Morgunblaðið - 01.07.1999, Page 1
145. TBL. 87. ÁRG. FIMMTUDAGUR1. JÚLÍ 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Viðræður héldu áfram þótt frestur til að leysa deilur á N-írlandi rynni út
Reynt til þrautar að
ryðja hindrunum úr vegi
Belfast. AFP, Reuters.
AP Reuters
DAVID Trimble, leiðtogi sambandssinna, og Gerry Adams, leiðtogi Sinn Féin, komu út með stuttu millibili í
gærkvöldi og ræddu við fréttamenn fyrir framan Stormont-kastala í Belfast.
VIÐRÆÐUR leiðtoga stríðandi
fylkinga á Norður-írlandi um mynd-
un heimastjórnar og afvopnun öfga-
hópa í héraðinu héldu áfram fram á
nótt í stjómarbyggingum við Stor-
mont-kastala í Belfast þrátt fyrir að
breski forsætisráðherrann Tony
Blair hefði sett miðnætti sem „end-
anlegan“ frest fyrir deilendur að
fínna lausn á deilumálum sínum. Var
tilkynnt að Blair myndi dvelja áfram
við samningaborðið a.m.k. til hádeg-
is í dag, ef nauðsyn krefði.
Pegar Morgunblaðið fór í prentun
þótti góð von til að leiðtogar Sinn
Féin, stjórnmálaarms Irska lýðveld-
ishersins (IRA), og stærsta flokks
sambandssinna (UUP) ryddu öllum
hindrunum úr vegi og styrktu stoðir
friðarsamkomulagsins frá því í fyrra
með því að semja um deilumál sín,
sem reynst hafa svo erfið úrlausnar.
Adams bauðst til að ávarpa
samninganefnd UUP
Loft hafði verið lævi blandið fyrr
um kvöldið og þótti allsendis óvíst
að árangur næðist áður en frestur-
inn rynni út. Rétt fyrir klukkan tíu í
gærkvöldi að íslenskum tíma héldu
bæði Geriy Adams, leiðtogi Sinn
Féin, og David Trimble, leiðtogi
UUP, stutta fréttamannafundi þar
sem þeir lýstu því hvað enn bæri í
milli. Virtist sem viðræður hefðu í
raun lítið þokast áfram, sambands-
sinnar þrjóskuðust enn við að láta af
kröfum um að IRA hefji afvopnun
áður en heimastjórn er mynduð með
aðild Sinn Féin, á meðan leiðtogar
Sinn Féin sátu fast við sinn keip og
sögðu útilokað að þeir gætu sann-
fært IRA um að ganga að þessu.
Sú staðreynd að Adams og
Trimble héldu þegar aftur inn til
viðræðna þótti hins vegar benda til
að þeir hygðust reyna til þrautar, og
að von væri til þess að þeim tækist
að brúa bilið og taka skrefið fram á
við í sameiningu.
Var fullyrt að Adams og Trimble
sætu á fundi með Blair og Bertie
Ahern, forsætisráðherra Irlands,
einmitt þegar fresturinn rann út á
miðnætti og mun Adams m.a. hafa
boðist til að stíga hið sögulega skref
að ávarpa liðsmenn samninganefnd-
ar UUP þar sem hann hugðist reyna
að fullvissa þá um að þeir gætu
treyst lýðveldissinnum, og að af-
vopnun myndi sannarlega eiga sér
stað samþykktu sambandssinnar að
setja heimastjórnina á laggirnar.
Clinton reiðubúinn
að grípa inn í
Loks mun Kanadamaðurinn John
de Chastelain, formaður þriggja
manna nefndar sem falið var að gefa
ráðleggingar um fyrirkomulag af-
vopnunar öfgahópanna, hafa birt
skýrslu snemma í nótt þar sem er að
fmna mat hans á því hvort IRA
hyggist í raun afvopnast fyrir maí-
lok á næsta ári, eins og ákvæði frið-
arsamkomulagsins kveða á um. Var
vonast til að innihald skýrslunnar
myndi staðfesta þetta, og að þar
með myndi Trimble telja sér óhætt
að ganga að samkomulagi. Slíkt
samkomulag myndi annars vegar
fela í sér nákvæmlega tímasetta
áætlun um það hvenær og hvernig
IRA afvopnast og hins vegar mynd-
un heimastjórnarinnar með Sinn
Féin innanborðs.
