Morgunblaðið - 16.06.1999, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 16.06.1999, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. JÚNÍ 1999 47 ’ liilli ATVINNU AUGLYS í ð4 'W.: o* r* Laust er til umsóknar tímabundið starf aðjúnkts í leikskóla- fræðum vjð Kennaraháskóla íslands Meginverkefni aðjúnktsins er kennsla í leik- skólafræðum með sérstaka áherslu á stjórnun leikskóla. Aðjúnktinn mun einnig hafa umsjón með vettvangsnámi leikskólakennaranema. Starfið skiptist milli kennslu annars vegar og rannsókna og stjórnunar hins vegar sem kveðið verður nánar um í ráðningarsamningi. Umsækjendur um stöðu þessa skulu hafa lokið meistaraprófi á sínu sviði hið minnsta eða hafa jafngilda þekkingu og reynslu. Umsókn skal fylgja ítarleg greinargerð um menntun og fyrri störí. Umsóknarfrestur er til 30. júní nk. og stefnt er að ráðningu í starfið frá 1. ágúst 1999. Ráðið verður í stöðuna til eins árs. Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármála- ráðherra og Kennarafélags Kennaraháskóla íslands. Ekki er um að ræða sérstök umsóknar- eyðublöð en umsóknum skal skila á skrifstofu Kennaraháskóla íslands v/Stakkahlíð, 105 Reykjavík. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörð- un um ráðningu hefurverið tekin. Nánari upplýsingar veitir skorarstjóri leikskóla- skorar í síma 581 3866. EYJAFJARÐARSVEIT Hrafnagilsskóli Hrafnagilsskóli er í Eyjafjarðarsveit, 12 km innan Akureyrar. Skólinn er einsetinn og er nemendafjöldi áætlaður um 170 næstu árin. Sundlaug og íþróttahús er sambyggð aðalskóla- húsnæðinu. íbúðir fyrir kennara eru í heimavistarhúsi sem ekki er lengur nýtt fyrir nemendur, þar sem heimanakstur hefur leyst vistina af hólmi. Samstarf er milli grunnskólans og leikskóla sveitarinnar, sem er á skólasvæðinu, og náið samstarf er við Tónlistarskóla Eyjafjarðar. í Eyjafjarðarsveit eru íbúar 950 og þar er blómlegt menningarlíf og aðstaða til ýmiss konar tómstundaiðkana. Kennara vantar að skólanum næsta vetur Helstu kennslugreinar eru: Almenn kennsla í 3. og 5. bekk. Samfélagsfræði, stærdfrædi og raungreinar á unglingastigi. Saumar og smíðar. Þá er einnig óskað eftir sérkennara eða þroskaþjálfa. Kennarar fá greiðslur til viðbótar al- mennum kjarasamningi og einnig eru húsnæðishlunnindi í boði. Nánari upplýsingar veitir Anna Guð- mundsdóttir, skólastjóri, í síma 463 1137, netfang annag@ismennt.is og heimasíma 463 1127. Velgengni klæðist vinnufötum! Við verðum að vakna og vinna fyrir henni, það ertækifæri sem ég get boðið 17 einstaklingum, engin skilyrði. Aðeins áhugasamir hafi sam- band í síma 881 6245. Kennarar! Kópavogsskóli erframsækinn skóli í rótgrónu hverfi. Þar starfar samheldinn hópur kennara, sem hefur samvinnu og samstarf að leiðarljósi Nú vill svo til að einn kennara vantar í þennan hóp á næsta skólaári. Um er að ræða bekkjar- kennslu á barnastigi á tímabilinu frá kl. 8.00 til kl. 14.00. Laun skv. kjarasamningi KÍ og HÍKog Launa- nefndar sveitarfélaga. Frekari upplýsingar gefur skólastjóri, Ólafur Guðmundsson, í síma 554 0475 eða 897 9770, bréfsími 564 3561, netfang olgud@ismennt.is Umsóknarfrestur er til 28. þ.m. Gangaverðir/ræstar! Tvo galvaska gangaverði/ræsta vantar í Kópa- vogsskóla frá og með miðjum ágústmánuði. Vinnutími erfrá kl. 13.00—17.00. Frekari upplýsingar gefur skólastjóri, Ólafur Guðmundsson, í síma 554 0475 