Morgunblaðið - 13.07.1999, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 13.07.1999, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚLÍ 1999 17 AKUREYRI Morgunblaðið/Ásdís HANNA Antonsdóttir, ein af Perlunum. Framtak ellefu kvenna í Hrísey PERLAN, handverkshús í Hrís- ey, tók til starfa í fyrrasumar. Þá tóku sig til ellefu konur úr hópi eyjarskeggja og stofnuðu fyrir- tæki sem gæti selt framleiðslu þeirra sjálfra. Handverkshúsið hlaut nafnið Perlan og sjálfar kalla þær sig Perlurnar. Perlan er staðsett á neðri hæð veitingastað- arins Brekku. Þegar Morgunblað- ið var í Hrísey á dögunum komu blaðamaður og ljósmyndari við í Perlunni og hittu þar Hönnu Ant- onsdóttur, eina af Perlunum. Inni í búðinni gefur á að líta margs konar muni sem verða til í höndunum á konunum ellefu. Þær selja peysur, húfur, myndir og ýmsa minjagripi. Einnig sagði Hanna að þær tækju hluti í um- boðssölu fyrir aðra. „Þetta gekk mjög vel hjá okkur í fyrrasumar og við erum bara þokkalega ánægðar það sem af er þessu sumri,“ sagði Hanna. Hún sagði að þær hefðu opnað 17. júní í ár og stefndu á að hafa opið fram í miðjan ágúst. „Við höfum opið 13.-18. og erum með því að stíla upp á ferðamenn, þeir koma flest- ir eftir hádegið," sagði Hanna. Hún sagði þó að Islendingarnir versluðu allt eins mikið og er- lendu ferðamennirnir. Konurnar ellefu vinna margar hluta úr degi annars staðar og aðrar eru heimavinnandi. „Við skiptum vöktunum á milli okkar og það gengur bara vel að skipu- leggja það,“ sagði Hanna og að því loknu var komið að því að af- greiða viðskiptavin. Uppsetning bjálkahúsa við Olafsfjarðarvatn Morgunblaðið/Guðmundur Þór HÉR má sjá hvar verið er að koma húsunum fyrir við vatnið. BJÁLKAHÚS hafa risið eitt af öðru við Ólafsfjarðarvatn í Ólafs- firði á síðustu dögum. Að sögn Ás- geirs Ásgeirssonar, eins af for- svarsmönnum Hótels Ólafsfjarðar, er húsunum meðal annars ætlað að auka gistirými hótelsins. Einnig mun nærveran við vatnið og bátar sem þar verða til leigu vonandi verða til þess að lífga upp á Ólafs- fjarðarvatn að nýju, sagði Ásgeir. Húsin verða alls átta að tölu og öll nema tvö eru fyrst reist annars staðar og síðan sett niður við vatn- ið. Tvö stærstu húsin verður hins vegar að reisa alfarið á staðnum, að sögn Ásgeirs. Aukið gistirými „Uppsetning húsanna hefur gengið vel og við ætlum að ljúka við fyrstu fjögur húsin fyrir 18. júlí næstkomandi því við erum bú- in að bóka þau þann daginn," Fyrstu húsin brátt tilbúin sagði Ásgeir. Að sögn hans er gistirými hótelsins ekki nógu mik- ið, aðeins ellefu herbergi, og það hefur hamlað því að hótelið hafi getað tekið á móti mjög stórum hópum. „Húsin ieysa úr þeim vanda. Fyrstu fjögur húsin eru út- búin með gistirými fyrir 16 manns. Næstu tvö eru svona fjölskylduhús, með svefnherbergi fyrir hjón á neðri hæðinni og svefnlofti á þeirri efri. Stærstu húsin eru frekar ætl- uð fyrir hópa. Á neðri hæðinni verður herbergi, snyrting, eldhús- krókur og stofa en tvö herbergi uppi. Þau verða tekin í notkun ein- hvern tíma seinna í sumar,“ sagði Ásgeir. Meira líf við vatnið „Ég vona að staðsetning hús- anna, með þessu útsýni yfir vatnið, verði til að endurvekja lífið við vatnið. Við fáum líka til okkar fimm til sex manna róðrarbáta sem fólk getur leigt til siglinga á vatninu. Einnig er hugsanlegt að sett verði hljóðlát utanborðsvél, sem gengur fyrir rafmagni, utan á bátana,“ sagði Ásgeir. Hann sagði að ferðamannastraumurinn hefði verið ágætur það sem af er sumri eftir að Lágheiðin var opnuð. „Við höfum einnig fengið til okkar dá- lítið af Islendingum mcðan að veðrið var svona gott hjá okkur og vonandi verður framhald á því,“ sagði Ásgeir að lokum. SMIRNOFF Við leitum að þátttakendum i II smirnoff Allar umsóknir/möppur/teikningar skilist til: Heildv. Karls.K.Karlssonar ehf., Skútuvogi 5 Skilafrestur er til 29. júlí milli kl. 14-20 og 30. júlí milli kl. 10-14. Keppnin verður haldin laugardaginn 28 ágúst n.k. Nánari upplýsingar hjá: Heildv. Karls K.Karlssonar ehf. í síma: 540 9000 lcelandic models í síma: 562 5577 Linda Björk Árnadóttir, sigurvegari Smirnoff Fashion Awards hér heima og erlendis, hefur þetta um keppnina að segja: "Ég hvet alla sem eru að velta fyrir sér að læra hönnun til þess að taka þátt í Smirnoffkeppninni. Ég öðlaðist með því reynslu í að koma hugmyndum mínum á framfæri og gaf mér aukið sjálfstraust sem er nauðsynlegt í starfi mínu sem fatahönnuður". Línda Björk Árnadóttir, fatahönnuður, Crylab ehf. íslenski sigurvegarinn fer til Hong Kong í nóvember til að taka þátt í úrslitakeppninni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.