Morgunblaðið - 01.07.1999, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 01.07.1999, Blaðsíða 1
145. TBL. 87. ÁRG. FIMMTUDAGUR1. JÚLÍ 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Viðræður héldu áfram þótt frestur til að leysa deilur á N-írlandi rynni út Reynt til þrautar að ryðja hindrunum úr vegi Belfast. AFP, Reuters. AP Reuters DAVID Trimble, leiðtogi sambandssinna, og Gerry Adams, leiðtogi Sinn Féin, komu út með stuttu millibili í gærkvöldi og ræddu við fréttamenn fyrir framan Stormont-kastala í Belfast. VIÐRÆÐUR leiðtoga stríðandi fylkinga á Norður-írlandi um mynd- un heimastjórnar og afvopnun öfga- hópa í héraðinu héldu áfram fram á nótt í stjómarbyggingum við Stor- mont-kastala í Belfast þrátt fyrir að breski forsætisráðherrann Tony Blair hefði sett miðnætti sem „end- anlegan“ frest fyrir deilendur að fínna lausn á deilumálum sínum. Var tilkynnt að Blair myndi dvelja áfram við samningaborðið a.m.k. til hádeg- is í dag, ef nauðsyn krefði. Pegar Morgunblaðið fór í prentun þótti góð von til að leiðtogar Sinn Féin, stjórnmálaarms Irska lýðveld- ishersins (IRA), og stærsta flokks sambandssinna (UUP) ryddu öllum hindrunum úr vegi og styrktu stoðir friðarsamkomulagsins frá því í fyrra með því að semja um deilumál sín, sem reynst hafa svo erfið úrlausnar. Adams bauðst til að ávarpa samninganefnd UUP Loft hafði verið lævi blandið fyrr um kvöldið og þótti allsendis óvíst að árangur næðist áður en frestur- inn rynni út. Rétt fyrir klukkan tíu í gærkvöldi að íslenskum tíma héldu bæði Geriy Adams, leiðtogi Sinn Féin, og David Trimble, leiðtogi UUP, stutta fréttamannafundi þar sem þeir lýstu því hvað enn bæri í milli. Virtist sem viðræður hefðu í raun lítið þokast áfram, sambands- sinnar þrjóskuðust enn við að láta af kröfum um að IRA hefji afvopnun áður en heimastjórn er mynduð með aðild Sinn Féin, á meðan leiðtogar Sinn Féin sátu fast við sinn keip og sögðu útilokað að þeir gætu sann- fært IRA um að ganga að þessu. Sú staðreynd að Adams og Trimble héldu þegar aftur inn til viðræðna þótti hins vegar benda til að þeir hygðust reyna til þrautar, og að von væri til þess að þeim tækist að brúa bilið og taka skrefið fram á við í sameiningu. Var fullyrt að Adams og Trimble sætu á fundi með Blair og Bertie Ahern, forsætisráðherra Irlands, einmitt þegar fresturinn rann út á miðnætti og mun Adams m.a. hafa boðist til að stíga hið sögulega skref að ávarpa liðsmenn samninganefnd- ar UUP þar sem hann hugðist reyna að fullvissa þá um að þeir gætu treyst lýðveldissinnum, og að af- vopnun myndi sannarlega eiga sér stað samþykktu sambandssinnar að setja heimastjórnina á laggirnar. Clinton reiðubúinn að grípa inn í Loks mun Kanadamaðurinn John de Chastelain, formaður þriggja manna nefndar sem falið var að gefa ráðleggingar um fyrirkomulag af- vopnunar öfgahópanna, hafa birt skýrslu snemma í nótt þar sem er að fmna mat hans á því hvort IRA hyggist í raun afvopnast fyrir maí- lok