Morgunblaðið - 01.07.1999, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 01.07.1999, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 1999 47 HJÁLMAR HÚNFJÖRÐ EYÞÓRSSON + Hjálmar Hún- fjörð Eyþórsson fæddist á Blönduósi 4. desember 1917. Hann andaðist að Engimýri í Öxnadal 21. júní síðastliðinn. Foreldrar hans voru: Eyþór Jósef Guðmundsson, f. 19. mars 1895 á Þing- eyrum í Sveinstað- arhreppi í A-Hún., d. 3. júní 1956, og kona hans Anna Vermundsdóttir, f. 28. mars 1896 í Kollugerði í Vindhælishreppi í A-Hún., d. 17. október 1950. Þau slitu samvistum. Systkini Hjálmars sammæðra eru: Páll Sesselíus, f. 3. júní 1919, og Lovísa Margrét, f. 25. oktober 1921 (látin). Hálfbræður Hjálm- ars eru: Skarphéðinn Dalmann, f. 8. október 1921 (látinn); Sig- urður Einarsson, f. 25. ágúst 1938 (ættleiddur); Guðmundur, f. 3. maí 1951; Ragnar, f. 27. júní 1952; og Eyþór Stanley, f. 26. desember 1955. Hinn 31. desember 1945 kvæntist Hjálmar eftirlifandi konu sinni, Kristínu Helgadótt- ur, f. 20. nóvember 1921, frá Hvarfi í Víðidal í V-Hún. For- eldrar hennar voru Helgi Þor- steinn Björnsson, f. 9. júlí 1890, d. 7. nóvember 1930, og kona hans Hansína Guðný Guð- mundsdóttir, f. 30. september 1894, d. 18. desember 1972. Börn Iljálmars og Kristínar, öll fædd á Blönduósi eru: 1) Eygló, f. 7. desem- ber 1946, maki: Sig- urður Hólm Sig- urðsson, f. 4. mars 1946. Þau eru bú- sett í Keflavík. Böm þeirra: a) Kristín Ingibjörg, f. 13. jan- úar 1968, maki: Stefán Halldórsson, þau eiga þrjú börn: Sigurð Hólm, Ólaf Randver og Elísabet Önnu. b) Guðjón Hóim, f. 11. ágúst 1971, sambýliskona: íris Hrund Halldórsdóttir. Fyrr- verandi sambýliskona Guðjóns og barnsmóðir: Dagbjört Krist- ín Bárðardóttir. Þeirra sonur: Hilmar Hólm. c) Hjálmar Þór, 19. júlí 1976, unnusta: Eva Mar- ía Guðmundsdóttir. 2) Pétur Hólmgeir, f. 25. júlí 1949, maki: Dagrún Hjaltadóttir, f. 25. októ- ber 1952. Þau em búsett í Reykjavík. Börn þeirra: a) Hjálmar Örn, f. 25. júní 1973. Fyrrverandi sambýliskona: Fanney Long Einarsdóttir. Barn þeirra: Katrín Björg. b) Karen Ósk, f. 28. febrúar 1987. c) Kolbeinn Atli, f. 2. nóvember 1989. 3) Magnús Helgi, f. 2. febrúar 1958. Fyrrverandi maki: Una Svalrún Káradóttir. Böm þeirra: a) Kristín Huld, f. 6. september 1981, unnusti hennar: Gunnar Björgvin Gunn- arsson. b) Elvar Már, f. 3. mars 1988. Sambýliskona Magnúsar: Margit Hafsteinsdóttir, f. 4. maí 1970. Börn þeirra: c) Eyjólfúr Helgi og Aníta Sigurbjörg Emilsdóttir. Hjálmar ólst upp á Blönduósi og í sveitunum í kring. Hann kom til fósturforeldra sinna, Péturs Tímoteussonar og Hólmfríðar Erlendsdóttur í Meðalheimi, átta ára gamall. Hjálmar lauk barnaskólanámi í farskóla Torfalækjarhrepps, var síðan tvo vetur í Reykholts- skóla í Borgarfirði. Hann vann sem verkamaður, bifreiðastjóri og sjómaður í mörg ár. Arið 1958 sótti hann lögreglunám- skeið og hóf að starfa sem hér- aðslögregluþjónn. Árið 1964 var hann settur lögregluþjónn í A- og Vestur-Húnavatnssýslu, síðar varð hann lögregluvarð- stjóri. Síðustu starfsár sín vann hann á skrifstofu lögreglunnar eða þar til hann hætti störfum, 31. desember árið 1984. Þau hjónin, Hjálmar og Kristín, fluttust til Keflavíkur 12. maí 1991. Hjálmar starfaði að ýmsum félagsmálum. Hann var meðal annars: formaður Verkalýðsfé- lags A-Hún., formaður Slysa- varnafélagsins á