Morgunblaðið - 01.07.1999, Blaðsíða 32
32 FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 1999
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Reuters
Ibúar Fukuoka í vesturhluta Japans ganga um göturnar sem orðið
hafa undir flóðinu.
Tuttugu og sjö farast
í flóðum í Japan
Tokýó. AFP, Reuters.
Ráðherrafundur AP E C -r íkj anna
Ekki vettvangnr við-
ræðna um tollalækkanir
Auckland. Reuters.
UM tuttugu og sjö hafa látið h'fíð og
a.m.k. tólf er enn saknað eftir gífur-
leg flóð og aurskriður í kjölfar úr-
fellis í vesturhluta Japans, af því er
lögregla skýrði frá í gær. Rigning-
in, er hófst sl. mánudag, var hvað
mest í Hiroshima, en þar létust 22.
Að sögn lögreglu í Hiroshima
héldu hjálparstarfsmenn áfram að
leita að fólki í gær er rigningunni
slotaði, en óttast er að leitin verði
erfiðleikum bundin þar sem lfklegt
er talið að aurskriður hafí tekið fólk
með sér langar leiðir.
Neyðarástandi hefur verið lýst yf-
ir í mið- og austurhluta Japans en
rigningin barst áfram í austurátt í
gær. Er hæst stóð mældist úrkoman
60 sm á Kyushu-eyju. Að sögn sér-
fræðinga urðu 854 aurskriður í Jap-
an af völdum regnsins og 6.305
heimili fóru á flot í vikunni. Þá
eyðilögðust a.m.k. 52 hús og vegir
skemmdust á minnst hundrað stöð-
um víðsvegar um eyjuna.
Keizo Obuchi, forsætisráðherra
Japans, vottaði fómarlömbum flóð-
anna samúð í gær og sagði þörf á
átaki til að takast á við náttúruham-
farir sem þessar.
APEC, Efnahagssamvinnuráð As-
íu- og Kyrrahafsrílqa, er nú ekki
lengur vettvangur samningavið-
ræðna um tollalækkanir eftir að við-
skiptaráðherrar aðildarríkjanna
samþykktu á fundi sínum á Nýja-
Sjálandi í gær að leiða viðræðumar
til lykta innan Heimsviðskiptastofn-
unarinnar (WTO).
Ráðherramir samþykktu á
tveggja daga fundi sínum að hvetja
Heimsviðskiptastofnunina til að
hefja samningaviðræður um lækk-
anir á tollum iðnaðarvamings á
þriðja ráðherrafundi sínum í Seattle
í Bandaríkjunum í nóvember. Hing-
að til hefur verið gert ráð fyrir því
að fundurinn snúist um aukið við-
skiptafrelsi í landbúnaðar- og þjón-
ustugeirunum.
Viðskiptaráðherramir vísuðu
einnig síðustu áformum sínum um
tollalækkanir til WTO og hunsuðu
þar með áskoranir framámanna í
viðskiptum um að koma þeim í
framkvæmd í APEC-ríkjunum.
Ráðherramir sögðu að APEC-rík-
in myndu reyna að hafa áhrif á dag-
skrá ráðherrafundar WTO þannig að
hann endurspeglaði áform APEC
um lækkanir á tollum í svokölluðum
EVSL-geirum, sem ná til fræja olíu-
plantna, matvæla, gúmmis, áburðar,
farþegaflugvéla og bifvéla.
Viðræðum WTO Ijúki
innan þriggja ára
Örlög áformanna virtust ráðin áð-
ur en fundurinn hófst á þriðjudag.
Taílendingar lögðust gegn tollalækk-
unum á fræjum olíuplantna, Rússar
og Japanar vildu ekki lækka tolla á
matvælum og Suður-Kóreumenn
höfnuðu hvoru tveggja. Bandaríkja-
stjóm tilkynnti enn fremur á mánu-
dag að hún væri hlynnt því að málið
yrði leitt til lykta innan WTO.
Long Yongtu, aðstoðarviðskipta-
ráðherra Kína, sagði að APEC væri
ekki rétti vettvangurinn fyrir við-
ræður um tollalækkanir. „Fái
APEC slíkt hlutverk myndum við í
fyrsta lagi endurtaka nákvæmlega
það sem WTO er að gera. í öðra
lagi myndi það leiða til vandamála
fyrir önnur aðildarríki
WTO ... vegna þess að þau gætu
talið að APEC væri að elda eitthvað
sem þau yrðu neydd til að gleypa."
Fátæku ríkin hafa áhyggjur af
því að viðræður WTO leiði til þess
að vemdaðir markaðir verði opnað-
ir til að auka samkeppni.
