Morgunblaðið - 13.07.1999, Page 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚLÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Illri með-
ferð á fflum
mótmælt
__________________ERLENT________
Fyrsti fundur nýs forsætisráðherra ísraels með Yasser Arafat
Lofa að koma skriði á
friðarumleitanirnar
Reuters
EHUD Barak, forsætisráðherra ísraeis, heilsar Yasser Arafat, leið-
toga Palestínumanna, fyrir fund þeirra í Erez við mörk Israels og
palestínsku sjálfstjórnarsvæðanna á sunnudag.
Erez. AFP.
EHUD Barak, nýi forsætisráðherr-
ann í ísrael, og Yasser Arafat, leið-
togi Palestínumanna, komu saman í
fyrsta sinn á sunnudag og áréttuðu
loforð sín um að koma skriði á frið-
arumleitanir Israela og Palestínu-
manna.
Barak, sem tók við forsætisráð-
herraembættinu fyrir viku, lýsti því
í fyrsta sinn yfir að hann myndi
virða síðasta samning Israela og
Palestínumanna. Benjamin Net-
anyahu, forveri Baraks í embætt-
inu, undirritaði samninginn í
Bandaríkjunum í október en
frestaði framkvæmd hans í desem-
ber og sakaði Palestínumenn um að
hafa ekki staðið við sinn hluta
samningsins, sem kveður m.a. á um
að þeir skeri upp herör gegn
palestínskum hermdarverkamönn-
um. Samningurinn, sem er kenndur
við Wye-plantekruna í Bandaríkj-
unum, kveður á um að Israelar af-
sali sér 10% Vesturbakkans til við-
bótar, láti hundruð palestínskra
fanga lausa og geri ráðstafanir til
að auka sjálfstjórnarréttindi Pa-
lestínumanna.
Arafat lofar að binda enda á
„vítahring ofbeldis“
Arafat áréttaði kröfu Palestínu-
manna um að Israelar stæðu við öll
ákvæði samningsins. Barak kvaðst
vilja að nokkrum þáttum samnings-
ins yrði frestað þar til þjóðimar
næðu samkomulagi um varanleg
landamæri og endanlega stöðu
palestínsku sjálfstjómarsvæðanna
en tók skýrt fram að slíkt yrði að-
eins hægt að gera með samþykki
Palestínumanna.
Arafat krafðist þess að Israelar
hættu öllum byggingarframkvæmd-
um í byggðum gyðinga á hemumdu
svæðunum. „Byggingarfram-
kvæmdimar era ólöglegar og spilla
fyrir friðarumleitunum," sagði
hann. „Ég skora á stjóm Israels að
stöðva þær í þágu friðar.“
Arafat lofaði ennfremur að skera
upp herör gegn ofbeldi herskárra
Palestínumanna sem leggjast gegn
friðarsamningunum við Israela.
„Það er kominn tími til að binda
enda á vítahring ofbeldis og átaka.
Nú er kominn tími til að tryggja
nýtt upphaf friðar og samvinnu milli
allra þjóðanna í þessum heims-
hluta."
„Mjög vinsamlegar“
viðræður
Fundurinn stóð í klukkustund og
litið var á hann sem þáttaskil í frið-
aramleitunum Israela og Palestínu-
manna eftir þriggja ára þrátefli á
valdatíma Netanyahus.
„Þetta var frábær fundur og góð
bytjun. Við eram mjög bjartsýnir,"
sagði Nabil Shaath, einn af helstu
ráðgjöfum Baraks.
Moshe Fogel, talsmaður Israels-
stjómar, sagði að viðræður leiðtog-
anna hefðu verið „mjög vinsamlegar
og afar ólíkar fundunum með Net-
anyahu".
Israelskir og palestínskir emb-
ættismenn sögðu að Barak og Net-
anyahu myndu koma saman að nýju
tO að ræða framkvæmd Wye-samn-
ingsins í smáatriðum eftir fund
Baraks með Bill Clinton Banda-
ríkjaforseta í Washington á fimmtu-
dag. „Baraks ætlar að hefja fram-
kvæmd Wye-samningsins þegar
hann snýr aftur frá Bandaríkjun-
um,“ sagði palestínskur embættis-
maður í föruneyti Arafats.
