Morgunblaðið - 01.07.1999, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 1999 37
FERÐALÖG
Morgunblaðið/Silli
EXPLORER í Húsavíkurhöfn.
Skemmtiferða-
skip á Húsavík
Húsavík. Morgunblaðið.
Skemmtiferðaskipið Explorer, sem
siglir undir bandarískum fána, lagð-
ist að bryggju á Húsavík síðastlið-
inn miðvikudag, eftir að hafa farið
til Grímseyjar og farþegar séð mið-
nætursólina á siglingu á Skjálfanda
í hinu fegursta veðri.
Farþegamir, sem eru um 100,
bandarískir og enskir, notuðu dag-
inn til að skoða Mývatnssveit, en
nokkrir af áhöfninni, sem eru um 70
manns, skruppu í Asbyrgi.
Skipið er á vegum ferðaskrifstof-
unnar Nonni Travel á Akureyri, en
forstjóri hennar er Helena Dejak.
Hún skipulagði þessa ferð þannig
að komið er til ísafjarðar, Akureyr-
ar, Grímseyjar, Húsavíkur og þaðan
siglt til Seyðisfjarðar.
Húsvíkingum fínnst að meira
mætti gera af því að láta skip, sem
koma til Akureyrar, hafa viðkomu á
Húsavík og skipuleggja landgöng-
una þannig, að farið væri í land á
Akureyri, ekið að Goðafossi og í
Mývatnssveit, það niður Kísilveg og
komið við á Hveravöllum í Reykja-
hverfi og Ystihver látinn gjósa, en
hann gýs allt að 30 m ef sett er í
hann sápa. Komið til Húsavíkur og
farið þar aftur um borð eftir að hafa
ekið um 155 km leið.
Morgunblaðið/Guðrún Vala
HÓTEL Eldborg verður opið í allt sumar.
Hótel Eldborg
formlega opnað
Ejga- og Miklaholtshrcppi. Morgunblaðið.
HÓTEL Eldborg hefur nú tekið til
starfa á ný í Laugargerðisskóla.
Þórdís Eiríksdóttir og Margrét Jó-
hannsdóttir leigja skólahúsnæðið
til hótelhalds. Ópnað var fyrstu
helgina í júní en formleg opnunar-
hátíð fór fram föstudagskvöldið 11.
júní.
Auk vina og vandamanna, var
ýmsum aðilum sem að ferðamálum
standa, boðið að koma og kynna
sér sveitina og hótelið. Öllum íbú-
um í Kolbeinsstaðahreppi og Eyja-
og Miklaholtshreppi var líka boðið.
Borinn var fram grillmatur og létt-
ir drykkir við undirleik píanóleik
og harmonikkutóna.
A sama tíma var opnuð sýning
listakvenna frá galleríi Listakoti.
Um 90 manns nýttu sér gestristni
Þórdísar og Margrétar.
Hótelið verður opið í allt sumar
fyrir gesti og gangandi. Sundlaug er
á staðnum og stutt að fara til að
skoða frábærar náttúruperlur eins
og Gerðuberg og Rauðamelsölkeldu,
Gullborgarhelli og Löngufjörur, auk
þess sem gönguleiðir eru á Eld-
borgu og Rauðukúlu þar sem hægt
er að fá útsýni yfír sveitina.
Bjartar nætur
í Húnaþingi vestra
FERÐAMALAFELAG Vestur-
Húnavatnssýslu, í samvinnu við
þjónustufyrirtæki á svæðinu,
hefur gefið út bæklinginn Bjart-
ar nætur. Bæklingurinn inni-
heldur handhægar upplýsingar
fyrir hinn almenna ferðamann,
m.a. eru taldir upp áhugaverðir
staðir. Einnig er bent á hvar
ýmsa þjónustu er að finna, t.d.
hvar er hægt að komast í sil-
ungsveiði eða hvar sveitaböllin
eru haldin þetta sumarið. Einnig
er listi yfir uppákomur héraðs-
hátíðarinnar Bjartra nátta sem
nú er haldin í sjötta sinn. Nánari
upplýsingar fást í Upplýsinga-
miðstöð ferðamála í Staðarskála.
