Morgunblaðið - 01.07.1999, Side 20
20 FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 1999
MÖRGÚNBLAÐIÐ
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Um 23 hektarar bætast við hafnarsvæðið sem þrefaldast með uppfyllingu við Hvaleyri
Veruleg
aukning
umsvifa
við höfnina
✓
Aætlað er að kostnaður við fram-
kvæmdirnar í Hafnarfjarðarhöfn
verði um einn milljarður króna,
en velta hafnarinnar er um 160
-------j, , , .
milljónir á ári. I grein Eiríks Páls
Jörundssonar kemur fram að
tilgangurinn með stækkuninni er
að skapa fleiri störf og aukin verð-
mæti með frekari umsvifum.
Hafnarf jörður
FRAMKVÆMDIR við
stækkun á höfninni í Hafnai’-
firði munu gjörbreyta allri
aðstöðu í Hafnarfjarðarhöfn.
Að þessum framkvæmdum
loknum verður athafnasvæð-
ið nálega þrefalt núverandi
svæði að flatarmáli. Fyrsta
skipið lagðist að nýjum
bryggjukanti á miðvikudag
og áætlað er að flotkvíamar
verði komnar á nýjan stað
um miðjan ágúst. Talsverð
eftirspum er eftir aðstöðu við
höfnina og nú þegar hafa
borist umsóknir um lóðir á
öllu nýja svæðinu, án þess að
þær hafi verið auglýstar tii
úthlutunar.
Umsvif við höfnina hafa
vaxið að meðaltali um 11%
árlega síðustu tuttugu árin
og tóku mikinn kipp á áran-
um 1994-96. Frá þeim tíma
hefur höfnin verið fullnýtt og
hefur í sumum tilfellum þurft
að vísa umferð frá höfninni
að sögn Más Sveinbjömsson-
ar, framkvæmdastjóra Hafn-
arfjarðarhafnar.
A síðustu tíu áram hafa
flutningar aukist úr 500.000
tonnum í tæpa milljón tonna
á ári, en sú aukning kemur
einnig til vegna stækkunar á
höfninni við Straumsvík.
Meðalþyngd skipa sem lagt
hafa að bryggju í Hafnarfirði
hefur aukist úr 900 tonnum í
1.880 tonn á síðstu tveimur
ártugum. Stækkunin var því
orðin tímabær og þrýstingur
vegna aukinna sMpaviðgerða
hefur jafnframt ýtt á eftir
framkvæmdum.
Hafnarbakkinn
yfir 500 metrar
Aðalathafnasvæðið nú, Ós-
eyrarsvæðið, er um 12 hekt-
arar. Nýja hafnarsvæðið
verður hins vegar um 23
hektarar og því alls um 35
hektarar. Byrjað var á fram-
kvæmdum við uppfyllinguna
í fyrravor og á rúmu ári hef-
ur verið eMð tæplega 600.000
rúmmetram af efni í uppfyll-
inguna undir nýja hafnar-
svæðið og sjóvarnargarðinn
þar utan við. Eftir er þó að
fylla upp í talsvert svæði og
verður það gert á næstu 5-8
árum.
Búið er að taka í notkun
nýtt 200 metra langt viðlegu-
rými á nýja svæðinu, en hafn-
arbakMnn verður í framtíð-
inni yfír 500 metrar. Flotkví-
ai-nar verða í víMnni sem
myndast innan við sjóvamar-
garðinn. Þar verður dýpið 15
metrar en annars staðar við
hafnarbakkann verður dýpið
um 8 metrar. Beðið verður
fram á haustið með að flytja
grjót í sjóvarnargarðinn og
sagði Már að það væri ekM
síst gert til að leyfa efninu í
garðinum að síga áður en
grjótvamargarðurinn verður
hlaðinn.
Dýpið niður á botninn er
um 11 metrar en Már sagði
að ekM væri vitað hve djúpt
væri niður á fastan botn.
Undir væri djúpur dalur,
fullur af leir og vatni sem
uppfyllingin væri að pressa
„ Morgunblaðið/Rax
SEÐ yfir nýja hafnarsvæðið við Hvaleyri í átt að gamla miðbænum í Hafnarfirði.
úr, og því væri nauðsynlegt
að leyfa þessu að síga.
Efnið í nýja hafnarsvæðið
kemur úr námu í Hamranesi
sem er skammt ofan við bæ-
inn upp með Krýsuvíkurvegi.
Sú náma er nú að verða upp-
urin. Til stendur að dýpka
gömlu höfnina og mun efni
sem dælt verður úr henni
fara í að ljúka uppfyllingu á
nýja svæðinu.
Að sögn Más hafa fram-
kvæmdir gengið mjög hratt
fyrir sig, jafnvel stundum svo
hratt að sumum þótti nóg
um. Uppfyllingunni hefur
fylgt þung umferð vörabíla
niður Asbrautina framhjá
íbúabyggð, en nú hillh’ undir
að þeim flutningum ljúM á
næstu dögum.
