Morgunblaðið - 13.07.1999, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 13.07.1999, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚLÍ 1999 51 í DAG Q/AÁRA afmæli. í dag, O V/ þriðjudaginn 13. júlí, verður áttræð Elin Sæ- mundsdóttir, Hjallavegi llc, Njarðvík. Hún verður að heiman á afmælisdaginn. BRIDS limsjón Gurtmundur Páll Arnarson í TÖFLULEIK Póllands og Danmerkur á EM voru spil- uð fjögur hjörtu í NS á báð- um borðum. Norður gefur; NS á hættu. Vestur A D98 VD97 ♦ G1032 *Á102 Noröur * ÁKG43 V ÁK5 * Á8 * 543 Austur * 1065 ¥ 8 * K975 * DG976 Suður * 72 ¥ G106432 * D64 *K8 Á öðru borðinu varð Dan- inn Christiansen sagnhafi í norður eftir sterka tveggja granda ognun og yfirfærslu suðurs. Útspilið var lauf- drottning, sem fékk að eiga slaginn. Austur spilaði aftur laufi yfir á ás makkers, sem skipti nú yfir í spaða. Christiansen drap með ás, tók ÁK í hjarta og trompaði svo spaðann frían. Hann gaf síðan einfaldlega slag á tromp og henti loks tveimur tíglum niður í frítígul. Tíu slagir. Hinum megin varð Rom- anski sagnhafi í suður. Hann fékk út tígulgosa, sem hann ákvað hleypa yfir á drottninguna. Austur tók á kónginn og skipti yfir í lauf- drottningu. Þar tók vömin tvo slagi og fékk síðan einn til á tromp þegar Romanski toppaði litinn. Einn niður. í sýningarsalnum birtist jafnóðum útkoman úr hverju spili í öðrum leikjum. Geimið var að vinnast og tapast til skiptis, en svo kom tala sem stakk í aug- um: 1430 tii Króatíu fyrir sex hjörtu staðin! Hvemig þá? Jú, útspilið var tígul- gosi. Sagnhafi tók með ás, spilaði spaða þrisvar og trompaði. Svípaði svo hjartagosa, tók ÁK í hjarta, og henti svo tveimur laufum niður í fríspaða. Spilaði loks tígli að drottningunni. Tólf slagir! Með morgunkaffinu EIGUM við að fara heim til þín eða mín, elskan? NÚ er lokaprófið, sem sker úr um hvort þú hefur hæfilcika í starf póstbera. ÞESSAR duglegu stúlkur söfnuðu 2.513 kr. með tombólu til styrktar Rauða krossi íslands. Þær heita Ingibjörg Sig- urðardóttir, Tinna Björk Guðmundsdóttir, Ásta Björk Halldórsdóttir og Ásta Björk Árnadóttir. ÞESSAR duglegu stúlkur söfnuðu 1.257 kr. með tombólu til styrktar Rauða krossi íslands. Þær heita Birgitta Gunnars- dóttir, Thelma Rut Elísdóttir og Tinna Heiðdís Elvarsdóttir. HÖGNI HREKKVÍSI Á ÆSKUSTÖÐVUNUM Jónas Guðlaugsson 1887/1918 Um ítra æskudaga ég átti lítinn hvamm þar sem að blómin brosa og bmnar lindin fram. Þar undi’ eg allar stundir þar átti’ eg konungshöll sem skreytt var öll með skeljum og skein sem aprílmjöll. í hvammnum greri hrísla á hólnum ein hún bjó svo lág en limafogur mót Ijósi sólar hló. Þar sat ég alsæll undir um aftans marga stund, er síðstu geislar glóðu sem gull á sævarlund. Brot úr Ijóðinu Á æsku- stöðvunum En nú er hríslan horfin, og hóllinn sandur ber, og höllin mín er hmnin - þar hrúga lítil er. En hvert er fuglinn floginn sem fyr hér átti skjól? Hann er víst löngu liðinn ó lífsins hverfihjól! STJÖRNUSPÁ eftir Frances Ilrake KRABBI Afmælisbarn dagsins: Þú ert harður í viðskiptum og það er fátt sem kemur þér úrjafnvægi. Lokaðu samt ekki tilfmningarnar úti. r 0 R A C F, I > . .; •' V ■■■■■■■■■■■■BBBBBBRBBBBMBBBBQHBHBflBBBMBHHBBMBÍ ' Kvenfataverslun í Aðalstræti 9 UTSALAN HEFST I DAG Opiövirka daga 10-18, laugardaga 10-14 -Sími 552-2100 Hrútur — (21. mars -19. apríl) Þú færð tækifæri til að hefja samningaviðræður að nýju svo gerðu það upp við þig hvort þú átt að hrökkva eða stökkva. Skoðaðu vandlega alla skilmála. Naut (20. apríl - 20. maí) Nú er rétti tíminn til að kynnast fólki og komast í sambönd við rétta aðila. Tak- ist þér þér era