Morgunblaðið - 13.07.1999, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 13.07.1999, Blaðsíða 50
50 ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚLÍ 1999 MORGUNBLADIÐ KIRKJUSTARF í DAG Kópavogskirkja Safnaðarstarf Áskirkja. Opið hús fyrir alla aldurs- hópa kl. 10-14. Léttur hádegisverð- ur. Samverustund foreldra ungra bama kl. 14-16. Hallgrímskirkja. Fyrirbænaguðs- þjónusta kl. 10.30. Beðið fyrir sjúk- um. Seltjamameskirkja. Foreldra- morgunn kl. 10-12. Kópavogskirkja. Mæðramorgunn í safnaðarheimilinu Borgum í dag kl. 10-12. Seljakirkja. Mömmumorgnar kl. 10-12. Opið hús. Víðistaðakirkja. Aftansöngur og fyrirbænir kl. 18.30. Hafnarfjarðarkirkja. TTT-starf fyr- ir 10-12 ára kl. 17-18.30 í Vonarhöfn Strandbergs. Kristin íhugun í Stafni, Kapellu Strandbergs, kl. 21.30-22. Heimsborgin - Rómverjabréfíð, lest- ur í Vonarhöfn kl. 18.30-20. Grindavíkurkirkja. Foreldramorg- unn kl. 10-12. Borgarneskirkja. Mömmumorgunn í safnaðarheimilinu milli kl. 10 og 12. Helgistund í kirkjunni sömu daga kl. 18.30. Krossinn. Almenn samkoma kl. 20.30 í Hlíðasmára 5. Allir vel- komnir. Listrænt fyrirtæki Vorum að fá til sölu fallega, þekkta listræna gjafavöruverslun sem selur mest listrænar handunnar vörur eftir ýmsa listamenn innlenda sem erlenda. Góð erlend sambönd. Húsnæðið er einnig til sölu og stendur á fallegum og áberandi stað. Fyrirtæki er staðsett á Stór-Reykajvíkursvæðinu og er laust strax. Upplýsingar aðeins á skrifstofunni. ra7TTT7f77?IT7IV^TVIT71 SUÐURVE R I SlMAR 581 2040 OG 581 4755, REYNIR ÞORGRÍMSSON. LUXEMBORG VELVAKAMU Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Heiðarleiki eykur hróður Borgarness KÆRI Bjarki Már á Hvanneyri. Þetta er þínir eigin hug- arórar að kalla okkur hjón kynþáttahatara. Ef svo væri hefðum við aldrei far- ið inn á Matstofuna í Borg- amesi. Það sem þú kallar hottintotta og alíbaba heit- ir ,Asíubúar“ á okkar máli. Við viljum einfaldlega að fólk sé heiðarlegt og rétt á að vera rétt. Það sem stendur í pöntunarlista á að standast við greiðslu. Hvers vegna var ekki 20% álagningin nefnd í mat- vörulistanum? Hvers vegna fær maður ekki nótu hjá Matstofunni? Bara beðið um visa-kortið. Hvers vegna skrökvaði konan að hún væri taílensk en ekki frá Filippseyjum? Við hjónin höfum unnið í áraraðir með mörgum út- lendingum sem eru góðir vinir okkar, svo kynþátta- hatur eins og þú orðar það er alveg út í hött. Einnig getur fólki munað um 400 krónu álag þegar það fer í góðri trú á „ódýran" mat- stað. Svo er málið útrætt af okkar hálfu. Sömu hjón á ferðalagi. Hver þekkir fólkið? MEÐFYLGJANDI mynd er tekin á Úlfljótsvatni í Grafningi. íslenskir skátar leita að upplýsingum um hvaða fólk er á myndinni og hver Ijósmyndarinn er. Vitað er að myndin er tekin allnokkru áður en skátar hófu að stunda skátastarf á Úlfljótsvatni. Þeim sem geta gefið upplýsingar er bent á að hafa samband í síma 562 1390 eða senda tölvupóst til helgig@scout.is Tapað/fundið Græn hermanna- taska týndist EFTIR fjögurra ára dvöl í Danmörku og að loknu 2 ára strembnu námi ákvað ég að veita mér ærlegt 2 mánaða frí heima á ís- landi. Heimsótti ég skemmtistaðinn 22 við Laugaveg föstudaginn 2. júlí hvar græna her- mannataskan mín með seðlaveski, farsíma, snyrti- dóti og ýmsu fleiru varð viðskila við mig. Sárast finnst mér að týna farsím- anum, Nokia 5110, sem er eign litla bróður, ennfrem- ur eru öll dönsku kortin og skilríkin glötuð sem mun skapa mikla fyrirhöfn er aftur verður horfið til Danaveldis. Ef einhverjir geta upplýst málið vinsam- legast hringið í Völu Vigg- ósdóttur í síma 557 4212. STAÐAN kom upp á Frankfurt-West- atskákmótinu um mánaðamótin. Ungverska stúlkan Júdit Polgar (2.675) var með hvítt, en Búlgarinn Veselin Topalov (2.700) hafði svart og átti leik. 29. - Hxf2! 