Morgunblaðið - 01.07.1999, Blaðsíða 66
66 FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
i
Grettir
6RAMPA'5 ON TME PHONE..
DO YOU U)ANT TO WI5M MIM
A “MAPPY PIRTHDAV"'?
Afi er f sfmanum..viltu
óska honum til hamingju
með afmælið?
I PIPN'T KNOU)
TODAY U)A5 HI5
BIRTHPAY..
"m
Ég vissi ekki
að hann ætti
afmæli f dag..
HAPPY BIRTHPAY,
6RAMPA ..YOU'RE
WELCOME..HAVE
A NICE DAY..
ZT
Til hamingju með afmælið,
afi..ekkert að þakka..
hafðu það gott f dag..
Afi hvers
var þetta?
wMICH 6RAMPA
WA5THAT? y
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Ahugaverðir
sj ón varpsþættir
Árna Grétari Finnssyni:
RÍKISSJÓNVARPIÐ hefur nýlega
hafið sýningu á þáttaröðinni „Maður
er nefndur". Pegar hafa birst fjórir
þættir, þar sem rætt hefur verið við
þjóðkunna Islendinga, þá Gunnar
Eyjólfsson, einn fremsta leikara
landsins í áratugi, Benedikt Davíðs-
son, öflugan verkalýðsleiðtoga og
áður forseta ASI, Pétur Pétursson,
fyrrum útvarpsþul og nú sagnaþul
og einstakan upplesara, og Asgeir
Pétursson, fyrrverandi sýslumann
og bæjarfógeta, sem lengi hefur ver-
ið í hópi áhrifa- og baráttumanna
Sjálfstæðisflokksins. Það sem hefur
vakið athygli mína við þessa þætti
er, hvað starfsvettvangur fólks í
okkar litla þjóðfélagi er margbreyti-
legur og hvað það rúmar ólíkt við-
horf manna. Spyijendur þáttanna
hafa líka sýnt hæfni við að láta við-
mælenduma tjá sig óhindrað, svo
frásögn þeirra hefur notið sín vel og
skoðanir þeirra komið óhikað fram.
Áhugi Islendinga á uppruna fólks
og lífshlaupi er mikill. Það sýna vel
allar þær ævisögur, sem árlega eru
hér útgefnar. Því er vel til fundið
hjá sjónvarpinu að leiða fram á
sjónarsviðið í sérstökum þáttum
persónur, sem búa yfir margvísleg-
um fróðleik og eiga að baki áhuga-
verða sögu, sem margir kannast við
en hafa áhuga á að vita meira um.
Um leið verður líka til efni, sem síð-
ari tími mun eiga aðgang að. Og
hversu gjaman vildum við í dag
ekki geta horft á margan merkan
landann, sem genginn er, í slíkum
sj ónvarpsþáttum.
Eg vil þakka ríkissjónvarpinu
fyrir það framtak að ráðast í gerð
sjónvarpsþáttanna „Maður er
nefndur" og hlakka til að horfa á
framhald þeirra.
Úr því ég er farinn að stinga nið-
ur penna um efni ljósvakamiðlanna,
vil ég líka láta í Ijósi ánægju mína
með marga þá fróðleiks- og frá-
sagnaþætti, sem ríkisútvarpið
(hljóðvarpið) flytur. Þeir eru oft
með ágætum, bæði efni og flutning-
ur. Um leið vil ég sérstaklega geta
viðtalsþátta Jónasar Jónassonar á
föstudagskvöldum, sem em með því
besta, sem útvarpið færir okkur.
ÁRNI GRÉTAR FINNSSON,
hæstaréttarlögmaður.
Sjónarmið um-
hverfissinna
Frá Ruth T. Levow:
EG ER nýlega komin heim úr minni
fyrstu íslandsferð. Þetta var hvala-
skoðunarferð og var heimsókn til
Keikós meira að segja hluti af ferð-
inni. Við áttum tíu unaðslega daga á
Islandi, sem var ekki nándar nærri
nóg. Land ykkar er fagurt, þjóðin
ljúf og vinaleg.
Sem náttúruljósmyndari og um-
hverfissinni hef ég uppi áform um að
snúa aftur með ljósmyndahóp minn.
Hins vegar hef ég vemlegar áhyggj-
ur af einu. Ég hef haft fregnir af því
að hugsanlegt sé að íslendingar
muni hefja hvalveiðar að nýju. Ég
rita því þetta bréf til að koma sjónar-
miðum mínum og allra þeirra sem
vom með í ferðinni á framfæri.
Margir landsmanna munu koma aft-
ur og aftur til að fara í hvalaskoðun
en við myndum ekki hafa áhuga á að
heimsækja þjóð er drepur hvali.
Ég hef einnig í huga að hafa sam-
band við blaðið okkar, The Palm
Beach Post, og reyna að fá þá til að
rita grein í ferðablað sitt um ísland
og hversu frábært sé að sækja það
land heim. Ég er sannfærð um að
land ykkar sé tilvalinn ferðamanna-
staður og þá ekki síst vegna þess
aukabónuss að geta farið í bátsferð
og verið viss um að sjá hina fallegu
hvali er synda um hafið umhverfis
landið. Ég treysti því að þetta yndis-
lega land muni halda fast við þá
stefnu að veiða ekki hvali þannig að
við öll, þar á meðal kynslóðir fram-
tíðarinnar, getum notið þess að horfa
á þessi spendýr sjávarins.
Ruth T. Levow,
forseti The Learning Plant
P.O. Box 17233 West Palm Beach,
FL 33416
Bandaríkjunum.
Pétur Péturs-
son frábær
Frá Jóni Norðdahl:
ÉG GET ekki orða bundist yfir því
hve vel mér líkaði þátturinn um
Pétur Pétursson þul, sem sýndur
var í sjónvarpinu á dögunum. Ég
hef ekki skemmt mér jafn vel yfir
sjónvarpi í háa herrans tíð. Pétur
er einn mesti sagnaþulur sem ég
veit um og í þættinum fór hann
hreinlega á kostum. Þessi þáttur
var þó allt of stuttur og með réttu
ætti að búa til fleiri þætti með
Pétri, enda er ég viss um að hann
hafi efni í aðra tíu. Sjónvarpið á
annars mikið lof skilið fyrir að end-
urvekja þessa þætti, Maður er
nefndur, og vonandi verður fram-
hald á þeim, enda með því besta
sem Sjónvarpið hefur boðið upp á í
langan tíma.
JÓN NORÐDAHL,
Melholti 2, Reykjavík.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.