Morgunblaðið - 01.07.1999, Blaðsíða 80

Morgunblaðið - 01.07.1999, Blaðsíða 80
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181 PÓSIHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1 FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 1999 VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK 0 Nýjar takmarkanir settar á flug um Reykj avíkurflugvöll Komið til móts við kvart- anir íbúa vegna hávaða NYJAR reglur um takmarkanir á flugi um Reykjavíkurflugvöll tóku gildi 21. júní síðastlið- inn. Þeim er ætlað að draga úr hávaða og óþæg- indum í íbúðahverfum næst flugvellinum. Reglur um aðflug og brottflug eru þrengdar og þotum og flugvélum yfir 5,7 tonn, sem ekki hafa hávaða- vottorð, er bannað að nota völlinn. Einar Om Héðinsson, einn þeirra er sátu í starfshópi Flugmálastjómar um málið, segir að allir flugvellir hafi ákveðnar reglur og ýmsar tak- markanir og slíkar reglur hafi gilt um Reykjavík- urflugvöll. Með nýju reglunum sé þrengt nokkuð að ákveðnum þáttum í fluginu sem hann telur svara mjög vel kvörtunum sem fram hafa komið undanfarin misseri um hávaða frá flugumferð. Þær em hins vegar ekki tii komnar vegna fram- kvæmda sem standa fyrir dyrum en vegna þeirra er hugmyndin að færa kennsluflug að miklu leyti frá vellinum, tímabundið. Snertilendingar takmarkaðar Meðal almennra takmarkana má nefna að snertilendingar era ekki leyfðar á fjölhreyfla flugvélum og ekki era leyfðar marklendingar eða æfingar með skerta flughæfni, svo sem þegar líkt er eftir hreyfilbilun við flugtak eða lendingu. Þá era snertilendingar eingöngu leyfðar á tímanum frá kl. 9 til 19 mánudaga til fimmtudaga, föstu- daga frá kl. 9 til 17 og um helgar og á almennum frídögum era þær aðeins leyfðar milli kl. 11 og 16. Þá er sett í reglur að allar vélar skuli leitast við að ná sem mestri hæð í flugtaksklifri til norð- urs yfir miðborgina. Eins hreyfils vélar í flugtaki á þeirri braut skulu klifra í brautarstefnu út fyrir olíutanka í Örfírisey áður en þær beygja. Snerti- lendingar era alveg bannaðar á brautum 07/25 (na-sv). Einnig er sett sú regla að við flugtak til suðurs skuli tekin hægri beygja á 240° til að forð- ast að fljúga yfir Kársnes. Varðandi bann flugvéla, sem ekki hafa hávaða- vottorð eða uppfylla ekki ákveðin skilyrði sem nánar era tilgreind, segir Einai- slíkar takmark- anir þegar í gildi víða um heim og verða þær teknar upp á evrópskum flugvöllum eigi síðar en árið 2002. Dórai í stóra e-töflu- raálinu snúið við Sýknaður í héraðsdómi HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur sýknaði í gær Bretann Kio Alexand- er Briggs af ákæra um stórfelldan innflutning á fíkniefnum. Bretinn hafði áður verið dæmdur í héraðs- dómi í sjö ára fangelsi, en Hæsti- réttur vísaði málinu aftur í hérað vegna þess að héraðsdómur hafði ekki tekið afstöðu til framburðar lykilvitnis í málinu. Briggs var handtekinn við kom- una til landsins 1. september síðast- liðinn og fannst í farangri hans 2.031 e-tafla. Hann neitaði alla tíð að eiga fíkniefnin og sagðist ekki vita af hverju þau væra í farangri sínum. Héraðsdómur taldi að svo mikill vafi léki á um sekt ákærða að sýkna bæri hann af ákæranni. Of mikill/10 Bjartviðri spáð áfram SPÁÐ er áframhaldandi bjart- viðri alls staðar á landinu næstu daga nema helst á Austurlandi. Landsmenn hafa notið góða veð- ursins eftir föngum og sum fyrir- tæki í höfuðborginni voru lokuð í gær vegna sólar. Mikið fjölmenni var í Laugardalslauginni í gær þegar Ijósmyndari Morgunblaðs- ins gekk fram á þær Gyðu Gunn- arsdóttur, Líbertu Óskarsdóttur og Kötlu Völudóttur. ■ Bros/4 Mistök Landssímans