Morgunblaðið - 01.07.1999, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 01.07.1999, Blaðsíða 44
44 FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 1999 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ Orð for- stj órans „Frá mínum bæjardyrum séð er mjög mikilvægt að við Islendingar skiljum að maðurinn er hluti af náttúrunni. “ Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar Friðrik Sophusson, forstjóri Lands- virkjunar, virtist verða tvísaga í við- tali í Morgunblaðinu nýlega. Annars vegar hélt hann því fram, að þegar virkjunar- kostir væru ræddir þyrfti að taka tillit til þess sjónarmiðs, að maðurinn sé hluti af náttúrunni. Hins vegar sagði Friðrik að finna þyrfti milliveg milli sjón- armiða þeirra sem vildu nýta og hinna sem vildu „eingöngu njóta“. Ef nánar er að gáð verður ekki betur séð en síðari fullyrð- ing forstjórans geri hina fyrri að engu, og þetta veldur því, að maður fattar VIDHORF eiginlega ekki hvað hann á við þegar hann segir að Eftir Kristján G. Arngrímsson maðurinn sé hluti af náttúrunni. Og segir þó forstjórinn þetta „mjög mikilvægt". Að maðurinn sé hluti af nátt- úrunni hlýtur fyrst og fremst að merkja, að maðurinn standi ekki andspænis náttúrunni; það séu ekki dregin skörp skil á milli manns og náttúru, og nátt- úran sé því ekki eitthvað sem maðurinn getur haft í hendi sér og ráðskast með. En ef maður lítur á náttúr- una sem annaðhvort eitthvað sem maður getur notað e’ða eitt- hvað sem maður getur notið fela bæði þau viðhorf í sér að maður sjáífur standi frammi fyrir náttúrunni og hafi sjálf- dæmi um hvernig maður kemur fram við hana. I viðtalinu (sunnudaginn 27. júní, bls. AIO) segir Friðrik meðal annars: „Frá mínum bæj- ardyrum séð er mjög mikilvægt að við íslendingar skiljum að maðurinn er hluti af náttúrunni, á að vera það en getur ekki ein- göngu verið í hlutverki áhorf- andans og aðdáandans.“ Mikið rétt. Maður er hluti af náttúrunni, maður tilheyrir henni. Og þetta er mikilvægt. En þetta er tiltölulega ný hug- mynd (þótt segja megi að hún eigi sér aldagamlar rætur), og vísindamenn og heimspekingar eru enn ekki búnir að átta sig almennilega á því hvað í henni felst. Lokaorð forstjórans eru þau, að hann sé „sannfærður um að hægt er að ná víðtækri sátt milli þeirra sem vilja nýta og þeirra sem vilja eingöngu njóta“. Ef þetta eru þau and- stæðu sjónarmið sem forstjór- inn álítur að þurfi að sætta virð- ist hann vera búinn að gleyma fyrri orðum sínum um það sjón- armið að maðurinn sé hluti af náttúrunni. Að vilja nota og vilja njóta eru ekki bara andstæður. Hvort tveggja felur í sér að maðurinn hefur eitthvað fyrir framan sig (náttúruna) og bregst við því; ráðstafar því. Það er maðurinn sem notar eða nýtur. Náttúran er notuð eða hennar notið. Gildi hennar er, samkvæmt þessu, fólgið í því hvernig hún tengist manninum. Hún er til fyrir manninn - að nota eða njóta. Það er þetta sem gerir að verkum að þessi sjónarmið virð- ast bæði fela í sér að manninum er stillt upp annarsvegar og náttúrunni hinsvegar. Og sú uppstilling er ekki alveg í sam- ræmi við fyrri orð forstjórans um að mikilvægt sé að skilja að maðurinn sé hluti af náttúrunni. Ef maður rýnir aðeins nánar í það sem forstjórinn segir í framhaldi af fullyrðingunni um að Islendingar verði að skilja að maðurinn sé partur af náttúr- unni virðist helst sem hann líti svo á, að það að vera partur af náttúrunni merki að maður eigi að ráðstafa henni samkvæmt manns eigin gildismati: „Þetta merkir [...] að maður- inn þarf að umgangast náttúr- una þannig að hann skili henni helst betri en hann tók við henni.