Morgunblaðið - 16.06.1999, Blaðsíða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 16. JÚNÍ 1999_______________________________________________________MORGUNBLABIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Jim Smart
HÆGT verður að gera ýmislegt sér til skemmtunar á þjóðhátíðardaginn á morgun. Hvort allir verða eins skrautlegir og þessi trúður skal þó ósagt látið.
Dagskrá hátíðahalda
á þjóðhátíðardaginn
Þ J ÓÐHÁTÍÐ ARD AGUR íslands,
17. júní, er á morgun og verður
hann að vanda haldinn hátíðleg-
ur um allt land með ýmsum
hætti. Víða verða farnar skrúð-
göngur, ávörp flutt og hljóm-
sveitir leika fyrir dansi, auk þess
sem ýmislegt verður í boði fyrir
yngstu kynslóðina.
Reykjavík
Dagskrá hátíðahaldanna í
Reykjavik hefst kl. 10.00 er for-
seti borgarstjórnar leggur
blómsveig á leiði Jóns Sigurðs-
sonar í kirkjugarðinum við Suð-
urgötu. Hátíðardagskrá við Aust-
urvöll hefst sfðan með ávarpi
Ingibjargar Sólrúnar Gísladótt-
ur, borgarstjóra, kl. 10.40, en að
því loknu mun forseti Islands,
Ólafur Ragnar Grímsson, leggja
blómsveig að minnisvarða Jóns
Sigurðssonar, auk þess sem Da-
víð Oddsson, forsætisráðherra,
flytur ávarp. Jafnframt þessu
mun Karlakórinn Fóstbræður
syngja, fjallkonan flytja ávarp
sitt og Lúðrasveit Reykjavíkur
leika. Að lokum verður guðsþjón-
usta í Fríkirkjunni þar sem séra
Hjörtur Magni Jóhannsson pré-
dikar.
Eftir hádegið leggja skrúð-
göngur af stað frá Hlemmi niður
Laugaveg að Ingólfstorgi kl.
13.40 og frá Hagatorgi að Hljóm-
skálagarðinum kl. 13.45. Félagar
úr Fornbflakl.úbbi íslands munu
aka gömlum bflum á undan göng-
unni niður Laugaveginn. Að
göngunni lokinni, eða kl. 14,
hefst barna- og fjölskyldudag-
skrá í miðbænum.
Stærsta sviðið verður á Arnar-
hóli og þar verður m.a. hægt að
hlýða á söng Gradualekórs Lang-
holtskirkju og sjá atriði úr vin-
sælum söngleikjum, auk atriðis
úr leikritinu Á kafi. Þá mun
Selma Björnsdóttir flytja Evró-
visjónlag sitt.
Á Ingólfstorgi hefur Lúðra-
sveitin Svanur dagskrána sem að
öðru leyti er helguð dansi sem
ýmsir dansskólar og hópar munu
sýna. K116.20 verður svo barna-
dansleikur.
í Tjarnarsal Ráðhússins syngja
Gradualekór Langholtskirkju og
Kór félagsstarfs aldraðra og þeir
Szymon Kuran og Reynir Krist-
jánsson leika nokkur lög. Þessari
dagskrá lýkur með leik Harm-
ónikufélags Reykjavíkur.
Götuleikhúsið mun verða á
ferð um miðbæinn meðan dag-
skrá stendur yfir og kl.. 14.00 og
14.30 verður Brúðubfllinn með
sýningu við Tjarnarborg. Einnig
verður hægt að komast í ýmis
leiktæki og sjá fimleika- og
glímusýningar og sitthvað fleira í
Hallar- og Hljómskálagarðinum
frá 14.00-18.00. Þá mun 17. júní-
lestin aka um Vonarstræti. Upp-
lýsingar um týnd börn verða
veittar í síma 5106600.
Á Kjarvalsstöðum verða sýn-
ingarnar „íslensk myndlist“ og
„Karel Appel“. Þar verður einnig
hátíðardagskrá þar sem útnefnd-
ur verður borgarlistamaður. Sér-
stök dagskrá verður einnig í Ár-
bæjarsafni og í Fjölskyldu- og
húsdýragarðinum í Laugardal
verður ýmislegt til skemmtunar.
I Laugardagshöll verður fjöllista-
hópurinn Circus Cirkör með sýn-
ing^u kl. 18.00.
Um kvöldið verða tónleikar og
dansleikir á fjórum sviðum í mið-
bænum. KI 20.30 hefjast á stóra
sviðinu á Arnarhóli tónleikar þar
sem fram koma hljómsveitirnar
Skítamórall, Botnleðja, Land og
synir, Maus, Ensími, Mínus og
dip. Á Ingólfstorgi hefst dans-
leikur kl.. 21.00, en þar leika fyr-
ir dansi Félag harmónikuunn-
enda í Iteykjavík, Rússibanar og
Milljónamæringarnir, ásamt
söngvurunum Bogomil Font,
Ragnari Bjarnasyni og Páli Ósk-
ari. Á horni Lækjargötu og Von-
arstrætis mun hópur plötusnúða
leika danstónlist frá kl.. 20.30, en
á sama tíma hefjast í Hljómskála-
garðinum sumartónleikar krist-
inna manna þar sem fram koma
m.a. Páll Rósinkrans, Lofgjörðar-
sveit Kefas og Guðlaugur Lauf-
dal. ÖUum uppákomunum lýkur
á miðnætti nema tónleikunum á
Arnarhóli sem lýkur kl. 1.
