Morgunblaðið - 01.07.1999, Síða 4

Morgunblaðið - 01.07.1999, Síða 4
4 FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ ___________________FRÉTTIR____________________ VEÐURBLÍÐAN LÉTTIR LANDSMÖNNUM LÍFIÐ SÓLDÝRKENDUR létu ekki framkvæmdirnar fyrir framan Alþingishúsið aftra sér frá því að flatmaga á Austurvelli í gær. Þessar stúlkur kunnu sannarlega að meta góðviðrið, (f.v.) Edda Ósk Gísladóttir, Líberta Óskarsdóttir, Anna Guðrún Konráðsdóttir og Katla Rós Völudóttir. Katla og Líberta urðu reyndar líka á vegi ljósmyndara Morgunblaðsins fyrr um daginn í Laugardalslauginni. RÓSA Birgitta Sigríðardóttir leyfði ljósmyndara Morgunblaðsins að sjá leikni sína á snáknum, eins og hún kallar farartækið, þar sem bún brunaði um Ingólfstorg í gær. INGIBJÖRG Kolbeins, deildarstjóri á endurhæfingar- og taugadeild Sjúkrahúss Reykjavíkur, sagði að aldrei hefði viðrað jafn vel í árlegri grillveislu deildarinnar. Stundum hefði verið svo kalt að vefja hefði þurft fólk inn í teppi. Grillmeistarinn er Stefán Yngvason yfirlæknir. EINHVERJIR urðu að vinna í gær þrátt fyrir góða veðrið. Sigurður Sólmundsson var að saga hellurnar sem lagðar verða fyrir framan Alþingishúsið. ÞRÁTT fyrir átján stigin í höfuðborginni í gær passaði Andrea Gunnarsdóttir sig á því að vera leðurklædd á mótórfáknum sínum. Berglind Óskarsdóttir tyllti sér á fákinn hjá vinkonu sinni. A bifhjólinu á bak við þær situr Guðmundur Guðlaugsson, svellkaldur, að sjálfsögðu í hlífðarklæðnaði. Morgunblaðið/Halldór Kolbeins AUÐUNN Orri var ekki hræddur í Laugardalslauginni í gær þrátt fyrir sinn unga aldur, en hann er átta mánaða gamall. Það er því ekki nema von að móðir hans, Kristín Steingrímsdóttir, sé stolt af honum. heimilisbankinn www.bi.is Þú velur greiðsludaginn - Heimilisbankinn borgar reikninginn ®BÚNAÐARBANK3NN © Traustur banki s k í m a mánaða internettenging fylgir Bros á hvers manns vörum HELDUR birti yfir borgarbúum þegar langþráð sólin fór loks að sýna sig. Fólk lét ekki segja sér það tvisvar að drífa sig út og njóta veðurblíðunnar. Það hafa áreiðanlega bæst margar freknur á andlit flestra landsmanna í gær því bjartviðri var alls staðar nema á Austurlandi, þar var alskýjað. Hitinn hefur ekki verið eins mikill á árinu og í Reykjavík í gær og á mánudag en hann varð mestur 18 stig um klukkan þijú í gær. Mestur hiti á landinu var þó á Þingvöllum, en þar mældist hann 24 stig. Veðurspáin er svip- uð fram á þriðjudag. Urkoman í júní hefur verið yfir meðallagi, að sögn Haraldar Ei- ríkssonar, veðurfræðings á Veð- urstofu Islands. „Gærdagurinn er með því besta sem gerist í Reykja- vík því að hitastigið fer sjaldan yfir 18 stig,“ sagði hann ennfrem- ur. Mestur hiti hefur mælst í borginni 24,3 stig 1976. Starfsfólk í Laugardalslauginni sagði í samtali við Morgunblaðið að aðsóknin hefði verið mjög góð í gær og þetta hefði verið besti dagurinn í sumar hvað það varð- ar. Straumur sundlaugargesta var orðinn mikill um ellefu í gær- morgun en um fimmleytið var að- eins farið að draga úr honum. Borgarbúar nutu veðurblíðunn- ar, en fyrirtækjum var víða lokað í gær til að starfmenn gætu notið hins langþráða sumarveðurs. Meginþorri landsmanna getur glaðst áfram ef spá veðurstofunn- ar gengur eftir því spáð er svip- uðu veðri áfram, en hlýjast verð- ur f innsveitum. Spáð er 8 til 18 stiga hita en upp úr helgi má bú- ast við rigningu öðru hvoru við suðausturströndina. Spáð er sæmilcgu veðri á Austurlandi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.