Tony Blair ræddi við Bill Chnton
Bandaríkjaforseta í síma í gær-
kvöldi og kynnti fyrir honum stöð-
una í viðræðunum í Stonnont. Voru
uppi getgátur þá að Clinton kynni
að ræða við leiðtoga Sinn Féin eða
UUP, í því skyni að reyna að þrýsta
málum áfram, líkt og Clinton gerði
með góðum árangri í fyrra þegar
friðarsamkomulagið, sem kennt er
við föstudaginn langa, náðist.
Stuðning-smenn
Öcalans mótmæla
Ikveikjur í
Þýskalandi
Ankara, Istanbúl, Berlín. Reuters, AFP.
STUÐNINGSMENN Abdullah
Öcalans, leiðtoga skæruliðahreyfing-
ar Verkamannaflokks Kúrda (PKK),
kveiktu í gær í ellefu byggingum
sem eru í eigu Tyrkja búsettra í
Þýskalandi. Voru íkveikjurnar liður í
mótmælaaðgerðum Kúrda vegna
dauðadómsins sem kveðinn var upp
yfir Öcalan á þriðjudag. Búast þýsk
stjórnvöld við mótmælaöldu meðal
Kúrda í Þýskalandi en þar í landi
búa um tvær milljónir innflytjenda
frá Tyrklandi og er um fjórðungur
þeirra Kúrdar.
Tyrknesk stjómvöld lýstu því yfir
í gær að tólf skæruliðar PKK hefðu
verið felldir í suðausturhluta Tyrk-
lands í kjölfar átaka við hersveitir
Tyrkja. Hafa tyrknesk hermálayfir-
vöid mikinn viðbúnað vegna hugsan-
legra átaka við PKK.
Ikveikjutilræðin í Þýskalandi í
gær voru fyrstu ofbeldisverkin sem
koma í kjölfar dómsins umdeilda. í
Stuttgart og Bremen var eldsprengj-
um varpað inn á veitingastaði og
ferðaskrifstofur í eigu Tyrkja en
ekkert mannfall varð í tilræðunum.
Þá söfnuðust hundmð mótmælenda
saman í fjölmörgum borgum í
Þýskalandi í gær og mótmæltu m.a.
200 manns fyrir utan bandaríska
sendiráðið í Berlín. Hrópaði fólkið að
starfsmönnum sendiráðsins og ásök-
uðu Bandaríkin um að hafa lagt á
ráðin um handtöku Öcalans.
Verjendur Öcalans hófu í gær
undirbúning áfrýjunar dauðadóms-
ins. „Við erum að leita leiða til að fá
eðlilega niðurstöðu í málinu fyrir
eðlilegum dómi, sem tekur ákvörðun
án íhlutunai- stjórnvalda," sagði Niy-
azi Bulgan, einn verjenda Öcalans, í
gær. Sagði hann að málinu yrði
áfrýjað til Mannréttindadómstóls
Ewópu sem og áfrýjunardómstóls
Tyrklands. Sögðu lögmenn Öcalans í
yfirlýsingu sinni að í réttarhöldunum
hafi margt orkað tvímælis.
Reuters
BRESKIR ferðamenn hraða sér í fríhafnarverzlunina um borð í
Manet, ferju sem siglir milli Caiais í Frakklandi og Dover í Bretlandi.
Frfliafnarverzlun hætt
Hugsanleg upp-
stokkun á ríkis-
stjórn Júgóslavíu
Belgrad. Reuters.
Barak með
starfhæfan
meirihluta
Jerúsalem. AFP.
LEIÐTOGAR ísraelska Shas-flokks-
ins samþykktu í gær að taka þátt í
samsteypustjóm undir forsæti Ehuds
Baraks, leiðtoga Verkamannaflokks-
ins, og mun ákvörðun Shas-flokksins
leiða til mikils þingmeirihluta kom-
andi ríkisstjórnar á ísraelska þinginu.