á næsta ári, eins og ákvæði frið- arsamkomulagsins kveða á um. Var vonast til að innihald skýrslunnar myndi staðfesta þetta, og að þar með myndi Trimble telja sér óhætt að ganga að samkomulagi. Slíkt samkomulag myndi annars vegar fela í sér nákvæmlega tímasetta áætlun um það hvenær og hvernig IRA afvopnast og hins vegar mynd- un heimastjórnarinnar með Sinn Féin innanborðs. Tony Blair ræddi við Bill Chnton Bandaríkjaforseta í síma í gær- kvöldi og kynnti fyrir honum stöð- una í viðræðunum í Stonnont. Voru uppi getgátur þá að Clinton kynni að ræða við leiðtoga Sinn Féin eða UUP, í því skyni að reyna að þrýsta málum áfram, líkt og Clinton gerði með góðum árangri í fyrra þegar friðarsamkomulagið, sem kennt er við föstudaginn langa, náðist. Stuðning-smenn Öcalans mótmæla Ikveikjur í Þýskalandi Ankara, Istanbúl, Berlín. Reuters, AFP. STUÐNINGSMENN Abdullah Öcalans, leiðtoga skæruliðahreyfing- ar Verkamannaflokks Kúrda (PKK), kveiktu í gær í ellefu byggingum sem eru í eigu Tyrkja búsettra í Þýskalandi. Voru íkveikjurnar liður í mótmælaaðgerðum Kúrda vegna dauðadómsins sem kveðinn var upp yfir Öcalan á þriðjudag. Búast þýsk stjórnvöld við mótmælaöldu meðal Kúrda í Þýskalandi en þar í landi búa um tvær milljónir innflytjenda frá Tyrklandi og er um fjórðungur þeirra Kúrdar. Tyrknesk stjómvöld lýstu því yfir í gær að tólf skæruliðar PKK hefðu verið felldir í suðausturhluta Tyrk- lands í kjölfar átaka við hersveitir Tyrkja. Hafa tyrknesk hermálayfir- vöid mikinn viðbúnað vegna hugsan- legra átaka við PKK. Ikveikjutilræðin í Þýskalandi í gær voru fyrstu ofbeldisverkin sem koma í kjölfar dómsins umdeilda. í Stuttgart og Bremen var eldsprengj- um varpað inn á veitingastaði og ferðaskrifstofur í eigu Tyrkja en ekkert mannfall varð í tilræðunum. Þá söfnuðust hundmð mótmælenda saman í fjölmörgum borgum í Þýskalandi í gær og mótmæltu m.a. 200 manns fyrir utan bandaríska sendiráðið í Berlín. Hrópaði fólkið að starfsmönnum sendiráðsins og ásök- uðu Bandaríkin um að hafa lagt á ráðin um handtöku Öcalans. Verjendur Öcalans hófu í gær undirbúning áfrýjunar dauðadóms- ins. „Við erum að leita leiða til að fá eðlilega niðurstöðu í málinu fyrir eðlilegum dómi, sem tekur ákvörðun án íhlutunai- stjórnvalda," sagði Niy- azi Bulgan, einn verjenda Öcalans, í gær. Sagði hann að málinu yrði áfrýjað til Mannréttindadómstóls Ewópu sem og áfrýjunardómstóls Tyrklands. Sögðu lögmenn Öcalans í yfirlýsingu sinni að í réttarhöldunum hafi margt orkað tvímælis. Reuters BRESKIR ferðamenn hraða sér í fríhafnarverzlunina um borð í Manet, ferju sem siglir milli Caiais í Frakklandi og Dover í Bretlandi. Frfliafnarverzlun hætt Hugsanleg upp- stokkun á ríkis- stjórn Júgóslavíu Belgrad. Reuters. Barak með starfhæfan meirihluta Jerúsalem. AFP. LEIÐTOGAR ísraelska Shas-flokks- ins samþykktu í gær að taka þátt í samsteypustjóm undir forsæti Ehuds Baraks, leiðtoga Verkamannaflokks- ins, og mun ákvörðun Shas-flokksins leiða til mikils þingmeirihluta kom- andi ríkisstjórnar á ísraelska þinginu. Stuttu eftir að Barak fékk samþykki Shas-flokksins í gær lýsti hann því yf- ir á ísraelska þinginu að hann hefði nú starfhæfan meirihluta á þingi og að hann myndi tilkynna þinginu um ríkisstjórnina á mánudag. Shas-flokkurinn sem er flokkur strangtrúaðra gyðinga samþykkti stjórnarsetuna eftir að honum höfðu verið boðin sæti í ríkisstjóm lands- ins, þ.