Morgunblaðið - 03.06.1999, Qupperneq 22
22 FIMMTUDAGUR 3. JÚNÍ 1999
MORGUNB LAÐIÐ
ÚR VERINU
V orleiðangur Hafrannsóknastofnunar
Ástand sjávar
við landið
almennt gott
ÁRLEGUM vorleiðangri Hafrann-
sóknastofnunar lýkur í dag en í
honum eru gerðar ýmsar mælingar
á ástandi sjávar við ísland. Mæl-
ingamar nú gefa vísbendingar um
góð skilyrði fyrir vöxt nyyastofna í
vor og sumar að sögn Olafs Ast-
þórssonar, leiðangursstjóra um
borð í hafrannsóknaskipinu Bjarna
Sæmundssyni.
Vorleiðangur Hafrannsókna-
stofnunar er í raun vöktun á
ástandi sjávar, næringarefnum og
gróðri í kringum landið. Ennfremur
er safnað sýnum til mælingar á
geislavirkum efnum í sjó sem er
samvinnuverkefni við Geislavarnir
ríkisins. Þá er safnað sýnum til
erfðarannsókna á rauðátu, endur-
nýjaðar straummælingalagnir og
skoðaðar svpkallaðar setgildrur.
Ólafur Ástþórsson leiðangurs-
stjóri segir mælingar í leiðangrin-
um sýna að ástand sjávar sé al-
mennt gott. „Það er mikill hlýr og
saltríkur sjór við sunnan- og vestan-
vert landið. Hann nær einnig inn á
norðurmið í meira mæli en undan-
farin ár. Mælingar á átu hafa einnig
sýnt að hún er yftr meðallagi fyrir
vestan landið og norðan, í kringum
meðallag fyrir austan en lítillega
undir meðallagi fyrir sunnan land.
En á heildina litið teljum við að
þetta ástand gefí góðar vísbending-
ar fyrir vöxt nytjafiska í vor og
sumar. En staðfesting á því fæst
ekki fyrr en með niðurstöðum seiða-
talningar sem gerð verður i haust,“
sagði Ölafur.
Sími 535 9000
bremsukerfiö
idSíaTval
Fax 535 9040
www.bilanaust.is
Bendix
PowerBrake fegss
Onginal
, _ ^ „ Borgartúni 26 • Skeifunni 2
á 4 StOOUm Bíldshöföa 14 • Bæjarhrauni 6
Morgunblaðið/Muggur
ÁSTÞÓR Gíslason líffræðingur og bandaríska vísindakonan Sara Smolimask taka átusýni til erfðagreining-
ar um borð í hafrannsóknaskipinu Bjarna Sæmundssyni í árlegum vorleiðangri Hafrannsóknastofnunar.
„Rauði herinn“ á Vestfjörðum í rekstrarerfíðleikum
Starfsfólk hefur ekki
fengið greidd launin
HATT I 300 starfsmenn þriggja
fiskvinnslufyrirtækja á Vestfjörð-
um, sem rekin eru af sömu aðilum,
hafa ekki fengið greidd laun fyrir
síðustu viku. Framkvæmdastjóri
fyrirtækjanna segir að vonandi
verði hægt að borga út launin í dag.
Fyrirtækin eru Rauðsíða ehf. á
Þingeyri, Rauðfeldur ehf. á Bíldudal
og Bolfiskur á Bolungarvík og hafa
fyrirtækin gengið undir nafninu
Rauði herinn. Greiða átti út viku-
launin til starfsfólks sl. föstudag.
Ketill Helgason, framkvæmdastóri
fyrirtækjanna, segir fyrirtækið hafa
sótt um lán til Byggðastofnunar íyr-
ir nokkrum mánuðum og fengið
lánsloforð íyrir um 100 milljónum
króna gegn ákveðnum skilj/rðum.
Síðan hafi verið unnið að því að upp-
fylla þessi skilyrði. „Við höfum lokið
þeirri vinnu en höfum hinsvegar
ekki fengið afgerandi svar frá
Byggðastofnun um hvenær á að
borga út lánið. Aðrir lánadrottnar
hafa því margir hverjir orðið tor-
tryggnir og halda að sér höndum,
þar á meðal Sparisjóður Bolungar-
víkur. Eg hef hinsvegar ekki trú á
öðru en við fáum lánið frá Byggða-
stofnun en það setur okkur vissu-
lega í vandræði að vita ekki hvenær
það verður. Um leið og það liggur
fyrir getum við borgað út launin."
Ketill segir málin vonandi skýrast
í dag og þá verði hægt að borga út
launin.
Engar skýringar fengið
Starfsfólk Rauðsíðu ehf. á Þing-
eyri lagði niður vinnu um miðjan
dag í gær og fundaði um málið. Þar
féllst starfsfólkið á, að beiðni fram-
kvæmdastjórans, að hefja vinnu á
ný gegn því að hann mætti til fundar
við það áður en vinna hæfist í dag og
gerði grein fyrir stöðu mála. Gunn-
hildur Elíasdóttir, trúnaðarmaður
starfsfólks Rauðsíðu, sagði í gær að
starfsfólk hefði engar skýringar
fengið á því hvers vegna launin
væru ekki greidd út. Einungis
heyrðust sögusagnir um að félagið
ætti í erfiðleikum og verið væri að
vinna að endurfjármögnun þess.
Hún sagði það koma sér mjög illa
fyrir marga starfsmenn að fá ekki
launin greidd, einkum þá útlensku
starfsmenn sem vinni hjá félaginu
en fæstir þeirra hafi greiðslukort og
þurfi því nauðsynlega á peningunum
að halda. Hjá Rauðsíðu ehf. á Þing-
eyri starfa um 100 manns, þar af 60
útlendingar.
Gunnhildur sagði óánægju hafa
gætt með launagreiðslur um nokkurt
skeið vegna þess hve seint þær hafa
borist. „Samkvæmt samningum á að
greiða út launin á fimmtudögum séu
þau lögð inn á reikninga en á fóstu-
dögum séu þau greidd í peningum.
Launin okkar eru hinsvegar yfirleitt
ekki lögð inn fyrr en seint á föstu-
dögum og lokast inni í bankanum hjá
mörgum yfir helgina. En við vonum
að úr þessu máli leysist farsællega
og við fáum launin okkar greidd sem
fyrst. Við höfum áður upplifað gjald-
þrot helsta atvinnufyrirtækisins hér
á staðnum og viljum síður gera það
aftur,“ sagði Gunnhildur.
*n
C
5
O
2
á
I
Stuðningur þinn setur
æskufólk íöndvegi með
íslenska þjóðfánanum.
Flöggum á góðum degi
SKATAHREYFINGIN
Skattfrjálsir
vinningar
• •
Glæsileg amerísk Palomino fellihýsi.
— Hvert að verðmæti kr. 585.000,-
Voruuttektir
Vöruúttektirí Kringlunni.
— Hverað verðmæti kr. 100.000,-
KRINGWN
Ferðirfyrirtvo til Dóminíkana
á fimm stjörnu hóteli, allt innifalið.
— Hver að
íslenska
fánann
í öndvegi
Ferðirfyrirtvo til Malasíu / Thailands
í tvær vikur með fararstjóra.
— Hver að verðmæti kr. 250.000,-
Glæsilegir eðalvagnar, hlaðnir búnaði. — Hverað verðmæti kr. 1.600.000,-
verðmæti kr. 220.000,-
Greiða má með greiðslukorti í síma 562 1390 — dregið 17.júníi999