bjartir tímar framundan bæði í leik og starfi. Tvíburar t ^ (21. mal - 20. júní) n n Sinntu þínum eigin málum og láttu aðra um að leysa sín. Þér verður ekkert ágengt með því að skipta þér af hvort eð er. Einhverjar breytingar eru framundan. Krabbi (21. júní - 22. júlí) Gefðu þér tlma til að rækta sambandið við þína nánustu og leggðu þitt af mörkum í að umvefja þá sem eiga um sárt að binda og þarfnast stuðn- ings._____________________ Ljón (23. júlí - 22. ágúst) Þú þarft að taka þátt í sam- eiginlegum kostnaði og verð- ur að gæta þess að iáta smá- munasemina ekki ná tökum á þér. Hugsaðu málið vandlega. Meyja „ (23. ágúst - 22. september) ®ÍL Þú þarft að standa á rétti þín- um en gæta þess um leið að gera ekki meira úr hlutunum en nauðsyn krefur. Vertu ákveðinn en einlægur. (23. sept. - 22. október) m Mundu að þú getur aldrei gert svo að öllum líki. Vertu því bara ákveðinn og fylgdu eftir eigin sannfæringu því þú einn berð ábyrgðina. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóvember) Leitaðu ekki langt yfir skammt því hin sanna gleði býr hið innra. Sættu þig við það sem þú færð ekki breytt og leggðu þig fram um að auðga líf þitt. Bogmaður (22. nóv. - 21. desember) AO Settu þér ekki svo stífar regl- ur að þér sé ómögulegt að fara eftir þeim. Betra er að taka eitt skref í einu og vera ánægður með sjálfan sig. Steingeit (22. des. -19. janúar) ðSí Þú ert gæddur góðum hæfi- leikum en hefur ekki nægi- legt sjálfstraust til að nýta þér þá. Gerðu það sem til þarf og snúðu málunum við. Vatnsberi , (20. janúar -18. febrúar) Það er ágætur eiginleiki að vera á verði gagnvart því fólki sem maður þekkir ekki en sjálfsagt að gefa því mögu- leika á að kynna sig betur. Fiskar (19. febrúar - 20. mars) Gefðu þér góðan tíma til að skoða málin ofan í kjölinn því nú skiptir miklu máli að þú takir rétta ákvörðun varðandi framtíðina. Stjömuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni \isindalegra staðreynda. Húsbréf Innlausnarverð húsbréfa Innlausnardagur 15. júlí 1999. 1. flokkur 1991: Nafnverð: Innlausnarverð: 1.000.000 kr. 2.060.467 kr. 100.000 kr. 206.047 kr. 10.000 kr. 20.605kr. 3. flokkur 1991: Nafnverð: Innlausnarverð: 1.000.000 kr. 1.833.418 kr. 500.000 kr. 916.709 kr. 100.000 kr. 183.342 kr. 10.000 kr. 18.334 kr. 1. flokkur 1992: Nafnverð: Innlausnarverð: 5.000.000 kr. 9.028.864 kr. 1.000.000 kr. 1.805.773 kr. 100.000 kr. 180.577 kr. 10.000 kr. 18.058 kr. 2. flokkur 1992: Nafnverð: Innlausnarverð: 5.000.000 kr. 8.887.169 kr. 1.000.000 kr. 1.777.434 kr. 100.000 kr. 177.743 kr. 10.000 kr. 17.774 kr. 1. flokkur 1993: Nafnverð: Innlausnarverð: 5.000.000 kr. 8.184.622 kr. 1.000.000 kr. 1.636.924 kr. 100.000 kr. 163.692 kr. 10.000 kr. 16.369 kr. 3. flokkur 1993: Nafnverð: Innlausnarverð: 5.000.000 kr. 7.390.400 kr. 1.000.000 kr. 1.478.080 kr. 100.000 kr. 147.808 kr. 10.000 kr. 14.781 kr. 1. flokkur 1994: Nafnverð: Innlausnarverð: 5.000.000 kr. 7.197.086 kr. 1.000.000 kr. 1.439.417 kr. 100.000 kr. 143.942 kr. 10.000 kr. 14.394 kr. 1. flokkur 1995: Nafnverð: Innlausnarverð: 5.000.000 kr. 6.785.477 kr. 1.000.000 kr. 1.357.095 kr. 100.000 kr. 135.710 kr. 10.000 kr. 13.571 kr. 1. 2. og 3. flokkur 1996 • Nafnverð: Innlausnarverð: 1.000.000 kr. 1.274.949 kr. 100.000 kr. 127.495 kr. 10.000 kr. 12.749 kr. s Innlausn húsbréfa fer fram hjá íbúðalánasjóði, í bönkum, | sparisjóðum og verðbréfafyrirtækjum og liggja þar einnig | frammi upplýsingar um útdregin húsbréf íbúðalánasjóður Suðurlandsbraut 24 | 108 Reykjavík | Sími 569 6900 | Fax 569 6800
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.