Blönduósi, einn af stofnendum Björgunar- sveitarinnar Blöndu, í Leikfé- lagi Blönduóss, einn af stofn- endum karlakórsins Húna. Útför Hjálmars fer fram frá Fossvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Elsku pabbi minn, með örfáum orðum vil ég þakka þér fyrir mig. Þú varst einstakur faðir sem veittir mér í uppvextinum það öryggi, um- hyggju og ást sem er barni svo mikils virði. Þú áttir svo auðvelt með að sýna góðvild og hlýju og ég bar mikla virðingu fyrir þér alla tíð. Þú varst söngmaður mikill og í minningunni sé ég þig fyrir mér syngjandi í karlakór, syngjandi gam- anvísur og sem jólasvein á jólaböll- um. Þú varst einnig mikið í leiklist- inni og ég man að gamla samkomu- húsið á Blönduósi var mitt annað heimili á meðan þú varst að æfa söng og leik fyrir leiksýningar á Húna- vöku. Þegar kom fram á unglingsár mín varst þú góður félagi sem hafðir áhuga á því sem ég var að gera. Þú hafðir lag á að láta mig fmna að mér væri treyst og þess vænst að ég hag- aði mér skynsamlega. Þegar ég svo fór að búa með mínum manni og eignast börn voruð þið mamma alltaf innan seilingar, tilbúin að rétta okk- ur hjálparhönd ef á þurfti að halda. Börnin mín og barnabörn urðu þeirrar gæfu aðnjótandi að geta far- ið til ykkar þegar þau langaði og það var oft. Okkur þótti öllum mjög vænt um þig og við fundum svo vel að við vorum alltaf velkomin á heimili ykk- ar mömmu. Við fluttumst til Keflavíkur 1980 en þið mamma komuð ellefu árum seinna. Þá varst þú orðinn sjúklingur og þér þótti öruggara að vera hér fyi’ir sunnan. Eftir að Kristín dóttir mín fluttist norður í Öxnadal áttir þú enga ósk heitari en að skreppa til hennar. Því var það að við mamma fórum með þér í þína síðustu ferð. Þú hafðir af- skaplega gaman af að koma á Blönduós og aka um Norðurlandið, enda þekktir þú það eins og fingur þína. Eftir ánægjulega þriggja daga dvöl á Engimýri kvaddir þú okkur og þetta líf, sáttur við guð og menn. Enn vér skulum skilja ' skaparans að vilja, hver fer heim til sín. Lát oss aftur langa, lífsins herra’, að ganga hingað heim til þín. Og þótt vér ei hittumst hér, gef oss fund á gleðistundu, Guð, í ríki þínu. (V. Briem.) Fyrstu kynni mín af þér voru þeg- ar ég fékk að fara á Blönduós í heim- sókn til þín og ömmu, þá var ég að- eins sex ára gamall. Fyrir sex ára dreng var gaman að fá að vera með afa sínum, þó ekki væri annað en skreppa í bíltúr út f Vísi að_ kaupa mjólk og brauð fyrir ömmu. Eg man eftir mörgum ferðum út í Kálfsham- arsvík. Þar hugsaðir þú um bátinn þinn og ég fékk að hjálpa til. Eftir að þú og amma komuð til Keflavíkur heimsótti ég ykkur oft og alltaf var mér vel fagnað. Þú vildir gjarnan vita af aflabrögðum og öllu því sem að sjómennskunni sneri. Þetta er sumt af því sem ég geymi í minningunni um þig og mun ég aldrei gleyma þér, afi minn. Þinn nafni, Hjálmar Þór Sigurðsson. Þegar maður fréttir um lát gamals samstarfsmanns og vinar leitar hug- urinn til fortíðarinnar og minning- anna. Hjálmar Eyþórsson var ráðinn fastur starfsmaður lögreglunnar í Húnavatnssýslu 1964 fyrstur manna. Sögunnar vegna er rétt að geta þess að fastráðinn lögreglumaður starfaði hér öll stríðsárin og einnig voru fengnir lögreglumenn til starfa yfir sumartímann þegar síld var söltuð hér á Skagaströnd. Áður höfðu hér- aðslögreglumenn verið til þess að halda uppi reglu á samkomum