Morgunblaðið - 25.06.1999, Page 14
14 FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Morgunblaðið/Erla Skúladóttir
Fjörliðar í Árseli
HÓPAR 14 ára ungmenna
sem ganga undir nafninu
fjörliðar vinna í sumar við gróðursetningu
og hreinsun við allar félagsmiðstöðvar
Reykjavikur og njóta einnig margvíslegra
leiðbeininga og fræðslu. Það
eru Vinnuskóli Reykjavíkur
og ÍTR sem standa saman að þessu verk-
efni. Fjörliðana á myndinni hitti blaðamað-
ur við Ársel í Árbæjarhverfi.
Árbær
Kirkjugarður í Leirdal í landi Kópavogs
Vildu 20
hektara,
fengu 12
Kópavogur
UNNIÐ er að því að búa
Leirdal í Kópavogi undir
kirkjugarð sem þar er ætlað-
ur staður á næstu árum.
Deiliskipulag hefur verið
samþykkt fyrir garðinn en
hönnun hans er ekki lokið að
fullu. Garðurinn á að þjóna
þörfum íbúa höfuðborgar-
svæðisins og létta álagi af
Gufuneskirkjugarði.
Kirkjugarðurinn í Leirdal
verður 12 hektarar að stærð
fullbúinn. Þórsteinn Ragn-
arsson, forstjóri Kirkjugarða
Reykjavíkurprófastsdæma,
segir standa til að Kópavogs-
bær afhendi allt að helmingi
svæðisins í haust en kirkju-
JL”
ÍSr—\ vík .
■h I Smára<>«S^ \ \> _/C<>
v í lind/®’<\ ) \ Selja-
< Lindahverfi \ hverfi
vl in V <
Miðjan <
''v. Glað- .
\ys JvASs heimar ~3~L
GARÐABÆR —------------
Hinn nýi
kirkjugarður
í Kópavogi
garðurinn verður í fyrsta lagi
vígður árið 2002. Samkvæmt
upplýsingum frá tæknideild
Kópavogsbæjar verður unnið
að gerð stíga í garðinum og
hann girtur á næsta ári.
Kirkjugarðamir sóttust
eftir 20 hektara svæði í Leii'-
dal undir garðinn en fengu 12
eins og fyrr greinir. Þór-
steinn segir þetta þýða að
endingartími kirkjugarðsins
verði ekki langur, aðeins fá-
einir áratugir.
Lýkur störfum eftir 30 ár hjá Hafnarfjarðarbæ
Morgunblaðið/Eiríkur P. Jörundsson
HAUKUR Sigtryggsson og Magnús Gunnarsson bæjar-
stjóri framan við bæjarskrifstofur Hafnarfjarðar.
Heppinn
með sam-
starfs-
fólkið
Hafnarfjörður
HAUKUR Sigtryggsson lét
af störfum um síðustu mán-
aðamót eftir 30 ára starfsferil
hjá Hafnarfjarðarbæ. Jafn-
framt honum hætti Sigurgeir
Gíslason eftir að hafa unnið
hjá bænum í 37 ár, síðustu
árin í manntali.
Haukur hóf störf hjá Hafn-
arfjarðarbæ 1. nóvember
1969 þegar hann var ráðinn
sem forstöðumaður nýs
æskulýðsheimilis í Hafnar-
firði sem opnað var 1970.
Lengst af starfaði hann að
æskulýðsmálum og í minn-
ingunni finnst honum það
starf standa upp úr eftir ára-
tugina þrjá.
Hann starfaði við æsku-
lýðsheimilið í 17 ár. Heimilið
var mikil nýbreytni fyrir
unglingana í bænum og þar
var unnið kraftmikið starf.
Sjálfur vann hann með ung-
lingum við ljósmyndaiðju og
síðan voru haldin opin hús,
diskótek og dansleikir og í
tengslum við siglingaklúbb
unnu sumir unglingarnir við
kænusmíðar, svo dæmi sé
tekið. Mikið var teflt og sá
Sigurgeir Gíslason, sem nú
er einnig að láta af störfum
hjá bænum, um skákklúbb-
inn. Enda afbragðs skákmað-
ur að sögn Hauks.
Haukur segir starfið með
unglingunum hafa verið líf-
legt og tilbreytingaríkt og
unglingarnir í heildina ákaf-
lega góðir viðureignar. Ekki
vill hann kannast við að ung-
lingar í dag séu verri en áður,
en munurinn sé sá að nú séu
miklu fleiri hættulegir hlutir
sem geti glapið unglinga á
verri stigu. Haukur taldi
starfið með unglingunum
hafa gert nokkuð gagn „og
hafi tekist að koma í veg fyrir
að þó ekki nema einn ung-
lingur hafi lent á glapstigum
hafi tímanum og peningunum
sem í þetta fóru verið vel var-
ið“.
Síðustu árin hefur Haukur
starfað sem ráðsmaður Hafn-
arfjarðarbæjar. í starfinu
fólst umsýsla húsnæðis og
ýmis önnur mál í höfuðstöðv-
unum við Strandgötu. Hauk-
ur sagði það starf vera ólíkt
hinu fyrra en engu síður fjöl-
breytt og hafi gefið ýmsa
góða möguleika. Að vísu
sagðist hann ekki fara dult
með það að hann hefði alveg
getað þegið svolítið hænú
laun. Hann sagðist þó varla
hafa tollað allan þennan tíma
hefði honum ekki líkað þolan-
lega við starfið og fólkið sem
hann vann með. „Eg hef
svona gegnumsneitt verið
ákaflega heppinn með sam-
starfsfólk."
