Morgunblaðið - 01.07.1999, Blaðsíða 36
36 FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
_______ERLENT______
Upplogin langferð
ÞRETTÁN ára drengur frá
Hondúras komst á forsíður allra
helstu fjölmiðla í Bandaríkjunum
og raunar víðar um heim þegar
hann greindi frá erfiðu ferðalagi
sínu frá Hondúras til New York,
í þeirri von að fínna föður sinn.
Drengurinn hafði einnig unnið
hug og hjarta Rudophs Guilianis,
borgarstjóra í New York, áður
en í ljós kom að frásögnin var að
miklu leyti uppspuni.
Drengurinn heitir Edwin Sa-
billion og kvaðst hafa lagt að
baki tæplega 7.000 km og sagði
að móðir sín, bróðir og afi hefðu
látist í aurskriðu sem fellibylur-
inn Mitch hefði valdið í október
siðastliðnum.
Frásögn drengsins olli miklu
uppnámi í New York, og hann
varð frægur á einni nóttu. Fjöldi
tilboða um ættleiðingu barst og
gjöfum rigndi yfir hann. Borgar-
sljórinn hét því að föður drengs-
ins yrði ekki vísað úr landi ef
hann fyndist. Drengurinn er nú í
gæsluvarðhaldi.
Lögreglan í New York stað-
festi á þriðjudag, að hlutar úr
sögu Sabillions væru uppspuni.
Eftir að hafa yfirheyrt hann
komust yfirvöld að því, að faðir
hans hafði látist fyrir ári, eftir að
hafa snúið til baka til Hondúras
frá Miami á Flórída. Ættingjar
drengsins hafa staðfest að þegar
faðir hans dó hafi drengurinn bú-
ið hjá frænku sinni í Miami, en
síðan flust til Hondúras.
Frænkan greindi síðan frá því
að drengurinn hefði farið aftur
frá Hondúras í mars, og ætlað til
Flórída til að búa hjá frændfólki
sínu í Hialeah. Þangað hafi hann
komið eftir hálfan mánuð, en
hlaupist á brott á ný. Hefði lög-
reglunni verið tilkynnt hvarfið.
Lögreglan í New York greindi
frá því að drengurinn hefði farið
inn á kaffiteríu í Miami á laugar-
daginn og sagt hópi fólks sögu af
miklu ferðalagi sínu frá
Hondúras. Fóikið hefði keypt
handa honum farmiða til New
York, fyrir rúmar sex þúsund
krónur, en þangað sagðist hann
vera að fara í leit að föður sínum.
Þegar hann kom til borgarinn-
ar bað hann leigubflstjóra að aka
sér út á flugvöll, þar sem hann
ætlaði að hitta föður sinn. En
þegar faðirinn var hvergi sjáan-
legur gerði leigubflsljórinn yfir-
völdum viðvart um vanda þessa
unga ferðalangs.
Sabillion sagði lögreglunni
sömu sögu og hún hóf leit að föð-
urnum. Kvaðst drengurinn hafa
skrifað pabba sínum eftir að allt
skyldfólk sitt hefði farist í aur-
skriðu. Hann hefði aldrei séð
pabba sinn nema á myndum.
Hann fullyrti ennfremur að pabbi
sinn hefði sent sér tvö hundruð
dollara og sagt sér að hitta hann
á La Guardia-flugvelli í lok júní.
Ferðin sem drengurinn kvaðst
hafa lagt á sig var hin svaðaleg-
asta. Hann hefði farið í gegnum
Guatemala, Mexíkó og Bandarík-
in áður en hann kom til New
York á sunnudag. Hefði ferða-
lagið tekið 37 daga, hann hefði
ferðast á puttanum, með rútum,
á hjóli og lengi á tveim jafnfljót-
um.
Amma hans í Hondúras sagðist
ekki skilja hvers vegna drengur-
inn hefði tekið upp á þessu. „Ég
vil fá hann heim og ég ætla að
senda hann í betrunarskóla."
