„Þetta fyrirtæki hefur gegnum
árin haft sterka stöðu á franska
markaðnum, var að velta um 7,2
milljörðum króna á ári. Við höfðum
rekið hér fyrirtæki, söluskrifstofu í
Boulogne Sur Mer í 10 ár. Sú starf-
semi fólst í að selja afurðir á mark-
aðinn í Frakklandi og Belgíu sem
nam 1,2 til 1,4 milljörðum króna
síðustu árin. Með þessum kaupum
vorum við að auka aðgang okkar að
markaðnum um að minnsta kosti 6
milljarða umfram það sem við höfð-
um.
Þessi aukni aðgangur að mark-
aðnum hefur komið sér vel fyrir
framleiðendur ÍS heima. Við höfum
verið að taka mun meira af þeim en
áður. Hlutdeild okkar í heildarút-
flutningi Islendinga inn á
franska markaðinn jókst
verulega á síðasta ári.
Við höfum einnig flutt
meira inn af skelfiski frá _______
íslandi, mest rækju, mið-
að við það sem áður var. Þessi
aukni aðgangur inn á markaðinn
hefur aukið möguleika framleið-
VINNSLA og sala á ferskum fiskafurðum er
vaxandi þáttur í starfsemi Gelmer. Hér er verið
að flaka steinbít frá Islsandi.
BLOKKIR eru aðalhráefni fiskréttaverksmiðjunnar og
er hún búin fúllkominni, sjálfvirkri niðurskurðarlínu
fyrir blokkir. Hér er verið að pakka fískikökum.
enda heima verulega á vaxandi sölu
hingað.
Hráefni til fullvinnslu í verk-
smiðjum okkar kemur að hluta til
að heiman, en að verulegu leyti er
þar um að ræða fisktegundir, sem
veiddar eru í sunnanverðu Atlants-
hafi, eins og lýsingur af ýmsu tagi
og þorskur og alaskaufsi úr Kyrra-
hafi. Að heiman tökum við bæði
hráefni fyrir fullvinnsluna og afurð-
ir sem við erum að endurselja hér á
markaðnum.
Nýjar afurðir
Það er stöðugt verið að vinna að
þróun nýrra afurða og jafnframt
verið að hætta framleiðslu á þeim,
sem ekki gefa nægilega mikið af
sér. Við erum að koma með nýja
framleiðslulínu inn á markaðinn.
Það eru grillmerktir bitar í sósu,
sem hafa fengið mjög góðar viðtök-
ur hjá þeim aðilum, sem bitarnir
hafa verið kynntir fyrir. Við vonum
að við verðum komnir með fulla
framleiðslu á þessari línu í lok árs-
ins.
Við teljum að með þessari nýju
------------------ línu séum við að svara
Rekið sam- vaxandi eftirspurn neyt-
kvæmt enda eftir náttúrulegri
rekstraráætiun afur(]> sem er tilb4úm tíl
____________ neyzlu a mjog stuttum
tíma. Hins vegar er al-
veg ljóst að markaður fyrir brauð-
aðan og hjúpaðan fisk er ekki í
vexti og jafnvel minnkandi á sum-
um svæðum. Þessi markaður er
engu að síður mjög stór, sá
langstærsti í fullunnum sjávaraf-
urðum í Evrópu. Magnið er því
mest í þessum vöruflokkum. Það
tekur tíma að koma með nýjar vör-
ur inn á markaðinn og fá fólk til að
breyta til. Við verðum því að vera á
báðum vígstöðvunum, stunda fram-
leiðslu á hefðbundnum vörum, sem
seldar eru í miklu magni og koma
síðan með nýjar vörur, sem hægt
og bítandi öðlast sess á markaðnum
við hlið hinna hefðbundnari af-
urða.“
Hátt hráefnisverð vandamál
Hráefnisverð hefur verið mjög
hátt. Hvemig hefur gengið að fást
við þann vanda?
„Það var verulegur vandi, þegar
við tókum við þessu fyrirtæki í lok
október 1997. Þá var hráefnisverð
byrjað að hækka, sérstaklega á
blokkum, sem eru uppistaðan í full-
vinnslunni. Birgðastaða fyrirtækis-
ins var þá mjög lág og við lentum
því í verulegum vanda í upphafi síð-
asta árs með að fá aðföng að verk-
smiðjunni á viðunandi ------------
verði. Við náðum að
vinna okkur út úr þess-
um vanda og ná tökum á
birgðastöðunni um mitt
árið, þannig að við höfð-
um nægt hráefni til að vinna úr.
Jafnframt náðum við að hækka af-
urðaverðið til að mæta þessum
hækkunum á hráefnisverði. Það er
aðalskýringin á því að við náðum að
rétta úr kútnum á síðari hluta árs-
ins ásamt því að nýta betur afkasta-
getuna.
