Morgunblaðið - 25.06.1999, Qupperneq 2
2 FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Þurrt syðra
um helgina
en væta
nyrðra
VINDUR verður allhvass um
sunnan- og vestanvert landið í
dag, eða milli 8 og 13 metrar á
sekúndu á Vesturlandi en 13 til
18 m/s á Suðurlandi. Attin er að
mestu austlæg og nokkur rigning
verður víða. Heldui' hægari vind-
ur verður norðanlands og austan
en þurrt að mestu. Hiti er víðast
á bilinu 7-13 stig.
A morgun og sunnudag verður
vindur hins vegar hægari og
snýst hann smám saman til norð-
urs. Veðurstofan gerir þá ráð
fyrir þurru veðri sunnan- og
vestanlands en nokkur væta
verður hins vegar fyrir norðan
og austan. Á miðhálendinu er
sömuleiðis gert ráð fyrir úrkomu
norðan jökla en þurru veðri
sunnan þeirra.
Morgunblaðið/Arnaldur
NÆR áttatfu konur skunduðu upp frá bryggjunni í Viðey til að rita nöfn sín undir yfirlýsingu um að stjórnvöld veiti fé til stofnunar Maríuseturs.
Olía lak í Hafnar-
fjarðarhöfn
MILLI 2.000 og 2.500 lítrar af voru í höfninni þegar lekans varð
gasolíu láku í Hafnarfjarðarhöfn, vart. í rannsókninni verður kannað
við suðurbakka hafnarinnar, síðdeg-
is í fyrradag. Starfsmenn fyrirtæk-
isins Uppdælinga luku hreinsunar-
störfum í gærkvöldi með aðstoð
hafnarstarfsmanna, sem grafast
fyrir um orsakir lekans.
Ekki er ljóst úr hvaða skipi olían
lak, en 4-5 skip, þar af einn græn-
lenskur togari og einn rússneskur,
hvort olían gæti hafa komið frá báti
sem sökk í höfninni fyrir skömmu.
Starfsmenn Hafnarfjarðarhafnar
munu leggja áherslu á að komast að
því hver var valdur að olíulekanum
þar sem kostnaður við hreinsunar-
störf er talsverður, en þann kostnað
þarf höfnin að bera ef ekki fæst úr
því skorið úr hvaða skipi olían lak.
Yfírlýsing kvennafundar í Viðey í gærkvöldi
Stjórnvöld veiti fé til
stofnunar Maríuseturs
Heitar umræður á prestastefnu á Kirkjubæjarklaustri
Starfshættir val-
nefnda verði bættir
NÆR áttatíu konur söfnuðust saman til fundar í Viðey í gærkvöldi og rit-
uðu þar nöfn sín undir opinbera yfirlýsingu þess efnis að þær leggi til að
stjómvöld standi skil á gamalli skuld við íslenskar konur og veiti fé til stofn-
unar Maríuseturs á Kirkjubæjarklaustri, seturs sem yrði hugsað sem mið-
stöð fyrir skapandi vinnu kvenna af öllum þjóðum. „Þangað geti konur [...]
skundað til dvalar, til að hugsa, vinna, kenna og læra hver af annarri [...],“
segir m.a. í yfirlýsingunni sem væntanlega verður afhent dóms- og kirkju-
málaráðherra, Sólveigu Pétursdóttur, innan tíðar.
„Við teljum að konur eigi rétt á að
eignast Maríusetur hér á landi, í
staðinn íyrir klaustur og klaustra-
eignir, sem voru ólöglega af konum
teknar, með þeim afleiðingum að
útilokun kvenna frá opinberu lífi
varð algjör á síðari öldum. Hug-
myndin er ekki sú að stofna í Maríu-
setri kristna reglu, heldur óreglu og
skapandi óreiðu í takt við þá tíma
sem nú eru,“ sagði Þórunn Valdi-
marsdóttir ríthöfundur m.a. í ræðu
sinni í Viðeyjarkirkju í upphafi fund-
arins í gær. Gert er ráð fyrir því að
TILLAGA um að prestastefnan á
Kirkjubæjarklaustri áteldi harðlega
vinnubrögð valnefndar við val á
sóknarpresti í Grenjaðarstaðarsókn
í Suður-Þingeyjarsýslu var felld
með 29 atkvæðum gegn 11. Þá var
borin upp tillaga um að beina þeim
tilmælum til kirkjuþings að ræða og
bæta starfshætti valnefnda í ljósi
jafnréttislaga. Tillagan var sam-
þykkt með 33 atkvæðum gegn sex.
Áður en gengið var til atkvæða
um það hvort vinnubrögð valnefnd-
ar skyldu gagnrýnd harðlega,
minnti biskup á að í umræddu tilviki
hefði val á sóknarpresti í fyrsta
skipti farið fram eftir nýjum reglum,
þetta hefði því verið í fyrsta sinn
sem valnefnd valdi sóknarprest.
Hann sagði ennfremur að það væri
hlutverk prófasts og vígslubiskups
að halda stefnumörkuninni eins og
tíundað er í leiðbeiningareglum.
Þarna hafi því miður eitthvað farið
úrskeiðis og hann harmaði að fyrsta
valnefndin skyldi hafa brugðist.