Nú þegar störfum lýkur
hjá bænum ætlar Haukur að
snúa sér af fullum krafti að
áhugamálum sínum, sem eru
helst þau að dunda við að
mála og skrifa. Hann segir
það reyndar stundum sagt
að þegar fólk hætti að vinna
sé svo mikið að gera að eng-
inn hafi tíma til neins. „Og
kannski verður það þannig
með mig líka,“ sagði Haukur
að lokum.
Fjölskylda rekur kaffíhús í Mosfellsbæ
Starfsorkan kemur
úr skyri og rjóma
INGUNN Bergþórsdóttir, Guðmundur Helgi Ármannsson og Valgerður Ósk, dóttir
þeirra, í Draumakaffi, en hjónin sáu að mestu um smíðavinnu á staðnum.
Mosfellsbær
GAMALL draumur rættist
þegar hjónin Guðmundur
Helgi Armannsson og Ing-
unn Bergþórsdóttir opnuðu
kaffihúsið Draumakaffi í
Mosfellsbæ á síðasta ári.
Guðmundur, sem er húsa-
smiður að mennt, hafði lengi
látið sig dreyma um að hefja
einhvers konar rekstur og
sló til þegar Mosfellsbær
hélt námskeið um stofnun
nýrra fyrirtækja. Ingunn
segist hafa verið svolítið
treg til í fyrstu, henni fannst
hún hafa lítinn tíma enda
starfar hún sem sjúkraliði á
Reykjalundi og rekur stórt
heimili. „Eftir að ákvörðun-
in var tekin varð hins vegar
ekki aftur snúið,“ sagði Ing-
unn við blaðamann Morgun-
blaðsins sem fékk sér kaffi-
sopa á Draumakaffi.
„Við höfðum ekki hug-
mynd um hvað við vorum að
fara út í,“ sagði Guðmundur
og starfræksla kaffihússins
hefur reynst tímafrekari en
hann gerði ráð fyrir í upp-
hafi. Draumakaffi er sann-
kallað fjölskyldufyrirtæki,
þar starfa engir utan fjöl-
skyldunnar og viðveran er
löng; kaffihúsið er opið alla
daga vikunnar, frá klukkan
níu virka morgna en ellefu
um helgar, frá mánudegi til
miðvikudags lokar klukkan
ellefu að kvöldi, á fimmtu-
dögum og sunnudögum er
opið til klukkan eitt eftir
miðnætti en föstudaga og
laugardaga til klukkan tvö.
Það gefast því fáar stundir
fyrir fjölskylduna að samein-
ast utan vinnunnar. Hjónin
sögðu að brugðið hafi verið á
það ráð þegar bamabam
þeirra var skírt á dögunum
að draga opnun á sunnudegi
til klukkan tvö. „Þetta er
vinna 24 tíma á sólarhring,"
sagði Guðmundur og það á
við um Ingunni konu hans í
bókstaflegri merkingu..
„Það er rólegra hjá mér
núna því ég er í sumarfríi á
Reykjalundi," sagði Ingunn
en alla jafna hefst vinnudag-
ur hennar á kaffihúsinu
klukkan átta en þangað
kemur hún beint af nætur-
vakt á Reykjalundi sem
stendur frá klukkan hálftólf
að kvöldi. Þess á milli sinnir
hún börnum og búi.
Til að byrja með var að-
eins boðið upp á kökur og
kaffi á Draumakaffi en hjón-
in sáu fljótt að reksturinn
stæði ekki undir sér með
þeim hætti, þau fengu því
vínveitingaleyfi og hafa að
auki heitan mat á boðstólum
í hádeginu. „Við bjóðum upp
á heimilislegan mat sem er
eldaður á staðnum,“ sögðu
hjónin.
Alin upp
á skyri og rjóma
Ingunn bakar líka flestar
kökumar sjálf svo dagurinn
á kaffihúsinu er annasamur,
hún reynir þó yfirleitt að
fara heim upp úr klukkan
fjögur en þar bíður hennar
að huga að kvöldmatnum og
sinna fimm ára syni sínum
og nýfæddum dóttursyni.
Þegar Ingunn er á nætur-
vakt leggur hún sig um
klukkan 18 en er annars
alltaf á bakvakt á Drauma-
kaffi, hjónin búa stutt frá
kaffihúsinu og eru til reiðu
ef mikið er að gera.
Ingunn segir aðspurð að
erfitt hafi verið að vinna
svo langan vinnudag í
fyrstu en hún hafi sjóast
mikið. Hún segist oft hafa á
orði að hún sé alin upp á
skyri og rjóma, þaðan komi
starfsorkan.
Hjónin segja að hið mikla
starf á kaffihúsinu sé
skemmtilegt og vel þess
virði þótt það kosti vissulega
fómir. Þau segja annirnar
helst koma niður á yngsta
syni þeirra. Reksturinn hef-
ur gengið vel og áhugi íbúa
Mosfellsbæjar er mikill, „að-
sóknin mætti þó vera betri,“
segja hjónin.
Þau benda á að Drauma-
kaffi bjóði upp á annað and-
rúmsloft en pöbbamir í bæn-
um, rólegri stemmningu.
Skemmtiatriði em ekki
skipulögð á kaffihúsinu en
fólki er velkomið að mæta
með gítar og harmonikku.
Oft hefm- mikið fjör skapast
á staðnum við þær aðstæður
og eigendumir em sammála
um að þá mætti opnunartím-
inn vera miklu lengri.