“ Þessi orð forstjórans virðast fela í sér að hann líti svo á, að það sé hlutverk mannanna að meta „gæði“ náttúrunnar (hvort hún er betri eða verri). Það er að segja, við getum vitað hvenær náttúran er betri en hún var. Það má vel vera að þetta sé rétt hjá forstjóranum, en er þetta í samræmi við íyrri orð hans? Það að geta lagt mat á eitthvað, og skorið úr um hvort það er betra eða verra en það áður var, felur í sér að maður horfir á það utan frá, því að eins og stundum er sagt, maður get- ur ekki verið dómari í eigin sök. Maður getur ekki metið það sem varðar beinlínis mann sjálf- an. En ef forstjórinn ætlar líka að standa við þá fullyrðingu sína að maðurinn sé partur af náttúrunni virðist hann vera að segja að ekki einungis getur maður verið dómari í eigin sök, maður „þarf ‘ að vera það. Sú hugmynd, að maðurinn sé hluti af náttúrunni, er yfirleitt kennd við svonefnda náttúru- hyggju; það er að segja, það viðhorf að náttúran hafi gildi í sjálfri sér burtséð frá því hvað mönnunum finnst. Þessari hug- mynd er yfirleitt haldið fram gegn svonefndri mannmiðju- hyggju, sem er sú skoðun að maðurinn, og hagsmunir hans, séu mælikvarðinn á hvaðeina - líka náttúruna. Hvort þessi viðhorf geta farið saman er umdeilt, en Friðrik Sophusson smellir þeim saman án hiks - en því miður án nokk- urra útskýringa. Það er rétt að ítreka, að hér er ekki verið að halda því fram að forstjórinn hafi hreinlega rangt fyrir sér. Einungis er verið að draga í efa að hann meini eitthvað með því, þegar hann segir það mikilvægt að íslendingar skHji að maður- irin sé hluti af náttúrunni. Eða hvað? Varð forstjórinn kannski alls ekki tvísaga? Var hann kannski bara að tala um tvo hluti, án þess þó að gera greinarmuninn ljósan? Það er að segja, náttúruna annarsveg- ar og umhverfið hinsvegar? A þessu tvennu er munur, sem hugað verður að síðar. + Jóhann Magnús- son fæddist í Reykjavík 15. júlí 1918. Hann lést á Hrafnistu í Reykja- vík 23. júní 1999. Foreldrar hans voru Magnús Krist- inn Jóhannsson skipstjóri, f. 16. júlí 1894, d. 27. febrúar 1928, og kona hans, Guðný Kristín Haf- liðadóttir sauma- kona, f. 9. október 1895, d. 8. apríl 1984. Bræður Jó- hanns eru: Hafliði, f. 6. júlí 1917, d. 30. maí 1998; Gunnar, f. 25. september 1921, búsettur á Seltjarnarnesi; Sverrir, f. 4. nóvember 1923, d. 14. nóvem- ber 1978; Ólafur K., f. 12. mars 1926, d. 15. nóvember 1997. Jóhann kvæntist 18. júní 1947 Margréti Sigurðardóttur. Þau eignuðust þijár dætur. Þær eru 1) Jóhanna, f. 12. maí 1949, leið- beinandi á leikskóla. Hún giftist Andreas Lapas flugvirkja, f. 28. nóvember 1948, d. 30. ágúst 1987. Börn þeirra eru Jóhann Kristos, flugmaður hjá Flug- leiðum, en sambýliskona hans er Jóna Björk Helgadóttir lög- fræðingur; Maria, gjaldkeri hjá Flugfélagi Islands; og Alexand- er, nemi í Verslunarskóla Is- lands. 2) Kristín, f. 20. maí 1952, kennari. 3) Áslaug, f. 7. október 1956, leikskólakennari á Barna- spítala Hringsins, gift Sigurði Sigurðssyni kaupmanni. Börn þeirra eru Grímur, nemi í Há- Það er ekki auðvelt að setjast niður og skrifa nokkur kveðjuorð til öðlingsins Jóhanns Magnússon- ar, tengdaföður míns. Hvar ætti ég helst að bera niður í því mikla lífsstarfi sem Jói afrekaði með sóma á ævi sinni. Ætti ég að nefna þegar hann 12 ára gamall hætti í skóla til að létta undir með móður sinni, ekkjunni ungu með fimm unga syni? Þá hóf hann störf hjá Geysi og fékk 100 krónur í mánað- arlaun; 90 krónur fóru til heimilis- ins en tíu krónur fékk Jói. Ætti ég að nefna þegar dóttir hans varð ekkja með þrjú ung börn, hvernig hann lagði sig allan fram til að reynast henni stoð og stytta og börnunum hennar miklu meira en venjulegur afi, sérstaklega Jóa, elsta barnabarni sínu? Sem hann síðan endurgalt afa sínum og ömmu með kærleika og væntum- þykju sem fallegt var að sjá. Hvernig hann reyndist Andreasi tengdasyni sínum í veikindum hans, þegar hann heimsótti hann á spítalann