Morgunblaðið - 01.07.1999, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 01.07.1999, Blaðsíða 6
6 FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 1999 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Samið við GE Hydro og Clemessy um Vatnsfellsvirkjun V élbúnaðurinn kostar 1.760 millj. LANDSVIRKJUN ákvað í gær að ganga til lokasamninga við General Electric-Hydro í Kanada og franska fyrirtækið Clemessy, um sameigin- lega framleiðslu og uppsetningu og vél- og rafbúnaði Vatnsfellsvirkjun- ar. Hekla hf. er umboðsaðili þessara fyrirtækja hérlendis. Samningurinn hljóðar upp á 1.760 milljónir króna og segir Þorsteinn Hilmarsson, upplýsingafulltrúi Landsvirkjunar, að eftir fjárhags- legt og tæknilegt mat á tilboðum þeim sem bárust hafí tilboð þessara aðila reynst lægst og hagkvæmast fyrir Landsvirkjun. Kostnaðaráætl- un ráðgjafa Landsvirkjunar hljóð- aði upp á 2.346 milljónir króna og er tilboðið um 75% af kostnaðaráætl- un. FRÁ undirritun veitingabréfs um vélar í Vatnsfellsvirkjun í gær, í fremri röð frá vinstri: Charles Elazer frá GE Hydro, Agnar Olsen frá Landsvirkjun, Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar, Gunnlaug- ur Nielsen frá Landsvirkjun og Joseph Hattenberger frá Clemessy. í aftari röð frá vinstri: Zhefeng Sun frá GE Hydro, Hrafnkell Gunnars- son frá Heklu, Bernard Arsenault frá GE Hydro, Sigfús R. Sigfússon, forstjóri Heklu, og Aðalsteinn Jónsson frá Heklu. Frávikstilboð hið lægsta Óskað var eftir tilboðum í vél- og rafbúnað Vatnsfellsvirkjunar, sem á að vera 90 MW, en hún er ráðgerð í veituskurði úr Þórisvatni í inn- takslón Sigöldustöðvar. Óskað var eftir tilboðum í framleiðslu og upp- setningu tveggja 45 MW hverfla með tilheyrandi búnaði og að tilboð- in miðuðust við mismunandi fram- kvæmdahraða, þannig að velja megi hvenær virkjunin verði tilbúin á ár- unum 2001 til 2004. Aðaltilboð í verkið í heild var miðað við að virkj- unin verði tilbúin í lok árs 2001. Ellefu tilboð bárust auk frá- vikstilboða. Þegar tilboðin voru opnuð kom í ljós að lægsta tilboðið var frá Sulzer Hydro GmbH-ESB Intemational í Þýskalandi og hljóð- aði það upp á 1.769 milljónir króna, en Consortium General Electric Hydro og Clemessy áttu næst- lægsta tilboðið, sem hljóðaði upp á 1.788 milijónir króna. Þorsteinn segir að þessir aðilar hafi að auki átt frávikstilboð, sem nánari skoðun hafi leitt í Ijós að væri hið lægsta sem til greina kom. „Þessi útboð eru svo flókin að ekki er hægt að birta allar tölur í tilkynningum um opnun tilboða, auk þess sem þegar er um að ræða vélar og búnað þarf að skoða mjög vel nýtni og annað á tækjum, sem breytir því ekki að þetta tilboð reyndist vera í krónum talið hið lægsta, bæði iyrir og eftir mælingar á nýtni,“ segir Þorsteinn. Hann kveðst búast við því að þeg- Þórariim V. > hættur ÞÓRARINN V. Þórarinsson tekur formlega við stöðu forstjóra Lands- símans hf. í dag. Jafnframt lætur hann af störfum framkvæmdastjóra Vinnuveitendasambands Islands, en þeirri stöðu hefur hann gegnt í 13 ár. Samtals hefur hann starfað hjá VSÍ í 19 ár. Að