Morgunblaðið - 08.07.1999, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ 1999 55 €
BRÉF TIL BLAÐSINS
Skammta-
fræðin og lífíð
Frá Atla. Hraunfjörð:
í VETUR voru haldin fræðslukvöld
í húsnæði Félags áhugamanna um
stjörnulíffræði.
Fjallað var um kenningar dr.
Helga Pjeturss og fræði er renndu
stoðum undir þá niðurstöðu er
hann setti fram á fyrrihluta aldar-
innar um samband lífs í alheimi og
framlíf á öðrum hnöttum að þessu
loknu. Á ráðstefnunni flutti kunnur
vísindamaður og lífefnafræðingur
erindaflokk um það nýjasta í niður-
stöðum rannsókna í skammtafræði
(orkudeilakenningunni).
Til að mynda um ósamfellda
hegðun einda, um eðli tvíburaljós-
deila og eðli orkumynstra og hina
síkviku frumu og sameind. Einhver
kann að spyrja hvað þetta eigi sam-
eiginlegt með kenningum dr.
Helga. Jú, þegar eind hverfur á
braut frá kjarna skilur hún eftir
orku sem önnur tekur upp þegar
hún birtist í sviðsfasanum og svo
koll af kolli endalaust á meðan
heimur endist.
Eind snýst ekki um kjama eins
og hnöttur í kringum sól, heldur
birtist og hverfur á víxl og á sér ör-
stundar tilvist og svipað gerist
einnig í hinni lifandi frumu sem
verður síkvik við þessi eindaskipti,
enda er það hennar eðli. Eindin
sem birtist er ekki sú sama og fór,
hvert hún fer eða hvaðan hin kom
veit enginn, eða hvort hún á meira
en örstundar líf.
Dr. Helgi sagði að hver
ódeilisögn (atóm) hefði áhrif á allar
aðrar, það er að segja á allan heim-
inn og eignaði eðlisfræðingnum
Faraday þessa setningu og hafði
eftir gríska spekingnum Plótin:
„Sérhver hlutur hefir í sér starf-
andi afl, sem er hans eftirmynd, svo
að þegar hluturinn er, þá geysist
aflið útfrá honum, sumt lengra og
sumt skemmra". Heimurinn er ein
órjúfanleg heild þannig að það sem
gerist í einu kerfi hefur áhrif á öll
önnur kerfi.
Þegar tvíburaljósdeili er myndað
og því skotið sínu í hvora áttina út í
geiminn og það síðan skautað í ann-
an endann, skautast hitt um leið,
óháð tíma og rúmi og ekki hvað síst
óháð fjarlægð, jafnvel þótt milljónir
ljósára séu á milli.
Dr. Helgi hefur sett fram þá til-
gátu að hugurinn sé alstaðar og
hvergi um leið og hugsun er mótuð.
Ef hugsun er beint til endimarka
heimsins er hún þar samstundis. Á
þann hátt berast manninum boð,
alla stund, frá hinum víðáttumikla
og endalausa geimi, sumt jákvætt
og annað miður.
Þegar mynduð er hugsun sem
flæðir út frá gerandanum þarf ann-
an heila (efni) til að móttaka hugs-
unina svo hún komist til skila.
Þannig verða hugsanaboð starfandi
fólks að draumi hins sofandi
manns, allt frá þessum lífhnetti til
hnatta að endimörkum veraldar.
Sennilegt er að engin endimörk séu
til á veröldinni. Draumur er undan-
tekningarlaust vökulíf annars
manns vegna eðlissambands lífsins.
Eitt af aðallögmálum náttúrunn-
ar er að ekkert gerist í heiminum
án samspils orku og efnis en hvort
um sig mun aldrei leika fríspil án
þátttöku hins. Órjúfanlegt samspil
orku og efnis er eitt af grunnlög-
málum efnisheims og lífheims. Það
gerist í því formi að taka orku og
skila af sér orku. Allt frá eðlislægu
starfi hinna smæstu agna (atómi)
og frumu til vinsamlegra og áhuga-
verðra samskipta einstaklinga í
millum sem verður þeim til mögn-
unar.
Það er kallað víxlmagnan og
byggist á því að þiggja og gefa hvor
öðrum orku líkt og gerist milli vina,
elskenda og guðlegra vera. Einnig
fjallaði íyrirlesturinn í skammta-
fræði um þann þátt sem ekki er
síðri en þar segir „að það sem einu
sinni hefur samstillst, verður það til
eilífðar, eða svo lengi sem heimur
stendur".
Samstilling (mynstur), eins og til
að mynda líkamsmyndun, ásamt
aflsvæði, geislast út í geiminn. Þar
leitast mynstrið við að skapa eftir-
mynd sína (samanber orð Plótins)
og myndar sér samsvörun á öðrum
hnetti. Þangað hefur einstaklingur-
inn stillt sig til (vegna stillilögmáls-
ins) og myndar þar líkama í fyllingu
tímans, þegar viðkomandi flytur til
þess hnattar við andlátið. Þegar lík-
aminn ónýtist og getur ekki tekið
við frekari víxlmögnun og einda-
skiptum.
Aflsvæði og líkamsmyndun eru
samstillingarmynstur sem er auð-
kenni hvers einstaklings. Allur
heimurinn er samspil orku og efnis.
Aflsvæði er það sem einstaklingar
mynda með hugsunum sínum og
framkomu og tiltrú annarra í sam-
ræmi við hegðun viðkomandi eins
og áður hefur komið fram.
Eitt af höfuðatriðum orkudeila-
kenningarinnar er fasafléttan sem
er hreyfíngarsamstilling og er und-
irstaða hreyfingarinnar og þar með
undirstaða allrar tilveru efnisins.
Hver eind verður að vera samstillt
öðrum til að geta hreyfst og verið til.
ATLI HRAUNFJÖRÐ
Marargrund 5, Garðabæ.
H
oo
>
H
Erum að
taka til!
20-60% s
Stratos
Alvöru
fjallgönguskór.
Vatnshelt leður.
Fyrir erfiðar göngur!
4.900
áður 13.000
TILBOÐSVERÐ Á
VÖNDUÐUM
ÚTIVISTARBÚNAÐI Tmiberiaiiae
❖
Skeljungsbúðin
Suðurlandsbraut 4, Reykjavík, sími 560 3878
KANffl DAGAR
AÐEINS ÞESSA VIKU
Flottu, frönsku gardínurnar 30% afsláttur
DÚKAR, DISKAMOTTUR OG SERVÍETTUR 2N0% AFSLÁTTUR
NÝ SENÐING } \ Y\ o IPt’pft
AF HANDKLÆBUM Jjlll ÖL iUiUi L
OG BAÐMOTTUM BANKASTRÆTI 10 - SÍMI 561 1717
er
Mdokkur
~+á ^ ** •* t #
5 3 3 3 3 6 6
Ultima
Travel
kerra og bílstóll
LÚXEMB0RG
Frá upphafí: Besta
leiðin til Evrópu
Luxair býður upp á beint flug til Lúxemborgar
með þægilegri og hraðsl<xeiðri þotu.
Frá Lúxemborg liggja vegir til allra átta.
Keflavík — Lúxemborg Lúxemborg — Keflavík
0.45 6.25 (k O 2220 0.05+1
LUXAIR
THE WINGS OF CHANGE
www.luxair.lu
Nánari upplýsingar og bókanir
hjá öllum heistu ferðaskrifstofum.