Morgunblaðið - 21.05.1999, Side 64
'j64 föstudagur 21. maí 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FOLK I FRETTUM
ÞÓRUNN Edda Ansbach systir Sólveigar, Margrét Benediktsdóttir og Högna Sigurðar-
dóttir móðir Sólveigar ásamt henni sjálfri í frumsýningarhófinu.
HORFT yfir hafið við Hótel Hilton í Cannes.
KVIKMYNDIN Haut les coeurs,
sem leikstýrt er af íslendingnum
Sólveigu Ansbach, var frumsýnd á
Kvikmyndahátíðinni í Cannes í
fyrrakvöld og fékk frábæra dóma
hjá frönskum fjölmiðlum í gær, m.a.
fullt hús stiga hjá Liberation.
Myndin er sýnd í opinberri dag-
skrá á hátíðinni þar sem leikstjórar
eru í brennidepli og er einnig gjald-
geng í keppnina um verðlaunin Ca-
mera D’Or, sem veitt eru leikstjór-
um sem eru með sína fyrstu mynd í
fullri lengd á hátíðinni.
Kvikmyndin Haut les coeurs fjall-
ar á átakanlegan og hrífandi hátt um
ófríska konu sem greinist með
krabbamein. Þrátt fyrir tragískt við-
fangsefni verður myndin aldrei yfir-
þyrmandi, m.a. vegna ástarsögunnar
sem ofin er við atburðarásina. En
áhrifamikil er hún og það mátti víða
sjá vasaklúta á lofti þegar myndin
var sýnd í bíósalnum í Noga Hilton-
hótelinu við ströndina í Cannes.
Sólveig Ansbach er fædd í Vest-
mannaeyjum, dóttir Högnu Sigurð-
ardóttur arkitekts, og er tíður gest-
ur á íslandi þrátt fyrir að hafa alla
tíð búið í Frakklandi. Hún lærði
kvikmyndagerð og hefur gert heim-
ildarmyndir. Síðast var það mynd
sem fjallaði um fimm konur sem
rændu banka í Suður-Frakklandi og
var hún sýnd á frönsku sjónvarps-
stöðinni Canal +.
Kvikmyndahátíðin í Cannes
Áhorfendur tóku andköf
Haut les coeurs nefnist hátíðarmynd Sól-
veigar Ansbach, sem frumsýnd var í
Cannes í fyrrakvöld og fékk frábæra
dóma hjá fjölmiðlum í Frakklandi í gær.
Pétur Blöndal talaði við Sólveigu um
myndina og viðtökurnar.
- En hvernig kom það til að hún
gerði leikna kvikmynd?
„Eg skrifaði handritið, varð mér
úti um framleiðanda og eftir það var
fcnginn rithöfundur til að ondur-
skrifa handritið. Við fengum síðan
styrk frá franska kvikmyndasjóðn-
um.“
- Hvað heiUaði þig við söguna?
„Það tók mig langan tíma að
koma mér að því að gera kvikmynd
í fullri lengd. Eg byrjaði á því að
fást við heimildarmyndir vegna þess
að mér fannst ærið nóg af kvik-
myndum fyrir í heiminum. Ég var
9s[œturjjaCinn
Smiðjuvegi 14, ‘Kópavofli, sími 587 6080
Dans- og skemmtistadur
í kvöld og laugardagskvöld
leika Hilmar Sverrisson og
Anna Vilhjálms
Opið frá kl. 22—3
Næturgalínn — alltaf lifandi tónlist ■
að leita að sögu sem væri þess virði
að verja í hana þremur árum. Mér
finnst áhugavert að gera sögu um
fólk sem þyrfti að berjast fyrir til-
verugrundvelli sínum; ég vildi gera
mynd um baráttukonu sem gæti
eins verið í stríði.“
-1 myndinni tekst þér að þræða
einstigið milli ijúfrar ástarsögu og
biturs spítaladrama.
„Þetta mátti ekki verða yfirþyrm-
andi mynd að hætti Bandaríkja-
manna. Ég vOdi halda áhorfendum í
fjarlægð og í hvert skipti sem við
hefðum hæglega getað komið fólki
til að gráta þá reyndum við að
sneiða hjá því,“ segir hún og bætir
við með elskulegu brosi: „Það grét
nú samt.“
- Myndin verður að teljast afar
raunsæ.
„Já,“ svarar Sólveig og kinkar
kolli. .jLeikararnir stóðu sig frábær-
lega. Ég bað þá um að verja miklum
tíma með læknum á undirbúnings-
tímabilinu og fylgjast með látbragði
þeirra, hvernig þeir gengju um og
hlustuðu á sjúklinga. Við tókum
myndina líka upp á spítulum og
fengum starfsfólk í aukahlutverkin.
Ég vildi líka hafa fæðinguna í
myndinni raunverulega og að sama
barnið yrði út í gegnum myndina.