nánast á hverjum degi í þau þrjú ár sem hann var veikur? Hvernig hann reyndist afabörnum sínum sex sem engan afa áttu nema hann? Hversu vel hann tók mér frá fyrsta degi sem væntan- legum tengdasyni þótt ég hafi kannski ekki verið óskatengdason- urinn á þeim árum handa yngstu dótturinni. Hvernig hann hlúði að fjölskyldu sinni alla tíð, fyrst með því að byggja handa henni sjálfur fallegt hús og síðar sumarhús svo fjölskyldan gæti átt þar hvíldar- og ánægjustundir á fallegum sum- ardögum? Ekki nægði honum að byggja þar fallegt sumarhús, held- ur græddi hann allt landið með trjám og öðrum gróðri svo hægt væri að vera alls staðar í landinu í skjóli. Hann var alltaf að búa í haginn fyrir aðra og velta fyrir sér hvernig hann gæti t.d. búið sum- arbústaðarlandið úr garði þannig að þar liði öllum vel, bæði gestum og fjölskyldunni. Hvað hann tók vel öllum hug- myndum mínum, þó að þær væru kannski ekki allar í hans anda, því aldrei hvarflaði að Jóa að draga úr framkvæmdagleði minni. Eg fékk minn eigin reit í landinu sem hann skóla íslands, en sambýliskona hans er Anna Björg Erl- ingsdóttir, nemi í Háskóla Islands; Magnús; og Ásta Margrét, grunn- skólanemar. Jóhann gekk í Mið- bæjarbarnaskólann og lauk þaðan námi 12 ára gamall. Hann starfaði hjá Veiðar- færaverslun Geysis sem sendisveinn og við afgreiðslustörf frá 1930-1934. Frá árinu 1934-1941 var Jóhann há- seti á ísfisktogurunum Andra frá Hafnarfírði, Sindra frá Akranesi, Agli Skallagrímssyni frá Reykjavík og Arinbirni Hersi frá Reykjavík. Hann lauk prófi frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík 1941. Á stríðsárunum frá 1941-1945 var Jóhann stýri- maður á togaranum Viðey frá Reykjavík, og frá árinum 1945-1949 var hann stýrimaður á togaranum Akurey frá Reykjavík. Hann var skipstjóri á Skúla Magnússyni frá 1949-1953 þegar hann hætti sjó- mennsku. Næstu tvö ár starfaði hann í Togaraafgreiðslunni, en árið 1955 varð hann hafnsögu- maður hjá Reykjavíkurhöfn. Þar starfaði hann þar til hann Iét af störfúm árið 1984 vegna aldurs, en síðustu árin var hann yfirhafnsögumaður. _ Útfór Jóhanns fer fram frá Áskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. fylgdist með en gerði engar athuga- semdir með hvað þar var gert. I mínum huga var Jói fyrst og fremst góður, traustur og tryggur fjölskyldumaður og hef ég engan hitt sem jafnast á við hann. Hann var ljúfur og hægur og fór ekki mik- ið fyrir öllu því sem hann áorkaði á ævi sinni. Hann talaði aldrei um skyldur sínar eða áhyggjur, heldur gekk að hverju verki eins og sjó- manna er siður, æðrulaus og ókvíð- inn. Gæfa mín var að fá að kynnast þessum mikla mannkostamanni sem ungur maður, sérstaklega þar sem ég átti engan föður sjálfur. Ég hefði gjaman viljað eiga foður eins og Jóa sem hafði siglt nokkra tugi ferða yfir hafið í stríðinu með fisk til Englands til að halda lífi í þjóðinni. En þá var Atlantshafið fullt af kaf- bátum Þjóðverja sem skutu mis- kunnarlaust niður togara. Eða að eiga föður sem bjargaði mörgum mannslífum úr sjávarháska eins og Jói gerði. Ég gleymi aldrei þeim orðum sem Jói sagði við mig á flugvellinum þegar ég rúmlega tvítugur var að flytjast til ísafjarðar með Áslaugu og ungan son okkar og segir meira um Jóa en margt annað: „Þú passar hana vel fyrir mig.