Jóhannesarborg. AP.
UM 5.000 manns efndu á sunnudag
til mótmæla við búgarð suður-
afrísks fílasala, sem dómstóll hafði
ávítt fyrir illa meðferð á fílum, til að
krefjast þess að hann sleppti fjórtán
ungum fílum sem era enn í umsjá
hans. Mótmælin hófust eftir að sjón-
varpsstöðvar sýndu myndbandsupp-
tökur af barsmíðum á fílunum.
A meðal mótmælendanna vora fé-
lagar í bifhjólaklíkum, meðlimir
dýravemdarhreyfinga, húsmæður
og fatlað fólk. Nokkrir þeirra réðust
í gegnum hlið búgarðsins en aðrir
urðu við beiðni samtaka suður-
afrískra dýravemdarhreyfinga um'
að halda sig utan við búgarðinn, sem
er 60 km norðan við Jóhannesar-
borg.
„Fólkið var reitt,“ sagði Penny
Kinnear, 37 ára kona frá Jóhannes-
arborg, sem skipulagði mótmælin.
Starfsmenn búgarðsins flúðu úr bú-
garðinum af ótta við að fólkið myndi
ráðast inn í hann.
íbúar Höfðaborgar efndu einnig
til mótmæla og sendu Thabo Mbeki,
forseta Suður-Afríku, áskoran um
að lýsa fíla „skyni gæddar verar“.
Eigandi búgarðsins, Riccardo
Ghiazza, hefur beðist afsökunar á
illri meðferð á fílunum. Hann lét
fanga um 30 unga föa á þurrkasvæði
í suðurhluta Botswana á síðasta ári
og hugðist þjálfa þá og selja í dýra-
garða og friðlönd íyrir villt dýr.
Suður-afrísku dýravemdarsam-
tökin höfðuðu mál gegn Ghiazza fyr-
ir illa meðferð á fílunum og hann
hefur síðan selt dýragörðum í Evr-
ópu sjö fílanna. Níu til viðbótar hafa
verið fluttir í friðlönd í Suður-Af-
ríku.
Indverjar og Pakistanar ná samkomulagi um að binda enda á átökin í Kasmír
Ind verj ar gefa skæru-
liðum frest til að hörfa
Srinagar. AFP.
Grænfriðungar
handteknir
undan strönd-
um Noregs
NORSKT strandgæsluskip tók
nítján Grænfriðunga höndum í
gær og gerði skip þeirra, Síríus,
upptækt eftir mótmælaaðgerðir
gegn norskum hvalveiðum í Norð-
ursjó. Lars Haraldsen, talsmaður
Grænfriðunga, sagði að skotið
hefði verið að gúmmíliát Græn-
friðunga er þeir reyndu að sigla í
veg fyrir hvalveiðiskipin og að
þetta væri í fyrsta sinn sem slíkt
gerðist. Talsmenn norsku strand-
gæslunnar sögðu að fólkið hefði
verið handtekið eftir að hafa siglt
of nærri hvalveiðiskipunum. Fjór-
ir Grænfriðungar voru handtekn-
ir í síðasta mánuði eftir svipaðar
mótmælaaðgerðir og slasaðist þá
einn þeirra í árekstri gúmmíbáts
og strandgæsluskips.
HER Indlands gerði í gær hlé á
tveggja mánaða loftárásum á
skæraliða, sem höfðu ráðist inn á
yfirráðasvæði Indverja í Kasmír, og
gaf þeim frest til föstudagsins kem-
ur tíl að fara af svæðinu.
Talsmaður indverska hersins var-
aði við því að ráðist yrði á skæralið-
ana ef þeir færu ekki af svæðinu áð-
ur en fresturinn rennur út. Skæra-
liðunum yrði leyft að fara með vopn
yfir markalínuna, sem skiptir Ka-
smír milli Indlands og Pakistans.
