Morgunblaðið - 01.07.1999, Blaðsíða 41
40 FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 1999 41
JHftgtmlpliifeife
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson.
RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
VERÐBOLGAN
ER OF MIKIL
ENDURMAT Þjóðhagsstofnunar á efnahagshorfum á
þessu ári sýnir, að verðbólga verður meiri en áður var
gert ráð fyrir, eða 3% í stað 2,5%. Viðskiptahallinn verður
31 milljarður króna í stað 28 milljarða. Hagvöxtur verður
hins vegar nokkru meiri, eða 5,1% í stað 4,8%. Afram er
spáð 2% atvinnuleysi að meðaltali á árinu og er það
óbreytt frá fyrri spá.
Óhætt er að segja, að endurmatið á efnahagshorfum í
ár er bæði jákvætt og neikvætt. Aukning hagvaxtar kem-
ur nokkuð á óvart og er rakin til vaxandi útflutnings og
minni samdráttar í fjárfestingu en reiknað var með. Hag-
vöxtur verður því um og yfir 5% í fjögur ár samfleytt og
verður það að teljast mikill árangur á alþjóðlegan mæli-
kvarða. Þá reiknar Þjóðhagsstofnun með áframhaldandi
hagvexti næstu árin, þótt hann verði hægari en verið hef-
ur. Atvinnuleysi er og úr sögunni og vinnuaflsskortur er í
ýmsum atvinnugreinum.
Hækkun verðbólguspárinnar kemur ekki á óvart miðað
við þær verðhækkanir, sem orðið hafa að undanförnu og
rekja má til hækkunar á opinberum þjónustugjöldum,
fyrst og fremst sveitarfélaga, á olíuverði í kjölfar átak-
anna í Kosovo, á húsnæðisverði og loks á bifreiðatrygg-
ingum. Gengi krónunnar hækkaði um 2% fyrrihluta síð-
asta árs og hafði það áhrif til lækkunar á verði innfluttrar
vöru. A sama tíma í ár hefur gengið hins vegar lækkað um
0,5%.
Vaxandi viðskiptahalli stafar fyrst og fremst af versn-
andi viðskiptakjörum, einkum vegna lækkandi verðs á
sjávarafurðum og kísiljárni, svo og hækkun á olíu. í heild
er gert ráð fyrir, að viðskiptakjörin versni um 4,5% í stað
0,5%, sem spáð var í marzmánuði sl. Viðskiptahalli eykst,
þótt gert sé ráð fyrir 9,5% aukningu útflutnings á árinu,
en aðeins 1% aukningu innflutnings.
Horfur í efnahagsmálum þjóðarinnar eru bjartar um
þessar mundir. Góðærið heldur áfram. Full ástæða er þó
til að gjalda varhug við vaxandi verðbólgu og viðskipta-
halla og grípa til tiltækra ráða til að snúa þeirri þróun við.
ATVINNULÍFIÐ Á
VESTFJÖRÐUM
Atvinnulífið á Vestfjörðum er töluvert í sviðsljósinu um
þessar mundir vegna rekstrarstöðvunar hjá Rauð-
síðu, fyrirtæki, sem vann fyrst og fremst úr Rússafiski,
svo og vegna sameiningar sjávarútvegsfyrirtækja og hag-
ræðingaraðgerða í stórum fyrirtækjum við Djúp.
Það lá alltaf ljóst fyrir, að rekstur Rauðsíðu væri
áhætturekstur, og þess vegna þarf engum að koma á
óvart að komið hefur til stöðvunar á rekstri. í því sam-
bandi hefur athygli manna fyrst og fremst beinzt að stöðu
hins erlenda verkafólks, sem unnið hefur hjá fyrirtækinu.
Fáránleg deila hefur staðið á milli félagsmálaráðherra,
sveitarfélagsins fyrir vestan og Sambands íslenzkra sveit-
arfélaga svo og verkalýðsfélagsins á staðnum. Sú deila fer
fram með þeim hætti, að öllum sem að henni koma er til
skammar. Það er ljóst, að hið erlenda verkafólk getur
fengið atvinnu annars staðar, en það sjálft vill gjarnan
vera áfram á Vestfjörðum og fram hefur komið að það
vilja Vestfirðingar líka. Það er umhugsunarefni í þessu
sambandi, hvort skylda á atvinnufyrirtæki til þess að
leggja fram ákveðnar tryggingar, þegar óskað er eftir
leyfi til að ráða útlendinga hingað til lands, þannig að upp
á eitthvað sé að hlaupa í stöðu sem þessari.
