Morgunblaðið - 13.07.1999, Síða 24

Morgunblaðið - 13.07.1999, Síða 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚLÍ 1999 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Enn hallar undan fæti hjá Milosevic Andóf færist úr þéttbýli yfir í dreifbýli Kikinda, Washingdxin. AFP, The Daily Te- legraph. UM fimm þúsund manns mótmæltu ríkisstjóm Serbíu og kröfðust af- sagnar Slobodans Milosevic Jú- góslavíuforseta í Kikinda, í Vojvod- ina við landamæri Ungverjalands sl. sunnudag. Mótmælin voru, líkt og þau sem haldin hafa verið annars staðar í Serbíu sl. daga, skipulögð af Bandalagi lýðræðisflokka í Vojvod- ina og Samtökum um breytingar sem eru regnhlífarsamtök stjómar- andstöðuflokka Serbíu. „Skiiaboðin em skýr, Milosevie verður að víkja frá,“ sagði Slobodan Vuksanovic, varaforseti Lýðræðis- flokksins. Mótmælin fóm að mestu friðsamlega fram utan er til nokk- urra ryskinga kom er andstæðingar Milosevics köstuðu tómötum í nokkra stuðningsmenn forsetans sem mættu á fundinn. „Mikil grimmdarverk hafa verið framin í okkar nafni og við höfum þurft að þjást mikið. Milosevic þarf að gjalda fyrir það, því þá aðeins mun Serbía eiga sér framtíð," sagði Milan Protic stjómarandstæðingur. Einnig komu um fimmtíu liðs- menn hersins saman um helgina í heimabæ þeirra, Vranje um 270 km suðaustur af Belgrad, og kröfðust þess að þeim yrðu borguð laun fyrir herþjónustu meðan á loftárásum Atlantshafsbandalagsins (NATO) á Júgóslavíu stóð. Tími Milosevics liðinn? „Þó svo að serbneskur almenn- ingur hafi áður mótmælt leiðtoga sínum [Milosevic] bera mótmælin síðustu misseri með sér nýjan blæ. I þetta skiptið mun Slobodan Milos- evic fara frá völdum.“ Þetta skrifar serbneskur baráttumaður fyrir mannréttindum og greinahöfundur í The Wall Street Joumal. Andstætt því sem hingað til hefur verið eru það Serbar sem búa í Dömuhjól ájrábœru verði Scott-Giant-Eurostar-Diamond-Bronco 3 gíra með fótbremsu, graent eða rautt kr. 27.900, stgr. 26.505 7 gira með fótbremsu, vínrautt kr. 35.900, stgr. 34.105 21 gíra, mjög vel útbúin, verð ffá kr. 24.900, stgr. 23.655 21 g/ra með brettum og bögglabera (mynd) kr. 27.900, stgr. kr. 26.505, karfa kr. 1.150 Ármúla 40 5 % Staðor. afsláttur. Símar: 553 5320 568 8860 Hjólin eru afhcnt tilbúin, vandlcga stillt og samsett. Árs ábyrgð og frí upphersla. Iferslunin Ein stærsta sportvöruverslun landsins ymn Reuters LOUISE Arbour, yfirsaksóknari Stríðsglæpadómstóls Sameinuðu þjóðanna, kom til Skopje í Makedóníu í gær. Hún sagði sönnunar- gögn um stríðsglæpi í Kosovo vera að hrannast upp, sem m.a. styddu þær ákærur sem gefnar hefðu verið út á hendur Milosevic forseta. dreifbýli sem haldið hafa í mótmæli gegn Milosevic sl. vikur og krafist afsagnar hans. Því virðist sem fokið sé í flest skjól fyrir forsetanum þar sem hann hefur sótt hvað mest fylgi til þessa fólks í valdatíð sinni. Fyrstu skipulögðu fjöldamót- mælin gegn Milosevics áttu sér stað í mars árið 1991 í Belgrad, höfuðborg Serbíu. Þá mótmæltu