Morgunblaðið - 16.06.1999, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 16.06.1999, Blaðsíða 1
133. TBL. 87. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 16. JÚNÍ 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Liðsmenn Júgóslavíuhers hverfa á brott frá Kosovo með vígvélar sínar Gífurleg spenna í mið- borg Pristina Pristina, Rðin. Reuters, AFP. MIKIL spenna ríkti í Kosovo í gær á sama tíma og serbneskir her- menn streymdu út úr Kosovo en Atlantshafsbandalagið (NATO) hafði krafíst þess að allir liðsmenn Júgóslavíuhers yrðu á brott úr megin- hluta Kosovo fyrir miðnætti í gærkvöldi. I Pristina létust fjórir þegar serbneskir byssumenn hófu skothríð á hóp manna og í bænum Gnjil- ane, í Suðaustur-Kosovo, sögðu íbúar að þrettán manns hefðu særst þegar serbneskur maður kastaði handsprengju að hópi Kosovo-Albana sem verið höfðu að fagna brotthvarfí júgóslavneska herliðsins. Mun á þriðja tug manna hafa fallið í skærum síðan hersveitir NATO héldu inn í Kosovo á laugardag, að sögn bandaríska varnarmálaráðuneytisins. Þúsundir Kosovo-Serba sáu í gær þann kost vænstan að fylgja í kjöl- far serbnesku hermannanna og yf- irgefa heimili sín í Kosovo. Óttast Serbamir grimmilega hefnd Kosovo-Albana, sem nú streyma aftur til síns heima í þúsundatali. Greindi Alþjóðaráð Rauða krossins í Genf frá því að meira en þrjátíu þúsund serbneskir íbúar Kosovo hefðu þegar flúið héraðið og gengu sumir svo langt að kveikja í híbýlum sínum er þeir lögðu af stað, sem þótti benda til að þeir gerðu ekki ráð fyrir að snúa aftur til Kosovo. Stóðu heilu íbúðarhverfin í Kosovo Polje, úthverfi Pristina, þar sem Serbar voru í meirihluta, í ijósum logum. Breskir hermenn handtóku fimm liðsmenn Frelsishers Kosovo (UCK) í fyrrinótt eftir að Serbi hafði orðið fyrir skotárás í Pristina. Óttast margir að í raun verði það eitt helsta verkefni KFOR-friðar- gæslusveitanna að stemma stigu við umsvifum UCK þegar júgóslav- neski herinn er á bak og burt úr héraðinu. Milosevic hvattur til afsagnar Það vakti nokkra athygli í gær þeg- ar hin áhrifamikla Rétttrúnaðar- kirkja í Serbíu sendi frá sér yfirlýs- ingu þar sem Slobodan Milosevic, forseti Júgóslavíu, var hvattur til að gera þjóð sinni þann greiða að segja af sér embætti. Leiðtogar flestra vestrænna þjóða hafa gert það að skilyrði fyrir fjárhagsaðstoð við Júgóslavíu, svo hefja megi upp- byggingu að nýju í landinu eftir ell- efu vikna loftárásir NATO, að Milosevie víki. Milosevic lét hins vegar engan bilbug á sér finna í gær og hækkaði í tign þá herforingja sem farið höfðu fyrir júgóslavnesku herdeildunum í Kosovo. Jafnframt spáði hann því að Serbar myndu brátt lifa í sátt og samlyndi við aðrar þjóðir heimsins. Á sama tíma neitaði Milan Milutinovic, forseti Serbíu, að sam- þykkja afsögn öfgaþjóðemissinnans Vojislavs Seseljs, aðstoðarforsætis- ráðherra Serbíu, og fimmtán ann- arra ráðherra Róttæka flokksins (SRS), sem ekki vildu sætta sig við veru NATO-hermanna í Kosovo. Fleiri fjöldagrafir finnast Liðsmenn KFOR-friðargæslu- sveitanna héldu í gær áfram að finna ummerki um fjöldamorð Serba í Kosovo. Hollenskir her- menn fundu brunnar líkamsleifar meira en tuttugu manna í fjöldagröf við Velika Rrusa, nærri bænum Prizren. Jafnframt greindi ítalska fréttastofan ANSA frá því að ítalsk- ir hermenn hefðu fundið tvær fjöldagrafir nærri bænum Pec. Er talið að í annarri þeirra liggi allt að 120 fórnarlömb ódæðisverka Serba í héraðinu. ■ Sjá umfjöllun á bls. 30-31. Reuters JÚGÓSLAVÍUHER á leiðinni út úr Kosovo í gær. Þusundir flóttamanna frá Kosovo hugsa ser til hreyfings Hunsa viðvaranir og halda heim Tirana, Blace, Pristina. Reuters, AFP. ÞUSUNDIR flóttafólks frá Kosovo héldu í gær heim á leið úr flóttamannabúðum í Makedóníu og Albaníu þrátt fyrir viðvaranir talsmanna Atlants- hafsbandalagsins (NATO) og fulltrúa Sameinuðu þjóðanna sem beðið höfðu flóttafólkið að sýna þolinmæði á meðan KFOR-friðargæslusveitirnar gengju úr skugga um að fólkinu væri óhætt að snúa heim. Einn Kosovo-Albani lést í gær og annar særðist alvarlega er þeir stigu á jarð- sprengju skömmu eftir að þeir