Morgunblaðið - 13.07.1999, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 13.07.1999, Blaðsíða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚLÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Tiikynnt um átján innbrot til lögreglu í Reykjavík um helgina Innbrotum fækkað um 33% á tveimur árum ÁTJÁN innbrot voru tilkynnt til lögreglunnar í Reykjavík um helg- ina, þ.e. í átta bfla, eina verslun, sumarbústað og átta íbúðarhús- næði. I síðastnefndu tilvikunum var sex sinnum farið inn um glugga í kjallarahúsnæði og eina geymslu fjölbýlishúss. Níu einstaklingar voru handteknir vegna þessara mála. í ársskýrslu lögreglunnar í * Islenskt par í 5. sæti á heims- meistara- móti í brids GUÐMUNDUR Halldórsson og Sigurbjörn Haraldsson enduðu í 5. sæti á heimsmeistaramóti brids- spilara, 25 ára og yngri, sem lauk í Tékklandi um helgina. Alls tóku 186 pör í mótinu, þar af sex íslensk, og spila fjögur þeirra í landsliðum Islands í þessum aldursflokki á Norðurlandamóti sem hefst í Reykjavík á mánudaginn kemur. Sigurbjöm var einnig í landsliði Islands sem keppti í opnum flokki á Evrópumótinu á Möltu fyrir skömmu. Árangur hinna íslensku paranna í Tékklandi varð sem hér segir: Guðmundur Gunnarsson og Ómar Olgeirsson urðu í 35. sæti, Ari Már Arason og Ingvar Jónsson urðu í 61. sæti, Jónas Tryggvason og Birkir Jónsson, Frímann Stefáns- son og Páll Þórsson urðu í 92. sæti og Heiðar Sigurjónsson og Daníel Sigurðsson vom í 133. sæti. Reykjavík, sem sagt var frá í Morgunblaðinu á sunnudag, kom fram að innbrotum hefur fækkað um 20% á starfssvæði hennar á milli ára. Skýringin er sögð vera fækkun á innbrotum í bifreiðar, en að sögn Ómars Smára Armanns- sonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns rannsóknardeildar, hefur innbrot- um í bfla ýmist fjölgað eða fækkað á milli ára allan þennan áratug. Hins vegar hafi á sama tímabili, þ.e. undanfömum áratug, orðið jöfn aukning innbrota frá ári til árs, sem nemi vel á annan tug pró- senta í Reykjavík. „Á árinu 1997 tókst þó ekki ein- ungis að stöðva hina mjög svo nei- kvæðu þróun í innbrotum, heldur tókst og að fækka innbrotum vem- lega. Um er að ræða mikilsverðan árangur í ljósi þróunar afbrota, ár- angur sem hefur vakið athygli víða, ekki síst þegar horft er til ástæðna þessarar fækkunar. Á tveggja ára tímabili, eða frá þvi að skipulagi löggæslumála. var breytt hinn 1. júlí 1997, hefur tekist að fækka innbrotum um alls 33%,“ segir Óm- ar Smári. Margþættar skýringar Hann segir að hlutfallslega hafi fækkunin orðið mest á innbrotum í bfla, en einnig hafi fækkað innbrot- um í verslanir, fyrirtæki og í heimahús. Ástæður fækkunarinnar séu margþættar, þ.á m. breytingin sem var er málaflokkurinn var færður heim í hérað og lögregla á viðkomandi svæði gerð ábyrgari, mikill áhugi og góð viðbrögð lög- reglumanna við tflkynningum um innbrot, árangursrík viðbrögð rannsóknarlögreglumanna er haft haft að markmiði að bregðast við öllum upplýsingum er kynnu að auka líkur á uppljóstrun brota, markviss upplýsingasöfnun um virka brotamenn og eftirlit með þeim, áhersla á að bregðast við endurteknum brotum þeirra ein- staklinga sem ítrekað koma við sögu í auðgunarbrotamálum o.fl. ástæður. Hann nefnir þessu t.d. viðbótar meðal annars náin aðkoma lög- fræðinga embættisins að málum í vinnslu, notkun mögulegra úr- ræða á borð við síbrotagæslu og afplánun eldri dóma, skemmri rannsóknartíma og fljótlegri af- greiðslu mála til dómstóla. Þá hafi dómstólar afgreitt mál á skemmri tíma en áður þekktist, með þeim árangri að fleiri aðilar hafi verið vistaðir í fangelsi en áður. Þá hafí eigendur verðmæta í auknum mæli gert þær ráðstaf- anir er dregið geti úr líkum á inn- brotum. „Af þessu má sjá að með mikl- um áhuga, vilja og mikilli vinnu lögreglumanna og annarra, hefur tekist að ná framangreindum ár- angri. Það ber að þakka og vonandi má það verða til þess að enn meiri árangur náist í þessum tegundum afbrota í framtíðinni. Ljóst er að hægt er að gera betur, t.d. með því að bæða aðstöðu og möguleika þeirra lögreglumanna sem fást við þessar tegundir