Morgunblaðið - 21.05.1999, Side 58
58 FÖSTUDAGUR 21. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
BREF
TIL BLAÐSINS
Hundalíf
'l |1'11Ég ve/t ekki af
Ljóska
Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Ofbeldi
Frá Karli Jónatanssyni:
OFBELDI launað, eða ekki launað
með ofbeldi. Par er átt við talsvert
háværa hópa sem um þessar
mundir deilir fast á, Nato fyrir loft-
árásir á Serba í Júgóslavíu og
þeirra slagorð eru; Ofbeldi á ekki
að launa með ofbeldi. Mér dettur í
hug atvik sem skeði þegar ég var
ungur. Foreldrar mínir voru ný-
fluttir til Reykjavíkur og leigðu
íbúð með einstæðri móður. Sú átti
bróður sem var mjög drykkfelldur
og þá oftast í slagsmálum. Við köll-
um hann bara Guðmund. Pabbi
heitinn var sérstakt ljúfmenni sem
trúði engu illu á nokkum mann.
Guðmundur hafði komið nokkrum
sinnum í heimsókn til systur sinn-
ar, og hafði pabbi því orðið honum
málkunnugur. Þetta var á þeim ár-
um sem fólk heimsótti stundum
vini og vandamenn. Við hjónin vor-
um í sunnudagsheimsókn hjá for-
eldrum mínum. Þar kemur Guð-
mundur, vel þéttur og í afleitu
skapi. Fljótlega er hann svo farinn
að ganga í skrokk á systur sinni og
vinkonu hennar sem stödd var hjá
henni. Fírinn var ekki árennilegur
þar sem hann var auk heldur tals-
vert reyndur boxari. Pabbi hljóp í
kringum hann og bað Guðmund um
að láta ekki svona. Guðmundur
virtist frekar æsast við þessi vinar-
hót. Þar kom að ég gat ekki lengur
horft upp á þetta aðgerðarlaus. Eg
stökk á hann og það skipti engum
togum að hann skall í gólfið á
grúfu, ég ofan á hann og náði báð-
um höndum hans aftur fyrir bak og
öskraði á pabba, að koma með eitt-
hvað og binda brjálæðinginn. En
pabba fannst víst alveg ótækt að
binda aumingja Guðmund. Og rétt
á eftir missti ég hann úr hálstak-
inu.
Hann æddi á systur sína og með
þungum 3-4 höggum veitti hann
henni þann áverka sem þýddi hálfs
mánaðar sjúkrahúsvist. Eg réðst á
óþokkann í annað sinn þótt seint
væri og fyrir einhverja heppni kom
ég góðu höggi á kjammann á honum
sem hálfrotaði hann. Ég batt hann
svo sjálfur og hringdi á lögreglu og
sjúkrabíl, það var ein manneskja
sem lögð var inn á sjúkrahús, en
hefði engin verið, hefði pabbi heit-
inn verið búinn að læra nógu mikið
af lífinu. Og hverjir eru svo þessir
Serbar sem Nato er nú að koma
svona óskaplega illa fram við? Jú,
Serbar eru það þjóðarbrot sem því
miður stjóma nú Júgóslavíu með
harðri hendi með þann brjálaða
mann Slobodan Milocevics í broddi
fylkingar. Þessi Júgóslavíuher (Ser-
bamir) ræðst til atlögu í þeim fylkj-
um þar sem Serbar eru orðnir í
minnihluta, með fádæma grimmd á
vamarlaust fólkið. Hugkvæmni
þeirra í pyntingaraðferðum kemur
aðallega fram í þremur myndum.
Hverskonar líkamspyntingum.
Önnur hersveit sérhæfir sig í að
nauðga stúikum og bömum.