30. Dxf2 32. b3 - Bxf2+ 33. Hxf2 og þar sem Júdit hefur tapað drottningunni vann Topalov skákina örugglega. SKÁK llmsijón Margeir Pétursson - Bh4 31. Hf6 - Hb8 SVARTUR leikur og vinnur. COSPER 11198 COSPER r pj B Frá upphafi: Besta leiðin til Evrópu > % i'j Luxair býður upp á beint flug til Lúxemborgar með þægilegri og hraðskreiðri þotu. Frá Lúxemborg liggja vegir til allra átta. Kefiavík — Lúxemborg Lúxemborg — Keflavík 0.45 6.25 ^ Q 22.20 0.05+1 LUXAIR THE WINGS OF CHANGE www.luxair.lu Nánari uppiýsingar og bókanir hjá öllum helstu ferðaskrifstofum. Víkverji skrifar... VÍKVERJI brá sér ásamt konu sinni til Bandaríkjanna í síð- ustu viku til að heimsækja vini og venslafólk í smábæ í Wisconsin. Mikil hitabylgja gekk þá yfir þess- ar slóðir og náði hitinn allt að 40 stigum í forsælu. íslendingar sækja að öllu jöfnu í hitann til að orna sér eftir kuldann hér heima, en 40 stig og glampandi sólskin leyfir Víkverji sér að kalla „grenjandi blíðu“. Það er einfaldlega allt of heitt. Það var athyglisvert að alls staðar bar hit- ann á góma í samræðum fólks, sem hélt sig innan dyra í loftkælingu eða í skugga eftir því hvemig á stóð. Islendingurinn er ekki vanur að heyra fólk taka svo til orða að bráðum fari veðrið að lagast, það fari að kólna! Viðmót fólks er mjög mismunandi eftir löndum og stöðum. Víkverji er þeirrar skoðunar að viðmót fólksins á þessum slóðum sé hlýrra og glað- legra en víðast hvar annars staðar. I smábænum Chaseburg sem Vík- verji heimsótti nú í þriðja skiptið, kasta allir á hann og konu hans kveðju úti á götu, í kaupfélaginu er spjallað um daginn og veginn og á veitingahúsunum, sem eru sam- komustaðir fólksins, er íslending- unum gjaman boðið upp á drykk og síðan spjallað um heima og geima og leyst úr spumingum um land og þjóð. Viðmót af þessu tagi skilur eftir sig betri minningar en ella og er til þess fallið að auka líkurnar á því að fólk komi aftur á staðinn. Reyndar er Chaseburg enginn ferðamanna- staður í þeim skilningi, aðeins lítið sveitaþorp á milli blómlegra bænda- býla og í nálægð Amish-fólksins. Chaseburg er hins vegar mjög stutt frá bænum La Crosse á bökkum móðunnar miklu, Missisippi, og þar er ferðamönnum boðið upp á margt sér til afþreyingar. xxx VÍKVERJI getur ekki látið hjá líða að nefna verðlag í Banda- ríkjunum. Það er mun lægra en hér á landi og ræður þar sjálfsagt mjög margt. Laun eru þama svipuð og á Islandi, en helztu nauðsynjar kosta gjaman um helming þess sem þær kosta hér eða enn minna. Þrátt fyrir að fólk þurfi í flestum tilfellum sjálft að byggja upp sína eigin lífeyris- sjóði og kosta sjúkratryggingar hef- ur það mun meira til að spila úr en við hér heima og getur í mörgum tilfellum farið á eftirlaun mun fyrr en við. Öll þjónusta sem ferðamenn þurfa á að halda er einnig mun ódýrari en hér á landi og má þar nefna bflaleigubíla, hótel og veit- ingastaði. Víkveiji og hans fólk, fimm manns, gátu til dæmis leyft sér að gera vel við sig í mat og drykk á ágætum veitingastað fyrir um 7.000 krónur. Ágætt hótelher- bergi fyrir tvo með baði, síma og sjónvarpi í La Crosse kostaði um 4.000 krónur. Til samanburðar má nefna að tveggja manna herbergi með baði, hvorki sjónvarpi né síma, á Hótel Eddu á Laugarvatni kostar rúmar 8.000 krónur nóttina og spar- legur kvöldverður fyrir tvo með einni léttvínsflösku kostar á fimmta þúsundið. xxx STAÐREYNDIR af þessu tagi hljóta að hafa áhrif þegar ákveð- ið er hvert halda skal í fríinu. Þrátt fyrir að mikið kosti að komast úr landi, getur það verið mun ódýrara að fara til útlanda en ferðast um ís- land háð því að búa á hótelum, borða á matsölustöðum að ekki sé talað um að notast við bflaleigubfl. Þá má nefna það að gallon af bens- íni kostar það sama í Bandaríkjun- um og lítri hér. Víkverji á því auðvelt með að skflja undrun Bandaríkjamanna og anarra erlendra ferðamanna á verð- laginu hér. Það er hvergi tfl þess fallið að laða ferðamenn tfl landsins og vissulega letjandi fyrir Islend- inga að ferðast um eigið land. Hér virðist vera lögð mest áhersla á að plokka eins mikið af ferðamannin- um eins og hægt er og má reyndar segja að það sé skfljanlegt, en kannski ekki mikil framsýni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.