Morgunblaðið - 01.07.1999, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 01.07.1999, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 1999 35 Tafir á flugi í Sviss TUGIR þúsunda flugfarþega urðu fyrir margra klukku- stunda töfum í Zúrich í Sviss í gær á meðan tæknimenn flug- umferðarstjórnar reyndu að gera við tölvubilun áður en sumarfrísumferðin hefst. Um fimmtíu þúsund farþegar fara um Kloten-flugvöll daglega, og sagði talsmaður flugvallar- yfirvalda að í gær hefði töfin verið að meðaltali um tvær klukkustundir. Síðan hefði orðið keðjuverkun á öðrum flugvöllum í landinu. Vandræð- in hófust á þriðjudagsmorg- unn, þegar svissneska flugum- ferðarstjómin tók í notkun nýtt húsnæði og nýtt kerfí. Talsmaður flugumferðar- stjómarinnar sagði að í fyrstu hefði kerfíð virkað vel, en eftir því sem álag hafí aukist hafí vandamál tekið að skjóta upp kollinum. Ekki var alveg ljóst í gær hvenær takast myndi að leysa vandann. Lögmenn mótmæla RÚMLEGA fjögur hundruð lögfræðingar í Hong Kong efndu til þögulla mótmæla á götum úti gegn afskiptum kín- verskra stjórnvalda af stjóm- arskrá borgarinnar. For- dæmdu lögfræðingamir að stjómin í Peking skyldi leggja til eigin túlkun á innflytjenda- reglugerðum í stjómar- skránni. Hafa aðgerðir stjóm- valda leitt til hörðustu laga- deilna í héraðinu síðan það varð kínverskt yfírráðasvæði fyrir tveim ámm. Orsökin í Coca-Cola BELGÍSKA heilbrigðismála- ráðuneytið greindi frá því í gær að faraldursfræðilegar prófanir, sem gerðar hafi verið í einum skóla sýndu bein tengsl milli veikinda bama og neyslu þeirra á Coca-Cola. I öðmm skólum, þar sem börn höfðu fengið svipuð einkenni, voru tengslin ekki jafn ótví- ræð. Aftur til Gazprom VIKTOR Tsjernómyrdín, fyrr- verandi forsætisráðherra Rússlands, hóf aftur störf hjá gasframleiðandanum Gazprom, sem er í ríkiseigu og hefur einkarétt á gassölu í Rússlandi. Tsjemómyrdín var áður yfirmaður fyrirtækisins. Segja fréttaskýrendur þetta til marks um, að rússnesk stjórn- völd, sem Tsjemómyrdín hef- ur náin tengsl við, vilji styrkja áhrif sín innan fyrirtækisins. Aftaka í Kína ATVINNULAUS kona var tekin af lífi í norðausturhluta Kína fyrii' heróínsmygl, að því er kínverska fréttastofan Xin- hua greindi frá í gær. Konan hét Zhou Xia, 36 ára. Var hún dæmd til dauða fyrir að kaupa heróín í suðvesturhluta lands- ins fyrir rúmum tveim árum og selja það í heimabæ sínum. Hún var sjálf heróínsjúklingur og smyglaði efninu tÚ þess að fjármagna eigin neyslu. ERLENT__________ Gera lítið úr leyni- legum viðræðum íslamabad, Nýju Delhf. Reuters. STJÓRN Pakistans gerði í gær lítið úr friðammleitunum Niaz Naik, fyrrverandi utanríkisráðherra lands- ins, sem hafði spáð því að deilan um árásarliðið á yfirráðasvæði Indverja í Kasmír yrði leyst á næstunni. Niaz Naik hafði átt leynilegan fund með Atal Behari Vajpayee, for- sætisráðhema Indlands, í Nýju Del- hí um helgina til að reyna að draga úr spennunni milli ríkjanna vegna árásarinnar. Ummæli hans um fund- inn höfðu vakið vonir um að lausn væri í sjónmáli en Mushahid Huss- ein, upplýsingaráðherra Pakistans, gerði lítið úr viðræðunum og lagði áherslu á að Naik hefði farið til Ind- lands á eigin vegum. Naik sagði að þeir Vajpayee hefðu rætt um að yfirmenn herja landanna ættu að koma saman til að undirbúa áætlun um brottför árásarliðsins af yfírráðasvæði Indverja. „Um leið og það hefur verið gert, og ef forsætis- ráðherrar landanna samþykkja áætlunina, þá verður hægt að leiða málið til lykta með skjótum hætti,“ bætti Naik við. Rashid Qureshi, helsti talsmaður pakistanska hersins, staðfesti að yf- irmenn herjanna hefðu komið sam- an á þriðjudag en sagði að fundur þeirra hefði verið liður í „regluleg- um samskiptum" sem hefðu staðið í mörg ár. Dagblöð í Pakistan höfðu eftir þarlendum embættismönnum að indverski blaðamaðurinn R.K. Mis- hra hefði einnig rætt við Nawaz Sharif, forsætisráðherra landsins, sem sendimaður indverska forsætis- ráðherrans í vikunni sem leið. Pakistanar undir miklum þrýstingi Pakistanar segja að árásarliðið á yfirráðasvæði Indverja sé aðeins skipað íslömskum skæruliðum og neita ásökunum um að þeir hafi not- ið aðstoðar pakistanskra hermanna. Vestm-veldin hafa hafnað þeim stað- hæfingum og bandarískur embætt- ismaður fullyrti á þriðjudag að hundruð pakistanskra hermanna hefðu tekið þátt í árásinni. Bandaríkjastjórn hefur lagt fast að Pakistönum, bandamönnum sín- um í kalda stríðinu, að binda enda á deiluna með því að skipa árásarlið- inu að snúa aftur yfir markalínuna, sem skiptir Kasmír í tvennt. Vestur- veldin hafa hins vegar hrósað Ind- verjum fyrir að stilla sig um að ráð- ast yfir markalínuna til að geta kró- að árásarliðið af. Indverskar herþotur og hersveitir héldu áfram árásum sínum á innrás- arliðið í gær og talsmaður hersins sagði að hernaðurinn hefði borið verulegan árangur. Indverska lög- reglan greindi ennfremur frá því að íslamskir skæruliðar hefðu skotið tólf manns, aðallega hindúa, til bana í þorpi nálægt borginni Srinagai- í indverska ríkinu Jammu og Kasmír. Ef þér leiðist farðu þá þangað sem veðri hentar fötunum Stuttbuxur, stuttermaskyrtur, bolir, regn- og öndunarfatnaður, buxur, tæknilegur fatnaður, gönguskór, sandalar, bakpokar og margt fleira. <&> Columbia “ Sportswear Company® -fötin ífríið Opið í dag til kl. 22.00 HREYSTI ÆFINGAR - ÚTIVIST - BÓMULL — Skeiíunni 19 - S. 568 1717- Opið mánud.- föstud. 18, laugard. kl. 10 - 16
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.