Morgunblaðið - 16.06.1999, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ
EMIL Grímsson og Skúli Skúlason frá Toyota handsala samninginn
við Hjálmar Pétursson frá Bflaleigu Flugleiða.
Flugleiðir kaupa tæp-
lega 200 Toyota-bíla
TOYOTA og Flugleiðir hf. skrif-
uðu nýlega undir samning um
kaup Bflaleigu Flugleiða á tæp-
lega 200 Toyota-bflum. Um er að
ræða bfla af gerðunum Yaris,
Corolla, Hilux RAV4 og Land
Bikarkeppni
Secret 26
„ÞRIÐJA kappsiglingaumferð í
mótaröðinni Bikarmót Secret 26
verður 17. júní í Hafnarfirði.
j Keppni hefst kl. 10 og verða sigldar
eins margar umferðir og hægt er til
kl. 13, en eftir þann tíma verður
ekki ræst. Þó verða ekki sigldar
færri umferðir en tvær og fleiri en
sex. Keppt er á bátum af gerðinni
Secret 26 og er keppt án forgjafar.
Sigldar verða trapisu- eða pylsu-
brautir,“ segir í fréttatilkynningu.
„Skipstjórafundur verður í fé-
j lagsheimili Þyts kl. 9 sama dag og
keppnin er og fer þar fram skrán-
ing. Allir verða að klæðast flotvest-
um á meðan á keppni stendur.
Allar tilkynningar varðandi mótið
s.s. breyting á fyrirmælum þessum
og úrslit verða birt í glugga á fé-
lagsheimili Þyts. Að öðru leyti en
greint er frá hér að framan gilda
kappsiglingafyrirmæli SÍL 1999 og
alþjóðakappsiglingareglurnar
1997-2000,“ segir í fréttatilkynnigu.
Sólstöðuhátíð
að fornum sið
„UM sólstöðurnar, þann 19. júní,
mun allsherjargoði og fólk hans
halda hátíð í Tjaldi galdramannsins
að Lónkoti í Skagafirði. Munu flest-
ir úr liði goðans klæðast fornum
búningum og hefur liðið með sér
víkingatjöld. Á meðal þess sem í
boði verður er erindi um sólstöðurn-
ar, sem Jörmundur Ingi allsherjar-
goði flytur, einnig verður leikin sag-
an um Iðunni og eplin, og sýndur
verður forn vopnaburður. Á staðn-
um verða til sýnis og sölu silfur-
skartgripir í fornum stíl, galdrastaf-
ir og lækningajurtir. Einnig verður
til sýnis leðursaumur og fatnaður.
Gestir geta fengið upplýsingar um
rúnir og látið spá fyrir sér. Einnig
geta þeir fengið upplýsingar um ís-
lenskar lækningajurtir og tengsl
þeirra við sólstöður.
Um kvöldið verður ball með
hljómsveitinni Á móti sól,“ segir í
fréttatilkynningunni frá Lónkoti.
LEIÐRÉTT
Lenti á fótboltavellinum
I myndatexta með frétt á bls. 2 í
Morgunblaðinu í gær, var rang-
hermt að þyrla Landhelgisgæslunn-
ar hefði lent á flugvellinum í Ólafs-
vík. Þyrlan lenti á fótboltavellinum í
Ólafsvík, eins og glöggt mátti sjá á
myndinni. Beðist er velvirðingar á
þessum mistökum.
Cruiser 90. Bflarnir verða af-
hentir á um tveggja mánaða
millibili frá maí til júlí nk. Yerð-
mæti samningsins er hátt í 300
milljónir króna, segir í fréttatil-
kynningu.
Gengið frá
Tjaldholti niður
á Austurvöll
Hafnargönguhópurinn stendui’ fyr-
ir gönguferð frá Tjaldhóli í Foss-
vogi niður á Austurvöll í kvöld, mið-
vikudag. Farið verður frá Hafnar-
húsinu að vestanverðu kl. 20.00
með Almenningsvögnum suður að
Tjaldhóli við Nesti í Fossvogi. Það-
an gengið kl. 20.30 með ströndinni
vestur í Sundskálavík og um Há-
skólahverfið, Hljómskálagarðinn og
með Tjöminni niður á Áusturvöll.
Gönguferðinni lýkur við Hafnar-
húsið. Á leiðinni verða framkvæmd-
ir ofan Nauthólsvíkur skoðaðar og
boðið upp á kaffi og kleinur við
Kaffi Nauthóli, nýja veitingaskál-
anum.
Víkingaþorp rís
í Hafnarfírði
SÓLSTÖÐUHÁTÍÐ verður haldin
við Fjörukrána í Hafnarfirði dag-
ana 17.-20. júní og er þetta í annað
sinn sem hún er haldin þar. í tilefni
hátíðarinnar eru hingað komnir 50
erlendir víkingar og íslensku vík-
ingarnir eru 50. Víkingarnir verða á
svæðinu í tjöldum sínum sem búið
er að reisa umhverfis Fjörukrána.