á.m. ráðuneyti trúmála. Þátttaka flokksins í ríkisstjórninni er talin munu auðvelda eftirleikinn að stjómarmyndun Baraks meðal sjö flokka á ísraelska þinginu. Hefur Barak nú tryggt sér stuðning 69 þingmanna af 120 og eru taldar líkur á að ellefu þingmenn til viðbótar muni styðja ríkisstjórnina. TOLLFRJÁLSRI verzlun var hætt innan Evrópusambandsins (ESB) á miðnætti sem þýðir að þeir sem ferð- ast milli ESB-landa munu ekki leng- ur geta keypt virðisaukaskatts- og tollfrjálsan varning í flughöfnum eða ferjum á þessum leiðum. I ferjum yfir Ermarsundið víú handagangur í öskjunni í gær, þegar' ferðamenn, nýttu sér síðasta tækiJ færið til að gera hagstæð kaup. Á ferjuleiðinni milli Svíþjóðar og Finn- lands var öllu rólegra, þar sem frí- hafnarverzlun á þeirri leið heldur áfram, þar eð Áiandseyjar, viðkomu- staður ferjanna, njóta undanþágu frá ýmsum sameiginlegum skattaregl- um ESB. ■ ÁIandseyingar/33 MOMIR Bulatovic, forsætisráðherra Júgóslavíu, boðaði í gær til fundar allra stjórnarflokkanna á þingi Sam- bandsríkis Júgóslavíu, sem fara á fram í dag, og þykir til marks um að stjórnvöld í Belgrad hyggi á upp- stokkun ríkisstjómarinnar. Nú eru þrjár vikur frá því loftárásum Atl- antshafsbandalagsins (NATO) á Jú- góslavíu lauk og síðan hafa verið uppi háværar raddir um að Slobodan Milosevic forseti stígi úr valdastóli og að uppstokkun verði á ríkisstjóminni. Taryug-fréttastofan greindi frá því í gær að allir flokkar sem fulltrúa ættu á Júgóslavíuþingi hefðu verið boðaðir til fundarins í dag en ekki væri vænst þátttöku allra. „Tilgang- ur fundarins er að sjá hve langt er hægt að komast í samvinnu allra stjórnmálaaflanna á þingi um að ná fram markmiðum stjórnarinnar,“ sagði í frétt Tanjug í gær. Með markmiðum stjórnarinnar er átt við nauðsyn þess að styrkja ein- ingu innan landsins um endurupp- byggingu þess og eflingu viðskipta- tengsla þess við önnur ríki. Draskovic í stjórn á ný? Harðlínumenn í flokki róttækra þjóðemissinna, undir stjórn Voj- islavs Sesljs hafa verið nefndir sem hugsanlegir aðilar að nýrri ríkis- stjórn Júgóslavíu, sem og Vuk Dra- skovic, fyrrverandi aðstoðarforsætis- ráðherra landsins. Þrátt fyrir að þingmenn úr Jafn- aðarmannaflokki Svartfjallalands, flokki Milos Djukanovics, forseta Svartfjallalands, hafi verið boðaðir til fundarins í dag er talið ólíklegt að þeir mæti. Þá hefur ekki verið til- greint hvort flokkar skipaðir áköf- ustu gagnrýnendum Milosevics hafi verið boðaðir á fundinn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.