AP
EDWIN Sabillion í fylgd starfsfólks borgarstjóraembættisins í New York.
Barr höfðar mál á
hendur Hvíta húsinu
Washington. The Daily Telegraph.
EINN af sækjendum Repúblikana-
ílokksins í réttarhöldunum yfir Bill
Clinton Bandaríkjaforseta í öld-
ungadeild Bandaríkjaþings í fyrra
hefur höfðað mál á hendur Hvíta
húsinu og krafið það um skaðabæt-
ur fyrir að hafa með ólögmætum
hætti atað mannorð hans auri.
Bob Barr, einn af þrettán þing-
mönnum Repúblikanaflokksins úr
fulltrúadeildinni sem mistókst að
sannfæra þingmenn öldungadeild-
arinnar um að vísa Clinton úr emb-
ætti, segir að lögmenn forsetans
hafa farið í gegnum skýrslu sem
Bandaríska alríkislögreglan (FBI)
geymir um Barr. Lögmennimir hafi
því næst afhent klámkónginum og
útgefandanum Larry Flynt við-
kvæmar upplýsingar úr skýrslunni.
Flynt uppljóstraði, þegar Lewin-
sky-mál forsetans stóðu sem hæst,
að Barr, sem er þrígiftur og kristi-
legur íhaldsmaður, hefði árið 1983
aðstoðað þáverandi konu sína við að
tryggja sér fóstureyðingu.
Samtökin Judicial Watch, sem
höfða málið fyrir hönd Barrs, saka
Hvíta húsið um upplýsingaleka og
fyrir að hafa brotið lög um einkalíf
manna í þeirri von að skaða mann-
orð Barrs.
FERÐALÖG
KOMIÐ yfir fjallgarðinn. Stapafell.
Sögu- og gönguferðir
á Snæfellsnesi
Ferðalangar sem
leggja leið sína vestur
undir Jökul ættu að
gefa gaum að því sem
hér er nefnt Söguferðir
Sæmundar. Qlafur
Jens Sigurðsson hitti
Sæmund Kristjánsson,
sagnamann í Rifí, sem
er þekktur orðinn fyrir
að gjörþekkja Snæfell-
ingasögur og að vera
staðkunnugur í grennd
við Jökulinn.
SÆMUNDUR Kristjánsson hefur
hann alla tíð verið mikill göngumað-
ur og aldrei sett sig úr færi að afla
sér þekkingar á sögu, ömefnum og
fomminjum Snæfellinga. Hann
skipuleggur gönguferðir þar fyrir
hópa.
Fyrir nokkmm árum lét Sæ-
mundur undan þrýstingi áhugafólks
um sögu- og gönguferðir og hóf að
fara skipulagðar ferðir með heima-
fólk hér um nágrennið. Nú hefur
hann fært út kvíamar fyrir utanað-
komandi hvatningu og gefur hverj-
um sem vill kost á að fylgja sér eftir
í þessum ferðum. í vor hóf hann
ferðimar snemma og hefur þátttaka
ævinlega verið góð. Ferðalangar um
Snæfellsnes ættu ekki að láta þess-
ar ferðir fram hjá sér fara vilji þeir
kynnast Nesinu.
Næstu ferðir Sæmundar verða
farnar dagana 9. 10. og 11. júlí og
verða í senn gönguferðir um sögu-
slóðir Snæfellingasagna en áð á
milli og Sæmundur mun benda fólki
á ömefni, merkilega staði og segja
því sögu Snæfellinga, eins og grein-
ir frá í Eyrbyggju, Bjamar sögu
Breiðvíkingakappa, Víglundar sögu
og Bárðar sögu Snæfellsáss. Þess
utan býr hann yfir ógrynni fróðleiks
sem hann hefur aflað sér um ævina.
Yfirlit yfir næstu ferðir
Sæmundar sagnamanns
9. júlí nk. kl. 9.30; frá Fróðá og
suður fyrir Kambsskarð.
