Morgunblaðið - 01.07.1999, Blaðsíða 22
2É FIMMTtfDAGUR í. JUL’f 1999
MORGUNBLAÐIÐ
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Osey hf. verður fyrst fyrirtækja til að hefja byggingaframkvæmdir á nýja hafnarsvæðinu
Eldsvoði
og erfiður
vetur að baki
Hafnarfjörður
FYRSTA fyrirtækið sem
byggir yfir starfsemi sína
á nýja hafnarsvæðinu í
Hafnarflrði verður Ósey
hf. Húsnæði fyrirtækisins
brann í nóvember sl. og
hefur veturinn verið erf-
iður vegna aðstöðuleysis,
að sögn Hallgríms Hall-
grímssonar, fram-
kvæmdaslgóra fyrirtækis-
ins.
Þegar húsið brann ofan
af fyrirtækinu var ætlun-
in að taka í notkun nýtt
húsnæði eftir 3 mánuði.
Hafnarfjarðarbær heimil-
aði hins vegar ekki bygg-
ingu á athafnasvæði fyrir-
tækisins við Hvaleyrar-
tjörn, enda hefur verið
stefnt að því að flytja at-
vinnustarfsemi af því
svæði. Ósey fókk þá vil-
yrði fyrir lóð á nýja hafn-
arsvæðinu.
Það hefur þó tekið of
langan tíma að gera lóð-
ina byggingarhæfa að
sögn Hallgríms og á með-
an hefur fyrirtækið þurft
að vinna allt meira og
minna utandyra. Sumarið
var því kærkomið fyrir
starfsmennina.
Stefnt er að því að
hefja byggingarfram-
kvæmdir í næsta mánuði
og sagðist Hallgrímur
reikna með að fá lóðina
afhenta í kringum 10. júh'.
Húsið kemur tilbúið fá
Spáni, þ.e.a.s. stálgrind
og klæðning, og verður
það komið til landsins 22.
júlí. Hallgrímur sagði að
menn hefðu því 15-20
daga til að ganga frá
sökklum undir húsið áður
en það kemur á hafnar-
bakkann.
Byggingin verður alls
um 3.500 fermetrar. Sett
verður upp dráttarbraut
og brautarskáli sem verð-
ur 20 metra breiður og 50
metra langur. Auk þess
verður útiplan til athafna
við skipaviðgerðir.
Mikil framsýni
í hafnarsvæðinu
Nú er starfsemi fyrir-
tækisins dreifð á fjóra
staði í bænum og af því
skapast mikið óhagræði
að sögn Hallgríms. Hann
Morgunblaðið/Eiríkur Páll
VINNA við Val SH 322 er langt komin og verður skipið sjósett í kvöld. Nokkrir starfs-
manna Óseyjar standa við skipið.
Morgunblaðið/Júlíus
HÚSNÆÐI Óseyjar alelda fyrir sjö mánuðum og síðan
hafa starfsmenn fyrirtækisins þurft að vinna flest verk-
efni utan húss.
sagði að húsnæði í þessari
atvinnugrein skipti alveg
skelfilega miklu máli og
allt væri undir því komið.
Hallgrímur telur að
nýja hafnarsvæðið verði
mjög öflugt og gott svæði
þegar það kemst í gagnið.
„Hugmyndin á bak við
þetta hjá Hafnarfjarðar-
höfn er mjög góð. Mér
finnst það mikil framsýni
hjá mönnum að hafa tekið
þennan pól í hæðina,“
sagði Hallgrímur. Bæði
verður athafnasvæðið
gott og þjónusta verður
byggð þarna í kringum
skipaviðgerðir sem auð-
veldar starfsemina.
Einnig taldi Hallgrímur
það jákvætt að þessi iðn-
aður yrði aðskilinn frá
annarri hafnarstarfsemi
og íbúðabyggðinni í bæn-
um.
Ósey hf. var sett á lagg-
irnar í Garðabæ árið 1987
og hefur ætíð verið í þjón-
ustu við fiskiskip, m.a.
með smiðum á vindum og
fleiru í kringum skip og
báta. Fyrir 5 árum flutti
Ósey til Hafnarfjarðar og
fyrir 2 árum var byrjað
að smíða báta frá grunni
hjá fyrirtækinu.
Að sögn Hallgríms var
verkefnastaða góð hjá fyr-
irtækinu þegar bruninn
varð, en nokkrar tafir
urðu á að hægt væri að
skila verkefnum vegna að-
stöðuleysis sem varð í
kjölfar brunans. Verkefn-
um hefur ekki fækkað og
sagðist Hallgrímur nokk-
uð bjartsýnn á að fá nóg
að gera í framtíðinni. Það
væri þó allt undir útgerð-
inni komið. Þegar vel
áraði í sjávarútveginum
væri nóg að gera við
skipaviðgerðir, en þegar
samdráttur væri kæmi það
niður á skipaiðnaðinum.
Hjá Ósey vinna um 30
manns við járnsmíði, en
með öðrum iðnaðarmönn-
um hafa að öllu jöfnu um
45 manns atvinnu hjá fyr-
irtækinu.
VIDSKIPTAVINIR ATHUGID
A LAUGARDOGIIM I JULI
Eftirtaldar allar helstu bílasölur í Reykjavík
hafa ákveðið að loka á laugardögum í júlí
Aðalbílasalan
Bílahöllin
Bílasala Guðfinns
Bílasala Matthíasar
Bílasala Reykjavíkur
Bílasalan Bill.is
Bílasalan Höfði
Bilasalan Planið
Bílasalan Skeifan
Bílasalan Skeifunni 5
Bílfang
JR bílasalan
Litla Bílasalan
Nýi Bílabankinn
Nýja Bílahöllin