Morgunblaðið - 08.07.1999, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 08.07.1999, Qupperneq 16
16 FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ NÝR götukantur sem steypt- ur hefur verið framan við íbúðarhúsin við Skjólvang í Hafnarfirði hefur mælst mis- jafnlega fyrir. Kanturinn þrengir götuna og er ætlað að auka umferðaröryggi á svæðinu. Dregist hefur að ljúka framkvæmdum og hafa ökumenn lent í því að sprengja dekk og skemma felgur á kantinum þar sem hann er ómálaður og sést illa. Ibúar við götuna hafa sent skipulagsyfirvöldum í Hafn- arfirði bréf þar sem farið er fram á að Skjólvangi verði lokað við Herjólfsgötu. Að sögn Emu Bám Hreinsdóttur, hjá tæknideild Hafnarfjarðar, em gatnamót Sævangs og Skjólvangs mjög blind sem og gatnamót Hjallabrautar og Skjólvangs. Hún sagði að gerð hefði verið könnun á gönguleiðum skóla- bama í þeim tveimur skólum sem væra í hverfinu og áttu börnin m.a. að merkja inn þá staði sem þau væra óöragg á. Þessi gatnamót vora meðal þeirra staða sem þau töldu sig vera óöragg á. Ema sagði að þetta félli að þeim slysatölum sem lægju fyrir úr hverfinu. A þessum gatnamótum hefðu orðið 17 slys á fjórum áram, sem væri alltof mikið miðað við götur af þessu tagi. Götukanturinn ófullgerður Tilgangurinn með því að steypa kantinn er, að sögn Emu, sá að auka útsýnið fyr- ir þá sem koma upp Sævang- inn og böm sem koma upp gangstéttina við Hjallabraut hafi núna var þegar þau Morgunblaðið/Eiríkur P. GÖTUKANTURINN við Skjólvang sést illa og hafa verið sett upp viðvörunarskilti eftir að ökumenn lentu í því að keyra á kantinn og sprengja dekk. koma fyrir hornið. Sam- kvæmt upplýsingum frá lög- reglunni í Hafnarfirði hafa margir kvartað yfir nýja götukantinum. Menn hafa lent í því að keyra á kantinn og sprengja dekk, enda er kanturinn ómálaður og sést illa á götunni. Til stendur að mála kantinn og fylla upp með möl eða malbiki og búa til gangstétt. „Þetta er eins og ýmislegt annað sem verið er að hlaupa í og ekki er klárað,“ sagði Guðmundur Rúnar Guð- mundsson, aðstoðarvarð- stjóri i fjarskiptadeild. Hann taldi þá stefnu bæjarins að þrengja götur ekki vænlega til árangurs og taldi að flestir sem leið ættu um bæinn væra á móti því. Þetta hægði vissulega á umferðinni en gerði jafnframt stærri bílum erfiðara íyrir að komast um. Það væri jafnvel spuming hvort ekki væri meiri slysa- hætta þegar stóra bílamir væra að troðast á þeim svæð- um sem búið væri að þrengja. Ekki sagðist Guðmundur kannast við að meiri slysa- hætta væri á þessum stað en annars staðar. Flest slysin sem væra á skrá lögreglunn- ar hefðu átt sér stað á stæð- inu við Hrafnistu. Hann taldi að slysin við götuna tengdust því ekki hvemig útsýnið væri við gatnamótin. Vilja loka Skjólvangi Ema Bára sagði að lagn- ing götukantsins hefði verið vel kynnt og sagðist hún hafa rætt við nokkra af íbúunum, sem hefðu verið hlynntir þessum framkvæmdum. Þannig taldi hún að óhætt hefði verið að hefja vinnuna við kantinn en síðan hefði komið í ljós óánægja meðal íbúanna eftir að kanturinn var steyptur. Lítið er um bflastæði við götumar á þessu svæði, enda hefur orðið mikil breyting á bflaeign íbúanna, sem ekki hafa lengur næg stæði á sinni lóð. Ema sagði að nú væri í skoðun að útbúa almennings- stæði við Skjólvang. Mest notaða aðgönguleiðin að Hrafnistu er um Skjól- vang, en samkvæmt aðal- skipulagi er Herjólfsgata að- altengingin að dvalarheimil- inu. Ema sagði að íbúar hefðu nú sent skipulagsyfir- völdum bréf þar sem farið væri fram á að Skjólvangi væri lokað við Herjólfsgötu. Hún sagði að það væri í skoð- un líkt og allt deiliskipulag á svæðinu. Mikið væri að ger- ast á svæðinu og unnið væri í samvinnu við Garðabæ að nýju deiliskipulagi