„Á hátíðinni verða m.a. bardagar
víkinganna, víkingaskóli fyrir 7-11
ára börn, uppákomur á sviði, gift-
ing að víkingasið, Víkingasveitin
spilar, glíma, víkingakraftakeppni
og sögumenn segja sögur. Einnig
geta gestir brugðið sér í siglingu
með víkingaskipinu íslendingi eða
boðið fjölskyldunni í reiðtúr í hesta-
kerru.
Aðgangseyrir er enginn en allur
ágóði af merkjasölu og hluti af sölu
inni á svæðinu fer til bágstaddra,“
segir í fréttatilkynningu frá að-
standendum hátíðarinnar.
í þjóðbún-
inga á þjóðhá-
tíðardaginn
HEIMILISIÐNAÐARFÉLAG ís-
lands hvetur sem flesta til að
skarta þjóðbúningum á þjóðhátíð-
ardaginn.
„Mætum í þjóðbúningum í skrúð-
gönguna á 17. júní og hittumst í
kaffi í Iðnó á eftir.
Þar verða boðnar kaffiveitingar á
tilboðsverði fyrir alla í þjóðbúning-
um,“ segir í hvatningarorðum fé-
lagsins.
MIÐVIKUDAGUR 16. JÚNÍ 1999 55 x
FRÉTTIR
Ur dagbók lögreglunnar
Annir hjá lögreglu vegna
árásar- og fíkniefnamála
11.-13. júní
SKÝRT tilvik kom upp um helg-
ina um gUdi eftirlitsmyndavéla í
miðbænum. Þar veittu lögreglu-
menn því athygli er hópur pilta
réðist gróflega að borgara sem
ekkert hafði til saka unnið. At-
burðarásin, sem varð að morgni
laugardags, var mjög hröð og
þegar árásarmenn gerðu sér
grein fyrir að lögregla var að
koma á staðinn treystu þeir sér
ekki til að standa íyrir gerðum
sínum og reyndu að flýja af hólmi.
Þeim var fylgt eftir með eftirlits-
myndavélunum og voru hand-
teknir af lögreglu skömmu síðar
allfjarri brotavettvangi. Telja
verður mjög ólíklegt að lögreglu
hefði tekist að hafa hendur í hári
árásarmannanna ef ekld hefði
notið við þessa tæknibúnaðar.
Einn piltanna hafði haft sig mest í
frammi og hafði meðal annars
sparkað síendurtekið í árásar-
þola.
Þótt flestir þeirra sem lögregl-
an hefur afskipti af vegna árásar-
mála séu karlmenn, þá koma upp
tilvik þar sem konur koma tals-
vert við sögu. Þannig gekk stúlka
berserksgang á veitingahúsi að
morgni laugardags. Stúlkan réð-
ist að tveimur konum og skemmdi
meðal annars gleraugu og fleira.
Hún var handtekin og flutt í
fangahús lögreglu.
Ráðist var að fólki sem sat í bif-
reið f miðbænum að morgni
sunnudags. Flytja varð einn á
slysadeild og skemmdir voru unn-
ar á bifreiðinni. Árásarmenn eru
ófundnir.
Veittu ölvuðum öku-
manni eftirför
Lögreglu barst tilkynning um
ölvaðan og réttindalausan öku-
mann sem væri á leið til borgar-
innar að kvöldi sunnudags. Lög-
reglumenn urðu bifreiðarinnar
varir við Hafravatnsafleggjara og
gáfu ökumanni stöðvunarmerki,
sem hann sinnti ekki. Hófst þá
eftirför lögreglu og var bifreiðinni
meðal annars ekið á röngum veg-
arhelmingi í Ártúnsbrekku. Lög-
reglan náði að stöðva bílinn með
því að aka lögreglubifreiðum á
undan honum og eftir og hægja
þannig á ferð hans. Nokkrum
sinnum meðan á eftirförinni stóð
varð árekstur með bifreiðinni og
lögreglu. Ökumaður var síðan
handtekinn og er hann grunaður
um ölvun við aksturinn, auk þess
sem grunur er um akstur undir
áhrifum annarra vímuefna.
Alls 9 ökumenn grunaðir um
ölvun við akstur um helgina og 53
stöðvaðir vegna hraðaksturs.
Mikil afskipti af fíkni-
efnaneytendum
Mikil afskipti voru höfð af ein-
staklingum um helgina vegna
neyslu/vörslu ólöglegra fíkniefna
og var á annan tug manna hand-
tekinn vegna fíkniefnamála.
Karlmaður á fertugsaldri var
handtekinn í bifreið er hann
reyndi að kasta frá sér ætluðum
fíkniefnum. Hann var fluttur á
lögreglustöð.
Borgari hafði samband við lög-
reglu að kvöldi föstudags og
kvaðst hafa rekist á karlmann
sem hann hafði grunaðan um
þjófnað er átt hefði sér stað fyrr
um daginn. Lögreglan fór á stað-
inn og kom í ljós að grunur til-
kynnanda var á rökum reistur.