sögn Ólafs B. Ólafssonar, for- manns VSÍ, eru formenn aðildarfé- laga Samtaka atvinnulífsins, sem taka til starfa í haust, að leita að formanni fyrir hin nýju heildarsam- tök atvinnurekenda. Stefnt væri að því að ljúka þeirri vinnu í síðasta lagi 15. september. Þegar samstaða hefði tekist um nýjan formann myndi hann í samráði við formenn aðildarfélaga Samtaka atvinnulífs- hjá VSI | ins taka ákvörðun lil^ Un? ráðn-n?U ^rar”~ M engu geta svarað Hk um hvenær búið . yrði að ráða fram- Æ ef hann yrði ráðinn ^í sumar myndi hann starfa sem framkvæmdastjóri VSI fram á haustið og síðan yrði hann framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins þegar þau hefðu formlega tekið til starfa. Þangað til myndi Hannes G. Sigurðsson, að- stoðarframkvæmdastjóri VSÍ, og hann sjálfur sinna þeim störfum sem Þórarinn hefur gegnt. ar sé byrjað að leggja drög að fram- leiðslu þess búnaðar sem um ræðir hjá fyrirtækjunum, en í gær var undirritað svo kallað veitingabréf á milli GE Hydro, Clemessy, Heklu hf. og Landsvirkjunar, að viðstödd- um fulltrúum allra fyrirtækjanna. Komnir í kalda vatnið Sigfús R. Sigfússon, forstjóri Heklu hf., segir forsvarsmenn fyrir- tækisins afar stolta af því að hafa fengið þennan samning við Lands- virkjun. „Þetta er búið að vera mikil barátta, menn hafa unnið vel og við lögðum allan okkar metnað í að fá þennan samning og fengum hann. Það hefur tekið mörg ár að ná þessu stigi og margir hafa komið að því, enda flókið mál. Samkeppnin var gríðarleg en menn komu drengilega fram og það er gaman þegar allir geta staðið uppréttir að leikslokum. Fyrir Landsvirkjun er þetta hag- kvæmasti samningurinn, það er engin spuming, og ágætur sömu- leiðis fyrir aðra aðila sem að honum koma,“ segir Sigfús. . „Fyrir fyrirtæki eins og Heklu, miðað við seinasta samning sem við náðum við Nesjavelli fyrir þremur árum um gufuhvarfshreyfla frá Mitsubishi Heavy Industries, er skemmtilegt að vera komnir í kalda vatnið líka, en vera ekki aðeins í því heita. Þetta er aðeins upphafið að okkar mati, við viljum horfa til frek- ari framkvæmda á þessu sviði í framtíðinni.“ Tvær rússneskar hervélar við landið Taldar tengj- ast heræf- ingu Rússa FYLGST var með ferðum tveggja langdrægra rússneskra herflugvéla af gerðinni Tupolev TU-95MS á loftvarnasvæði lands- ins aðfaranótt föstudagsins 25. júní siðastliðins. F-15 orrustuþot- ur varnarliðsins flugu í veg fyrir vélarnar og fylgdust með ferðum þeirra. Friðþór Eydal, upplýsingafull- trúi varnarliðsins, tjáði Morgun- blaðinu að talið væri að ferðir rússnesku flugvélanna hefðu ver- ið í tengslum við stærstu heræf- ingu sem rússneski heraflinn hefði haldið í 10 ár og fram fóru dagana 21. til 26. júní. í henni tóku þátt um 50 þúsund menn, þúsund skriðdrekar og önnur vopnuð farartæki, 100 flugvélar og þyrlur og 50 skip. Ný gjaldskrá Hvalfjarðarganga samkvæmt tillögum Spalar hf. I. gjaldflokkur: Ökutæki styttri en 6 metrar Veggjald fyrir staka ferð: 1.000 krónur (óbreytt) 10 ferðir - afsláttarkort: 700 krónur (nýrkostur) 40 ferðir - áskrift: 500 krónur (var 