Morgunblaðið - 08.07.1999, Page 64
JSS4 FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
( 1 * ____1
HÁSKÓLABÍÓ
HÁSKÓLABÍÓ
KomduosWlíu
jubu Robab og I iugh Grenl
Hill
rZZ7l'f\f RlDINDA |
I uomuiunn|
rnA HöruNmjM riöciiRR* oow
javier bardem
Wild At Heart
undirtónöJr
íin só bióiugasia sem
- birst hefur á hvíta
tjoidinu í langan tíma.
Sýnd kl. 4.50 og 7. B.i. 16 ára.
Sýnd kl. 5. B.i. 16.
w.haskolabio.is
Sýnd kl. 4.50 og 7.
Hagatorgi, simi 530 1919
Forsýning kl. 9 fyrir korthafa VISA
í öllum sölum Háskólabíós!
ROBERTS
RANT
Fvsm
$90 puhkta
FEWU l BÍÓ
BIMMI
á«ii
NVn OG BETRÁ
Álfabakka 8, sími 587 8900 og 587 8905
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. b.í. 16 ára. ESiiiiDiGrrAL
.(ttroO. skemmtileg,
fspemrandi og ,ri4
, Aftni|dii jlpennuniynd
★★y kvikmyn(t|f.i:
★ ★★ DV ¥
M \ J íVI Xsir
Drew Bartymorc David
HtíN HEFUR ALDREI
Sýnd kl. 4.45, 6.50, 9 og 11.10. SQDDiGnAL
Sýnd kl. 4.40, 6.50, 9 og 11.15. b.i. 12.
www.samfHm.is
Morgunblaðið/Kristinn
HLJÓMSVEITIN Hringir og Magga Stína slakar á í forsetastofu Herrafataverslunar Kormáks og Skjaldar. Kristinn Árnason gítarleikari, Hörður
Bragason orgelleikari, Margrét Kristin Blöndal söngkona og Kormákur Geirharðsson trommuleikari.
Sýrupolkasveitin Hringir og Magga Stína með breíóskífu
Organisti, flokkstjóri
og stórkaupmaður
Sýrupolkasveitin Hringir og Magga Stína
senda frá sér sína fyrstu breiðskífu í byrj-
un júlí. Blaðamaður heimsótti þau og
komst að ýmsu og m.a. því að maður hlust-
ar á tónlist með maganum.
„MÁ BJÓÐAþér inn í forsetastofu?"
spyr hinn alúðlegi stórkaupmaður og
trommuleikari Kormákur Geirharðs-
son þegar blaðamaður gengur inn í
herrafataverslunina sem er kennd
við hann og félaga hans Skjöld. I for-
setastofunni slakar Hörður Bragason
á í hægindastól og það maklega, því
Hörður er organisti í stærstu kirkju-
sókn landsins, Gravarvogssókn.
„Magga Stína og Kristinn eru rétt
*ókomin,“ tilkynnir Hörður og segir
að Magga Stína komi beint úr vinn-
unni og að Kristinn sé vant við látinn
í augnablikinu en væntanlegur fljót-
lega.
Rétt í þessu birtist Magga Stína,
ennþá í vinnugallanum, en hún er
flokkstjóri í unglingavinnunni. „Það
er virkilega gaman í unglingavinn-
unni,“ segir Magga Stína. „Ertu
ströng við krakkana?" spyr Hörður.
„Ja, stundum er nú stutt í Adolfmn,
en svo er ég líka oft alveg rosalega
góð við þau.“
. Nú eru allir komnir nema Kristinn
svo þá er upplagt að tala aðeins um
hann. „Kristinn er besti klassíski gít-
arleikarinn á íslandi," segir Kormák-
ur, „og þótt víðar væri leitað,“ bætir
Magga Stína við og keppast þau nú
011 við að segja blaðamanni hvað
Kristinn sé hæfileikaríkur, vel
menntaður og mikill afbragðs gítar-
4fcaikari, en hann er nýkominn heim úr
tónleikaferð þar sem hann spilaði í
mörgum af virtustu tónleikahúsum
heims.
Náðu loksins saman
Sýrupolkasveitin Hringir hefur
starfað í hinum ýmsu myndum í lið-
lega fjögur ár. Þegar þau eru spurð
að því hvernig hljómsveitin hafi tek-
ið á sig núverandi mynd byrja þau
011 að tala í einu og eftir smá vanga-
veltur komast þau að því að það hafi
hreinlega verið tilviljun.