Frá haustmánuðum 1998 hefúr
hráefnisverð heldur lækkað, bæði
alaskaufsi, ufsi og þorskur. Svo virð-
ist sem verðið sé áfram lækkandi, en
þetta er mjög sveiflukenndur mark-
aður og erfitt að spá í spilin. Það er
Söluaukning
er rúmlega
16%
þó ljóst að framboð á alaskaufsa er
að minnka. Það mun hafa varanleg
áhrif til lengri tíma litið. Fyrirtæki,
sem eru að nota þessar villtu teg-
undir til að vinna úr, verða að byggja
meira á framleiðslu úr eldisfiski í
framtíðinni, þar sem framboð er
stöðugt og vaxandi.
Fiskurinn heldur velli
Það er Ijóst að eftirspum eftir
fiskafurðum hér hefur dregizt sam-
an í kjölfar þessara miklu hækkana,
sem orðið hafa á fiskverði. Nú
finnst mér það vera spumingin,
hvort dragist meira saman, fram-
boðið eða eftirspumin. Það er ljóst
að framboð á botnfisktegundum
mun minnka á þessu ári.
Eftirspum hefur minnk-
að í kjölfar verðhækkana.
Þá er það spumingin
________ hvort ekki myndast
ákveðið jafnvægi milli
framboðs og eftirspurnar. Ég held
að þessu jafnvægi sé ekki náð enn
og hráefnisframboð eigi eftir að
dragast meira saman sem þýðir að
verð á hráefni verði tiltölulega hátt
til lengri tíma litið svo framarlega
að eftirspurnin haldist a.m.k
óbreytt.
í þessu samhengi verður einnig
að líta á það, að á síðustu 10 til 15
ámm hafa sjávarafurðir verið að
hækka meira í verði en önnur mat-
væli. Á sama tíma og verð á fiskaf-
urðum hefur hækkað umfram al-
menna verðlagsþróun, hefur eftir- j
spumin ekki minnkað svo nokkra 1
nemi. Sé litið á nautakjöt, alifugla-
kjöt og lambakjöt, hefur verð á
þeim afurðum lækkað miðað við al-
menna verðlagsþróun, en eftir- i
spumin hefur engu að síður dregizt
saman á sumum af þessum vöra-
flokkum. Sjávarafurðir hafa því
verið að treysta sig í sessi í neyzlu-
mynstrinu. Ég held að hollusta
fiskafurða, meiri kynning og aukin
gæði og betri dreifing ráði mestu
um þessa þróun. Fyrirtækin hafa
verið mjög framsækin og verið iðin
við að kynna nýjar vörur. Allt þetta
hefur gert fiskinn betri og aðgengi-
legri fyrir neytendur.“
Að bera í bakkafullan lækinn
i
Viltu tjá þig eitthvað um deilum-
ar við SH vegna kaupanna á Gel-
mer?
„Það er nú búið að fjalla anzi
mikið um þær í gegnum tíðina, það
væri að mínu mati að bera í bakka-
fullan lækinn að bæta einhverju við
það. Það er þó rétt að geta þess að
niðurstaða hefur fengizt í verzlun-
ardómstólnum í París sem var okk-
ur hagstæð."
Veruleg söluaukning
Hvernig lízt þér á framtíð fyrir-
tækisins?
„Framtíðin er bjartari nú en hún
var fyrir tveimur áram. Við höfum
verið að vinna að ákveðnum nýj-
ungum og eram að byggja fyrir-
tækið enn frekar upp, sérstaklega
til að nýta að fullu þessa miklu fjár-
festingu sem nýja verksmiðjan er.
Ég hef mikla trú á möguleikum
þessa fyrirtækis og náist að nýta
afkastagetuna, getur niðurstaðan
úr rekstrinum orðið góð. Þegar við
komum að þessum rekstri var nýt-
ingin á afköstum nýju verksmiðj-
unnar um 40%. f dag eram við
komnir upp í 65% til 70% af af-
kastagetunni og við ætlum okkur
að gera enn betur.
Það er rétt að geta þess að vera-
leg söluaukning varð hjá okkur á
seinnihluta síðasta árs. Þegar við
tókum við fyrirtækinu, tók okkur
nokkurn tíma að átta okkur á
rekstri þess og innviðum. Fyrri-
hluta síðasta árs var salan því
minni en á sama tíma árið áður. Við
náðum svo að rétta veralega úr
kútnum og á síðari helmingi ársins
nam aukning í sölu um 20%, en allt
árið varð aukningin um 12%.
Sé litið á fyrstu fjóra mánuði
þessa árs, nemur salan 3,3 milljörð-
um króna á móti rétt rúmum 2,8
milljörðum á sama tíma 1998. Sölu-
aukningin er því rúm 16%. Það sem
er ánægjulegast við þessar tölur er
veraleg aukning í sölu á ferskum
afurðum, sem er um 40% þessa
fyrstu fjóra mánuði. í magni er um
sömu hlutfallsaukningu að ræða
þetta tímabil. Árið byrjar því alveg
þokkalega hjá okkur og er nokkum
veginn í takt við þær áætlanir, sem
við höfum gert. Fyrirtækið er rekið
samkvæmt rekstraráætlun," segir
Höskuldur Ásgeirsson.