eða 897 9770. Sandgerðisbær Forstöðumaður tæknideildar Skipulags- og byggingafulltrúi Laus staða Sandgerðisbær leitar að forstöðumanni tækni- deildar. Starfssvid: ★ Starfsmaður skipulags- og byggingar- nefndar, húsnæðis- og húsaleigunefndar. ★ Yfirmaður áhaldahúss. ★ Sér um eftirlit með framkvæmdum. ★ Yfirfer uppdrætti, eignaskiptayfirlýsingar og útgáfu byggingarleyfa. ★ Þarf að uppfylla skilyrði 48. og 49. gr. skipu- lags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Umsóknarfrestur er til og með 18. júní nk. Frekari upplýsingar veitir Sigurður Valur Ásbjarnarson, bæjarstjóri í síma 423 7555, netfang: sigurdur@sandgerdi.is. Hveragerðisbær Vesturbyggð Skólastjórastaða Laus ertil umsóknar staða skólastjóra við Grunnskóla Vesturbyggðar. Undir skólann heyrir skólahald á Birkimel, í Örlygshöfn, á Bíldudal og Patreksfirði — samtals 220 nemendur. Um nýja stöðu er að ræða og því spennandi mótunarstarf framundan. í Vesturbyggð búa nú um 1.250 manns. Þjónusta öll er með ágætum, samgöngur góðar og gott mannlíf. Umsókn um starfið skal skila til undirritaðs fyrir 20. júní nk. og hann gefur nánari upplýs- ingar. Vesturbyggð, 31. maí 1999. Bæjarstjórinn í Vesturbyggð, Jón Gunnar Stefánsson. Kennarar athugið! Við Grunnskólann í Borgarnesi erein kennara- staða laus til umsóknar. Staðan er í 1. bekk og leitum við að hugmyndaríkum og samstarfs- fúsum kennara til þess að gegna henni. Við skólann starfa 45 starfsmenn og 330 nem- endur og þeir sem vilja slást í hópinn eru beðn- ir um að hafa samband við skólastjóra í vs: 437 1229, hs. 437 2269 (netfang kristgis@is- mennt.is )eða aðstoðarskólastjóra í vs. 437 1229 (netfang hilmara@ismennt.is). Laun eru greidd eftir kjarasamningum Kennar- asambands íslands og Launanefndar sveitar- félaga og viðbótarsamningi, er bæjarstjórn Borgarbyggðar gerði við kennara. Hikið ekki við að afla ykkur meiri upplýsinga. í Borgarnesi er gott að búa. Skólastjóri. hjúkrunarheimili, Kleppsvegi 64 Sumarafleysingar Starfsfólk við aðhlynningu vantar nú þegar í sumarafleysingar vegna forfalla. Vaktavinna. Einnig morgunvaktir kl. 8—13 virka daga og unnið aðra hvora helgi. Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í síma 568 8500. Frá Grunnskólanum í Hveragerði Við Grunnskólann í Hveragerði eru lausar eftir- taldar kennarastöður fyrir næsta skólaár: 1. Staða sérkennara (sem undirbýr stofnun væntanlegrar sérdeildar og annast þar deild- arstjórn). 2. Staða sérkennara. 3. Staða bekkjarkennara á yngsta stigi. 4. Staða íþróttakennara. í gildi eru sérkjarasamningar fyrir kennara skól- ans. Upplýsingar um störfin veita Guðjón Sigurðs- son, skólastjóri, og Þorsteinn Hjartarson, að- stoðarskólastjóri, í síma 483 4350. Skólastjóri. Kennarar — íþróttakennarar Kennara vantar að Grenivíkurskóla til að kenna íþróttir og almenna, bóklega kennslu. Skólinn er fámennur og þægilegur og vel í sveit settur, 40 km frá Akureyri. Gott húsnæði. Umsóknarfrestur er til 1. júlí. Nánari upplýsingar gefur Björn Ingólfsson, skólastjóri, í síma 463 3118 eða 463 3131. Nú er rétti tíminn... Alþjóðlegt stórfyrirtæki hefur opnað vöruhús á íslandi. Vörurnar hafa snarlækkað í verði. Ætlum að margfalda veltuna. Bráðvantar starfsfólk. Hlutastarf — fullt starf. Upplýsingar 4. veitir Stefán í síma 899 9192 og 586 1850.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.