Morgunblaðið - 01.07.1999, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 1999 9
FRÉTTIR
Samgönguráðherrar Norðurlandanna funda í Reykjavfk
Samgöngur V-Norður-
landanna verði bættar
Morgunblaðið/Jim Smart
SAMGÖNGURÁÐHERRAR Norðurlandanna funduðu í Reykjavík á
þriðjudag og ræddu m.a. um bættar samgöngur á Vestur-Norðurlöndun-
um. Frá vinstri: Sturla Böðvarsson samgönguráðherra, Dag Jostein Fjær-
voll, samgönguráðherra Noregs, og Finnbogi Arge, ráðherra í Færeyjum.
SAMGÖNGURÁÐHERRAR Norð-
urlandanna funduðu í Reykjavík á
þriðjudag og ræddu þeir m.a. um að
bæta samgöngur á Vestur-Norður-
löndum og þá einkum flug- og sjó-
samgöngur mDli íslands, Græn-
lands og Færeyja. Einnig var rætt
um vistvænar samgöngur, nýtingu
nýrrar upplýsingatækni og umferð-
aröryggisdaga á Eystrasaltssvæð-
inu.
Ráðherrarnir eru hér á landi á
vegum Norrænu ráðherranefndar-
innar, en í ár er formennska í
nefndinni í höndum Islendinga.
Sturla Böðvarsson samgönguráð-
herra sagði að ástandið í samgöngu-
málum á norðvestursvæðinu hefði
lagast heilmikið síðustu ár, sérstak-
lega þar sem flugfélögin legðu nú
áherslu á að auka þjónustuna við
þessi lönd.
„Það er að mínu mati mjög mikil-
vægt fyrir Islendinga að samgöngur
á þessu svæði verði bættar," sagði
Sturla. Hann sagði það sérstaklega
mikilvægt út frá viðskiptahagsmun-
um, þar sem bættar samgöngur
leiddu til aukins ferðamanna-
straums og þá myndi það einnig
leiða til aukins flutnings á vamingi
ýmiss konar og þar með stuðla að
auknum viðskiptum.
Hann sagði bættar samgöngur
skipta máli fyrir öll löndin á svæð-
inu, en sagðist hafa orðið þess var
að ráðherrar Grænlands og
Færeyja legðu mikla áherslu á sam-
starf við Islendinga um að tryggja
sem bestar samgöngur og sagði því
ljóst að Island gegndi lykilhlutverki
á þessu sviði. Hann sagði að sérstök
nefnd myndi fjalla um þessar bættu
samgöngur og þá myndu ráðherr-
amir líklega hittast aftur á Norður-
landaþinginu í Stokkhólmi og ræða
málin enn frekar.
Rætt um vistvænar samgöngnr
Ráðherrarnir ræddu einnig um
vistvænar samgöngur í ljósi Kyoto-
samningsins og nýtingu nýrrar
upplýsingatækni innan samgöngu-
geirans. Sturla sagði að stöðugt
væri verið að leita leiða til þess að
koma upp samgöngumannvirkjum
og tækjum sem menguðu minna,
en slík mannvirki og tæki gerðu
nú. Hann sagði að ráðherrarnir
hefðu verið sammála um það að
stuðla bæri að auknum rannsókn-
um á þessu sviði. Hann sagði að
hægt væri að nota upplýsinga-
tækni, t.d. tölvur, til að greiða fyrir
UNDIR- FATALÍNA v\l/.
Kringlunni \c3Æf^*-/ S. 553 7355 W~~
umferð og draga úr eldsneytis-
notkun, þar sem tölvutæknin væri í
auknum mæli nýtt við hönnun sam-
göngumannvirkja og stýringu á
umferð.
Á fundinum ræddu ráherrarnir
einnig um það að skipuleggja sér-
staka umferðaröryggisdaga á
Eystrasaltssvæðinu, svo og að
samræma norrænar rannsóknir á
sviði umferðar- og samgöngumála.
Ferðatöskur
í öllum stærðum og gerðum
Mesta úrval landsins af ferðatöskum.
Komdu og skoðaðu nýju lóðréttu
töskurnar með dráttarhaldi.
Kynnum nýjustu hörðu töskurnar frá
Cavalet.
Skólavörðustíg 7, sími 551-5814. OPIÐ LAUGARDAGINN 3. JÚLÍ TIL KL. 17
/ÍILSÖUIEBALEICtfV
öðruvísi brúðarkjólar.
Fallegar mömmudragtir,
hattar og kjólar.
Allt tyrir herra.
Fataleíga
Garðabæjar,
sími 565 6680.
Opið virka daga
kl. 9.00-18.00,
kl. 10.00-14.00.
MEG frá ABET
UTANÁHÚS
FYRIRLIGGJANDI
Ný sending af
Heize
Pólska handmálaða matar- oe
kaffistellið komið aftur.
Kringlunni - Sími 5682221
BARNASTÓLARNIR
VINSÆLU
Þeir eru sterkir og fjaðra sjálfstætt undir barninu, með
fjögurra punkta öryggisbelti og vandaðri fótavörn.
Bandarískar og evrópskar öryggisviðurkenningar.
Hraðlosunarbúnaður, sem passar á flest hjól.
Bögglaberi óþarfur. Fyrir börn 0-25 kg.
Verð frá kr. 5.464 stgr.
Opið laugard. kl.10-16
ORNINNf*
Skeifunni 11, sími 588 9890
LBOÐSDAGAR
20%
AFSLÁTTUR
RNÍN
LAUGAVEGI 56
Víðtaekar rannsóknir hafa sýnt fram á mjög áhugaverðar niðurstöður fyrir notendur hins einstaka
. fæðubótarefnis PROLOGIC
\MS
1$
4Ð^
fæst í flestum apótekum og lyfjaverslunum um land allt.