umhverfis Hrafnistu. Marserað á Marbakka Kópavogur VEÐRIÐ lék við þátttakend- ur á árlegri sumarhátíð for- eldrafélags leikskólans Mar- bakka í Kópavogi. Lúðra- sveit fór fyrir skrúðgöngu barna og foreldra sem mar- seruðu um nánasta um- hverfi leikskólans. Þegar skrúðgöngunni lauk voru grillaðar pylsur í leikskóla- garðinum og boðið upp á safa og js. Leikarar léku at- riði úr Ávaxtakörfunni við góðar undirtektir og gestir hátiðarinnar gæddu sér á grilluðum pylsum, safa og ís. Eftir að skemmtiatriðum lauk vörðu foreldramir tima með börnum sínum á leikvellinum. Misjöfn viðbrögð við nýjum götukanti við Skjólvang A að auka öryggi Hafnarfjörður Fjölbreyttur hópur fólks sækir Árbæjarlaug á kvöldin, en þá er aðsókn að lauginni mest Ævintýragarður í Elliðaárdal Árbær MIKILL fjöldi fólks á öllum aldri sækir Sundlaug Ár- bæjar dag hvem. Hátt í 400.000 manns heimsækja laugina á ári. Stór hluti sundlaugargesta er fjöl- skyldufólk, enda er Árbæj- arlaug líkust ævintýragarði fyrir böm, að sögn Stefáns Kjartanssonar, forstöðu- manns laugarinnar. Hann segir aðsókn mesta á kvöld- in, en þá sé ungt og ástfang- ið fólk áberandi í róman- tísku umhverfi laugarinnar. Ef synt er eftir brautum hennar blasir Elliðaárdalur- inn við og kvöldsólin nýtur sínvel. Árbæjarlaug er opin lengst allra sundlauga í borginni, til klukkan hálf- ellefu virka daga og tíu um helgar. Stefán segir fólk vita af því og koma hvaðanæva til að njóta kvöldsins í lauginni. Hann segist þurfa að bæta við starfsfólki eftir klukkan fimm til að sinna þeim mikla fjölda fólks sem kýs að bregða sér í laugina að loknum vinnudegi. Aðsókn- in hefur líka verið mikil á kvöldin um helgar og Stef- án nefnir sem dæmi að 300 manns hafi komið í Sund- laug Árbæjar eftir klukkan átta að kvöldi sunnudags fyrir skömmu. Fólk skolar af sér ferðarykið í sundlauginni og hestamenn láta líða úr sér að loknum útreiðartúr. íbúar í Árbæjarhverfi era duglegir að sækja laugina en Stefán verður var við að sundlaugargestir komi víða að. Hann segir suma jafn- vel keyra alla leið frá Sel- tjarnamesi með böm sem vilja helst fara í Árbæjar- laugina. Þá segir hann al- gengt að erlendir ferða- menn bleyti í sér í lauginni. Talsverð skipulögð starf- semi er í Sundlaug Árbæj- ar og fyrirhugað að auka við hana. Eldra fólk úr hverfinu stundar til að mynda vatnsleikfimi í laug- inni alla morgna og innilaugin er mikið notuð af foreldram með unga- börn. Þar era haldin sér- stök ungbarnasundnám- skeið. Fastagestir frá upphafi Hjónin Magnús Magnús- son og Fjóla Þorleifsdóttir hafa verið fastagestir í Sundlaug Árbæjar frá því hún var opnuð fyrir fimm árum. Hjónin búa í næsta nágrenni við laugina ásamt börnum sínum Margréti og Þorleifí Guðna. Þegar blaðamaður Morgunblaðs- ins leit í Árbæjarlaug eitt kvöld í vikunni var fjöl- skyldan í sundi og Lovísa Ósk, vinkona Margrétar, með henni. Meðlimir fjöl- skyldunnar reyna að fara í laugina öfl kvöld og Magn- ús kemur tvisvar á dag. „Eg syndi á morgnana og fer í gufu á kvöldin,“ sagði hann. Margrét æfir sund en finnst líka gaman að leika sér með krökkunum í laug- FJÓLA Þorleifsdóttir, Lovísa Ósk Ragnars- dóttir, Þorleifur Guðni Magnússon, Margrét Magnúsdóttir og Magn- ús Magnússon reyna að komast í laugina á hverju kvöldi. inni. Bömin segjast einnig bregða sér í gufu af og til. Hjónin lýstu ánægju með starfsfólkið í Sundlaug Ár- bæjar, sem þau segja af- bragðsgott. Þá finnst þeim gufubaðið gott og laugin fín. „Ég er ánægð með tengslin við náttúruna og umhverfið,“ sagði Fjóla að lokum. Morgunblaðið/Erla Skúladóttir FJÖLMENNT var í Árbæjarlaug á þriðjudagskvöld Iíkt og flest önnur kvöld. Laugin er mest sótt að kvöldlagi.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.