Framámenn í viðskiptum í
APEC-ríkjunum sökuðu ráð-
herrana um að skjóta tollalækkun-
um á frest með því að vísa málinu til
WTO og sögðu að töfin yrði dýr-
keypt fyrir fyrirtæki og neytendur..
Richard Fisher, aðstoðarvið-
skiptaráðherra Bandaríkjanna,
sagði að APEC-ríkin vildu að næstu
lotu viðræðna WTO lyki innan
þriggja ára. Síðasta lota viðræðn-
anna um aukið frjálsræði í heims-
viðskiptum tók sjö ár.
Yllir
Hansarós
Birki
CMJ
3runnar y
kr 999
Plöntusalan Fossvogi
Fossvogsbletti 1 ( Fyrir neðan Sjúkrahús Reykjavíkur) Sími 564 1777
v@8 úr
tegundwn
Birkikvistur
Blátoppur
Japanskvistur
Víðískvistur
Reyniblaðka
Loðvíðir
Reuters
Rússarnir keppa
RÚSSNESKU skákmeistararnir
Anatólí Karpov og Garry Ka-
sparov leiddu saman hesta sína á
skákborðinu á móti í Frankfúrt í
Þýskalandi í gær. Þetta var í
fyrsta sinn síðan 1995 sem þessir
menn, sem báðir hampa heims-
meistaratitli, öttu kappi saman.
Skákinni Iauk með jafntefli eftir
38 leiki.
Aðrir keppendur á mótinu eru
Viswanathan Anand, frá Ind-
landi, og Rússinn Vladimir
Kramnik. Skák þeirra í gær lauk
einnig með jafntefli, en í færri
leikjurn, eða nítján.
Friðarviðræðum á Austur-Tímor lokið
Mörg deilumál
eru enn óleyst
Jakarta. Reuters, AP.
FIMM daga viðræðum stríðandi
fylkinga Austur-Tímora lauk í gær
án þess að veralegur árangur næð-
ist. Fylkingarnar samþykktu aðeins
að virða samning þeirra frá 18. júní
og mörg deilumál era því enn
óleyst.
Fylkingamar náðu ekki einu
sinni samkomulagi um hvemig
halda ætti viðræðunum áfram og
höfnuðu tillögu kaþólsku kirkjunn-
ar, sem hafði milligöngu um viðræð-
urnar, um að þær skipuðu sameig-
inlega nefnd til að ræða deilumálin.
Markmiðið með viðræðunum var
að greiða fyrir friðsamlegri at-
kvæðagreiðslu meðal íbúa Austur-
Tímor 21. eða 22. ágúst um hvort
landsvæðið ætti að verða sjálfstætt
ríki eða sjálfstjómarsvæði innan
Indónesíu.
Leiðtogar aðskilnaðarsinna og
stuðningsmanna Indónesíustjómar
lofuðu að virða samninginn frá 18.
júní um að afvopnast og virða niður-
stöðu atkvæðagreiðslunnar hver
sem hún yrði. Fylkingamar hafa þó
alltaf verið fljótar að svíkja slík lof-
orð og haldið blóðugum átökum sín-
um áfram. Tugir manna hafa fallið
síðustu tvo mánuði og þúsundir
manna hafa flúið heimili sín vegna
átakanna. Vopnaðir hópar Austur-
Tímora, sem leggjast gegn sjálf-
stæði, hafa verið sakaðir um að
reyna að valda ógnaröld í landinu til
að koma í veg fyrir að atkvæða-
greiðslan geti farið fram með eðli-
legum hætti.
Árás á skrifstofu SÞ
Yfirvöld í Indónesíu sögðu í gær
að um 220 skæraliðar, sem hafa
barist gegn indónesískum yfirráð-
um, hefðu komið úr felum og haldið
til bæjarins Suai til að leggja niður
vopn. Hermt var að 1.000 skæralið-
ar til viðbótar væra á leiðinni þang-
að.
Vopnaðir stuðningsmenn
Indónesíustjómar réðust inn í að-
setur starfsmanna SÞ í bænum
Viqueque í gær og höfðu í hótunum
við þá.
Daginn áður höfðu um 100 skæra-
liðar ráðist á skrifstofu Sameinuðu
þjóðanna í Maliana, vígi stuðnings-
manna Indónesíustjómar, og sært
að minnsta kosti tíu manns, m.a. suð-
ur-afrískan embættismann samtak-
anna. Öryggisráð Sameinuðu þjóð-
anna fordæmdi árásina og ákveðið
var að takmarka ferðir starfsmanna
samtakanna á Austur-Tímor.