Morgunblaðið - 01.07.1999, Side 8
8 FIMMTUDAGUR 1. JIJLÍ 1999
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
AdstoðarSlv
ÉG vona að þú sért með réttu græjurnar, Einar minn, ég þarf á góðu pólitísku
veðri að halda á Eyjabakkasvæðinu.
„Næstum of gott til að
geta haldið áfram“
GLAÐHLAKKALEGIR veiðimenn
á bökkum Ytri Rangár.
ÞVERÁ ásamt Kjarrá hefur gefið
nærri 550 laxa það sem af er vertíð
og er vel á annað hundrað löxum á
undan næstu verstöð sem er Norð-
urá. Óstöðugt vatnsmagn hefur þó,
eins og víðar, staðið veiðiskap fyrir
þrifum og gerir aflatöluna enn glæsi-
legri.
„Við leigutakarnir erum að sjálf-
sögðu bæði undrandi og ánægðir yfir
þessari veiði. Þetta hefur nefnilega
ekki verið tóm hamingja, það hafa
verið erfiðir dagar vegna gruggs og
vatnavaxta. En maður spyr sig núna
hvenær þessu ljúki. Vonandi aldrei
en þetta er næstum of gott til að
geta haldið áfram,“ sagði Jón Ólafs-
son, einn leigutaka Þver-
ár og Kjarrár, í samtali
við Morgunblaðið. Jón
sagði jafnframt að aflinn
væri bæði smár og stór
lax. Eins og venja er til
var laxinn nánast allur
stór framan af mánuðin-
um en síðan fór að bæta í
smálaxinn. „Um síðustu
helgi var þessu nokkuð
misskipt. Það er farið að
bera verulega á smálaxi
en enn sem komið er
veiðist mest af honum
neðarlega. Um helgina
voru menn mest í stórum
fiski í Kjarrá en smáum
fiski í Þverá. Þetta á svo
eftir að blandast,“ bætti
Jón við.
Fimmtíu úr Brennunni
„Síðasti hópur í Brennunni fékk
aðeins fjóra laxa en heildarútkoman
er þó bærileg, það eru komnir eitt-
hvað um 50 laxar á land af svæðinu,“
sagði Dagur Garðarsson, einn leigu-
taka Brennunnar í Borgarfirði, en sá
veiðistaður er vatnamót Þverár og
Hvítár. Stærsti laxinn til þessa var
17 pund, að því er Dagur taldi, og
farið er að bera á smálaxi.
Aldrei betra í Álftá
Tíu fiskar veiddust í Álftá fyrsta
daginn, 25.júní, sex laxar og fjórir
sjóbirtingar. Síðan hefur reyst eitt-
hvað flesta daga, m.a. 6 punda sjó-
birtingur. Leigutakar og fleiri kunn-
ugir telja að aldrei fyrr hafi veiði
verið jafn lífleg í júní, en Álftá er
„síðsumarsá". Mest hefur veiðst í
Kerfossi, en nýlega hafa menn séð
göngur neðarlega í ánni.
Góður gangur í Vatnsdal
Pétur Pétursson leigutaki Vatns-
dalsár sagði í gærdag að „góður
gangur“ væri í veiðiskapnum. „Síð-
asta grúppa var með 29 laxa og það
eru líka komnir tíu laxar af silunga-
svæðinu. Þar hefur líka verið að
veiðast hörkuvæn bleikja. Það er
víða lax í ánni og haugur af honum í
Hólakvörn. Hann er þó ekki að
bunkast þar upp, því við erum að fá
lúsuga laxa á báðum efri svæðunum
á hverri vakt, alveg upp í Stekkjar-
foss,“ sagði Pétur.
OLYMPUS
Oiympus mju II
Alsjálfvirk I
Linsa 35 mm
Ljósop F 2,8 O^y.
Framúrskarandi linsa,
ein þynnsta 35 mm linía^^ju.y^
á markaðnum
All-Weather
Sérstök landslagsstilling
5 flassstillingar
Hægt að nota^jarstýringu.
éTi, BRÆÐURNIR
íelORMSSON
iSfSSlVí'VSÍSOTo 2800
www.ormsson.ls
Harmonikuhátíð á Siglufirði
A
A annað hund-
rað harmoniku-
leikarar hittast
SIGLFIRÐINGAR
búast við allt að
þúsund gestum á
Siglufjörð um helgina
sem hittast þar í tengsl-
um við sjöunda landsmót
Sambands íslenskra
harmonikuunnenda. Óm-
ar Hauksson er formaður
Félags harmonikuunn-
enda á Siglufirði.
„Landsmót íslenskra
harmonikuunnenda er
haldið á þriggja ára fresti
og verður hjá okkur á
Siglufirði að þessu sinni
dagana 1.-4. júlí. Við er-
um að vonast eftir allt að
þúsund gestum á lands-
mótið sem hefst í kvöld,
fimmtudag, með aðal-
fundi landssambandsins.
