Morgunblaðið - 01.07.1999, Blaðsíða 68

Morgunblaðið - 01.07.1999, Blaðsíða 68
68 FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ1999 I DAG MORGUNBLAÐIÐ Z2 V FRÉTTIR Morgunblaðið/ÞorkeU INGA Dóra Sigfúsdóttir tekur við styrknum úr hendi Guðjóns Ólafs Jónssonar, formanns stjórnar Félagsstofnunar. Verkefnastyrkur Félags- stofnunar stúdenta VERKEFN AST YRKUR Félags- stofnunar stúdenta var veittur sl. þriðjudag í Stúdentaheimil- inu við Hringbraut. Að þessu sinni voru tveir styrkir veittir. Georg Lúðvíks- son hlaut styrk fyrir cand. sci- ent verkefni sitt í rafmagns- og tölvuverkfræði, „Greining punktamynstra í DNA-himnum með aðstoð mjúkra reikniað- ferða“, sem unnin var undir Ieiðsögn dr. Jóns Atla Bene- diktssonar prófessors í sam- vinnu við Islenska erfðagrein- ingu undir leiðsögn dr. Hákons Guðbjartssonar, framkvæmda- sljóra upplýsingatæknisviðs. Inga Dóra Sigufúsdóttir hlaut styrk fyrir MA-verkefni sitt í félagsfræði, „Skipulag og árangur á sviði vísinda- og þró- unarstarfs á Islandi í tengslum við opinbera stefnumótun", sem unnin var undir leiðsögn dr. Þórólfs Þórlindssonar pró- fessors. Georg og Inga Dóra luku námi frá Háskóla íslands 9. júní sl. Verkefnastyrkur Félags- stofnunar stúdenta er veittur þrisvar á ári, tveir við útskrift að vori, einn í október og einn í febrúar. Nemendur sem skráð- ir eru til útskriftar hjá Háskóla íslands og þeir sem eru að vinna að verkefnum sem veita 6 einingar eða meira í greinum þar sem ekki eru eiginleg loka- verkefni geta sótt um styrkinn. Markmiðið með verkefnastyrk FS er að hvelja stúdenta til marvissari undirbúnings og metnaðarfylltri lokaverkefna. Jafnframt að koma á framfæri og kynna frambærileg verk- efni. Styrkurinn nemur 100.000 kr. Dregið í happdrætti KA DREGIÐ hefur verið í happdrætti Knattspymufélags Akureyrar, KA, og komu vinningar á eftirfarandi númer: 1. vinningur: Bifreið af gerðinni Toyota Yaris Terra 1,0, að verð- mæti 998.000 kr., kom á miða nr. 543. 2. vinningur: Fellihýsi af gerð- inni Palomino, að verðmæti 360.000 kr., kom á miða nr. 1457. 3.-7. vinningur: Vöruúttektir hjá Segla- gerðinni Ægi, hver að verðmæti 50.000 kr., komu á miða nr. 1521, 3525, 4975, 6851, 6181. 8.-12. vinn- ingur: Vöruúttektir hjá VÍS, hver að verðmæti 50.000 kr., komu á miða nr. 2580, 3945, 7467, 2613, 7751.13.-22. vinningur: Ársmiðar á alla heimaleiki KA, í öllum deild- um, komu á miða nr. 5085, 1504, 2445, 152, 4692, 5892, 4123, 7451, 3402, 3618. 23.-50. vinningur: Vöruúttektir hjá Seglagerðinni Ægi, hver að verðmæti 10.000 kr., komu á miða nr. 4899, 5697, 4730, 5067, 541, 4109, 6085, 2897, 4167, 4398, 7837, 4196, 1558, 4515, 868, 7839, 4642, 11, 3924, 3071, 5741, 936, 3772, 3765, 1801, 3653, 3343, 4832. Brúðarskór frá Luciano flftilGLUGGINN MYKJ*VlKim»«OI 50 ««S «275 Hvítur Verð: kr. 6.995,- FIÖRÐUR .