námsmenn í höfuðborginni sumarið 1992, en fjöldi óbreyttra borgara slóst þá í hóp þeirra. Einnig má nefna þau mótmæli sem oftast er vísað til í umfjöllun í dag, sem Vuk Draskovic, ásamt öðrum stjómar- andstæðingum, leiddi veturinn 1996-7, en þau stóðu yfir í þrjá mánuði. Serbar hafa því ekki setið að- gerðalausir gegn leiðtoga sínum þau tíu ár sem hann hefur verið við völd, en að mati fyrmefnds höfund- ar, sem ekki vill láta nafns síns get- ið, em þessi mótmæli annars eðlis enjjau sem eiga sér stað í dag. Ibúar Belgrad hafa búið við mun betri kost en landsbyggðarfólk og hafa til að mynda haft aðgang að óháðum fjölmiðlum, ólíkt þeim síð- amefndu. Þá hafa höfuðborgarbúar ekki búið við rafmagnsleysi og eins þröngan kost og landsbyggðarfólkið hefur gert síðasta áratug. Kröfur um afsögn Milosevics koma nú frá fólki úr þorpum og bæjum sem von bráðar mun, ef fram heldur sem horfir, vart eiga til hnífs og skeiðar. Þetta fólk hefur um langa hríð ekki fengið greidd laun og hefur horft á eftir fjölda karlmanna sem misst hafa lífið í átökum á Balkanskaga, nú síðast við NATO. Landsbyggðarfólk er því orðið leitt á vosbúð og ástvinamissi og krefst þess að efnahagur lands- ins verði réttur við áður en hung- ursneyð tekur við. Mótmæli höfuðborgabúa hafa hins vegar beinst meir að því að koma Serbíu í samfélag með öðram Evrópuþjóðum, að breytingar í átt til lýðræðis eigi sér stað en ekki að fólk hafi í sig og á. Með loftárásum NATO hafa kjör landsbyggðarfólks versnað enn frekar þar sem verk- smiðjur í bæjum og þorpum hafa verið jafnaðar við jörðu og skilið fjölda manns eftir án atvinnu. Fólk hefur því litlu að tapa. Það hefur að mati sérfræðinga öðlast aukinn kjark því ef það gat lifað af árásir frá váldamestu her- veldum heims, hlýtur það að lifa af mótmæli gegn Milosevic. Þetta, auk mótmæla stjómarandstöðunnar, þótt ósamleit sé, auk yfirlýsingar serbnesku rétttrúnaðarkirkjunnar sem krefst þess að Milosevic segi af sér, er talið merki um að mótmælin á landsbyggðinni komi til með að bera tilætlaðan árangur. * Utför Kosovo-Albaiia er féllu fyrir skotum friðargæsluliða Ættingjar bera ekki kala til hermannanna Koma rússneskrar hersveitar vekur andstöðu Pristina, Belgrad, Kosovska Kamenica. AFP, Reuters. LIÐSMENN Frelsishers Kosovo (UCK) og ættingjar og aðstandend- ur bára á sunnudag tvo Kosovo-Al- bana sem skotnir vora til bana í Pristina af breskum friðargæslulið- um 3. júlí sl., til grafar. Sorgmæddir ættingjar mannanna sögðust ekki bera kala til friðar- gæsluliðanna bresku og sögðu að um óhapp hefði verið að ræða. Her- mennimir hefðu verið hræddir um líf sitt og því skotið að mönnunum, sem höfðu hleypt af skotum er hundrað manna höfðu safnast sam- an í miðborg Pristina til að fagna óopinberum sjálfstæðisdegi Kosovo-Albana. Yfir 300 Kosovo-Albanar fylgdu mönnunum til grafar og stóðu liðs- menn UCK heiðursvörð á meðan á athöfninni stóð. „Skotið var óhapp,“ sagði ættingi annars fórnarlambs- ins, Shemsi Dudis. „Bretamir eru