Allir sögðu mér að það væri ómögu-
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
SÓLVEIG lék á trommu með
hljómsveit í
frumsýningarhófinu.
legt og ráðlögðu mér að notast við
mun fleiri böm. En fyrsta konan
sem ég talaði við féllst á að vera
með í myndinni eftir að hafa lesið
handritið. Það var mjög spennandi
að fá að mynda fæðinguna. Ég var
orðin svo spennt að það var engu
líkara en ég væri sjálf ófrísk. Við
fylgdumst síðan með barninu fyrstu
þrjár vikurnar og þurftum aldrei
önnur.“
- ísland kemur við sögu.
„Ég vildi að ísland yrði í mynd-
inni vegna þess að það er mikil-
vægt fyrir mér. En það hefði verið
of dýrt að fara þangað enda þjónaði
það ekki sögunni. Mér fannst hins
vegar koma vel út að láta bróður
hennar ljúga því að hann væri að
fara til Islands til þess að komast
hjá því að horfa upp á veikindi
hennar."
Hættu að raka d þér fótleggina!
Notaðu One Touch hdreyðingarkrem! Sársaukalaus ogfljótleg
aðferð sem skýrir vinsældir One Touch á íslandi í 12 ár.
!
Sensitive
■&!ir
viokvæma
húð
Bikini
svæði
- Jafnvel þótt hann færi ekki
kemur hann með nákvæma lýsingu
á Islendingum.
„Já,“ segir Sólveig og hlær.
„Hann segir þá vinalegt fólk sem
tali ekki mikið nema þegar þeir fái
sér í glas, þá syngi þeir. Og það er
rétt. Islendingar syngja gjarnan
þegar þeir fá sér neðan í því.“
- Hvað tekur nú við?
„Ég á eftir að verja miklum tíma í
að kynna myndina og markaðssetja
hana. Síðan langar mig til að skrifa
handrit að annarri mynd. Ég er með
hugmynd í kollinum en er ekki sest
við skriftir ennþá. Það á eftir að
taka nokkurn tíma en þá langar mig
aftur til að vinna með sömu
leikkonu og er í aðalhlutverkinu í
þessari mynd.“
- Hún fær góða dóma eins og
myndin í heild sinni.
„Já,“ svarar Sólveig. „Myndin
fékk frábæra dóma og það var stór-
kostlegt að fylgjast með áhorfend-
um á frumsýningunni sem lifðu sig
svo inn í myndina að þeir tóku and-
köf í sumum atriðunum, til dæmis
þegar hún lætur raka af sér hárið.
Þeir hlógu líka að öllum atriðunum
sem áttu að vera fyndin. Þetta var
aðeins önnur sýningin á myndinni
með áhorfendum svo ég var mjög
hrærð yfir viðtökunum."
- Mun fólk vilja horfa á mynd um
krabbamein?
„Sumir eiga eflaust eftir að forð-
ast það og þetta er ákveðið vanda-
mál sem ég á eftir að takast á við.
En ég vona að orðspor myndarinnar
verði gott og að fólk átti sig á því að
það er meira við myndina en það.“
- Pú lékst með hljómsveit í frum-
sýningarveislunni. Ertu kannski
tónlistarmaður eins og aðalsöguper-
sónan í myndinni?
„Kærastinn minn leikur með
þessari blásarasveit og ég lék á
trommu með þeim fyrir nokkrum
árum. Mér datt í hug að það gæti
verið skemmtileg uppákoma að fá
þá í veisluna. Astæðan fyrir því að
aðalsögupersónan er tónlistarmaður
er að þá þarf hún að spila fyi-ir
áhorfendur og á erfitt með að vinna
heilsu sinnar vegna. Ef hún hefði
verið rithöfundur hefði hún getað
lokað sig af og haldið áfram að
skrifa en það er ekki hægt í hljóm-
sveit.“
- Pað eru einmitt íslendingar í
hljómsveitinni í myndinni.
„Já, Edda Erlingsdóttir píanó-
leikari spilar með hljómsveitinni og
Helga Guðmundsdóttir. Edda kem-
ur raunar meira við sögu því hún
heimsækir aðalsögupersónuna á
spítalann. Hún er frænka mín og ég
vildi endilega hafa hana í myndinni.
Hún spilar í raun og veru með
hljómsveitinni, sem er afar vinsæl
hér í Frakklandi."
- Af hverju fær Friðrik Þór Frið-
riksson þakkir?
„Hann reyndi að liðsinna okkur
og útvega okkur styrk. Það gekk
ekki eftir en hann hefur alltaf
reynst mér vel og ég vildi bara
senda honum kveðju."
- Hvenær kemurðu svo heim?
„Vonandi þegar myndin verður
sýnd á íslandi því alla leikarana
dauðlangar til að fara þangað. Nú
verð ég að koma því í kring að
.., myndin.vnrði. lekin .þar-lil.sýninga.“.