Frábær samleikur
TONLIST
Salurinn
SAMLEIKSTÓNLEIKAR
Sigurbjörn Bernharðsson og Anna
Guðný Guðmundsdóttir fluttu verk
eftir Janácek, Dvorák, Schönberg og
Beethoven. Þriðjudagurinn 29. júní,
1999.
SVO virðist sem ýmsar breytingar
séu að verða á tónleikahaldi, er eink-
um birtist í því að einleikstónleikum
hefur smátt og smátt fækkað en
kammertónlist orðið æ vinsælli, öf-
ugt við það sem var fyrir nokkrum
áratugum, þegar kammertónlist var
aðeins fárra manna viðfang. Líklega
má að nokkru rekja þessa þróun til
þess að hljóðfæraleikarar leiti meira
til samspils en að halda einleikstón-
leika. Sigurbjörn Bernharðsson og
Anna Guðný Guðmundsdóttir stóðu
fyrir samleikstónleikum í Salnum s.l.
þriðjudagskvöld og hófu tónleikana á
sónötu eftir Leos Janáeek, sem sam-
in var á árunum 1914 til 1921, og
annar þátturinn, ballaðan, var sam-
inn sem sér verk 1915. Eftir 1916
mun mestur tíminn hafa farið í gerð
óperu og hljómsveitarverka og því er
endanleg gerð sónötunnar skrásett
1921-22. Tónstíll Janácek er órjúfan-
lega tengdur móðurmáli hans, en
auk tengsla hans við tékknesk þjóð-
lög var hljómskipan mjög oft byggð
á 4undum, 5undum og 2undum og
tónferlið ber einnig oft merki
heiltónaskipunar, t.d. með stækkaðri
4und. Það sem gerir tónlist Janácek
nokkuð sérstæða er eins konar sam-
talsstíll, sem birtist með ýmsum
hætti og þá sem ósamstæðar tónhug-
myndir, jafnvel truflandi andstæður,
sem rjúfa samhengi tónmálsins, eins
og heyra mátti í síðasta kaflanum
sérstaklega greinilega, er stuttar
bergmáls“athugasemdir“ í einleiks-
fiðlunni rufu samhengið í ljúfsáru
tónmáli píanósins. Þetta skemmti-
lega verk var mjög vel flutt og sam-
talsleikurinn sérlega skýrt mótaður
af Sigurbirni og Önnu Guðnýju.
Annað verk tónleikanna voru
elskuleg smálög eftir Dvorák, Fjög-
ur rómantísk lög, óp.75, sem samin
voru 1887 og var flutningur þeirra
leikandi fallega mótaður. Á eftir
þessum þýðu lögum kom verk af
annarri gerð, nefnilega Fantasían
fyrir fiðlu og píanó, samin 1949, eftir
Schönberg og er það síðasta kamm-
erverk hans. Þeir sagnfræðingar
sem lesið hafa í handrit Schönbergs,
telja að hann hafí fyrst samið fiðlu-
röddina og jafnvel að verkið hafi
upphaflega verið hugsað sem ein-
leiksverk, enda er fiðluröddin alls-
ráðandi og píanóhlutverkið oftar
hreinn undirleikur, sem er í raun
andstætt viðhorfum Schönbergs. Á
þessum tíma er hann farinn að fjar-
lægjast 12 tóna-aðferðina og jafnvel
árið 1934 semur hann svítu í G-dúr
og í Óðnum til Napóleons (1942) ger-
ir hann margvísleg frávik frá aðferð-
inni og viðurkennir þrá sína eftir aft-
urhvarfi í ritgerðinni Stíll og hug-
myndir (1951). I Fantasíunni má
merkja ýmislegt sem minnir á
„atónal“-tímabilið hjá Schönberg
fyrir 1923. Þetta verk var afburðavel
leikið og dregið sérlega skýrum
dráttum, svo að glæsileiki þess bók-
staflega blómstraði í höndum Sigur-
björns og Önnu Guðnýjar.
Lokaverk tónleikanna var síðasta
fiðlusónatan eftir Beethoven op.96
og er þessi fallega og leikandi létta
sónata sérkennileg andstæða við
fiðlusónötuna á undan, Kreutzer-
sónötuna, enda nærri 50 ópusar þar
á milli. Yfir G-dúr-sónötunni ríkir
sérkennileg sátt en eitt af því sem
einkennir mjög síðustu verk meist-
arans er að „trillan" er ekki lengur
ástríðufull en orðin friðsæl og upp-
hafin, og einnig að lagferlið er á
stundum einfalt og syngjandi og
minnir jafnvel á æskuverk höfund-
ar, þótt torráðið tónmál sé þar í
mót ráðandi í stærri verkunum.