„Hijómsveitin varð til á mjög und-
arlegan hátt og hefur þróast mjög
furðulega," segir Kormákur. „Já,
þetta var eiginlega bara tilviljun,“
segir Magga Stína „en samt finnst
mér eins og við höfum öll haft ein-
hverskonar hugboð um að þetta ætti
eftir að gerast. Ég hafði oft hugsað
um það að mig langaði til að syngja
með þessari hljómsveit, ég hélt samt
aldrei að það gæti orðið raunhæfur
möguleiki.“ „En við vorum líka bún-
ir að tala um það í dálítið langan
tíma,“ segir Hörður, „að hringja í
Möggu Stínu og fá hana tii að
syngja eitthvað með okkur.“
Hafði þá aldrei verið neinn söngur
hjá ykkur áður?
„Jú, við höfðum sjálfir sungið ein-
hverjar bakraddir, svona lallað eitt-
hvað, en svo núna í nóvember síðast-
liðnum náðum við og Magga Stína
saman og ákveðið var að hún skyldi
verða söngkona hjá okkur,“ segir
Kormákur.
Hvaða tónlist er það sem þið spilið
saman?
„Þetta eru svona gömul uppá-
haldslög," svarar Hörður og leggur
áherslu á „uppáhalds". „Þetta er
annað en við höfum verið að spila
saman áður og þetta er líka allt
öðruvísi tónlist en Magga Stína hef-
ur verið að spila ein.“
Kormákur bætir því við að þau
séu samt ekki að nálgast hvort ann-
að í tónlistinni með því að mætast á
miðri leið með einhvers konar
blöndu af því sem þau hafi verið að
gera sitt í hvoru lagi, heldur sé þetta
bara allt önnur tónlist. „Þetta eru
svona gömul, góð lög,“ segir hann.
„Kannski tengjast þau einhverjum
æskuminningum, eða hafa einhvern
tímann gefið manni gæsahúð og
fengið mann til að hugsa: Þetta er
æðislégt lag, ég hefði viljað vera í
þessari hljómsveit."
Lögin sem þau spila koma úr öll-
um áttum. Þetta eru erlend lög
sungin á erlendri tungu, alíslensk
lög og einnig erlend lög með íslensk-
um texta. Lögin taka þau síðan og
setja í sinn sérstaka búning og verða
þau þannig að miklu leyti að þeirra
eigin lögum.
Hálfgerð köllun
Eftir að hafa átt mjög ánægjuleg-
an vetur saman ákváðu þau svo að
gefa út breiðskífu. „Fyrir mér er
þetta svona hálfgerð köllun því þetta
eru lög, allavega sum af þeim, sem
heyrast eiginlega aldrei,“ segir
Magga Stína.
„Það kom ekki til greina að vera
með alveg frumsamið efni í þetta
sinn því þetta er að mestu leyti bara
tónleikaprógrammið okkar frá því í
vetur. En ef við gerum þetta ein-
hvern tímann aftur þá verðum við
örugglega með einhver alveg frum-
samin lög líka,“ segir Kormákur."
Þau leggja þó áherslu á það að efnið
á nýja disknum séu þeirra lög því
þau hafi ljáð þeim sín séreinkenni og
að sum þeirra séu næstum óþekkj-
anleg frá sinni upprúnalegu mynd.
Getum ekki hætt
Nú er tónlistin ykkar mikil gleði-
tónlist og það myndast mikil gleði-
stemmning þegar þið spilið fyrir
dansi. Finnst ykkur sjálfum alltaf
jafn skemmtilegt oggestunum?
„Já, alltafl" svarar Magga Stína
hiklaust, „og örugglega bara ennþá
skemmtilegra," og taka félagar
hennar heilshugar undir það. Þau
segja að þeim finnist virkilega gam-
an að spila fyrir dansi og að stund-
um geti þau bara ekki hætt. „Einu
sinni þegar við vorum að spila í Iðnó
spiluðum við í einn og hálfan tíma
eftir að ballið var búið og var enginn
eftir nema starfsfólkið sem bauð
okkur svo í steik og rauðvín klukkan
fimm um nóttina,“ segir Kormákur
og Magga Stína bætir því við að
þeim finnist alveg æðislegt að spíla í
brúðkaupum og öðrum veislum þar
sem fólk er að skemmta sér.
Maður hlustar með maganum
„Um daginn vorum við að spila í
veislu," segir Magga Stína „og vor-
um við búin að spila klukkutíma
lengur en við ætluðum því það var
svo gaman, þegar óður nágranni
ruddist inn og öskraði: „Hlustið þið
á tónlist með maganum?" Ég hugs-
aði þá með mér, að sjálfsögðu, ég
hef allavega alltaf gert það. Þessi
maður hefur því greinilega misskilið
þetta hingað til en loksins fattað
þarna að auðvitað hlustar maður á
tónlist með maganum."