Um kvöldið verður
dúndrandi harmoniku-
leikur um allan bæ og m.a. á
veitingastöðum bæjarins. Þá
spilar hver sem betur getur en
gert er ráð fyrir að hér hittist
hátt á annað hundrað harmon-
ikuleikarar.“
- Er svo veríð að spila á
harmoniku alla helgina?
„Á morgun, fóstudag, eru tón-
leikar í íþróttahúsi staðarins og
þar koma sveitir hinna ýmsu fé-
laga fram og sýna snilli sína á
nikku. Um kvöldið verðum við
svo með uppákomur við Síld-
arminjasafnið þar sem boðið
verður upp á síldarsöltun, varð-
eld og harmonikuleik auk þess
sem fólki gefst kostur á að
skoða Síldarminjasafnið. Þetta
kvöld verða einnig dansleikir á
þremur stöðum í bænum þar
sem auðvitað verður dansað við
harmonikuleik fram eftir nóttu.“
Ómar segir að á laugardegin-
um verði áframhaldandi tónleik-
ar félaga í íþróttahúsi og síðdeg-
is verði boðið upp á tónleika
með rússneskum gestum. „Gest-
ir okkar eru mjög færir rúss-
neskir tvíburar sem heita Yuri
og Vadim Fjodorov. Þeir eru við
nám í Þýskalandi og kunna
ýmsar brellur með nikkuna. Um
kvöldmatarleytið á laugardag-
inn má segja að hápunkturinn
verði þegar allir harmonikuleik-
ararnir á svæðinu koma saman
á Ráðhústorginu og leika fyrir
vegfarendur. Við gerum ráð fyr-
ir því að a.m.k. 150 harmoniku-
leikarar komi saman og þá
verða líka ýmsar óvæntar uppá-
komur.“ Ómar segir að á laug-
ardagskvöldinu verði lokahóf í
íþróttahúsinu og
dansað fram undir
morgun.
-Það hefur kostað
mikinn undirbúning
að standa fyrir móti
sem þessu?
„Já, þetta er í
fyrsta skipti sem við höldum
landsmótið hér á Siglufirði og
við hlökkum mikið til að fá
þessa gesti til okkar. Það hefur
hinsvegar þýtt ómælda vinnu.
Við þurftum til dæmis að breyta
íþróttahúsinu okkar í tónleika-
höll og dansstað. Þá höfum við
aukið við hreinlætisaðstöðu á
tjaldstæðum og þurft að gera
ráð fyrir öllum þessum fjölda
hvað snertir gistingu og fæði.“
- Er mikil gróska í harmon-
ikuleik hér á landi?
►Ómar Ilauksson er fæddur á
Siglufirði hinn 28. desember ár-
ið 1950. Hann starfaði hjá ríkis-
endurskoðun í Reykjavík um
skeið, en flutti síðan aftur á
Siglufjörð árið 1974 og var
skrifstofustjóri hjá Þormóði
ramma í' nokkur ár.
Ómar rak fyrirtækið Isafold
um árabil en hefur að undan-
förnu verið skrifstofustjóri hjá
rækjuvinnslunni Pólar hf.
Eiginkona hans er Kristín
Jónasdóttir, sem starfar hjá
rækjuvinnslunni Pólar hf., og
eiga þau Ijögur börn og þrjú
barnaböm.
„Það er óhætt að segja það.
Harmonikuleikur er nú kenndur
í flestum tónlistarskólum á land-
inu og það er töluvert af ungu
fólki sem sýnir harmonikunni
áhuga, enda um mjög skemmti-
legt hljóðfæri að ræða.“
Ómar segist ekki spila sjálfur
á harmoniku en vera einlægur
aðdáandi þessa hljóðfæris.
„Harmonikan er skemmtileg,
ekki síst vegna þess hvað hún er
meðfærileg og hægt að spila
margt á hana. Þótt ég spili ekki
á nikku leik ég á bassa með
harmonikuhljómsveitinni á
Siglufirði og hef mjög gaman
af.“
-Eru það jafnt konur og
karlar sem spila á harmoniku?
„Konur eru í auknum mæli
famar að spila á þetta hljóðfæri
og almennt eru þær þátttakend-
ur í öllum okkar sveitum enda
þótt á Siglufirði sé engin kona
sem spilar á harmoniku. Það er
tímanna tákn að for-
maður Landssam-
bands íslenskra harm-
onikuleikara er kona,
Sigrún Bjarnadóttir.“
- Það hefur löngum
loðað við harmoniku-
leikara að léttleikinn
sé allsráðandi þegar þeir hittist.
Er eitthvað til íþví?
„Já þeir sem spila eitthvað að
ráði hittast margir hverjir
reglulega yfir árið og gera sér
glaðan dag. Margir eru komnir
með tjaldvagna eða húsbíla og
mæla sér mót víða um landið á
sumrin til að spila saman á
nikku og skemmta sér. Félags-
skapurinn skiptir tvímælalaust
miklu máli og er öflugur og gef-
andi. Það verður mikið líf og
fjör á Siglufirði um helgina."
Rússneskir
tvíburar ætla
að leika fyrir
gesti lands-
mótsins