Vandi vestfirzks atvinnulífs er hins vegar ekki sízt sá,
að sameining sjávarútvegsfyrirtækja og hagræðingarað-
gerðir, sem boðaðar hafa verið, koma alltof seint. Vest-
firðingar eru langt á eftir öðrum landshlutum í þessum
efnum. Þeir hefðu þurft að grípa til þessara aðgerða fyrir
áratug eða snemma á þessum áratug og um nauðsyn þess
var rætt en vilji ekki fyrir hendi á þeim tíma. Sjávarút-
vegsfyrirtæki í öðrum landshlutum hafa gengið í gegnum
þá breytingu, sem nú er að hefjast á Vestfjörðum. Þótt
Morgunblaðið hafi umfram flesta aðra gagnrýnt óbreytt
kvótakerfi er ekki hægt að kenna því um allt. I þessum
efnum verða Vestfirðingar að horfast í augu við sjálfa sig.
Mikill áhugi á uppbyggingu Nýheima á Höfn í Hornafírði
FWSfT
sí- og endurmenntun í fjórðungnum. Fræðslunetið
tengir saman nemendur og framhaldsskóla og há-
skóla þannig að nemendur geta valið þar þau nám-
skeið sem þeir hafa áhuga á og stundað námið í
sinni heimabyggð, í fjarnámi.
„Eg er viss um að sú ráðstöfun að hafa Fram-»
haldsskólann í beinum tengslum við atvinnulífíð,
Háskóla Islands og upplýsingamiðstöð er mikilvæg
fyrir skólann. Hún myndi leiða til þess að hingað
sæi fólk sér hag í að koma,“ segir Garðar Jónsson
bæjarstjóri. „Hér yrði fjölbreytni í atvinnulífínu og
skemmtilegt að búa. Við yrðum samkeppnisfær við
önnur sveitarfélög á fleiri sviðum.“
Vísindarannsóknir og
hugsanlegt háskólanám
Háskóh Islands hefur hug á að koma sér upp
rannsóknaraðstöðu í Nýheimum, hann myndi geta
tengst þróunarstarfi í Nýheimum og einnig kemur
til greina að bjóða upp á einhvers konar háskóla-
nám. Hugmyndin er að rannsóknirnar verði á svið-
um sem tengjast svæðinu sérstaklega, og þá eink-
um rætt um rannsóknir á jöklum og jafnvel lífríki
sjávar. „Hingað á svæðið, bæði í Öræfin og í
Hornafjörð, koma vísindamenn frá ýmsum löndum
til að rannsaka Vatnajökul. Það er hluti af námi
þeirra og starfí að rannsaka jökulinn. Þeim mætti
bjóða aðstöðu til rannsókna í Nýheimum. Einnig er
hugmyndin að hér verði maður til að sinna rann-
sóknum á vegum Háskóla íslands, annað hvort
fastui' starfsmaður eða fleiri menn sem kæmu til
skiptis,“ segir Garðar Jónsson.
Rannsóknastarfsemin yrði meginþátturinn í
starfi Austurlandsseturs Háskóla Islands. Garðar
segir þó að einnig sé til skoðunar að bjóða upp á
stuttar námsleiðir á Höfn. Myndi Háskólinn þá
senda kennara austur en námið gæti einnig orðið
fjarnám að hluta. Akveðinn markaður virðist fyrir
hendi, þannig liggur fyrir að fjórir íbúar Horna- ••
fjarðar hafa sýnt áhuga á leikskólakennaranámi og
sjö hafa áhuga á námi í hjúkrunarfræði. Hann seg-
ist ekki gera sér vonir um verulegt háskólanám en
sú starfsemi sem fram færi á vegum Háskóla ís-
lands á Austurlandi færi þó öll í gegnum útibúið á
Höfn.
Nýlega gerðu þrjú stærstu sveitarfélögin á Aust-
urlandi með sér samning um samstarf á sviði ný-
sköpunar og menntunar. Felur það meðal annars í
sér að Austurlandssetur Háskóla íslands verði í
Hornafirði, Þróunarstofa Austurlands á Austur-
Héraði og Fjárfestingarfélag Austurlands í Fjarða-
byggð. „Þetta er mjög jákvætt og styrkir áform
okkar. Við leggjum áherslu á að vinna saman í stað
þess að togast á um stofnanirnar. Eg held að svona
samkomulag sveitarfélaga í heilum landshluta sé
einsdæmi,“ segir bæjarstjórinn.
