Morgunblaðið - 01.07.1999, Page 16

Morgunblaðið - 01.07.1999, Page 16
16 FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ Eðalvagn í bæinn Grindavík - „Royal limousine“- þjónustan er nafnið á nýjasta fyr- irtækinu í Grindavíkurbæ. Það eru þau Sigmar Edvardsson, Linda Kristín Oddsdóttir, Hjalti Allan Sverrisson og Ragna Kristín Ragn- arsdóttir sem eiga þessa glæsilegu bifreið. Að sögn þeirra félaga, Sig- mars og Hjalta, hefur fyrirtækið farið vel af stað; fyrsti túrinn var kl.19 hinn lö.júní, en þar var á ferðinni óvænt afmælisgjöf fyrir afmælisbarn sem varð sjötugt. Þá hafa verið farnar ferðir með hina og þessa, m.a. milljónamæring, brúðhjón og nú síðast með hóp af hörðum stuðningsmönnum Grinda- víkur í knattspymu á leik sem fram fór á Akranesi. Þetta er því bíll fyrir öll tækifæri, enda mikil lúxusbifreið. Þessa dagana er einmitt verið að markaðssetja lúx- usferðir í Bláa lónið og Grindavík, að sögn þeirra félaga. í bflnum eru tvö sjónvörp, leð- urhornsófi, myndbandstæki, bar og allt sem vera á í bfl af þessu tagi, en hann er af gerðinni Ford Lincoln, Town Car, árgerð 1994. Á númeraplötunni er nafnið ROYAL 1. Ekki voru þeir félagar tilbúnir að gefa upp verðið á far- artækinu, sögðu einungis að þetta væri dýr bfll. Morgunblaðið/Garðar Páll FÉLAGARNIR Sigmar Edvardsson og Hjalti Allan, eigendur limosínunnar. Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Leiðin út í Dyrhólaey opnuð ferðamönnum Fagradal - Leiðin út í Dyrhólaey hefur verið lokuð allri umferð nú í vor af umhverfisástæðum, en var opnuð 25. júm'. Að sögn Sigrúnar Lilju Einars- dóttur, starfsmanns upplýsinga- miðstöðvarinnar í Vík, hefur mikið verið spurt um Dyrhólaey það sem af er sumri og er því opnunin kær- komin fyrir ferðamenn þessa lands. Þegar fréttaritari Morgunblaðs- ins var á ferð í Dyrhólaey nú um helgina var hópur af Frökkum að skoða eyjuna og tók hann þá þessa mynd af gatinu í Dyrhólaey. LANDIÐ Morgunblaðið/Sigurjón J. Sigurðsson STJÓRN Golfklúbbs ísafjarðar hafði ástæðu til að brosa á laugardaginn er nýr golfskáli klúbbsins var form- lega tekinn í notkun. F.v. Kristín Karlsdóttir, Kristinn Kristjánsson, Tryggvi Guðmundsson formaður, Birgir Valdimarsson, Finnur Magnússon, Guðríður Sigurðardóttir, Sigurjón Guðmundsson, Gylfí Guðmundsson, framkvæmdastjóri golfklúbbsins, og Pétur Bjarnason varaformaður. Nýr golfskáli í r Isafirði - Vígsluhátíð eins glæsileg- asta golfskála landsins var haldin í Tungudal í Skutulsfirði á laugar- dag. Og skálinn er ekki aðeins glæsilegur, heldur veldur tilkoma hans gjörbyltingu í þeirri þjónustu sem Golfklúbbur Isafjarðar getur veitt. Hér er vissulega um að ræða stærstu þáttaskil í tuttugu og eins árs sögu hans. Hátíðin var skemmtileg og vel heppnuð og voru milli 90 og 100 manns í samkvæminu. Formaður Golfklúbbs Isafjarðar, Tryggvi Guð- mundsson lögfræðingur, ávarpaði gesti og fór lauslega yfir byggingar- söguna en fyrir hönd ísafjarðarbæj- ar flutti Birna Lárusdóttir klúbbn- um heillaóskir. Efri hæðin var áður einbýlishús Skálinn er á tveimur hæðum og grunnflötur um 130 m2 fyrir utan verönd sem er um 100 m2. Neðri hæðin er steinsteypt