Morgunblaðið - 16.06.1999, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
MIÐVIKUDAGUR 16. JÚNÍ 1999 13
LYFJA
Scholl
- Lyt á lágmarksverðí Lágmúla, Setbergi og Hamraborg
Hefur ekki
áhrif hér
á landi
INNKÖLLUN á um 15 milljón sölu-
einingum, þ.e. flöskum og dósum
með drykkjum sem framleiddir eru
af Coca-Cola-verksmiðjunni í Belgíu
hefur ekki nein áhrif á framleiðslu
Vífilfells hér á landi að sögn Péturs
Helgasonar, gæðastjóra fyrirtækis-
ins. Vörurnar voru innkallaðar
vegna gruns um eitrun, þar sem fólk
hafði veikst eftir að hafa innbyrt
drykkjarfóng frá verksmiðjunni.
Að sögn Péturs hefur Vífilfell
fengið upplýsingar um málið í gegn-
um svæðisskrifstofu Coca-Cola, sem
staðsett er í Noregi, en samkvæmt
upplýsingum þaðan er um einangrað
tilfelli að ræða og engin eiturefni
hafa fundist í drykknum.
Pétur sagði að rannsókn á málinu
stæði enn yfir í Belgíu og að ekki
væri enn ljóst hvað hefði valdið
veikindum fólksins. Hann sagði að
óbragð hefði fundist af drykkjum
úr glerflöskum og að e.t.v. mætti
rekja það til mengunar í kolsýru,
sem notuð hefði verið, en hann tók
það sérstaklega fram að hér á landi
væri einungis notast við íslenska
kolsýru. Þá sagði hann að efni,
hugsanlega hreinsiefni, hefði fund-
ist utan á dósum, sem komið hefðu
úr gossjálfsölum.
hjálp. Þreyta nemendur síðan loka-
próf í bóklegum fræðum innan
veggja hvers ökuskóla íyrir sig, en
prófúrlausnum er skilað til Umferð-
arráðs til athugunar.
Ljóst er að um talsvert mikla
vinnu er að ræða til að ná auknum
ökuréttindum og bendir margt til
þess ekki hafi farið fram neitt nám
hjá þeim nemendum sem fengu skír-
teini sín í hendur með þeim hætti,
sem nú er verið að rannsaka. Enn-
fremur bendir ýmislegt til þess að
nemendumir hafi greitt svipaðar
fjárhæðir fyrir prófskírteini sín og
þeir hefðu að öðrum kosti gert hefðu
þeir farið hina hefðbundnu leið í
gegnum námið. Þótt sýnt sé að þeir
hafi vitað af brotum hinna grunuðu,
bendir ekkert til þess að þeir hafi
átt beina hlutdeild að skjalafalsinu
og ljóst er að þeir hafa ekki haft
neinn annan hagnað af brotunum en
þann að spara sér námstímann, að
því er kemur fram í samtali við
Helga Magnús Gunnarsson. Sá
sparnaður mun hins vegar fara fyrir
lítið þegar réttindi þeirra sem aflað
hafði verið handa þeim með sak-
næmum hætti, verða innkölluð.
KÁTIR.KRAKKAR
I GOÐUM SUMARSKOM
Fætur \ örum
fara vel \ barna
frá
MJÚKUR SOLI
FOTLAGA BOTN SEM
VERNOAR BAKIÐ
LEÐURINNLEGG
OG YFIRLAG
Coca-Cola í Belgíu
innkallar vörur
Þriggja bfla
árekstur
vegna
andarkollu
FJÓRIR hlutu minniháttar
meiðsl í þriggja bíla árekstri
við Móberg í Laugardal í
grennd við Blönduós um nónbil
á sunnudag. Tildrög áreksturs-
ins voru þau að ökumaður
stöðvaði bifreið sína skyndilega
vegna andarkollu sem var á
leið yfir veginn ásamt ungum
sínum. Skullu hinar bifreiðarn-
ar tvær, sem á eftir komu, þá
aftan á henni.
Rannsókn á skjalafalsi ökukennara og starfsmanna Umferðarráðs að ljiíka
Fölsuö ökuréttíndi nem-
enda verða innkölluð
RÍKISLÖGREGLUSTJÓRI heldur
áfram rannsókn sinni á meintu
skjalafalsi, sem varðar falsanir á
prófgögnum, sem ökukennari hefur
játað að hafa staðið að á síðasta ári
og þessu ári. Tveir starfsmenn Um-
ferðarráðs sæta einnig rannsókn
ríkislögreglustjóra vegna aðildar
sinnar að svipaðri fölsunarstarfsemi
en ekki liggur fyrir játning þeirra,
nema að litlu leyti.
Að sögn Helga Magnúsar Gunn-
arssonar löglærðs fulltrúa hjá emb-
ætti ríkislögreglustjóra er viðbúið
að rannsókn málsins ljúki á næstu
dögum og verður það síðan tekið til
ákærumeðferðar. Tekið skal fram að
engir aðrir starfsmenn Umferðar-
ráðs hafa verið viðriðnir umrædd
brot.
Eins og fram kom í Morgun-
blaðiðnu á laugardag er um að ræða
á annan tug tilvika þar sem ökunem-
endur hafa fengið ökuskírteini með
auknum ökuréttindum án þess að
hafa gengist undir próf til þeirra
ökuréttinda og bifhjólaprófs, en rík-
islögreglustjóri, sem er í samstarfi
við Umferðarráð vinnur að því að
innkalla fölsuð ökuskírteini í umferð
og komast að því hvort hugsanlega
sé um fleiri tilvik að ræða, þótt fátt
bendi til þess á þessu stigi málsins.
90-120 þúsund krdnur
fyrir aukin ökuréttindi
Um 5-6 vikur tekur að öðlast auk-
in ökuréttindi, en slík réttindi kosta
á bilinu 90-120 þúsund krónur, að
sögn Kjartans Þórðarsonar deildar-
sérfræðings í ökunámsdeild Um-
ferðarráðs. Alls eru starfræktir 8
ökuskólar í landinu og stunda 5-600
nemendur árlega nám til aukinna
ökuréttinda á þeirra vegum. 120
klukkustunda bóklegt nám liggur að
baki fullgildu meiraprófi og þmfa
nemendur að ljúka sex námsþáttum
í bóklegri hlið námsins auk verklegs
náms. Af bóklegum fogum eru
kennd umferðarfræði, stjórn stórra
ökutækja, bifreiðartækni I og II,
ferða- og farþegafræði og skyndi-