Hinn grunaði reyndist hafa veski
tilkynnanda á sér og í fórum hans
reyndust einnig vera ætluð fíkni-
efni. Hann var því handtekinn og
fluttur á lögreglustöð. Að kvöldi
laugardags voru tveir karlmenn
handteknir í Þingholtunum og
fundust við leit ætluð fíkniefni.
Þeir voru fluttir á lögreglustöð.
Höfð voru afskipti af tveimur
pUtum og stúlku að morgni
sunnudags í miðbænum. I ljós
kom að þau höfðu ætluð fíkniefni í
fórum sínum og voru því handtek-
in.
Veikindi eftir e-töfluneyslu
Óskað var eftir aðstoð vegna
veikinda í kjölfar neyslu e-töflu
um helgina. Piltur á 18. ári hafði
neytt efnisins og kennt sér meins
í kjölfarið.
Aðstoðar lögreglu var einnig
óskað vegna veikinda eftir neyslu
fíkniefna að kvöldi laugardags. Þá
hafði 18 ára stúlku orðið illt eftir
neyslu e-töflu. Tveir karlmenn
voru handteknir vegna gruns um
aðild að því að útvega stúlkunni
fíkniefni. Við leit á þeim fundust
ætluð fíkniefni og voru mennirnir
fluttir í fangahús lögreglu.
Við eftirlit lögreglu að kvöldi
sunnudags urðu lögreglumenn
varir við undarlegt ástand í einu
ökutæki. Reyndist ökumaður
vera allsgáður en þrír farþegar
hans grunaðir um að vera undir
áhrifum fíkniefna. Þeir voru allir
handteknir og fluttir á lögreglu-
stöð. Ætluð fíkniefni fundust í bif-
reiðinni.
Innbrot - þjófnaður
Tilkynnt var um 11 innbrot um
helgina. Þar sem aðalsumarleyfís-
tíminn fer nú í hönd vill lögreglan
minna fólk á að huga vel að verð-
mætum og viðskilnaði húsnæðis.
Vakin er athygli á nýjung sem
ríkislögreglustjórinn, fyrir hönd
lögreglu og Sambands íslenskra
tryggingafélaga, hefur ákveðið að
hrinda í framkvæmd og felur í sér
skráningu verðmæta. Málið verð-
ur kynnt frekar á næstunni en
hægt er að afla sér upplýsinga
með því að skoða netsíðu crime-
on-line.com þar sem málið er
kynnt, en mikUvægt er að borgar-
ar taki vel við sér og skrái helstu
verðmæti sín á þennan hátt. Það
getur auðveldað mjög að koma
þýfi aftur í réttar hendur, en al-
gengt er að einstaklingar haldi
ekki tU haga nauðsynlegum upp-
lýsingum inn verðmæti sín.
Brotist var inn í fyrirtæki á Ár-
túnshöfða um helgina og stolið
þaðan nokkrum verðmætum,
bæði verkfærum og hljómflutn-
ingstækjum sem voru í bifreið.
Þá var brotist inn í bílasölu á
Ártúnshöfða og þaðan stoUð lykl-
um að a.m.k. einni bifreið og henni
síðan stolið. Þá var stolið framhUð
af útvarpstækjum úr nokkrum bif-
reiðum. Því miður vUl það enn
brenna við að bflasalar láni öku-
tæki tU borgara án þess að kanna
hver viðkomandi er. Flest öku-
tækjanna fínnast fljótlega en oft
er þá búið að valda á þeim
nokkrum skemmdum. Þannig
fannst t.d. stolin bifreið í Bláfjöll-
um um helgina. Unnar höfðu verið
skemmdir á henni og einnig stoUð
hlj ómflutningstækjum.
Eldur borinn að fatnaði
Tilkynning barst um eld í húsi í
Árbæjarhverfi að kvöldi fóstu-
dags. I ljós kom að borinn hafði
verið eldur að fatnaði í þvottahúsi
og þannig valdið nokkrum
skemmdum.
Þá var tilkynnt um reyk frá
íbúð í Grafarvogi á fóstudags-
kvöld. í ljós kom að eldur var laus
í sæng í svefnherbergi þar sem
karlmaður svaf.
Lögreglumenn á eftirlitsferð
tilkynntu um mikinn eld frá skúr í
Grjótaþorpi snemma morguns á
laugardag. Mikil hætta var talin á
því að eldurinn bærist í nærliggj-
andi hús. Slökkvistarf gekk vel en
talsverðar skemmdir urðu. Piltur
á átjánda ári var handtekinn
vegna málsins.
Útiskilti
Tilboösverö
útiskiltum
Verslun Háteigsvegi 7 - sími 511 '.
Verksmiðja Flatahrauni 13 - sími 555 e
mbl.is
Hafðu öryggið í fyrirrúmi
AUK k93d50-267 sia.is