og var lokið við að steypa hana upp nálægt síðustu áramótum. Efri hæðin er aftur á móti einbýlishúsið sem áður var að Fitjateigi 6 í Hnífsdal, eitt af upp- kaupahúsunum svonefndu. Það var flutt í heilu lagi á sinn stað í byrjun ársins og sett ofan á neðri hæðina. Nýi skálinn leysir af hólmi bláa VIÐ vígsluathöfnina á laugardag fékk Gunnar Pétur Ólason afhent gjafabréf frá Flugleiðum upp á Evrópuferð fyrir tvo fyrir að hafa far- ið holu í höggi á golfmóti fyrir stuttu. Gunnar Pétur (t.v.) er hér ásamt formanni GÍ, Tryggva Guðmundssyni. skúrinn sem keyptur var af Hafn- arnefnd ísafjarðar árið 1985 og var áður vigtarskúr. Nú getur Golfklúbbur Isafjarðar boðið fé- lagsmönnum sínum og gestum upp á glæsilega og rúmgóða veitinga- aðstöðu og geymslur fyrir áhöld og tæki, auk margs annars sem ekki var fyrir hendi í gamla skál- anum. Um kvöldið var síðan haldið hið hefðbundna Jónsmessumót, sem er raunar nokkuð óhefðbundið í fram- kvæmd þó að það sé hefðbundið. Ekki er venja að greina frá högga- fjölda á Jónsmessumótum GI. Morgunblaðið/J6n Sigurðsson „BIRNURNAR“ á Blönduósi afhenda Pétri Amari Péturssyni, formanni bæjarráðs Blönduóss, varamanna- skýlin. I baksýn má sjá sigurreifa meistaraflokksmenn knattspyrnuliðs Hvatar inni í öðru varamannaskýlinu eftir leik við Kormák úr Húnaþingi vestra. Frá vinstri: Hjördís Blöndal, Guðrún Blöndal, Heiðrún Bjarkadótt- ir, Sigríður Bjarkadóttir og Pétur A. Pétursson. • • Oflugar „birnur(< á Blönduósi Gáfu varamannaskýli á völlinn Blönduósi - Birnurnar, en svo heitir Iítill samhentur kvennahópur sem styður við bakið á knattspyrnu- mönnum í Hvöt á Blönduósi, afhentu á dögunum bæjaryfirvöldum ný og glæsileg varamannaskýli sem komið hefur verið upp við íþróttaleikvangiiin á Blönduósi. Pétur Arnar Pétursson, formaður bæjarráðs, veitti varamannaskýlunum móttöku fyrir hönd bæjaryfir- valda. Að sögn Guðrúnar Blöndal „bimu“ þá hafa þær stöllur safnað fyrir þessu mannvirki með ýmsu móti og hefur dósasöfnun verið þar dijúg á metun- um. Þær bimur vildu koma á framfæri sérstöku þakklæti til fyrirtækisins Léttitækni á Blönduósi sem lagði þeim dijúgt lið við að hrinda þessu í fram- kvæmd. Með tilkomu þessara skýla væsir ekki um varamenn á Blönduósi. Morgunblaðið/Ágúst Blöndal FRÁ undirritun samstarfssamningsins. Fjarnám fyrir sjómenn Neskaupstaður - Undirritaður hefur verið samstarfssamningur á milli Stýrimannaskólans í Reykja- vík, Verkmenntaskóla Austur- lands, Hraðfrystihúss Eskifjarð- ar, Síldarvinnslunnar í Neskaup- stað, Skipakletts á Reyðarfirði og Farmanna- og fiskimannasam- bands Islands um fjarnám fyrir sjómenn. Samstarfið tekur til þess náms sem heyrir undir sjávarátvegs- braut skólanna. Námsefninu verð- ur komið fyrir í tölvutæku formi á disklingum eða í möppu. Verkefna- skil verða m.a. með faxi og tölvu- pósti. Verkefnastjórn samstarfsins er skipuð fulltrúum frá skólanum og útgerðarfyrirtækjum auk eins full- tráa sjómanna úr Fjarðabyggð og fulltrúa frá Farmanna- og fiski- mapnasambandinu. Áætlað er að fjarnámið hefjist í haust með áhöfnum skipa útgerða í Fjarðabyggð.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.