Þriðja hersveitin er kannski
heldur mannúðlegri, myrðir fóm-
arlambið strax og fleygir því í
fjöldagröf. Þetta hefur Serba-her-
inn verið að dunda sér við sl. 4-5
ár. Fyrst vom það múslimamir og
svo nú undanfarið ár albanska
þjóðarbrotið í Kosovo og hvaða
saklausu borgarar skyldu það nú
vera sem nokkrir sértrúarhópar
hér heima á Islandi em svo að æsa
sig út af? Jú, það em að mestu fjöl-
skyldur og vinir serbneska hersins,
pyntinga- og nauðgunarsérfræð-
inganna.
Ég viðurkenni að maður hér á Is-
landi, hvort sem hann heitir Jón eða
séra Jón, á kannski í erfiðleikum
með að dæma um þessi vandræða-
mál suður á Balkanskaga. En nú er
létt að fá lýsingu á staðreyndum
fyrir þá sem hugsa mikið um þetta.
Hér em komnir til að búa með okk-
ur á annað hundrað Kosovo-Alban-
ar. Rétt sloppnir frá hildarleiknum.
Farið bara og spyrjið þetta fólk.
Eiga Serbamir skilið að Nato ráðist
á þá og reyni að stoppa þá? Svarið
þarf aðeins að verða já eða nei.
KARL JÓNATANSSON,
Hólmgarði 34, Reykjavík.
Smáfólk
PITCH IT
TO'lM,YOiy
blockhead:
3-3o
I CAN‘tHEARYOO,MI55
KN0W-IT-ALL,U)0R5T PLAYER
IN THE HI5T0RY OFTHE 6AME,
BECA05E YOO'KE FACIN6
THE UIRONO UIAY '_______.
K~zc
Reyndu að hitta,
aulinn þinn!
Ég heyri ekki til þín, ungfrú
allt-veit-ég, versti leikmaður
í sögu leiksins, því að þú
snýrð þér í öfuga átt!
Er þetta betra?
Réttmætt skotmark
Frá Lúðvík Júlíussyni:
ÞAÐ ER bannað samkvæmt al-
þjóðalögum að ráðast á skotmörk
þar sem hætta er á mannfalli meðal
almennra borgara. Að segja að þorp
sé réttmætt skotmark vegna þess að
þar sé herbækistöð er rangt. Það er
kominn tími til að Nato fari sjálft
eftir alþjóðalögum í stað þess að
refsa saldausum borgumm. Heim-
urinn var sleginn vegna frétta í vet-
ur þar sem Serbar vom sakaðir um
fjöldamorð, dráp á 25 Kosovo-Al-
bönum. Hvernig vitum við að þá,
eins og núna, hafi þetta ekki verið
slys? Hvar drögum við mörkin þeg-
ar við tölum um slys? Má Nato
drepa 100 en Serbar aðeins 25?
Þetta er viðbjóðslegur talnaleikur
og honum verður að ljúka sam-
stundis!
Við verðum að hætta að líta á okk-
ur sjálf sem yfirburðar vegna þess
eins að okkur gengur betur en öðr-
um. Við verðum að hætta að þvinga
fólk til þess að fara eftir vilja okkar
með hervaldi. Okkar vilji er líka oft
brenglaður þar sem fréttaflutningur
á Vesturlöndum er oft einhæfur og
gefur almenningi rangar forsendur
til þess að mynda sér eigin skoðanir.
Ég er á móti loftárásunum, ekki
vegna þess að ég styðji Milosevic.
Að geta bara valið um stuðning við
Nato eða Milosevic, er barnaskapur
sem ýtt er undir af stjórnmála-
mönnum og fréttamönnum. Vegna
þess að Nato hefur mistekist að
mynda sér stefnu og mistekist að
hindra átöfy, síðustu 20 árin á
Balkanskaga, þá finnst mér það
rangt að saklausir borgarar gjaldi
fyrir það með lífi sínu. Gefum frið
möguleika!
LÚÐVÍK JÚLÍUSSON,
3330 W Greenway Rd #2109 Phoenix,
AZ 85053, Bandaríkjunum.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.