Sr. Sigurður Sigurðarson, vígslu-
biskup í Skálholti, sagði að í þeim
fjórum tilvikum sem hann hefði átt
sæti í valnefnd hefði verið farið að
reglum að því leyti að hann hefði
kynnt jafnréttislög og jafnréttis-
áætlun fyrir nefndarmönnum. Hann
átti ekki sæti í valnefndinni í Grenj-
aðarstaðarsókn.
I valnefnd eiga sæti, auk sóknar-
nefndarmanna, vígslubiskup og pró-
fastur. Áður réðu sóknarnefndir
vali á sóknarpresti og þar áður var
almenn prestskosning.
Umsækjendur um Grenjaðar-
staðarprestakall voru fjórir, þrír
karlar og ein kona, og fékk karl-
maður embættið. Sr. Sigríður Guð-
marsdóttir greindi frá rökstuðningi
valnefndar en hún komst að þeirri
niðurstöðu að konan hefði búið yfir
meiri starfsreynslu. Hins vegar
hefði hún hvorki búið í prestakallinu
né væri reynsla hennar sem sveita-
prestur sambærileg reynslu karls-
ins sem kaupstaðarprestur.
Rökstuðningur
talinn ófullnægjandi
Jafnréttisnefnd kirkjunnar skil-
aði úrskurði í júníbyrjun og taldi
rökstuðning valnefndar algerlega
ófullnægjandi og að flest benti til
þess að annars vegar hefðu íslensk
jafnréttislög verið brotin og hins
vegar brotið gegn jafnréttisáætlun
kirkjunnar, þar sem konan hefði
bæði verið með meiri reynslu og
menntun en karlmaðurinn.
Dr. Amfríður Guðmundsdóttir,
formaður jafnréttisnefndar kirkj-
unnar, sagði að konunni hefði verið
greint frá þeim tveimur leiðum sem
hún gæti farið; annars vegar að vísa
málinu til úrskurðamefndar kirkj-
unnar og hins vegar til kærunefnd-
ar jafnréttismála.
■ Prestastefnu lokið/10
hlutkesti ráði því hvaða umsækjend-
ur komast að á Maríusetri.
Beið bana
í bílveltu
NÍTJÁN ára gömul stúlka frá
Randers í Danmörku lést í
bílslysi í fyrrinótt við bæinn
Torfufell í Eyjafjarðarsveit,
þegar bifreið, sem hún var far-
þegi í, valt á veginum. Fimm
aðrir farþegar auk bílstjóra
meiddust lítilsháttar.
Stúlkan sat í framsæti bif-
reiðarinnar ásamt öðmm far-
þega og var ekki í bílbelti þeg-
ar slysið varð. Hún var stödd á
Akureyri í vinabæjarheimsókn
ásamt hópi danskra ung-
menna.
„Það væri stórkostlegt ef stjórn-
völd gætu sagt frá stofnun Maríuset-
urs og loforði um fjárhagslegan
stuðning á alþjóðlega kvennaþinginu
hér í haust, sem dregur heimspress-
una hingað vegna þátttöku forseta-
frúar Bandaríkjanna, Hillary Clint-
on,“ sagði Þómnn ennfremur.
„Stjórnvöld gætu á þessu sögulega
þingi tilkynnt að til Maríuseturs
væri stofnað til þess að bæta fyrir
sögulegt misrétti kynjanna. Það
væri söguleg stund og gott fordæmi.
Það væri alveg bráðsniðugt."
Hugmyndin um stofnun setursins
kviknaði meðal nokkurra kvenna á
kristnisöguþingi sem haldið var á
Kirkjubæjarklaustri um miðjan
mars sl. og í júní tók sá hópur sem
mestan áhuga sýndi á málinu að
funda og undirbúa framhaldið. Þær
konur koma úr ýmsum áttum og hef-
ur Þórunn Valdimarsdóttir verið rit-
ari hópsins.
Níu Kosovo-
Albanar komu
í gær
NÍU Kosovo-Albanar komu til lands-
ins í gærkvöld en þeir eru ættingjar
Albana sem hér hafa verið búsettir
lengi. Ættingjar þeirra sjá að öllu
leyti um móttöku þeÚTa.
Sigríður Guðmundsdóttir, deildar-
stjóri hjá Rauða krossi íslands, sem
skipulagði för þeirra, sagði að
nokkum tíma hefði tekið að fá ferða-
skilríki þar sem fólkið hafði ekki
vegabréf en lengst hefði þó biðin ver-
ið eftir að fá öruggt far fyrir hópinn
alla leið. Komu þau í gær frá Kaup-
mannahöfn og með þeim í för var fuíl-
trúi Rauða krossins.
Sérblöð í dag
■ iNIÖTTUHÓd I fORTIO OO RÚTlftfJ » KUIUUI Hll
vmmi • tuujyUu o«ömu>i»w«i*;4 ■ rríii»««uw~íi
Bruðkaup
heldri manna á Íítlandi
*••••••••••••••••••••••••••••«
• Man. Utd. mætir Everton á
! Goodison Park í fyrsta leik/C1
J ••••••••••••••••••••••••••••<
• Nýjasta tennisstjarnan æfir
• alltaf með pabba sínum / C8
A FOSTUDOGUM
líf
Iþróttaskór
f fortíð
og nútíð
.—^ Úr veitinga-
í fortíð | * rekstri í
skútusiglingar
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is