Morgunblaðið - 03.06.1999, Síða 63
Opið
mánud.-föstud. kl. 10-18,
laugardaga iokað frá 1. ]úní
Mörkin 3,
sími 568 7477.
Ath Sendum í póstkröfu. Grænt núrner 80Q-573Q. Simi 562-9730. Fa/ 562-9731
LAUGAVEG! 18 B REYKJAVIK
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ÚTSKRIFTARHÓPUR Tækniskólans.
Tækniskóli íslands
60 nemendur brautskráðir
TÆKNISKÓLI íslands braut-
skráði nemendur laugardaginn
29. maí. Athöfnin fór fram í
Breiðholtskirkju.
Að þessu sinni útskrifuðust 60
nemendur; 35 nemendur úr
frumgreinadeild luku raun-
greinadeildaprófi, sem er sam-
bærilegt við stúdentspróf af
tæknisviði, 7 útskrifuðust úr
byggingadeild, 2 úr véladeild, 2
úr heilbrigðisdeild, 10 úr rekstr-
ardeild og 4 luku 1. ári í raf-
magnsfræði, en þeir þurfa að
ljúka námi súiu eriendis.
Guðbrandur Steinþórsson,
rektor, óskaði útskriftarhópnum
til hamingju með mikilvægan
áfanga. Hann sagði vaxandi þörf
fyrir tæknimenn á Islandi. Guð-
brandur sagði frá stefnuskrá
skólans sem gefin var út í vetur,
en þar er skólanum mörkuð
staða sterks fagháskóla, háskóla
atvinnulífsins.
Ákveðið hefur verið að stofna
Hollvinafélag Tækniskóla Is-
lands. Meginmarkmiðið með fé-
laginu er að efla tengsl við fyrri
nemendur skólans, fyrirtæki,
stofnanir og aðra velunnara skól-
ans. Stofnfundurinn verður hald-
inn í Tækniskólanum þann 3. júní
n.k. og hefur fyrrverandi og nú-
verandi nemum verið boðið
ásamt fulltrúum ýmissa fyrir-
tækja og stofnana. Utskriftar-
hópnum var sérstaklega boðið á
stofnfundinn.
Við útskriftarathöfnina var
Tækniskóla Islands afhentur
tölvubúnaður að gjöf frá Opnum
kerfum hf., umboðsaðila Hew-
lett-Packard á Islandi. Það voru
8 HP Vectra VE/4 einkatölvur,
sem hver um sig er búin Intel
Pentium 200MHz MMX örgjörva,
2,1 GB hörðum diski, 32 MB
vinnsluminni og Windows 95
stýrikerfi. Það var Frosti Bergs-
son, framkvæmdasljóri Opinna
kerfa, sem afhenti gjöfina. Þessi
tölvubúnaður verður notaður í
nýrri kennslustofu. Þar verða
kenndir hönnunar- og burðar-
þolsáfangar með aðstoð tölvu-
tækninnar.
Þá fékk skólinn FEM burðar-
þolsforrit að gjöf til notkunar í
áföngum í tækni- og iðnfræði.
Sportlegur sumarfatnaður
frá gardeur
Sumarbuxur
Bermudas
Stuttbuxur
Pils
Bolir
Uéuntu
verzlun v/Nesveg,
Seltjarnarnesi, sími 561 1680.
FIMMTUDAGUR 3. JÚNÍ 1999 63 ,
GLAUGARDAG