Þess má að lokum geta að
Hjálpræðisherinn verður með ár-
lega kaffisölu sína á þjóðhátíðar-
daginn í Herkastalanum, Kirkju-
stræti 2 frá kl. 14-18. Húsið verð-
ur opnað aftur kl. 20.30, en kl.
21.00 hefst dagskrá með trúar-
legri tónlist.
Seltjarnarnes
Á Seltjarnarnesi hefst dagskrá
hátíðahaldanna með skrúðgöngu
kl. 13.00. Farið verður frá dælu-
stöðinni á Lindarbraut og að
Eiðistorgi, en þar mun Asgerður
Halldórsdóttir, formaður Æsku-
lýðs- og íþróttaráðs Seltjarnar-
ness, setja hátíðina. Að því loknu
leikur Lúðrasveit Seltjarnarness
þjóðsönginn og íjailkonan flytur
ávarp sitt, en síðan tekur við
skemmtidagskrá þar sem m.a.
verður boðið uppá fimleika- og
danssýningu, söng Selkórsins og
leikþátt frá Leiklistarfélagi Sel-
tjarnarness. Að þessari dagskrá
lokinni verða þrautir fyrir börn.
Björgunarsveitin Albert sér
um fána- og blöðrusölu við upp-
haf skrúðgöngu og síðan við
Eiðistorg meðan á skemmtidag-
skránni stendur. Hún mun einnig
halda sína árlegu kaffísölu í fé-
lagsheimili Seltjarnarness frá kl.
11.00-16.30.
Mosfellsbær
Þjóðhátíðardagskráin í Mosfells-
bæ hefst kl. 10.00 með sundmóti í
Varmárlaug, en kl. 14.00 leggur
skrúðganga af stað frá íþrótta-
húsinu í Alafosskvos þar sem há-
tíðin verður sett og hátíðarræða
flutt, en að því loknu fer fram af-
hending menningarverðlauna,
auk þess sem Skólahljómsveit
Mosfellsbæjar Ieikur og Barna-
kór Varmárskóla og börn af leik-
skólanum Reykjakoti syngja
nokkur lög. Frá kl. 15 verður
hægt að fá veitingar í Hlégarði
og beija flugvélar og flugsvæði á
Tungubökkum augum. Einnig
verður boðið uppá útsýnisflug.
Frá kl. 15.15-17.00 verða flutt
ýmis söng- og leikatriði, en dag-
skránni lýkur með tónleikum
sem hefjast í Hlégarði kl. 21.00.
Þar leika hljómsveitirnar Caras
De Pao, Piranha og Buttercup.
Kópavogur
Kópavogsbúar hefja þjóðhátíðar-
daginn með víðavangshlaupi
barna og skrúðgöngu frá Kópa-
vogsvelli að Digraneskirkju, þar
sem barnasamkoma mun heljast
kl. 11.00. K1 13.00 verður svo far-
ið í aðra skrúðgöngu, að þessu
sinni frá Menntaskólanum í
Kópavogi að Rútstúni, en þar
verða ýmiss konar leikir og upp-
ákomur fyrir börn. Hátíðin verð-
ur hins vegar formlega sett á
Rútstúni kl. 14.00 og þar verða
einnig flutt hátíðarávörp. Að lok-
inni skemmtidagskrá, sem kemur
í kjölfar ávarpanna, verður farið
í skrúðgöngu að Kópavogsvelli
þar sem minningarleikur um
Daða Sigurvinsson mun hefjast;
kl. 16.30. Hátíðardagskrá eldri
borgara mun hins vegar standa
yfir í félagsheimili Kópavogs frá
16.00-17.00.
Um kvöldið færast hátíðahöld-
in aftur á Rútstún, en þar verða
tónleikar og skemintiatriði frá
20.30-23.30.
Garðabær
Garðbæingar hefja þjóðhátíðar-
dagskrá sína kl. 10.00 við Hofs-
staðaskóla með sérstöku 17. júní-
hlaupi barna. Frá kl. 13.00-14.00
verður hátiðarstund við Vídalíns-
kirkju þar sem m.a. verður flutt
ávarp nýstúdents. Kl. 14.00 verð-
ur hins vegar lagt af stað í skrúð-
göngu frá Vídalínskirkju og kl.