9. júlí nk. mun Sæmundur leggja
upp frá Fróðá og vonast hann til að
þátttakendur verði mættir að Fróðá
BRONx
Morgunblaðið/Ólafur Jens Sigurðsson
SÓLSTÖÐUHÓPURINN leggur á fjöll undir
forystu Sæmundar (lengst til vinstri).
kl. 9.30. Frá Fróðá mun Sæmundur
ganga með hópinn suður fyrir
Kambsskarð og fylgja þeirri slóð
sem sagan segir að Bjami Breiðvík-
ingakappi hafi fylgt þegar hann
heimsótti Þuríði húsfreyju á Fróðá
og drógu þær heimsóknir alvarleg-
an dilk á eftir sér. Þessi ferð er
áætluð 6-7 klst. gangur og er þá
gert ráð fyrir að áð sé með jöfnu
millibili, þar sem Sæmundur bendir
mönnum á og kynnir þeim landið,
bendir þeim á ömefni og endursegir
frásögn Eyrbyggju.
10. júlí nk. kl. 9.00; frá Malarrifi
til Dritvíkur og þaðan gamlar ver-
mannagötur upp á þjóðveg.
Lagt verður upp frá Malamifi kl.
9.00 og gengið með ströndinni allt
til Dritvíkur. A þeirri leið sem fýrr-
um var mikið farin er margt að sjá,
þar á meðal ummerki um skips-
skaða. Þarna fómst bæði Soloven
og Breiðafjarðar-Svanurinn og
enski togarinn Epine á sinni tíð við
klettótta ströndina. Gengið verður
um Lónland og Einarslón en þar
sagði sr. Ami prófastur Þórarins-
son að kraftur Jökulsins væri mest-
ur. Farið verður fram í Tröllakirkju
og síðan gengnar fornar vermanna-
götur upp til þjóðvegarins. Gangan
er áætluð 7-8 klst. með ríflegum án-
ingum þar sem Sæmundur mun
fræða fólk um þessar merkilegu
slóðir.
11. júlí nk. kl. 10.00; frá Nýjubúð í
Bemvík og vestur til Öndverðar-
ness og Skarðsvíkur.
Frá Nýjubúð verða gengnar
gamlar götur meðfram klettóttri
ströndinni, Saxhóls- og Nesbjargi
(Svörtuloftum og Skálasnaga) vest-
ur til Öndverðarness sem er vest-
asti hluti Snæfellsnessins. í Önd-
verðarnesi er margt að sjá, mynjar
um foma verstöð og mikinn fjölda
fomminja, svo sem bmnninn Fálka
og Dómhringinn sem bendir til að
þar hafi verið kveðnir upp dómar
fyrrum. Þá var bænhús í Öndverð-
arnesi tfl foma. Á þessari göngu má
sannarlega kynnast því harðbýli
sem forfeður okkar bjuggu við og
komust af. Þetta er áætluð 6-6 klst.
ganga þegar komið verður til
Skarðsvíkur og skoðaður gulur
sandur fjömnnar eins og á erlend-
um sólarströndum. Á ströndinni í
Skarðsvík er oft undarlega lygnt.
Að vera vel búinn
Ferðafólk sem ekki þekkir til en
vill taka þátt í þessum ferðum er
beðið að vera vel búið, ekki síst tfl
fóta ög taka með sér nestispakka.
Þá sakar ekki að taka með sér sjón-
auka og myndavél fyrir þá sem hafa
áhuga á slíku.
Þátttaka í þessum ferðum kostar
aðeins kr. 1.500.- fyrir fullorðna en
börn greiða hálft gjald. Ferðir
þessar henta ekki mjög ungum
börnum.
Sæmundur hyggst fara fleiri
ferðir í sumar ef fólk sýnir þessum
ferðum hans jafnmikinn áhuga og
hingað til. Þá má einnig hafa sam-
band beint við Sæmund og panta
sér fylgd um söguslóðir Snæfellinga
Sími Sæmundar er 436 6767 eða 436
1543,435 6810.