Söfnin verðahjarta Nýheima
Sýslusafn Austur-Skaftafellssýslu er í húsnæðis-
hraki og hefur komið upp sú hugmynd að byggja
yfír bóka- og skjalasafn þess í Nýheimum. Gísli
Sverrir Árnason, forstöðumaður Sýslusafnsins,
segir að 20 þúsund bindi komist fyrir í núverandi
húsnæði safnsins og annað eins sé í geymslum úti í
bæ. Auk þess sé farið að þrengja illilega að starfs-
fólki og notendum.
Verði byggt yfir safnið í Nýheimum eins og bæj-
aryfirvöld ætla sér myndi starfsemi safnsins breyt-
ast. Við þjónustu við almenning bætist ráðgjöf og
þjónusta við „íbúa“ Nýheima. „Bókasafnið samein-
ast væntanlega bókasafni Framhaldsskólans. Við
munum síðan vinna að því að efla okkur sem alhliða
upplýsingamiðstöð, eins og bókasöfn almennt eru
að gera. Þar leika tölvur og alhliða margmiðlunar-
tækni stórt hlutverk. Rætt er um að starfsemi okk-
ar verði nokkurs konar hjarta stofnunarinnar,“
segir Gísli Sverrir.
Hann segist sjá fyrir sér að sveitarfélagið myndi
fela hinni nýju stofnun ákveðið hlutverk í upplýs-
ingagjöf um starfsemi sveitarfélagsins. Þai' yrði
unnt að nálgast upplýsingar um starfsemi þess og
þjónustu, einnig eyðublöð af ýmsu tagi.
„Eg tel að það yrði mjög jákvætt fyrir safnið og
myndi efla það að komast þangað inn. Auðvitað
þarf að gæta að því að safnið sinni áfram hlutverki
sínu sem almenningsbókasafn, það má ekki verða
það fræðileg stofnun að hún fæli almenning frá.
Þarna þarf að feta ákveðinn meðalveg."
Gísli Sverrir er jafnframt forseti bæjarstjórnar
Hornafjarðar og er bjartsýnn á að hugmyndin um
Nýheima verði að veruleika innan tíðar. „Það er
búið að vera ofarlega á baugi hér að byggja mynd-
arlegan framhaldsskóla og sú hugmynd að tengja
hann við nýsköpunarstarfið hefur
fengið góðar undirtektir. Eg
.—vonast til að það verði að
veruleika sem stjórnmála-
menn sögðu í aðdraganda
■ _ alþingiskosninganna, að
vilji væri til að styrkja
byggðina. Ég tel að það
gerist ekki betur en
með því að efla
menntunina,"
segir Gísli
Sverrir Árna-
son.
Menntun og nýsköpun í at-
vinnulífínu tengist í áformum
Hornfírðinga um uppbygg-
ingu svokallaðra Nýheima á
Höfn. Einnig er ætlunin að
þar verði upplýsingamiðstöð
á vegum sýslusafnsins.
Heimamenn sjá fyrir sér
frjótt starfsumhverfí fyrir
starfsfólk og nemendur,
möguleika til að auka að-
dráttarafl Framhaldsskólans
og nýjungar í atvinnulífínu.
Helgi Bjarnason kynnti sér
þessa nýstárlegu hugmynd.
HORNFIRÐINGAR hafa gert áætl-
un um sameiginlega uppbyggingu
fyrir nýjan framhaldsskóla sýsl-
unnar, tæknigarð, tengingu við há-
skóla og upplýsingamiðstöð fyrir
almenning og umræddar stofnanir.
Verkefnið hefur fengið heitið Nýheimar og er ætl-
aður staður í miðbæ Hafnar. Sveitarfélagið hefur
unnið að undirbúningi síns hluta framkvæmdarinn-
ar og á í viðræðum við ríkisvaldið um þátt þess í
byggingu framhaldsskólans. Eru heimamenn bjart-
sýnir á að fjármagn fáist á næstu fjárlögum til að
unnt verði að ráðast í framkvæmdir á næsta ári.