Umsvif aukast verulega
Hafnarfjarðarhöfn er sér-
hæfð sem þjónustuhöfn fyrir
fisMskip, að sögn Más. Við
höfnina er allt sem þarf til að
veita fisMsMpum góða þjón-
ustu, bæði löndunaraðstaða
og viðgerðaraðstaða. Fyrir-
tæM sem sérhæfa sig í þjón-
ustu við sjávarútveginn eru
nálæg, s.s. fyrirtæM í skipa-
viðgerðum og fyrirtæki eins
og Hampiðjan og Marel sem
útvega skipum veiðarfæri og
annan útbúnað. Þjónusta við
físMsMp er og verður þunga-
miðjan í starfsemi hafnarinn-
ar að sögn Más.
Stefnan er sú að auka um-
svifin veralega við höfnina,
enda er ekM annað sýnilegt
en að þörfín sé fyrir hendi.
Búið er að sækja um allt
svæðið við nýja hafnarbakk-
ann án þess að úthlutun hafi
verið auglýst. Már taldi að
framtíð hafnarinnar væri því
björt en hafði áhyggjur af því
að þessi stækkun yrði ekM
nægjanleg í nógu langan
tíma. Hann taldi að þörfin
yrði jafnvel svo miMl innan
skamms að huga þyrfti innan
fárra ára að því að sMpu-
leggja frekari stækkun.
Már sagði þó að meta
þyrfti meiri stækkun í sam-
hengi við höfuðborgarsvæðið
allt. Astæðulaust væri að
byggja upp sambærilega að-
stöðu á tveimur stöðum í
einu.
Aukning skipaviðgerða
Talsverð uppsveifla hefur
verið undanfarið í skipavið-
gerðum í Hafnarfirði og hef-
ur sá uppgangur þrýst nokk-
uð á stækkun hafnarinnar.
Að sögn Más hefur rekstur
minni flotkvíarinnar gengið
vel og farið hafi saman
ákvörðun um stækkun hafn-
arinnar og kaupin á stærri
flotkvínni. Viðgerðir standa
nú yfir á þeirri kví en áætlað
er að báðar kvíarnar verði
komnar á nýjan stað um
miðjan ágúst.
Aðstaða til skipaviðgerða
verður yst á nýja svæðinu og
mun allur mengandi þunga-
flutningur færast á nýja
svæðið og fiskflutningar fara
fram á Óseyrarsvæðinu.
Sagði Már að sú þróun ætti
sér víða stað að gróf hafnar-
starfsemi væri færð utar í
hafnir.
Ekki er fyrirsjáanlegt að
um frekari umsvif verði að
ræða á norðurbakka hafnar-
innar, þar sem Bæjarútgerð-
in var. Þar væri íbúðarbyggð
of nálæg og erfitt um aðflutn-
ingsleiðir.
Höfnin borgar sjálf
Kostnaður við þær fram-
kvæmdir sem nú standa yfir
verður nálægt einum millj-
arði króna. VerMð er fjár-
magnað með lánsfé og sagði
Már að ef ekki yrðu nein
stórslys gæti höfnin sjálf
greitt afborganir af láninu og
þannig staðið sjálf undir
stækkuninni. Sótt hefur verið
um styrk frá ríkinu en fram-
kvæmdirnar hafa ekki komist
inn á hafnaáætlun og óvíst er
hvort höfnin fær ríkisstyrk
upp í kostnað við stækkun-
ina.
Hafnarfjarðarhöfn er rek-
in sem sjálfstætt fyrirtæki
með eigin kennitölu, en er í
eigu Hafnarfjarðarbæjar.
Velta fyrirtæMsins er um 160
milljónir en áætlað verðmæti
þeirrar vöra sem fer um
höfnina er að sögn Más um
•30—40 milljarðar á ári.
Tilgangurinn með stækk-
uninni væri því óneitanlega
að skapa fleiri störf og aukin
verðmæti með frekari um-
svifum. Már tók sem dæmi að
margir hefðu notið góðs af
þegar minni flotkvíin var tek-
in í gagnið, s.s. veitinga- og
gististaðir, bflaleigur og aðrir
aðilar. Hann taldi að aukning
yrði í slíkri þjónustu þegar
umsvif vegna flutninga og
sMpaviðgerða ykjust í fram-
tíðinni.
Ymsir aðilar hafa komið að
framkvæmdum við höfnina.
Aðalhönnun hefur verið í
höndum Bjöms Jóhanns
Bjömssonar hjá Stuðli.
Nokkrir verktakar hafa kom-
ið að verMnu en stærstan
hluta verksins hefur Istak
séð um, varnargarðinn, flot-
kvíafestingarnar og hafnar-
bakkann. Björgun sér um
sjódælingar og Suðurverk og
Sæþór hafa einnig komið að
verkinu.
• SJÁ EINNIG BLS. 22
Morgunblaðið/Eiríkur Páll
UNNIð að dýpkun á svæðinu þar sem flotkvíamar verða f framtiðinni, en ráðgert er að
þær verði fluttar þangað í næsta mánuði.
STÓRVIRK tæki á nýja hafnarsvæðinu, en þangað hafa verið fluttir 600.000 rúmmetrar
af efni í uppfyllingu undir nýja svæðið og í sjóvarnargarðinn.