Stuttu eftir að Barak fékk samþykki
Shas-flokksins í gær lýsti hann því yf-
ir á ísraelska þinginu að hann hefði
nú starfhæfan meirihluta á þingi og
að hann myndi tilkynna þinginu um
ríkisstjórnina á mánudag.
Shas-flokkurinn sem er flokkur
strangtrúaðra gyðinga samþykkti
stjórnarsetuna eftir að honum höfðu
verið boðin sæti í ríkisstjóm lands-
ins, þ.á.m. ráðuneyti trúmála.
Þátttaka flokksins í ríkisstjórninni
er talin munu auðvelda eftirleikinn
að stjómarmyndun Baraks meðal
sjö flokka á ísraelska þinginu. Hefur
Barak nú tryggt sér stuðning 69
þingmanna af 120 og eru taldar líkur
á að ellefu þingmenn til viðbótar
muni styðja ríkisstjórnina.
TOLLFRJÁLSRI verzlun var hætt
innan Evrópusambandsins (ESB) á
miðnætti sem þýðir að þeir sem ferð-
ast milli ESB-landa munu ekki leng-
ur geta keypt virðisaukaskatts- og
tollfrjálsan varning í flughöfnum eða
ferjum á þessum leiðum.
I ferjum yfir Ermarsundið víú
handagangur í öskjunni í gær, þegar'
ferðamenn, nýttu sér síðasta tækiJ
færið til að gera hagstæð kaup. Á
ferjuleiðinni milli Svíþjóðar og Finn-
lands var öllu rólegra, þar sem frí-
hafnarverzlun á þeirri leið heldur
áfram, þar eð Áiandseyjar, viðkomu-
staður ferjanna, njóta undanþágu frá
ýmsum sameiginlegum skattaregl-
um ESB.
■ ÁIandseyingar/33
MOMIR Bulatovic, forsætisráðherra
Júgóslavíu, boðaði í gær til fundar
allra stjórnarflokkanna á þingi Sam-
bandsríkis Júgóslavíu, sem fara á
fram í dag, og þykir til marks um að
stjórnvöld í Belgrad hyggi á upp-
stokkun ríkisstjómarinnar. Nú eru
þrjár vikur frá því loftárásum Atl-
antshafsbandalagsins (NATO) á Jú-
góslavíu lauk og síðan hafa verið uppi
háværar raddir um að Slobodan
Milosevic forseti stígi úr valdastóli og
að uppstokkun verði á ríkisstjóminni.
Taryug-fréttastofan greindi frá því
í gær að allir flokkar sem fulltrúa
ættu á Júgóslavíuþingi hefðu verið
boðaðir til fundarins í dag en ekki
væri vænst þátttöku allra. „Tilgang-
ur fundarins er að sjá hve langt er
hægt að komast í samvinnu allra
stjórnmálaaflanna á þingi um að ná
fram markmiðum stjórnarinnar,“
sagði í frétt Tanjug í gær.
Með markmiðum stjórnarinnar er
átt við nauðsyn þess að styrkja ein-
ingu innan landsins um endurupp-
byggingu þess og eflingu viðskipta-
tengsla þess við önnur ríki.
Draskovic í stjórn á ný?
Harðlínumenn í flokki róttækra
þjóðemissinna, undir stjórn Voj-
islavs Sesljs hafa verið nefndir sem
hugsanlegir aðilar að nýrri ríkis-
stjórn Júgóslavíu, sem og Vuk Dra-
skovic, fyrrverandi aðstoðarforsætis-
ráðherra landsins.
Þrátt fyrir að þingmenn úr Jafn-
aðarmannaflokki Svartfjallalands,
flokki Milos Djukanovics, forseta
Svartfjallalands, hafi verið boðaðir
til fundarins í dag er talið ólíklegt að
þeir mæti. Þá hefur ekki verið til-
greint hvort flokkar skipaðir áköf-
ustu gagnrýnendum Milosevics hafi
verið boðaðir á fundinn.