Hugmyndir tengjast
Hugmyndin sem þróast hefur í Nýheima hefur
verið í vinnslu frá árinu 1995. Að frumkvæði Stur-
laugs Þorsteinssonar, þáverandi bæjarstjóra, hófst
þá atvinnuþróunarverkefni sem snerist um að fá lít-
il fyrirtæki með góðar viðskiptahugmyndir til að
setja upp starfsemi í Hornafirði og láta reyna á
hvað í þeim byggi. Sveitarfélagið hugðist leggja til
ódýrt húsnæði. Tryggvi Þórhallsson, framkvæmda-
stjóri stjórnsýslusviðs sveitarfélagsins Hornafjarð-
ar, segir að hugmyndin sé þekkt víða um Evrópu,
sem tæknigarðar í tengslum við háskóla. Nýjungin í
Hornafirði hafi verið að efna til slíkrar starfsemi í
töluverðri fjarlægð frá háskóla og í því hafi falist
ákveðin áhætta.
Tryggvi segii' að fulltrúar Háskóla íslands hafi
fylgst með málinu og greitt götu þess á ýmsan hátt.
Sérstök verkefnisstjórn vann að málinu og á árinu
1997 var samþykkt í bæjarstjórn að hrinda hug-
myndinni í framkvæmd undir heitinu Nýherjabúðir
enda var ætlunin að fyrirhuguð bygging héti því
nafni. Stofnað var einkahlutafélagið Nýheijabúðir
og ráðinn verkefnisstjóri sem hefur unnið áfram að
undirbúningnum.
Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu, í
Nesjum, átta kílómetra utan við Höfn, hefur verið í
húsnæðisvandræðum og um leið ákveðinni tilvistar-
kreppu og í nokkur ár hefur verið leitað leiða til að
bæta þar úr. Menntamálaráðuneytið taldi koma til
greina að byggja við núverandi húsnæði skólans en
bæjaryfirvöld töldu það mikilvægan lið í að efla
skólastarfið að flytja það í aðalbyggðina á Höfn og
byggja þar yfir skólann. Umræður um úrlausn á
húsnæðisvanda Framhaldsskólans voru ótengdar
undirbúningi að Nýherjabúðum, allt fram á síðasta
ár er sú hugmynd kom fram að tengja þessar stofn-
anii' saman.
Auk þess að taka þátt í undirbúningi Nýherja-
búða hefur Páll Skúlason rektor lýst því yfir að Há-
skólinn hefði áhuga á að koma upp ákveðinni starf-
semi á Höfn, Austurlandssetri Háskólans, sem yrði
ein stoð Nýheima. Húsnæði Sýslusafns Austur-
Skaftafellssýslu er orðið ófullnægjandi og segir
Garðar
Jónsson
Tryggvi að bóka- og skjala-
safnið sé hugsað sem fjórða
stoð Nýheima. Safnið yrði
nokkurs konar hjarta sam-
starfsins, nútíma upplýs-
ingamiðstöð sem nýst gæti
öllum „íbúum“ Nýheima,
það er að segja stofnunum,
fyrirtækjum, nemendum og
starfsmönnum öllum.
Myndi efla byggðina
„Ég tel að þetta yrði mjög
góð eining. Þeir aðilar sem
stæðu að Nýheimum myndu
styrkja hver annan og bygg-
ingin myndi skjóta styrkari
stoðun undir atvinnulíf og
menntun og þá um leið
byggðina hér,“ segir Garðar
Jónsson, bæjarstjóri Hornafjarðar, þegar rætt er
við hann um hugmyndina. Tryggi Þórhallsson segir
að sameiginleg aðstaða fyrir fjórar umræddar
stofnanir myndi auðvelda aðgengi fólks að þekkingu
og mikilvægt fyrir aðrar stofnanir í Nýheimum að
eiga aðgang að sérfræðimenntuðu fólki á ýmsum
sviðum.
Tryggvi vekur á því athygli að ekki sé fyrirsjáan-
legur vöxtur í hinum hefðbundnu atvinnugreinum
svæðisins og mikilvægt að treysta nýsköpun og
menntun enda sé það í samræmi við stefnu ríkis-
valdsins í byggðamálum. Segir hann að hugmyndir
um Nýheima falli mjög vel að hugmyndum ríkis-
stjórnarinnar í byggðamálum. „Við sjáum mögu-
leika á starfsvettvangi fyrir nýjan hóp íbúa og að
við verðum samkeppnisfær um fólk sem er að koma
úr námi.