14.30 verður hátíðin formlega
sett við Garðaskóla. Þar verða
flutt hátíðarávörp, auk þess sem
Ingimundur Siginpálsson, bæjar-
stjóri mun afhenda starfsstyrki
til listamanna. Þá verður margt
skemmtiatriða við Garðaskóla og
börn ættu enn fremur að geta
skemmt sér á hestbaki eða í ein-
hveiju þeirra leiktækja sem
verða við Garðaskóla, en kaffi-
þyrstir geta gætt sér á kræsing-
um af kaffihlaðborði Kvenfélags
Garðabæjar sem hefst í Garða-
lundi kl. 15.30.
Frá kl. 17.00-18.00 verður
skemmtidagskrá í Iþróttamið-
stöðinni Ásgarði þar sem flutt
verða dans- og söngatriði, auk
þess sem fimleikadeild Stjörn-
unnar verður með sýningu. Dag-
skránni lýkur svo með diskóteki
fyrir yngri kynslóðina í Garða-
lundi. Mun það standa frá 20.00-
22.00.
Hafnafjörður
Fijálsíþróttamót í Kaplakrika og
knattspyrna yngri flokka á Víði-
staðatúni eru fyrst á þjóðhátíðar-
dagskrá Hafnfirðinga, en klukk-
an 13.45 hefst helgistund í Hellis-
gerði; prestur verður sr. Einar
Eyjólfsson. Frá Hellisgerði verð-
ur síðan gengin skrúðganga að
Víðistaðatúni þar sem fjölskyldu-
skemmtun mun hefjast kl. 15.00.
Gissur Guðmundsson, formaður
Þjóðhátíðarnefndar, setur þar
hátiðina og flutt verða hátíðará-
vörp. Flensborgarkórinn,
Ávaxtakarfan og Gunnar og Fel-
ix munu sjá um að skemmta
fólki, en auk þess verða ýmis
leiktæki til staðar á Víðistöðum.
Þá verður kaffisala Skátafélags-
ins Hraunbúa í skátaheimilinu
við Víðistaðatún.
Dagskráin færist yfir í íþrótta-
húsið við Strandgötu kl. 17.00, en
þar munu FH og Haukar eigast
við. í leikhléi verður fimleikafé-
Iagið Björk með sýningu. K1
20.00 hefst svo fjölskyldu-
skemmtun á Thorsplani, þar sem
fram koma m.a. Eyjólfur Krist-
jánsson og Stefán Hilmarsson,
Selma Bjömsdóttir, Steinn Ár-
mann, Halli og Laddi og hljóm-
sveitin Quarashi. Þá hefjast
gömludansarnir í Vitanum kl.
21.00 og djasstónleikar í Hafnar-
borg kl. 22.00, en dagskrárlok
verða kl. 24.00.
Reykjanesbær
f Reykjanesbæ hefst þjóðhátíðar-
dagurinn á Njarðvíkurvelli með
íþróttamótum af ýmsum toga, en
hátíðin verður sett í Skrúðgarð-
inum kl. 14.00, að undangenginni
hátíðarmessu í Keflavíkurkirkju
kl. 12.30. Að setningu lokinni
verður skemmtidagskrá í Skrúð-
garðinum þar sem m.a. verður
boðið upp á tónlistaratriði af
ýmsum toga og fimleikasýningu.
Einnig verður margt leiktækja í
garðinum, en þar lýkur dag-
skránni kl. 16.30.
Þráðurinn verður svo tekinn
upp að nýju kl. 20.00 á Tjarnar-
götutorgi, en þar fer fram kvöld-
skemmtun þar sem fram koma
m.a. Rúnar Júlíusson og Skari
Skrípó. K1 20.00 hefst einnig fjöl-
skyldudansleikur í Stapanum og
er aðgangur ókeypis.
Sandgerði
Hátíðardagskráin í Sandgerði
hefst formlega kl. 14.00 við vest-
urgafl Grunnskólans og verða
þar flutt ávörp, auk ýmiss konar
tónlistar- og dansatriða. Að
þessu loknu, eða kl. 16.00, verður
kaffi í samkomuhúsinu, en kvöld-
dagskrá hefst svo kl. 20.00 við
vesturgafl Grunnskólans. Þar
verða í boði skemmtiatriði og
diskótek, auk leikja fyrir börn.
Hrafnseyri
Á Hrafnseyri, fæðingarstað Jóns
Sigurðssonar, verður haldin há-
tíðarmessa kl. 14.00 í Minningar-
kapellu Jóns Sigurðssonar. Séra
Guðrún Edda Gunnarsdóttir mun
messa, en séra Einar Sigur-
björnsson prédikar. Matthías Jo-
hannessen, ritstjóri, flytur ræðu
dagsins kl. 15.00 og Ingunn Ósk
Sturludóttir syngur einsöng við
undirleik Margrétar Gunnars-
dóttur. Þá verður safn Jóns Sig-
urðssonar opnað og verður það
opið alla daga í sumar frá kl. 13-
20.