afbrota og herða á markvissu eftirliti með virkum brotamönnum," segir Ómar Smári. Tengsl fíkniefna og afbrota Hann segir að jafnframt verði að leggja áherslu á að hjálpa ungu af- brotafólki inn á rétta braut og við- urkenna að mikil tengsl eru á milli fjölda auðgunarbrota og ástæðna þeirra og framboðs á fíkniefnum og vímuefnaneyslu viðkomandi aðila. Reyna verði að efla vitund dómara um mikilvægi ákvarðana vegna þessara tegunda brota, ekki síst með hagsmuni og öryggi almenn- ings að leiðarljósi. Sumaraukaferð til Damp í Þýskalandi 25^.9.1999 Við strönd Eystrasalts, um 70 kílómetra sunnan Flensborgar er orlofsdvalarstaðurinn Damp. Fyrsti íslenski hópurinn dvaldi að Damp árið 1988 og síðan hafa ánægðir íslendingar gist staðinn árlega í hópferðum með Ferðaskrifstofu Guðmundar Jónassonar. Að Damp er gist í vel búnum íbúðum í 12 hæða hótelbyggingu. í öllum íbúðunum er eldhúskrókur með tilheyr- andi áhöldum, baðherbergi með steypibaði, svalir, sími og sjónvarp. Á staðnum eru margir veitingastaðir, smáverslanir matvöruverslun, pósthús, öldusundlaug, hitabeltissundlaug og dansstaðir. Frá Damp er þægilegt að fara dagsferðir til ýmissa áhugaverðra staða. Nú í lok sumars munum við bjóða 10 daga ferð til Damp. Ekið verður frá Reykjavík þann 25. ágúst og siglt frá Seyðisfirði með Norrænu daginn eftir. Flogið verður heim frá Hamborg 4. september. Verð kr. 69.900 Innifalið í verði er sigling með Norrænu, flug heim frá Hamborg, allur akstur (sama hópbifreiðin fylgir hópnum allan tímann), allir flugvallar- og vegaskattar, gisting og morgunverður á Hallormsstað og í Herning, íbúðargisting í Damp og íslensk fararstjórn. Fararstjóri okkar er Gunnar Guðmundsson. Leitið nánari upplýsinga hjá utanlandsdeiid okkar. Ferðaskrifstofa Guðmundar Jónassonar ehf. Borgartúni 34 • Sími 5111515 Morgunblaðið/Þorkell Viðhald á Vestfiörðum SUMARIÐ er ákjósanlegur tími til að dytta að hlutum sem vetur- inn hefiir leikið grátt. Ungling- arnir 1 Bolungarvík kepptust við að fúaverja girðingar í bænum þegar Ijósmyndari Morgunblaðs- ins var þar á yfirreið fyrir skömmu. Svo mikil var vinnu- harkan að stúlkurnar gáfu sér ekki einu sinni tíma til að líta upp frá verkinu, enda brýnt að nota blíðuna meðan hún gefst. Borgarstjóri og borgarritari til Bandaríkjanna Sitja ráðstefnu A1 Gore um framúr- skarandi stjórnsýslu INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir borgarstjóri og Helga Jónsdóttir borgarritari eru þessa dagana á ráðstefnu í Bandaríkjunum, sem haldin er á vegum A1 Gores, vara- forseta Bandaríkjanna og forseta- efnis demókrata, um stjómunar- hæfni. Ráðstefnan, sem nefnist Skarað fram úr í stjórnkerfinu, lýk- ur á fimmtudag. „Embætti varaforsetans stendur fyrir þessari ráðstefnu og þar er út- hlutað viðurkenningum til opin- berra bandarískra fyrirtækja fyrir framúrskarandi árangur í stjórnun á viðkomandi ári. Við munum sitja ráðstefnuna til að heyra hvað menn hafa þar að segja, í von um að hægt sé að læra af því besta,“ sagði Ingi- björg Sólrún áður en hún hélt af stað til Bandaríkjanna. Nýjungar í stjórnun kynntar Ráðstefnan er haldin í Was- hington og er haldin árlega að sögn borgarstjóra. Helsta markmið hennar eru að kynna það nýjasta í stjórnun og stjómsýslu í Banda- ríkjunum og nýjar hugmyndir á þeim vettvangi. Ingibjörg Sólrún segir framsögumenn marga og at- hyglisverða, þannig að hún geri sér vonir um að ýmislegt hnýsilegt komi í ljós. Þrír grunaðir um þjófnað LÖGREGLAN í Reykjavík handtók þrjá menn á föstudag, eftir að lög- reglumenn í hefðbundinni eftirlits- ferð veittu þeim athygli við akstur, en mennimir eru kunnir fyrir af- brot. I bifreið sem þeir óku fannst margskonar vamingur sem talinn er vera þýfi. Mennimir gátu ekki gert grein fyrir vamingnum og voru þeir færð- ir á lögreglustöð. Þar kom í ljós að vamingurinn var þýfi úr tveimur þjófnuðum frá því á fimmtudags- kvöld, þar sem farið var inn á skrif- stofur við Höfðatún og í verslun við Glæsibæ. Um var að ræða fatnað, síma, áfengi, verkfæri og ýmsa lausamuni aðra.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.