ekki hér til að ógna okkur. Þeir era hér okkur til vemdar." Sagði liðs- foringi í UCK á sunnudag að engin eftirmál yrðu vegna atviksins af hálfu Frelsishersins og að hann teldi það ekki mundu hafa áhrif á samskipti UCK og KFOR. Bresk hermálayfirvöld hafa hins vegar lýst því yfir að hermennirnir geti átt morðákæra yfir höfði sér ef þeir verði fundnir sekir um að hafa skotið án tilefnis. Talsmaður hers- ins sagði í viðtali við AFP á sunnu- dag að rannsókn hefði hafist á at- vikinu og að ekki væri fyrirséð hver niðurstaðan yrði. Samkvæmt yfirmönnum breska friðargæsluliðsins í Kosovo skutu friðargæsluliðamir að mönnunum í sjálfsvöm eftir að þeir hleyptu af skotum þar sem þeir stóðu ofan á bifreið, fagnandi. Breska blaðið Independent sagði hins vegar í frétt sinni á sunnudag að fólk sem hefði verið nærri, segði að friðargæslulið- amir hefðu skotið á mennina úr vél- byssum og veitt bifreið þeirra eftir- för. Þá var því haldið fram í frétt blaðsins að Sameinuðu þjóðimar myndu ákæra hermennina fyrir skotárásina. Bresk hermálayfirvöld og Sameinuðu þjóðirnar hafa harð- neitað þessu og segja Bretar að slík mál heyri alls ekki undir lögsögu Sameinuðu þjóðanna. Rússnesk friðargæslusveit kemur til Kosovo Rússnesk friðargæsluhersveit, áttatíu hermenn alls, kom til Kosovo-héraðs á sunnudag og setti upp stjómstöð í útjaðri bæjarins Kosovska Kamenica sem er á gæslusvæði Bandaríkjanna. Sveitin er sú fjölmennasta sem Rússar hafa sent tÚ héraðsins til þessa, að her- sveitinni á flugvellinum í Pristina undanskilinni. Rússarnir munu deila aðstöðu með bandarískum hersveitum í Kosovska Kamenica og sagði tals- maður Bandaríkjahers að sameigin- legar aðgerðir sveitanna myndu hefjast innan skamms. Hafa menn talsverðar áhyggjur af því að koma Rússanna kunni að ýfa upp sár og ýta undir tortryggni milli Kosovo-Albana og Serba í hér- aðinu þar eð Rússar era taldir draga taum Serba. Hafa leiðtogar UCK t.a.m. lýst því yfir að þeir líti á rússneskar friðargæslusveitir sem vissa ögran við sig. Er hersveitin kom til Kosovska Kamenica á sunnudag fjölmenntu um 8.000 Kosovo-Albanar á aðal- götu bæjarins og mótmæltu komu þeirra. Báru böm skilti sem á var letrað: „Við viljum enga Rússa til Rahovac. Við viljum NAT0.“ Rússar hafa hins vegar neitað því að þeir muni mismuna fólki eftir þjóðemi. Alexander Markov, yfir- maður herdeildarinnar, sagði í við- tali við Daily Telegraph á sunnudag að eina hlutverk sinna manna væri að sinna friðargæslustörfum. „Við munum aðstoða allt fólk. Geram við engan greinarmun á því hvort það sé af serbnesku eða albönsku bergi brotið.“ Gerið verðsamanburð (JAjva! af hellum og steinum í innkeyrslur, stéttir, stíga, sólpalla afl. Jón Hákon Bjarnason skrúðgarðyrkjumeistari veltlr faglega ráðgjöf við val á vorum og útfærslu þinna hugmynda. 0 HELLUSTEYPA JVJ Vagnhöfða 17 • 112 Reykjauík Sínti: 5872222 • Fax: 587 2223 Sendum hvert á land sem er sala@hellusteypa.is ■

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.