höfðu farið yfir landamæri Makedóníu og inn í Kosovo. „Eg vil koma mikilvægum skilaboðum á fram- færi við flóttafólkið,“ sagði Dennis McNamara, sendifulltrúi Flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNHCR) á Balkanskaga, á frétta- mannafundi í Pristina, héraðshöfuðborg Kosovo. „Ekki koma strax heim! Það er hættulegt!" sagði McNamara og lagði áherslu á þá ósk sína að fólk- ið biði þar til búið er að kortleggja öll jarð- sprengjusvæði í Kosovo, og þar til brottflutningi serbneskra hersveita frá Kosovo er lokið. Flestir létu þessi vamaðarorð. hins vegar ekki stöðva sig enda gat flóttafólk vart hamið eftir- væntingu sína eftir því að komast heim til sín á nýjan leik. „Við erum búin að fá nóg,“ sagði Naim Mustafa sem dvalið hefur ásamt fjölskyldu sinni í meira en tvo mánuði í búðum í Makedóníu. „Við höfum fregnir af því að hús séu enn uppistand- andi í Pristina. Og jafnvel þótt okkar hús hafi ver- ið lagt í rúst er a.m.k. landið enn til staðar.“ Talið er að a.m.k. þrjú þúsund Kosovo-Albanar hafi haldið heim á leið úr flóttamannabúðum í Albaníu í gær og svipaður fjöldi er sagður hafa yfirgefið Makedóníu. „Fólkið sýnir vilja sinn í verki," sagði Soren Jessen-Petersen, aðstoðaryf- irmaður UNHCR. „Þessir fólksflutningar aukast jafnt og þétt.“ Hundruð bíla biðu í biðröð við landamærastöð- ina í Blace í Makedóníu. Lögreglan í Makedóníu krefst þess að Kosovo-Albanarnir áfhendi skjöl sem sanna að þeir hafí verið flóttamenn. Margir reyndust tregir til að láta skjölin af hendi, enda kæmust þeir ekki aftur inn í Makedóníu án þeirra, og tóku þann kostinn að fara yfir landa- mærin annars staðar en við hinar eiginlegu landamærastöðvar. Mun þetta hættuspil einmitt hafa orðið manninum sem lést í gær eftir að hann steig á jarðsprengju að aldurtila. • • Oflugur jarðskjálfti í Mexíkó Að minnsta kosti sjö fórust Mexíkóborg. Reuters, AFP, AP. AÐ minnsta kosti sjö fórust og þrjá- tíu særðust þegar öflugur jarð- skjálfti skók suðurhluta Mexíkó í gærkvöldi. Þrír menn fórust í borg- inni Puebla, sem staðsett er um níu- tíu kílómetra austur af Mexíkóborg, og þrír krömdust til bana þegar kirkja í nágrenni Puebla hnindi. Loks mun aldraður maður hafa lát- ist af völdum hjartaáfalls í Mexíkó- borg í kjölfar þess að skjálftinn reið yfir. Skjálftinn mældist 6,7 á Riehters- skalanum og voru upptök hans nærri Huajuapan de Leon, um tvö hundruð kílómetra suðaustur af Mexíkóborg og hundrað kílómetra frá Puebla. Auk meiðsla á fólki urðu einnig miklar skemmdir á bygging- um í Puebla, auk þess sem símalín- ur voru óvirkar um nokkra stund. Ennfremur lokuðust þrjátíu og fimm manns inni í námu, sem fallið hafði saman, ekki fjarri Puebla. Emesto Zedillo, forseti Mexíkó, lýsti yfir neyðarástandi og hélt þeg- ar til Puebla sem virtist hafa orðið verst úti í skjálftanum. Mikill ótti greip um sig í höfuðborginni Mexíkóborg þegar skjálftinn reið yfir. Engar skemmdir virtust hins vegar hafa orðið þar. Skjálfti sem mældist 8,1 á Richter reið yfir Mexíkóborg árið 1985 og lagði hluta borgarinnar í rúst og varð meira en fjögur þúsund og tvö hundruð manns að bana. --------------- Mbeki sett- ur formlega í embætti Jóhannesarborg. Reuters, AFP. HELSTU þjóðarleiðtogar Afríku- ríkjanna tóku að flykkjast til Pretoríu-borgar í Suður-Áfríku í gær til að kveðja með viðhöfn Nel- son Mandela, frá- farandi forseta S- Afríku, og jafn- framt til að vera viðstaddir emb- ættistöku Thabos Mbekis, sem í dag tekur formlega við embætti for- seta, í stað Mand- elas. Alls verða um 4.500 gestir viðstaddir innsetningarathöfn Mbekis en þeirra á meðal eru 30 þjóðarleiðtogar auk annarra full- trúa frá um hundrað löndum. Mbeki var einróma kosinn for- seti S-Afríku af þjóðþinginu sl. mánudag en flokkur hans, Afríska þjóðarráðið (ANC), vann stórsigur í kosningunum sem fram fóru 2. júní sl. Ráðgert hafði verið að Mbeki tilkynnti um skipan ráð- herra í stjóm í byrjun vikunnar, en í gær sagði talsmaður hans í sam- tali við ÆFP að Mbeki muni kunn- gera um ákvörðun sína á morgun. Thabo Mbcki Frelsishetja/28
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.