íi ,/i FJaröargata 13-15 S. 555 1890 og 565 4275 TILBOÐ Jakkar og stuttkápur úr leðurlíki. Verð kr. 5.900. Regnkápur, kr. 12.900 srk,á,r,afaum \o^Hl/15ID Mörkinni 6, sími 588 5518 VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-13 frá mánudegi til föstudags Flíkur á götunni ÉG var á ferðinni í Kópa- vogi á mánudaginn og þeg- ar ég ók austur Hraun- tungu framhjá húsi númer 4 á miðri götunni lágu flík- ur, vandaðar flíkur. Sá sem getur lýst flíkunum fyrir mér, getur hringt í síma 895 7517. Veikindadagar barna MIG langar að taka undir þau orð sem prestur nokk- ur skrifaði í Morgunblaðið fyrir skömmu um að sjö daga veikindaréttur barna sé ekki raunsær. Ég á lítið barn og er að fara út á vinnumarkaðinn eftir tvo mánuði og kvíði því óskap- lega. Hvað ef barnið mitt fær hlaupabólu; það eru minnst tíu dagar heima? Og ég tala nú ekki um flensurnar sem fylgja börnum. Ég vona að ríkis- stjómin endurskoði rétt bama. Kvíðin móðir. Rautt Export box óskast Á EINHVER rautt Ex- port rótarbox frá Johnson og Kaaber? Boxið óskast í skiptum eða til kaups. Upplýsingar í síma 5538257, Ásta. Einnig blómið fljúgandi diskur, óskast í skiptum á sama stað. Dýrahald Kettlingar gefíns TVEGGJA mánaða gamlir kettlingar, fress og læða, fást gefins á gott heimili. Mjög falleg og kelin. Upp- lýsingar í símum 5546887 og 8982077. Tveir fresskettlingar TVO yndislega fresskett- linga vantar góð heimili. Þeir em fæddir 19. febrú- ar og era bólusettir. Upp- lýsingar í síma 864 1023. Þetta er hann Tott HANN Tott flæktist út á mánudaginn og er ekki kominn aftur. Hann á heima í Karfavogi 29. Tott er ómerktur inniköttur. Hann er svartur á bakinu og brúngrá flekkóttur. Hann er síðhærður og með vel loðið skott. Ef einhver hefur séð hann eða veit um hann, vinsamlegast hringið þá í síma 5536781. NK\k Umsjón Margeir Pétnrsson Staðan kom upp á gífur- lega sterku atskákmóti sem nú stendur yfír í Frankfurt í Þýskalandi. Vladímir Kramnik (2.751) hafði hvítt og átti leik gegn Anatóli' Karpov (2.710), FIDE- heimsmeistara. 20. Bxg7+! Kxg7 21. Rf5+ _ exf5 22. Hxe7 _ Rxe7 23. De2 (Með tvöfaldri hótun. Báðir svörtu riddar- arnir standa í uppnámi) 23. Rg6 24. Dxc4 _ Hd2 25. Bb3 _ Bd5 26. Dxa6 _ Hd8 27. Bxd5 _ Re5 29. a4 _ f4 30. a5 _ f3 31. Db7 _ fxg2 32. a6 og svartur gafst upp. Eftir fyrsta keppnisdag- inn á mótinu höfðu þeir Kasparov og Kramnik hlotið tvo vinninga en Kar- pov og Anand einn vinning hvor. Innbyrðis skák Kar- povs og Kasparovs, hinni fyrstu í tvö ár, lauk með jafntefli. H8xd5 28. h3 HVÍTUR leikur og vinnur HÖGNI HREKKVÍSI //flann átbýofan c/acp * hlczupabraut/'nni!" Yíkverji skrifar... VÍKVERJI dagsins er að fara til Danmerkur og verður raun- ar staddur þar, þegar þessi Vík- verjapistill birtist. Þar ætlar hann að dveljast í nokkrar vikur og gat raunar vel hugsað sér að leigja sér bíl þar til þess að geta farið um og skoðað hið margrómaða danska landslag, sem skáldið raunar lýsti sem „neflausri ásýnd“, en af fyrri kynnum af Danmörku, veit Vík- verji, að þar er afskaplega fallegt og gróðursælt og því gæti verið gaman að aka þar um. Nú er það svo að Víkverji og fjölskylda hans hafa safnað frí- punktum í gegnum tíðina og á hann orðið tæplega 15 þúsund punkta. Víkverja fannst tilvalið að nota þá til þess að leigja bílinn, _en Fríkortið hefur samninga við Úr- val-Útsýn. Þess vegna hringdi Vík- verji í Fríkortið til þess að spyrj- ast íyrir um það hve marga daga hann gæti fengið og nýtt frípunkt- ana fyrir bflinn. Þá kom í ljós að það var nú allt annað en hægt. Þessa punkta var aðeins hægt að nýta sem innborgun á sólarlanda- ferðir og bfltúr í Danmörku, þótt sólrík geti verið, féll svo sannar- lega