Morgunblaðið - 08.07.1999, Blaðsíða 18
18 FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Ferðafélag
Akureyrar
Þrjár
ferðir um
helgina
ÞRJÁR ferðir verða farnar á
vegum Ferðafélags Akureyrar
umhelgina.
Á laugardag, 10. júlí, verður
gönguferð, ekið verður að
Másvatni á Mývatnsheiði og
gengið þaðan vestur yfír
Fljótsheiði í Bárðardal og
eyðibýli á heiðinni skoðuð.
Komið verður niður hjá Kálfs-
borgará í Bárðardal.
Hjólað í Hörgárdal
Sama dag verður boðið upp
á reiðhjólaferð í Hörgárdal og
verður staldrað við og grillað á
leiðinni, en ferðinni lýkur í
sundlauginni á Þelamörk.
Þessa ferð átti að fara fyrr í
sumar en þá varð að fresta
henni vegna veðurs.
Þriðja ferðin verður göngu-
ferð á Uppsalahnjúk í Eyja-
firði á sunnudag, 11. júlí.
Brottför í allar ferðimar er
kl. 9 frá skrifstofu félagsins við
Strandgötu. Væntanlegir þátt-
takendur þurfa að skrá sig í
ferðirnar í síðasta lagi á föstu-
dag, en skráning fer fram á
skrifstofunni.
Dýrbíts leitað í Svarfaðardal
Ær og lamb hafa
fundist illa bitin
ÁBÚENDUR á Hofsá í Svarfaðar-
dal hafa kært til lögreglu dýrbit, en
þeir fundu nýlega á illa bitna sem
og lamb. Hjá varðstjóra lögreglunn-
ar á Dalvík fengust þær upplýsing-
ar að málið væri á rannsóknarstigi,
teknai’ hafa verið skýrslur um málið
og verður það væntanlega tekið til
afgreiðslu hjá sýslumannsembætt-
inu fljótlega.
Um miðja síðustu viku fannst
lamb sem hafði verið bitið. Því var
gefíð fúkalyf og spjarar það sig
ágætlega. Skömmu síðar fannst
fullorðin ær sem hafði verið bitin í
lærið aftanvert og var sárið stórt og
í því mikil bólga. Svo mjög var af
ánni dregið að kalla þurfti til dýra-
lækni til að aflífa hana.
Bönd beinast að hundi
Ekki er talið líklegt að bitin séu
eftir tófu, þau eru það stór, auk
þess sem tófum er tamara að bíta í
skepnur að framanverðu. Þá hefur
verið gengið til grenja í öllu fjallinu
og búið er að vinna nokkur dýr.
Böndin beinast því fremur að hundi
og að sögn lögreglu á Dalvík er
hans nú leitað.
Heiðrún listamað
ur júlímánaðar
LISTAMAÐUR júlímánaðar í List-
fléttunni á Akureyri er Heiðrún Þor-
geirsdóttir. Hún sýnir þar verk sín
unnin úr gleri, s.s. skálar, bakka og
kertastjaka.
Heiðrún fæddist á Akranesi árið
1940. Hún nam við Myndlistaskóla
Reykjavíkur árin 1982 til 1985 og
hefur sótt námskeið í bræðslutækni
hjá Jónasi Braga Jónssyni og verið á
tveimur Tiffanys-námskeiðum í
bræðslutækni og meðferð Buffseys-
glers hjá Krissy Ellis.
Sú list að móta gler með bræðslu
nýtur ört vaxandi hylli víða um heim,
en aðferðin er byggð á tækni sem
kunn er frá því um 2000 f. Krist. Eg-
yptar og Rómverjar stuðluðu að
mestri framþróun í listgreininni en
glermunir eftir þá prýða listasöfn
víðs vegar um heim. Listgreinin tók
að láta að sér kveða á sjöunda ára-
tugnum að frumkvæði bandarískra
listamanna og er nú vinsæl víða um
heim.
Listfléttan er opin frá kl. 11 til 18
á virkum dögum og frá kl. 11 til 14 á
laugardögum.
Morgunblaðið/Ásdís
Bryggju-
kanturinn
málaður
ÞEIR þurfa ekki að kvarta,
málararnir á Akureyri, en eink-
ar vel hefur viðrað síðustu daga
til útivinnu og ekki hefur rign-
ingin verið að angra þá. Þessi
hafði þann starfa að mála
bryggjukantinn hjá Slippstöð-
inni í blíðunni í gær.
Morgunblaðið/Ásdís
Hvar er
brauðið?
ENDURNAR við Andapollinn á
Akureyri eru vanar því að veg-
farendur gauki að þeim brauð-
meti og öðru góðgæti. Á með-
fylgjandi mynd virðast þær bíða
eftir að drengurinn rífí upp
brauðpokann en ekki er vitað
hvort þeim varð að ósk sinni í
þetta skiptið.
Sprettan
heldur slök
HEYSKAPUR er smátt og
smátt að hefjast á Norðurlandi,
en tún komu misvel unþan erf-
iðum og löngum vetri. Á Ártúni
í Grýtubakkahreppi var Sigur-
bjöm Sveinsson að snúa hey-
inu í þurrknum í gær. Að sögn
Sigurbjöms þá hófst fyrri
sláttur á Ártúni síðastliðinn
laugardag. Mikið kal er í tún-
um og spretta í slöku meðallagi
enn sem komið er að því er
kom fram hjá Sigurbirni.
SIMON Helgason virðir fyrír sér kalbletti sem eru víða á túnum hans.
Morgunblaðið/Ásdís
IIITIIIE- KlilSLIIII
Mikið kal í Svarfaðardal og eru tún í miðsveitinni mjög illa farin
Erfitt verður að fá nóg hey
BÆNDUR á Norðurlandi hafa
margir hverjir orðið fyrir barðinu á
kalskemmdum og rýra þær heyfeng
og sprettu það mikið að til vand-
ræða horfir. I Svarfaðardal em tún
í miðsveitinni mjög illa farin á
mörgum bæjum.
Kal í öllum túnum
Einna verst virðist ástandið vera
á Þverá og segir Símon Helgason
bóndi þar ekki muna eftir öðm eins
kali í sinni búskapartíð. Spretta sé
heldur ekki mikil inn á milli kal-
blettanna og því verði erfitt að fá
þann heyfeng sem tO þarf, en hann
treystir á einhvern uppslátt.
Að sögn Símonar er ástandið
slæmt víðar í dalnum og sumir
hverjir hafa bmgðið á það ráð að
plægja upp verstu stykkin og sá í
þau aftur. „Eg fór nú ekki út í það
en maður hefði kannski átt að gera
það,“ sagði Símon. Hann segir að
áður hafi hluta túnanna kalið illa en
núna séu kalblettir út um öll tún, og
það geri ástandið verra en það hef-
ur nokkum tímann verið. „Það hef-
ur áður kalið Ola hérna neðan tO en
önnur tún hafa þá sloppið, nú er
eitthvað kal í öllum túnum,“ sagði
Símon enn fremur.
Lítil spretta
„Mér virðist líka að sums staðar
spretti lítið á mOli verstu kal-
blettanna og það er komið afskap-
lega lítið gras enn sem komið er,“
sagði Símon. Hann segist búast við
að hefja slátt um næstu helgi en það
verði bara nokkur stykki tO að
byrja með. „Eg byrja ekki af nein-
um krafti heldur slæ bestu stykkin
og sé svo til með sprettu á öðram
túnum. Eg reyni þá að bera á þau
stykki aftur til að geta slegið þau
upp síðar í sumar,“ sagði Símon að
lokum.