Morgunblaðið - 13.07.1999, Qupperneq 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚLÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Guðmimdiir vill
ÞVI miður er ekki hægt að ná í forstjórann núna, það getur annaðhvort verið slökkt á Konum,
eða að hann er utan þjónustusvæðis.
Leitaðu að évöxtun sem hæfir
draumum þinum. Vertu áskrifandi
að verðbréfasjóðum Kaupþings.
KAUPÞING
Kaupþing hf. • Ármúla 13A • Reykjavík
simi 5151500 • lax 5151509 • www.kaupthing.is
Þjóðgarðurinn á Þingvöllum
Eyðibýlagöngurn-
ar alltaf vinsælar
GESTUM Þjóð-
garðsins á Þing-
völlum er boðið í
skipulagðar gönguferðir
um helgar og börnum
sem eru þar á ferð stend-
ur til boða að taka þátt í
sérstakri barnastund.
Sigurborg Rögnvalds-
dóttir er landvörður í
Þjóðgarðinum á Þingvöll-
um.
„Við bjóðum upp á
skipulagða dagskrá frá
og með miðjum júnímán-
uði og fram eftir hausti.
Utan þess tíma tökum við
líka á móti fólki, en þá
þarf að hringja í okkur og
panta með fyrirvara."
Sigurborg segir að
landverðir taki á móti
krökkum af leikskólum
skólum á vorin og ýmsum öðrum
hópum líka. „Við erum svo með
skipulagðar gönguferðir allar
helgar yfir sumarið og reynum
að tengja þær sögu, jarðfræði og
náttúru svo gestir Þjóðgarðsins
nái tengslum við umhverfí sitt
þegar þeir eru á þessum stað.“
- Geturðu nefnt einhverjar
gönguferðir sem þið eruð að
bjóða uppá núna ísumar?
„Við erum með margar göngu-
leiðir, sumar eru stuttar, aðrar
langar og þær eru líka mis erfið-
ar. Við bjóðum t.d. upp á svokall-
aðar lífríkisgöngur. Farið er út í
Lambhaga og fuglalífið skoðað
og það lífríki sem er við og í vatn-
inu eins og minkurinn, gróðurinn
og fiskurinn.
Auk þes erum við með eyði-
býlagöngur. I þeim tilfellum
göngum við með gestum okkar
inn í Hrauntún eða Skógarkot, en
það eru eyðibýli í hrauninu. Þá er
fyrst og fremst verið að tala um
sögu og búsetu í Þingvallahrauni
og skoða þær mannvistarleifar
sem enn eru eftir.“ Sigurborg
segir að þessar göngur séu mjög
vinsælar, ekki síst eftir að bækur
eins og Hraunfólkið koma út.
„Það er töluvert um að gestir hafi
sérstakan áhuga á þessari leið
eftir að hafa lesið bækur Björns
Th. Björnssonar um hraunfólk-
ið.“
-Þið bjóðið líka upp á þing-
helgargöngu. Út á hvað gengur
hún?
„Þá göngum við um þinghelg-
ina, Lögberg og Almannagjá og
ræðum almennt um sögu þings
og þjóðar á Þingvöllum.
Sá siður hefur skapast að
bjóða oft upp á sögulegar göngu-
ferðir eins og þinghelgargöngu í
kjölfar guðsþjónustu. Alla sunnu-
daga yfir sumartímann er guðs-
þjónusta klukkan 14 í kirkjunni á
Þingvöllum og þær eru yfirleitt
mjög vel sóttar."
- Eru göngurnar vel sóttar?
„Já, yfirieitt eru ___________
milli 8-16 manns í
hverri göngu og þær
eru alltaf farnar á
laugardögum og
sunnudögum. Það er
afar sjaldgæft að þær
falli niður. Við höfum ekki látið
veður aftra okkur né fáa þátttak-
endur.“ Sigurborg bendir á að
göngumar séu allar þátttakend-
um að kostnaðarlausu.
-Þið eruð líka með sérstakar
barnastundir. Hvað gerið þið þá
með krökkunum?
„Við erum með tvennskonar
bamastundir. Annarsvegar er
um að ræða náttúruskoðun, leiki
og sögur. Þá er náttúran skoðuð
með það í huga að börnin nái að
Sigurborg Rögnvaldsdóttir
og úr ►Sigurborg Rögnvaldsdóttir er
fædd á Akureyri 2. febrúar árið
1959. Hún stundaði nám í mann-
fræði og félagsfræði við Háskóla
íslands og hefur siðan unnið við
kennslu og landvörslu. Hún hef-
ur m.a. sinnt landvörslu í Þjóð-
garðinum Jökulsárgljúfrum,
Þjóðgarðinum í Skaftafelli, í
Herðubreiðarfriðlandi og í
Oskju.
Sigurborg er nú starfsmaður
grunnskóla á veturna og land-
vörður í Þjóðgarðinum á Þing-
völium á sumrin.
Eiginmaður hennar er Krist-
inn Stefánsson nemi.
upplifa og skilja margvísleg ferli
sem eiga sér stað í náttúrunni.
Farið er í svokallaða lífríkisleiki
eins og t.d. Rjúpan og fálkinn eða
Ó-Hreinn, sem er hreindýraleik-
ur.
Hin dagskráin sem við höfum
verið að bjóða börnum miðar að
því að tengja náttúm og myndlist
saman. Bömin fá liti og mála út-
frá ákveðnu þema.“
Að sögn Sigurborgar hefur af
og til verið boðið upp á sögustund
íyrir böm. „í sögustundunum er
fjallað um Þingvelli og við höfum
reynt að matreiða sögu staðarins
með þeim hætti að böm nái að
skilja hana.“
-Hafa margir gestir verið á
tjaldstæðunum á Þingvöllum í
sumar?
„Nei það hefur verið lítið um
næturgesti hér á Þingvöllum,
enda frekar kalt og mikil rigning
í júní. Það greri líka seint hjá
okkur og var lítt kræsilegt til úti-
legu.“
Þegar Sigurborg er spurð
hvort bryddað verði upp á nýjum
gönguferðum í sumar segir hún
að landverðirnir séu alltaf að
gera tilraunir og bendir á að
stundum hafi verið í boði göngur
þar sem jarðfræði er í brennid-
epli. „Við höfum líka verið með
gróðurskoðunarferðir og í bígerð
er að bjóða í sumar
upp á göngu á Amar-
fellið. Við prófuðum
slíka gönguferð í
fyrra og hún tókst
mjög vel. Þetta er létt
fjallganga og frá Am-
arfellstoppnum er fallegt útsýni
yfir vatnið. Brátt hefjast líka um
klukkustundar langar gönguferð-
ir sem eru hugsaðar fyrir alla
fjölskylduna og þær verða líklega
farnar að kvöldlagi."
Sigurborg segir að landverðir
hafi áhuga á að auka við skipu-
lagða dagskrá í Þjóðgarðinum og
bjóða jafnvel upp á gönguferðir í
miðri viku. Það á hinsvegar eftir
að koma í Ijós hvort af slíku starfi
verður í náinni framtíð.
Dagskrá
um helgar
fyrir börn
og fullorðna