„Ég hef mikla trú á þessu verkefni, það getur
gefið okkur ný tækifæri,“ segir Halldóra B. Jóns-
dóttir, formaður bæjarráðs Hornafjarðar. Leggur
hún áherslu á að þeir sem vinna í skólum, rann-
sóknastofnunum og nýsköpunarfyrirtækjum í Ný-
heimum fái stuðning hver af öðrum, þótt þeir vinni
ekki á sama sviðinu. „Einstaklingar sem vilja færa
sig út á land komast hér í frjótt starfsumhverfi,"
segir hún.
Kostnaður 370 milijónir
Kostnaður við byggingu Nýheima samkvæmt
þeim vinnupappírum sem nú er stuðst við er áætl-
aður um 370 milljónir kr. Ríkissjóður mun ef til
kemur kosta 60% byggingar- og stofnkostnaðai'
húsnæðis fyrir framhaldsskólann og sveitarfélagið
40%. Sveitarfélagið þarf auk þess að greiða kostnað
við húsnæði safnanna og vera bakhjarl Nýherjabúð-
anna. Áætlað er að kostnaður skiptist þannig að
hlutur sveitarfélagsins verði 170 milljónir, ríkið
greiði 125 milljónir og Nýherjabúðahlutinn verði
um 75 milljónir kr. Þess ber þó að geta að ekki er
frágengið hvernig Nýherjabúðirnar verða fjár-
magnaðar, hvort það verði á vegum félagsins sjálfs,
sveitarfélagsins eða í samstarfi aðila.
Tekin hefur verið frá lóð fyrir Nýheima í ná-
grenni ráðhússins í miðbæ Hafnar og eru heima-
menn bjartsýnir á að framkvæmdir hefjist í byrjun
næsta árs. Forsendan er þó sú að samningar náist
við ríkisvaldið um byggingu framhaldsskól-
ans og flutning hans úr Nesjum. Björn ^
Bjarnason menntamálaráðherra hef- t ^
ur verið áhugasamur um málið og O
lýst því yfir að afstaða ráðu- . 'C"
neytisins sé jákvæð og það
Tryggvi
Þórhallsson
Halldóra B.
Jónsdóttir
Eyjólfur
Guðmundsson
Dóra
Stefánsdóttir
Gísli Sverrir
Árnason
Menntun og
nýsköpun undir
sama þaki
magna hvenær sem er sinn hluta kostnaðarins. „Við
teljum að þetta verði að veruleika, vonumst ein-
dregið til þess,“ segh- Garðar bæjarstjóri.
Eitt af skilyrðum ríkisins fyrir ákvörðun um ný-
byggingu er að menntamála-
ráðuneytið og sveitarfélagið
Homafjörður komi sér saman
um eignarhlutdeild og verð-
mæti núverandi húsnæðis
Framhaldsskólans í Nesjum.
Til að skera úr um þetta hafa
aðilar skipað þriggja manna
nefnd og skuldbundið sig til að
hlíta niðurstöðu hennar. Fram-
haldsskólinn var stofnaður upp
úr framhaldsdeild Nesjaskóla
og er því að hluta í húsnæði
grunnskólans. Gai'ðar Jónsson
bæjarstjóri segh' að grunnskól-
inn hafi þörf fyrir vissan hluta
af því húsnæði sem Framhalds-
skólinn hefur til afnota, meðal
annars samkomusal, og
segir koma til greina að
sveitarfélagið leysi húsnæðið til sín. Hann tekur
jafnframt fram að ekki sé búið að finna not fyrir allt
húsnæði Framhaldsskólans.
UPPLVSlrt GrAvn€>S,-To-Ei
Hlg—«
0 0 K A ±>APhJ/t-ö'uu UAESr.
imm............
---ÁTI TiORfc*
„Verðum að samnýta
hugvitið"
„Þetta er alveg frá-
bær hugmynd og í takt
við nýja tíma,“ segir
Dóra Stefánsdóttir,
framkvæmdastjóri Ný-
herjabúða ehf., um Ný-
ó^aifíCr. i s
. 1 ’
heimaverkefnið. „Ekki þýð-
ir að hver sé að vinna í sínu
horni. Við verðum að
samnýta hugvitið, ekki síst
úti um landið. Það er til
dæmis oft erfitt að fá raun-
greinakennara að skólun-
um. Hér gætu þeir stofnað
sitt eigið fyrirtæki og fengið
aðstöðu í Nýherjabúðunum
og kennt í hlutastarfi við
Framhaldsskólann eða aðra
skóla í sveitarfélaginu. Með
þessu getum við samnýtt
aðstöðuna og mannauðinn,"
segir Dóra.
