Morgunblaðið - 16.06.1999, Side 72
Heimavörn
Sími: 533 5000
Drögum næst
24. júní
HAPPDRÆTTI
Æf HÁSKÓLA ÍSLANDS
Sy l’’ vænlcgast til vinnings
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KA UPVANGSSTRÆTI1
MIÐVIKUDAGUR 16. JUNI1999
VERÐ I LAUSASOLU 150 KR. MEÐ VSK
FBA, Landsbankinn, Búnaðarbankinn og Hof eignast stóran hlut í IE
Samningar undirritaðir í
dag um sex milljarða kaup
SAMKOMULAG hefur náðst um kaup Fjárfest-
ingarbanka atvinnulífsins, Landsbankans, Bún-
aðarbankans og eignarhaldsfélagsins Hofs á
hlutabréfum í DeCODE Genetics, eignarhaldsfé-
lagi Islenskrar erfðagreiningar (ÍE), af banda-
rískum stofnfjárfestum fyrir rúma sex milljarða
króna. Skv. upplýsingum Morgunblaðsins á að
undirrita samning um kaupin í dag.
Fram kemur í fréttatilkynningu frá ÍE að með
þessum kaupum hafi íslendingar eignast tæplega
70% hlut í DeCODE. Um er að ræða kaup á nær
helmings eignarhlut bandarísku fjárfestingar-
sjóðanna, sem lögðu upphaflega 12 milljónir doll-
ara eða um 850 milljónir ísl. kr. í stofnun
DeCODE og var eignarhlutur þeirra þá 48,5%.
Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins hafa
þessi viðskipti átt sér talsvert langan aðdraganda
en þau eru gerð að frumkvæði forráðamanna ís-
lenskrar erfðagreiningar. Hefur verið lögð áhersla
á að fá hlutabréf DeCODE í auknum mæli inn í ís-
lenskt samfélag og mæta um leið gagnrýni sem
fram hefur komið á hve stór eignarhluti í IE hefur
verið í höndum erlendra fjárfesta.
Ætla að selja hlutabréfin
í áföngum innanlands
Skv. fréttatilkynningu frá ÍE ráðgera kaup-
endur hlutabréfanna að selja þau í áfóngum til
innlendra fjárfesta í lokuðu hlutafjárútboði, auk
þess sem þeir hyggjast eiga umtalsverðan hlut
sjálfir.
„Þessi kaup leiða til þess að þegar hlutabréf í
eignarhaldsfélaginu verða boðin út á alþjóðlegum
fjármálamarkaði verður aukið framboð á bréfum
hér innanlands," segir í fréttatilkynningunni.
Stefán Pálsson, bankastjóri Búnaðarbanka ís-
lands, sagðist á sjöunda tímanum í gærkveldi
ekkert hafa um málið að segja og vísaði á Is-
lenska erfðagreiningu.
Halldór J. Kristjánsson, bankastjóri Lands-
banka íslands, sagðist ekkert geta tjáð sig um
málið á þessu stigi.
VATNI hleypt á hið nýja baðsvæði í Bláa lóninu í gærkvöld.
Orkuöflun varðar
ekki Norsk Hydro
STARFSHOPUR frá fyrirtækinu
Norsk Hydro er staddur hérlendis
við undirbúningsvinnu að hag-
kvæmniáætlun fyrir álver á Reyð-
arfirði. í samtali við Morgunblaðið í
dag segir upplýsingafulltrúi um-
hverfismála Norsk Hydro að fyrir-
tækið láti sig ekki varða með hvaða
hætti íslensk stjómvöld útvegi íyr-
irtækinu orku til að knýja álverið.
Sagði hann að fulltrúar World Wide
Fund í Noregi hefðu óskað eftir
fundi með fulltrúum Norsk Hydro
nýverið til þess að ræða við þá um
andstöðu við virkjanaframkvæmdir
vegna álversins. „Við höfum ekkert
með það að gera og skiljum ekki
hvers vegna þeir vildu tala um það
við okkur,“ sagði upplýsingafulltrú-
inn Stiksrud og fullyrti að það væri
innanríkismál sem leysa yrði hér-
lendis.
Stiksrud sagði jafnframt að áhugi
Columbia Ventures á að reisa álver
á Reyðarfirði hefði engin áhrif haft
á undirbúningsvinnu fyrirtækisins
og Andrés Svanbjömsson hjá Fjár-
festingarstofunni - Orkusviði sagði
að lengi hefði verið vitað af áhuga
Columbia Ventures á verkefninu.