ekki undir þá skilgreiningu, sólarland. Þessir frípunktar eru eftir þetta, að mati Víkverja heldur fáfengilegt fyrirbrigði og raunar sagði einn af samstarfsmönnum Víkverja að eina skiptið, sem borgaði sig að nota frípunkta væri þegar menn færu í bíó. Þá gilda þeir í Sam-bíó- unum, en einhverju sinni fór Vík- verji einmitt í Sam-bíó og keypti þar fjóra miða. Heldur fannst Vík- veria bað vera dvr bíóferð, a.m.k. fóru þar þúsundir punkta í þessa fjóra miða. xxx EN fríkortaraunir Víkverja eru þar með ekki allar. Hjá Flug- leiðum átti hann rúmlega 20 þúsund punkta og fyrir um þremur vikum kom hann að máli við Flugleiða- skrifstofuna í Kringlunni og spurð- ist fyrir um hvort hann gæti fengið bflaleigubfl í Danmörku fyrir þessa punkta. Þá var honum sagt að þessi upphæð, um 20.000 Saga-Bónus- punktar, nægðu íyrir bfl af minnstu gerð í þrjá daga. Nægilegt væri fyr- ir Víkverja að koma rétt fyrir brott- för og panta bflinn. Rétt áður en Víkveiji lagði af stað til Danmerk- ur, hringdi hann svo í frípunktaupp- lýsingar hjá Flugleiðum og var þá tjáð að fyrir 20 þúsund punkta gæti hann fengið bfl frá hádegi á fostu- degi og með því skilyrði að honum yrði skilað á sama stað klukkan 10.00 á mánudegi. Ekki væri hægt að panta bílinn með opinni beiðni, þ.e.a.s. Víkverji þyrfti að ákveða strax hvaða daga hann tæki bflinn. Ef svo bfllinn væri ekki tekinn á há- degi á föstudegi, væri aðeins hægt að leigja hann í einn dag í senn og þá kostaði leigan um 12.000 punkta. Ekki var heldur hægt að fá bflinn í lengri tíma, ef Víkverji vildi bæta við leigutímann með dönskum pen- ingum. Það mætti þó ræða við bfla- leiguna á staðnum. xxx EFTIR allar þessar frípunkta- raunir Víkverja er hann kom- inn að þeirri niðurstöðu, að frí- punktasöfnun er hin mesta vit- leysa, því að svo eru reglurnar margbrotnar og þvælan svo mikil í kringum þá að einna helzt minnir þetta kerfí á skömmtunarmiðana gömlu frá blómatíma haftanna, þegar framsóknarmennskan reið ekki við einteyming á íslandi, rétt eftir síðari heimsstyrjöldina, þegar „Stofnauki númer 13“ var í al- gleymingi. Frípunktakerfíð er beinn arftaki þess kerfís og minnir í mörgum tilfellum á það gamla, úr- elta og furðulega fyrirbæri, sem á ekkert skylt við frjáls viðskipti. Þegar þetta er hins vegar skrifað er Víkverji þó ekki úrkula vonar með að ná einhverju fram í sam- bandi við Saga-Bónus-punktana. A.m.k. ætlar hann enn að gera til- raun til þess að fá eitthvert vit í þá. XXX ÍKVERJI fjallaði íyrir viku síðan um þáttinn „Daglegt mál“ í útvarpinu og var að harma það að hann hafi verið felldur niður í dagskrá útvarpsins. Nú hafa Vík- verja hins vegar borizt þau gleði- tíðindi að enn sé við lýði þáttur þeirra Orðabókarmanna, „íslenzkt mál“, þar sem málvísindaleg um- fjöllun fer fram. Þessi þáttur er ekki liðinn undir lok, þótt hann sé í sumarleyfí nú yfir hábjargræðis- tímann. En „Daglegt mál“, þar sem íslenzkumenn fjalla um mál- farsleg atriði, hefur verið felldur niður. Það finnst Víkverja vera til vanza, en hann biðst afsökunar á því að hafa að nokkru ruglað sam- an heitunum á þessum tveimur annars ágætu þáttum, sem honum fínnst að eigi megi missa sín í dag- skrá Ríkisútvarusins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.