“ Elsku Magga, mágkonur og bamaböm, ég veit að söknuðurinn er sár og hjá okkur hefur myndast skarð og tómleiki sem enginn fyllir upp í en við verðum að vera sterk eins og Jói var alltaf og standa sam- an. Sigurður. Hinsta siglingin hans Jóhanns Magnússonar, fyrrum skipstjórnar- og yfirhafnsögumanns, er hafin. Á síðustu tveimur áram var hann orð- inn sjúkur og heilsu hans hrakaði stöðugt. Það var erfitt að horfa upp á jafnglæsilegan mann missa heils- una, en við eram þakklát fyrir það, að þessi hæfileikaríki frændi og vin- ur skyldi fá yfir 80 ár til að vera með okkur og hlúa að fjölskyldu sinni. Umhyggja hans fyrir öllu og öllum bar vott um virðingu hans fyrir tilveranni. Það sama gilti um störf hans og annað sem hann tók sér fyrir hendur. Alúðin, vandvirkn- in og skylduræknin var alltaf í fyrir- rúmi. Foreldrar Jóhanns vora Kristín Hafliðadóttir og Magnús Jóhanns- son skipstjóri, en hann fórst með Jóni forseta í aftakaverði 1928. Þá höfðu þau eignast 5 mannvænlega syni, sem enn vora barnungir. Sjö áram síðar flutti Kristín móður- systir með synina í sama hús og foreldrar mínir bjuggu í við Sól- vallagötuna. Þar var einnig til húsa móðuramma okkar allra og hafði hún oft gætur með barnahópnum eftir að Kristín fór að vinna úti. Þegar fram liðu stundir urðu bræðurnir Jóhann, Gunnar og Sverrir allir sjómenn, en Hafliði varð kjötiðnaðarmaður og Ólafur blaðaljósmyndari. Uppvaxtarárin mín voru sérstaklega eftirminnileg innan um alla þessa hressu og um- hyggjusömu frændur sem sigldu til fjarlægra landa og glöddu litla frænku við hverja heimkomu með fróðleik og oft gjöfum. Jóhann hafði ungur áhuga á að læra smiðar, en á kreppuáranum var ekki heiglum hent að komast í iðnnám. Vegna þessa fór Jóhann ungur til sjós með föður mínum, sem var skipstjóri og aflaði sér brátt skipstjórnarréttinda. Þeir sigldu með aflann til Bretlands á stríðsáranum og buðu bæði Ægi og heimsstyrjöldinni birginn. Báðir vora fegnir stríðslokum og ekki að undra að þeir sem hafa slíkar hildir háð kunni betur að meta frið og ör- yggi heimahaganna. Þegar Jóhann gerðist hafnsögu- maður við höfnina í Reykjavík gat hann loksins farið að sinna fjöl- skyldu sinni af þeirri alúð sem skyldan bauð honum. Hann varð þessi sterki bakhjarl, sem konan og börnin gátu reitt sig á í blíðu og stríðu. Kom þetta oft berlega í ljós, en aldrei betur en þegar Jóhanna dóttir hans varð ung ekkja með þrjú lítil börn. Þar lét Jóhann ekki sitt eftir liggja á meðan kraftar ent- ust. Dætur hans og fjölskyldur þeirra munu lengi búa að um- hyggju hans og öragglega geyma þá fyrirmynd, sem hann var þeim. Jóhann eignaðist marga góða vini um sína daga og átti með þeim ljúfar stundir og mörg áhugamál. Honum var ekki nóg að sá góðum hugmyndum og orðum manna á meðal heldur varð gróðurreiturinn hans við sumarhúsið sem hann smíðaði sjálfur í Mosfellssveit upp- spretta ótölulegra græðlinga í görðum vina og ættmenna. I þeim er að finna ótal minnis- merki, sem standa nú víða sem teinrétt tré og virðast þola veður og vinda eins og sá sem sáði þeim, þegar ungur hann var. Nú era fjórir bræðranna horfnir af sjónarsviðinu, sá fimmti, Gunnar, fyrrverandi skipstjóri, er sestur í helgan stein við góða heilsu eftir sjóferðir langar. Það era ljúfar minningar sem hrannast upp, en virðast hvorki eiga auðvelda leið né erindi á papp- írinn. Jóhann var okkur í fjölskyldunni afar kær. Við kunnum að meta mannkosti hans og órofa vináttu. Forsjóninni þökkum við af heilum hug að hafa mátt eiga samleið með slíkum heiðursmanni. Margréti, hans tryggu og um- hyggjusömu eiginkonu, og fjöl- skyldunni allri, sendir fjölskylda mín innilegar samúðarkveðjur. Jóhann Magnússon hefur ýtt úr vör. Vilborg G. Kristjánsdóttir. Gróin er sú æskugrund, er gefin var þér foróum. Farinn ert á frelsarans fund - fæst sorgin tjáð með orðum? (Magnús Sigurðsson.) Afi var alveg einstakur í okkar augum, því hann var í rauninni eini afinn sem við öll þekktum. Hann var mikil hetja og það var ekkert sem hann gat ekki gert. Við báram alla tíð ómælda virðingu fyrir afa og honum var mjög annt um okkur öll. Þegar við, börn Jóhönnu, misst- um föður okkar ung, þá gekk hann okkur í föðurstað. Afi kenndi okkur JOHANN MAGNÚSSON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.