Taldi hann ástæðuna fyrir því að
þeir lýstu formlega yfir áhuga á
verkefninu nú geta verið þá að þeir
teldu yfirlýsinguna, sem undirrituð
verður í lok mánaðarins, alvarlegra
eðlis en hún í raun væri.
■ Líkur á að/36
Vatni hleypt á nýtt
baðsvæði í Bláa lóninu
í GÆRKVÖLD var byrjað að
hleypa vatni á nýtt baðsvæði í
Bláa lóninu sem vonast er til að
hægt verði að taka í notkun í
næstu viku. Magnea Guðmunds-
dóttir, kynningarstjóri Bláa lóns-
ins hf., sagði þó enn of snemmt að
gefa upp nákvæma dagsetningu
þar sem ekki væri Ijóst hve lang-
an tíma tæki að fylla lónið, en
fyrirtækið vill ekki hefja starf-
semi á hinu nýja svæði fyrr en því
er að fullu lokið og gengið hefur
verið frá aðstöðu fyrir baðgesti.
Framkvæmdir á hinu nýja
baðsvæði hófiist í mars í fyrra.
Nýja lónið er um 5.000 fermetrar
að flatarmáli og var að sögn
Magneu hugað mjög að öryggi
og þægindum gesta við hönnun
þess. Mesta dýpi lónsins er 1,4
metrar og er botninn hvarvetna
sléttur og afiíðandi. Þá má finna
þar sérstaka kísilpotta auk eim-
baðs sem er í sérhönnuðum
hraunhelli. Magnea kvað þó hvað
mikilvægustu breytinguna frá
gamla baðsvæðinu vera þá að nú
er vatn tekið inn í lónið úr átta
brunnum í stað eins áður, sem
gerir það að verkum að mun auð-
veldara er að stýra hitastigi
vatnsins.
Við hið nýja baðsvæði hefur
verið reist 2.700 fermetra þjón-
ustumiðstöð og þar mun m.a.
verða búningsaðstaða og veit-
ingasala. Heildarkostnaður við
framkvæmdirnar er að sögn
Magneu um 500 milljónir króna.
Kaupás
kaupir Ný-
kaupsbúðir
KAUPÁS, sem rekur Nóatúns-
verslanimar, KÁ og 11-11-verslan-
imar, keypti í gær tvær Nýkaups-
verslanir Baugs í Hólagarði og
Grafarvogi.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins var haldinn starfsmanna-
fundur í gærkvöld þar sem starfs-
fólki var tjáð að nýir eigendur
tækju við rekstrinum á næstu
mánuðum.
Þessi kaup era í samræmi við
stefnu Baugs sem tilkynnti við
kaupin á 10-11-búðunum að á
næstu mánuðum yrðu nokkrar
verslanir seldar og hlutafé aukið.
Samræmd próf
Dúxar í
Biskups-
tungum
NEMENDUR Reykholts-
skóla í Biskupstungum,
Hvassaleitisskóla, Álftamýr-
arskóla og Háteigsskóla hlutu
hæstu meðaleinkunnir í ein-
stökum samræmdum prófum í
10. bekk í vor.
Upplýsingar um normal-
dreifðar meðaleinkunnir allra
þeirra grunnskóla á iandinu
þar sem fleiri en 11 nemendur
í 10. bekk þreyttu samræmd
próf vom gerðar opinberar í
gær.
Reykholtsskóli hlaut hæstu
meðaleinkunn í stærðfræði,
6,73; Hvassajeitisskóli í ís-
lensku, 6,62; Álftamýrarskóli í
dönsku, 6,68 og Háteigsskóli í
ensku, 6,69.
■ Biskupstungur/6
Rússar hafa
staðfest
Smugu-
samninginn
RÚSSAR hafa lokið málsmeðferð
vegna staðfestingar á samningi
þeirra og Norðmanna og Islend-
inga um veiðar Islendinga í
Barentshafi, og Stepashín forsæt-
isráðherra undirritað skjöl þess
efnis, að því er rússneska frétta-
stofan Itar-Tass tilkynnti í gær.
Tilkynning um staðfestinguna
hafði þó ekki borist í utanríkisráðu-
neyti Norðmanna, vörsluaðila
samningsins, á skrifstofutíma í
gær, að sögn Tómasar H. Heiðar,
þjóðréttarfræðings í utanríkisráðu-
neytinu.
Eins og fram kom í Morgunblað-
inu í gær munu Norðmenn stað-
festa samninginn 17. júní. Búist er
við að Alþingi afgreiði samninginn í
dag og Norðmönnum verði tilkynnt
það samdægurs.
Samningurinn öðlast formlega
gildi þegar allar þjóðirnar þrjár
hafa tilkynnt staðfestingu hans.