og byrjaði Hjálmar þar. Það er ávallt mikið ábyrgðarstarf og erfitt að móta nýtt starf jafnvel þótt um það gildi nokkuð ákveðnar reglur. Hér mótaði Hjálmar og fyrstu samstarfsmenn hans starfið á þann veg, að lögreglan yrði sem mest sýnileg, en biði ekki eftir því inni á skrifstofu lögreglustöðvarinn- ar að þeirra yrði þörf. Árangur af starfi frumherjanna mótar enn starf lögreglunnar hér og gerir væntan- lega í framtíðinni. Við Hjálmar unnum einnig saman eitt kjörtímabil í hreppsnefnd. Það samstarf gekk mjög vel og var ein- hugur allra hreppsnefndarmanna um að vinna að uppbyggingu sveitar- félagsins, þótt þeir væru kosnir póli- tískri kosningu. Hjálmar lét slysavarnamál mikið til sín taka bæði á sjó og landi. Enda hafði hann verið sjómaður á sínum yngri árum og vissi hvar skórinn kreppti. Um leið og ég þakka Hjálmari ágætt samstarf og samvinnu til margra ára votta ég konu hans, Kristínu, og niðjum þeirra og vanda- mönnum, samúð okkar hjónanna. Jón ísberg. t Innilegar þakkir til allra sem sýnt hafa okkur hlýhug og samúð vegna fráfalls JÓNS ÞÓRS HARALDSSONAR, Krummahólum 10, Reykjavtk. Þóra Guðríður Stefánsdóttir, Pétur Jónsson, Jóna Gígja Jónsdóttir, Unnur Elísa Jónsdóttir, Jón Pétur Bosson, Svan H. Trampe. t Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og iangamma, FANNEY LÁRUSDÓTTIR, lést á Sjúkrahúsi Siglufjarðar þriðjudaginn 29. júní. Haukur Jónasson, Erna Oddsdóttir, Jón Jónasson, Sigríður D. Benediktsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför eigin- manns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, BJARNA GÍSLASONAR, Stöðulfelli. Sérstakar þakkir til starfsfólks Heilsugæslunn- ar í Laugarási. Bryndfs Eiríksdóttir, Margrét Bjarnadóttir, Viggó Þorsteinsson, Eiríkur Bjarnason, Ásdís J. Karlsdóttir, Sigríður Bjarnadóttir, Guðmundur B. Kristmundsson, Guðrún Elísabet Bjarnadóttir, Benedikt S. Vilhjálmsson, Jón Bjarnason, Lilja Árnadóttir, Oddur Guðni Bjarnason, Hrafnhildur Ágústsdóttir, Guttormur Bjarnason, Signý B. Guðmundsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t t Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, bróður og afa, JÓNS KRISTJÁNSSONAR, Kleppsvegi 62, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks Landakots og Skjóls fyrir góða umönnun. Ingibjörg S. Karlsdóttir, Karl Jónsson, Guðrún Aðalsteinsdóttir, Þóra K. Jónsdóttir, Grétar V. Grétarsson, Kristján Jónsson, Dfsa Anderiman Valdimar Kristjánsson, Kristbjörg Kristjánsdóttir og barnabörn. t innilegar þakkir til allra er sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát föður okkar, tengdaföður og afa, BÖÐVARS SVEINBJARNARSONAR frá ísafirði, síðast til heimilis á Hrafnistu, Reykjavík. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Hrafnistu fyrir góða umönnun í veikindum hans. Bergljót Böðvarsdóttir, Jón Guðlaugur Magnússon, Eirfkur Böðvarsson, Halldóra Jónsdóttir, Kristín Böðvarsdóttir, Pétur S. Sigurðsson og barnabörn. * t Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför STEINS ÞÓRÐARSONAR frá Ásmundarstöðum. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á dvalarheimilinu Lundi, Hellu, og Sjúkrahúsi Suðurlands. Guð blessi ykkur. Kristgerður Þórðardóttir, Andrés Andrésson, Geir Þórðarson, Valdimar Þórðarson, Helga Jóhannesdóttir. Þín dóttir, Eygló.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.