Netnotend- ur fengu of háan reikning Morgunblaðið/Halldór Kolbeins ■ÍM • • ^Onnur mesta ferðahelgi sumarsins er framundan og búist við mikilli umferð Hátt á þriðja þúsund manns í Þórsmörk UNDANFARIN sumur hefur fyrsta helgin í júlí verið önnur mesta ferðahelgi sumarsins, næst á eftir verslunarmannahelginni. Lögreglan býst við gífúrlegri umferð um helgina vegna þess hve veðurspáin er góð og hefúr gert ráðstafanir vegna hennar. Búist er við að hátt á þriðja þúsund manns verði í Þórsmörk um helgina. I fyrra voru þar um K|3.00() manns þessa sömu helgi og er því búist við svipuðum fjölda í ár. Lögreglan á Hvolsvelli verður með vakt á staðnum og nýtur við það aðstoðar fíkniefnalögregl- unnar og umferðardeildar Ríkis- Iögreglustjóra vegna umferðar á Suðurlandsvegi. Að sögn lögregl- unnar á Hvolsvelli verða um 1—13 manns við löggæslu á svæðinu auk þess sem læknir verður á staðnum. Að sögn Ingu Rósu Þórðar- dóttur, framkvæmdastjóra Ferðafélags íslands, hefur Félag verkfræðinema við Háskóla Is- lands tekið tjaldsvæði félagsins í Langadal, í Litlaenda og Stóra- enda á leigu. Býst hún við að milli 4 og 500 manns verði á því svæði um helgina. „Það er svip- aður fjöldi og verið hefur undan- farin ár en ég heyri að það er mikil stemmning fyrir Þórsmörk nú um helgina, mun meiri en til dæmis í fyrra,“ segir Inga Rósa. Loksins gott veður f Húsadal er Austurleið hf. með tjaldsvæði og segist Tryggvi Árnason, sölu- og markaðsstjóri fyrirtækisins, búast við að milli 700 og 1.000 manns verði þar á þeirra vegum. „Við höfum ekki selt svo mikið af miðum ennþá en miðað við reynslu sfðustu ára gerist þetta á síðustu dögunum fyrir helgina. Við eigum einna helst von á ungu fólki úr fram- haldsskólunum, eins og verið hef- ur undanfarin ár,“ segir Tryggvi. Guðfinnur Pálsson, fram- kvæmdastjóri Útivistar, á von á því að um 700 manns verði á tjaldsvæði félagsins í Básum um helgina. Þegar hafa um 500 manns bókað tjaldpláss og miðað við reynslu fyrri ára telur hann að fjöldinn aukist mikið þangað til á föstudag. „Við leggjum áherslu á að staðurinn sé fyrir (jölskylduf'ólk og reynum að halda okkur á þeirri línu. Ég býst við að þetta verði stærri helgi hjá okkur en undanfarin ár og er það einna helst vegna veðursins sem ioksins er orðið gott hér á suðvesturhorninu," segir Guð- finnur. NOKKRIR viðskiptavinir Landssím- ans, sem nota Netið, urðu heldur hissa er þeir fengu símareikninginn sinn um þessi mánaðamót, því í stað þess að vera rakkaðir um 78 aura eða 1,56 kr. á mínútuna höfðu þeir verið rukkaðir um 33 kr. á mínútuna. Að sögn Ólafs Þ. Stephensen, forstöðu- manns upplýsinga- og kynningarmála Landssímans, þýðir þetta að sumir fengu tugi þúsunda króna reikning. Olafur sagði að mistökin mætti rekja til nýs reikningagerðarkerf- issem tekið hefði verið í notkun í maí sl. Hann sagði að við uppsetningu kerfisins hefði láðst að gera ráð fyrir því að sumir notendur Netsins setji landsnúmerið 354 fyrir framan síma- númerin í tölvunum sínum. „Þeir sem skilgreindu þetta svona í tölvunum hjá sér lentu í því að reikningagerðarkerfið túlkaði öll símtöl úr mótaldi tölvunnar sem millilandasímtöl," sagði Ólafur. „Þeir voru því rukkaðir um 33 krónur á mínútuna og fyrir vikið var þeim bragðið þegar þeir fengu símareikn- inginn sinn núna.“ Ólafur sagði að samband yrði haft við alla þá sem lentu í þessu og þeir beðnir velvirðingar. Hann sagði að þeir myndu ekki þurfa að borga reikninginn, sem þeir fengu sendan nú, heldur myndi nýr reikningur verða sendur í staðinn, þar sem öll netsímtöl yrðu felld niður.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.