Flutningur Sigurbjörns og Önnu
Guðnýjar var á friðsælu nótunum
og ekki gerð tilraun til að „æsa“
verkið upp og var t.d. hægi þáttur-
inn mjög fallega fluttur og ekki síð-
ur skersóið, „sem snertir ekki jörð-
ina“, er var látlaust en fallegt og
skýrt í frábærum flutningi Sigur-
björns og Önnu Guðnýjar.
Lokakaflinn er ótrúlega einfalt
verk og til að rjúfa þennan einfald-
leika bætti Beethoven við hægum
þætti, eins konar tónlesi og síðar
stuttri fúgu, framsögu sem setur
sérkennilegan svip á þennan annars
sérlega saklausa „söngþátt". í heild
voru þetta skemmtilegir tónleikar
bornir uppi af sterkri tilfinningu
fyrir tónmáli og formi verkanna og
unnir í einstaklega gott samspil,
sem var tilþrifamest í áhrifamiklu
verki Schönbergs.
Jón Ásgeirsson
Kirkjusýning’
á Hólahátíð
HEYR himnasmiður er yfirskrift
sýningar á skagfirskum kirkjum og
skrúð sem opnuð verður á Hólum í
Hjaltadal á laugardaginn. Sýning-
in er sett upp í tilefni 1000 ára af-
mælis kristni á íslandi og er sam-
starfsverkefni Kristnihátíðar-
nefndar Skagafjarðarprófasts-
dæmis, Hólastaðar, Byggðasafns
Skagfirðinga og Þjóðminjasafns ís-
lands.
Sýndir verða dýrgripir úr skag-
firskum kirkjum og kirkjuleg hlut-
verk þeirra kynnt. Tilgangur sýn-
ingarinnar er að vekja áhuga á
sögu og hlutverki kirkjunnar í þús-
und ár. Kortlagðir eru yfir 100
kirkjustaðir í Skagafirði, getið um
skólahald á Hólum og prentverk,
og m.a. fjallað um hin vígðu emb-
ætti kirkjunnar, liti hennar, kirkju-
skrúða, messusöng og sálmaskáld
og um guðshúsin sjálf.
Dagskráin hefst á helgistund kl.
14 í Hóladómkirkju í umsjón sr.
Bolla Gústavssonar. Hallgrímshóp-
urinn flytur sálma eftir Hallgrím
Pétursson og Gerður Bolladóttir
flytur sálm Kolbeins Tumasonar
frá 1208. Undirleikari er Sveinn
Arnar Sæmundsson.
Séra Dalla Þórðardóttir prófast-
ur opnar sýninguna í skólahúsinu
og hr. Karl Sigurbjörnsson biskup,
og Þór Magnússon þjóðminjavörð-
ur flytja ávörp. Karlakórinn Heim-
ir syngur nokkur lög.
Sýningin verður opin alla daga
til 15. ágúst, en sá dagur markar
upphaf Hólahátíðar, sem er hin
formlega opnun kristnihátíðarárs-
ins í Hólastift.
Vágakórinn
syngur í
Reykholti
VÁGAKÓRINN frá Vágum í
Færeyjum mun halda söng-
skemmtun í Reykholti í Borg-
arfirði í dag, fimmtudag kl. 17.
Á söngskránni er bæði kirkju-
leg og veraldleg tónlist. Kórinn
syngur einnig nokkur íslensk
lög. Stjómandi kórsins er Jon-
vor Joensen.
J\LLTAf= €=!TTH\/V\LD .
LUXEMB0RG
Frá upphafí: Besta
leiðin til Evrópu
Luxair býður upp á beint flug til Lúxemborgar
með þægilegri og hraðskreiðri þotu.
Frá Lúxemborg liggja vegir til allra átta.
Keflavík
0.45
Lúxemborg
6.25
Lúxemborg
fþ 22.20
Keflavík
0.05+1
LUXAIR
THE WINGS OF CHANGE
www.luxair.lu
Nánari upplýsingar og bókanir
hjá öllum helstu ferðaskrifstofum.