Morgunblaðið - 01.07.1999, Qupperneq 59
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
FIMMtUDAGUR i. JÚ'LTÍ99'9 Sð
Kennarar náðu mun meiru
Höfundur er í kjarahópi uppsagnar-
kennara í Reykjavík.
endur beita nú þegar uppsögnum.
Oft er það kallað endurskipulagn-
ing fyrirtækjanna, samruni, og
launamönnum gefinn kostur á end-
urráðningu á nýjum kjörum. Þetta
er reyndar að gerast þessa dag-
ana.
Ég held ekki að atvinnurekend-
ur þurfí að fara í kennslustund hjá
kennurum í Reykjavík til að læra
að beita þeim baráttutækjum sem
þeir búa yfir.
Ari Skúlason margtyggur það í
grein sinni að kennarar hafi fengið
meira en aðrir í síðustu samning-
um.
Ég skal svara þessu af fullum
heiðarleika. Ég hef ekki minnstu
hugmynd um það hvort kennarar
fengu meira en aðrir eða minna.
Og mér er alveg sama! Aðrir mega
hafa fengið meira mín vegna. Ég
samgleðst þeim. En ég veit að
kennarar fengu ekki þær launa-
bætur sem þeir sætta sig við. Þess
vegna hafa kennarar um allt land
sagt upp og þess vegna eru kenn-
arar í Reykjavík að segja upp.
Lokaorð Ara
Lokaorð Ara eru þessi: „Hér er
of mikið í húfí til þess að hreyfing-
in öll horfi aðgerðarlaus á aðgerðir
af þessu tagi.“ Ég skil þessi orð
hans á þann veg að hann sé að
hvetja til þess að launamenn innan
ASÍ sameinist gegn kennurum í
Reykjavík. Ég hélt að forystu-
menn ASÍ hefðu þroskast það mik-
ið að þeir væru búnir að vinna sig
út úr launalögguhlutverkinu. En
það var greinilega óskhyggja. En
ég gef mér að þetta sé afstaða
framkvæmdastjóra ASÍ en eigi sér
ekki hljómgrunn meðal launa-
manna.
Lokaorð mín
Ég tek hatt minn ofan fyrir sigr-
um sem félagar innan ASÍ ná í
kjarabaráttu sinni og virði rétt
þeirra til að velja sér þær baráttu-
aðferðir sem þeim finnst best
henta hverju sinni. Ég geri líka þá
kröfu að aðrir launamenn sýni
kennurum sama stuðning.
Ég beini því til kennara í
Reykjavík að láta ekki fjandskap
framkvæmdastjóra ASÍ draga úr
sér kjarkinn.
SKÓGARGAN GA í Garðabæ.
Fimmta skógar-
gangan í kvöld
frá fimmtudegi til sunnudags
mr
20 stk. í bakka
FIMMTA skógarganga sumarsins
í röð gangna á vegum skógræktar-
félaganna, í fræðslusamstarfi
þeirra við Búnaðarbanka Islands
verður í kvöld, fimmtudaginn 1.
júlí, kl. 20.30. Göngurnar eru
skipulagðar í samvinnu við Ferða-
félag Islands.
Skógargöngurnar eru helgaðar
athygli verðum ræktunarsvæðum
skógræktarfélaganna á Suðvestur-
landi. Þetta eru léttar göngur,
miðaðar við hæfi allra aldurshópa.
I þessari fimmtu skógargöngu
sumarsins, sem er í umsjón Skóg-
ræktarfélags Garðabæjar, verður
lagt af stað frá Sandahlíð (aðkoma
er merkt við Elliðavatnsveg,
næsta afleggjara sunnan hesthúsa-
hverfis Andvara á Kjóavöllum).
Gunnar Þór Gunnarsson
Löggildur: Blómatæknir
Hantt kann að rakta stjúpur
Þaðan verður gengið suður og
vestur fyrir Vífilsstaðavatn og
skoðaður nýr áningarstaður. Því
næst um Landgræðsluskógasvæð-
ið í Smalaholti, þar sem verkefnið
Landgræðsluskógar hófst 10. maí
1990, og meðal annars skoðaðir
skógarreitir félagasamtaka í
Garðabæ. Göngunni lýkur í Sanda-
hlíð þar sem skoðuð verður ný án-
ingaraðstaða sem skógræktarfé-
lagið hefur verið að byggja upp.
Um leiðsögn sér Erla Bil Bjarnar-
dóttir, garðyrkjustjóri Garðabæj-
ar.
Boðið er upp á rútuferð, sem
kostar 500 kr. og hefst kl. 20. Far-
ið verður frá húsi Ferðafélags ís-
lands, Mörkinni 6.
w 00
PRENTARAR
^ s^.
Ármúla 29 - Rvk. Sími 588 4699
Vefsíða: www.oba.is
Veður og færð á Netinu
ó§>mbl.is
SUMARDRAUMUR
Komið og uppgötviö sumarlegar
vörur og fallegar töskur*
‘Fylgja koupum ó LANCOME
vörum fró 4.000 kr.
&ara j Hjá Maríu f Átnaro ) Ap. Ólafsvíkur
Bankastræti 8, Rvík. Sími 551 3140 Hafnarstr. 99-101, Akureyri Sími 462 1730 Ólafsbraut 24, Ólafsv. Sími 436 1261