Hlutverk Nýherjabúða er
að byggja og leggja til gegn
lágri leigu sérhannað ódýrt
húsnæði fyrir nýsköpunar-
fyrirtæki. Einnig að veita þeim faglegan stuðning
og aðgang að þekkingu eftir fyrirfram ákveðnu
skipulagi. Dóra segir að fólk hafi margs konar hug-
myndii' um nýsköpun og ómögulegt að segja til um
hvernig fyrirtæki muni verða til í Nýherjabúðun-
um. „Verið er að hugsa um tækni og vísindi í sinni
víðtækustu mynd. Það segja sumir að Hornafjörð-
ur sé svolítill frumherjabær. Fólk sitji ekki og bíði
eftir lausnunum heldur gangi sjálft til verka. Mér
finnst dálítið vera til í þessu,“ segir hún.
Fyrsta verkefni Nýherjabúða ehf. var að taka
þátt í kaupum á gömlu mjólkurstöðinni á Höfn
ásamt KASK, Borgey og Skinney og stuðla þannig
að því að þangað flytjist nýsköpunarfyrirtæki. Á
næstunni mun fyrirtækið Norður ehf. sem þróað
hefur framleiðslu á humarbragðefni úr humarafsliti
með hjálp ensíma flytja framleiðslu sína þangað. Þá
hefur Hornafjarðarhöfn óskað eftir aðstoð Ný-
herjabúða ehf. við að markaðssetja nýja stórskipa-
höfn sem áformað er að gera á Faxeyri.
Getur aukið
aðdráttarafl skólans
Einungis liðlega 40% af nemendum úr Horna-
firði, 16-20 ára, stunda nám við Framhaldsskólann
í Austur-Skaftafellssýslu (FAS) en það er mun
lægra hlutfall en eðlilegt er talið. Verulegur hluti
ungmennanna stundar því framhaldsnám annars
staðar. Eyjólfur Guðmundsson skólameistari nefnir
tvær skýringar á litlu aðdráttarafli skólans. Annars
vegar þá að skólinn er utan við aðalbyggðina og í
ófullnægjandi húsnæði og hins vegai- að hann er
það lítill að ekki er unnt að bjóða sömu fjölbreytni
og í stærri skólum. Starf stjórnenda skólans hef-
ur einkennst af eilífðarbaráttu fyrir þvf að
halda sínum hlut við erfiðar ytri aðstæður.
Eyjólfur bindur miklar vonir við ný-
byggingu skólans í Nýheimum á Höfn.
Telur að það gæti breytt ímynd
skólans og aukið aðdráttarafl
hans fyrir nemendur úr hérað-
inu. Skólinn fengi skilyrði
til að stækka, úr um það
bil 100 í 130-150 nem-
MÓTtAkiA
M<mnJC7rt
AOAL Afl íCOtriA
r
muni leggja því lið. Málið
kemst ekki lengi'a án
fjárveitinga en unnið
er að því að fá fjár-
veitingu til fram-
kvæmda á fjár-
lögum næsta
árs. Sveitarfé-
lagið er reiðu-
búið að fjár-
enda skóla, sem
myndi auka
möguleika á
námsframboði.
Þá segir skóla-
meistari að
tengsl skólans
við atvinnuþró-
unarstarfið í
Nýherjabúð-
um myndi
falla vel að
áherslum
skólans
sem lagt hafi áherslu
á að tengjast
<V, umhverfi sínu
Á—I sem mest. Þá
telur hann þátttöku
Háskóla Islands mikil-
væga og vekur athygli
á því að Framhalds-
skólinn gæti tekið þátt í
að koma upp háskólanámi á svæð-
inu. Loks minnir Eyjólfur á að
FAS eigi aðild að Fræðsluneti
Austurlands sem haldi utan um
HUGMYNDASKISSA arkitekta hjá Tciknistofunni Götu af Nýheimum á Höfn.
Hugmyndin er að upplýsingamiðstöð verði í hjarta byggingarinnar, nýr
framhaldsskóli vinstra megin og nýherjabúðir í byggingunni til hægri.