600 kr.) 100 ferðir - áskrift: 400 krónur (nýrkostur) II. gjaldflokkur: Ökutæki 6 til 12 metrar Veggjald fyrir staka ferð: 3.000 krónur (óbreytt) 40 ferðir - áskrift: 1.950 krónur (var 2.250 kr.) III. gjaldflokkur: Ökutæki lengri en 12 metrar Veggjald fyrir staka ferð: 3.800 krónur (óbreytt) 40 ferðir - áskrift: 2.470 krónur (var 2.850 kr.) IV. gjaldflokkur: Vélhjól Veggjald fyrir staka ferð: 400 krónur (var 600 kr.) Tillaga um allt að 33% lækkun á af- sláttarkortum um Hvalfjarðargöng Ný tíu miða kort ekki bund- in ökutæki STJÓRN Spalar, sem á og rekur Hvalfjarðargöng, samþykkti í gær að leggja til við bandaríska trygg- ingafyrirtækið John Hancock Ltd. - stærsta lánveitanda félagsins - að breyta gjaldskrá ganganna frá og með 1. ágúst nk. Gert er ráð fyrir að gjald fyrir einstakar ferðir ökutækja breytist ekki en boðið er upp á ný tíu miða afsláttarkort sem ekki eru bundin við ákveðið ökutæki. „Við munum taka til hliðar um 40 milljónir króna vegna aukins öryggisbúnaðar og ætlum við að reyna að ná fundi þeirra aðila, sem koma að öryggis- málunum, og heyra hljóðið í þeim en við erum fyrst og fremst að tala um myndavélakerfi,“ sagði Gísli Gíslason, stjómarformaður Spalar. „Við erum að reyna að fá sem flesta til að nýta sér afsláttarkort- in,“ sagði Gísli. „Ef þúsund króna gjaldið yrði lækkað niður í 800 krónur, þá segja menn annars veg- ar að þar muni ekki svo miklu fyrir þá sem fara örsjaldan um göngin en það tefur afgreiðsluna að vera með skiptimynt auk þess sem ekki yrði hægt að bjóða eins mikinn afslátt af afsláttarkortum eða áskrift." Benti hann á að kosturinn við tíu ferða af- sláttarkort væri sá að menn fengju miða. „Ferðimar era þá ekki bundnar við einn bfl,“ sagði hann. „Þannig að það era nokkrir kostir sem Islendingar verða fljótir að átta sig á.“ Gísli sagðist eiga von á að þessar tillögur yrðu samþykktar en breyt- ingamar væru háðar því að tækni- lega yrðu ekki neinar hindranir fyr- ir því að breyta gjaldbúnaðinum frá 1. ágúst. Njóta góðs af inneign í frétt frá stjórninni kemur fram að stjórn Spalar áætlar að heildar- tekjur af' umferðinni í Hvalfjarðar- göngum lækki um a.m.k. 13% ef framangreindar breytingar verða samþykktar. Athygli er vakin á að þeir áskrifendur sem eiga inni á reikningi sínum hjá Speli eða kaupa ferðir í áskrift áður en gjaldskrár- breyting tekur gildi munu njóta góðs af inneign sinni eftir breyting- una. Varnarliðið F-15 orrustuþotur Varnarliðsins fylgdust með ferðum rússnesku herflugvélanna. Rússnesku herflugvélarnar komu úr norðaustri og flugu réttsælis umhverfís landið á ut- anverðu loftvarnasvæðinu og héldu að því búnu í sömu átt og þær komu úr. Varnarliðið fylgd- ist með ferðum þeirra í ratsjá og orrustuþoturnar fylgdu þeim eft- ir innan loftvarnasvæðisins á venjubundinn hátt. Loftvarna- svæðið nær að meðaltali um 200 sjómflur frá strönd landsins og er alþjóðlegt flugsvæði upp að , mörkum 12 mflna lofthelginnar. I öryggisskyni er fylgst með ferð- um allra flugvéla sem leið eiga um svæðið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.