Raminder Singh Jassal, talsmað-
ur indverska utanríkisráðuneytis-
ins, sagði að yfirmaður indversku
hersveitanna í Kasmír hefði greint
yfirmanni pakistanska hersins frá
frestinum á fundi þeirra á sunnu-
dag. „Yfirmaður pakistönsku her-
sveitanna sagði að Pakistanar
myndu fylgja þessari tímaáætlun,“
sagði hann.
Pakistanska stjómin tilkynnti á
sunnudag að hún hefði náð sam-
komulagi við Indverja um að
skæraliðamir færa af indverska
hluta Kasmír til að binda enda á al-
varlegustu átök landanna í tæp 30
ár. Samkomulagið er í samræmi við
yfirlýsingu sem Nawaz Sharif, for-
sætisráðherra Pakistans, og Bill
Clinton Bandaríkjaforseti gáfu út
eftir fund þeirra í Washington viku
áður.
Átökin kostuðu
1.089 manns lífið
Indverjar hófu hemaðinn 9. maí
til að flæma burt hundrað skæru-
liða sem höfðu ráðist inn á ind-
verska yfirráðasvæðið. Indverjar
segja að pakistanskir hermenn hafi
tekið þátt í innrásinni, en því hafa
Pakistanar neitað.
Talsmaður indverska hersins
sagði í gær að 1.089 manns hefðu
fallið í átökunum, 398 indverskir
hermenn og 691 skæraliði.
Indveijar lýstu brotthvarfi
skæraliðanna sem „algjöram sigri“
indverska hersins yfir Pakistönum
og bandamönnum þeirra. Talsmað-
ur indverska flughersins staðfesti
að gert hefði verið hlé á loftárásun-
um en bætti við að þær gætu hafist
að nýju ef staðan á vígvellinum
breyttist.
Yfirmaður indverska hersins í
borginni Srinagar í Kasmír sagði að
indverskir hermenn hefðu sótt fram
á tveimur mildlvægum átakasvæð-
um og væra komnir nálægt landa-
mæranum. „Hermenn okkar era
byrjaðir að fagna. Það eru engin
merki um mótspymu en við höfum
samt gert allar nauðsynlegar var-
rúðarráðstafanir."
Þjóðaröryggisráðgjafi indversku
stjómarinnar, Brajesh Mishra,
sagði að skýrt hefði verið frá því að
hundrað skæraliða hefðu þegar lagt
af stað í átt að landamæranum.
Óttast hafði verið að innrásin
gæti leitt til allsherjarstríðs milli
Indlands og Pakistans, sem hafa
tvisvar háð stríð vegna deilunnar
um Kasmír frá því löndin fengu
sjálfstæði fyrir rúmum 50 áram.
Þrátt fyrir samkomulagið var enn
mikil spenna við landamærin og
hersveitir ríkjanna héldu áfram
stórskotaárásum sínum yfir marka-
línuna í Kasmír.
-----------------
Hjálpar-
gögn á
Suðurpólinn
Wellington. The Daily Telegraph.
FLUGVÉL á vegum bandaríska
hersins flaug um helgina með hjálp-
argögn á Suðurskautslandið frá
Nýja-Sjálandi til sjúkrar konu sem
er þar við rannsóknarstörf.
Ferðin gekk vel fyrir sig þrátt
íyrir myrkur og mikinn kulda, en á
þessum árstíma er um 67 gráða
frost á Suðurskautslandinu. Við
slíkar aðstæður er ekki hægt að
lenda flugvélum og því vora hjálp-
argögn og önnur aðfóng látin falla
til jarðar.
Starfsmenn á bandarísku rann-
sóknarstöðinni Amundsen-Scott
kveiktu eld í olíutunnum sem mynd-
uðu hálfhring til að sýna flugmönn-
unum hvar þeir gátu látið kassana
sex, sem geymdu búnaðinn, falla
niður úr þúsund feta hæð. Starfs-
mennimir höfðu einungis um fimm
mínútur til að ná í kassana, sem
lýstu í myrkri, áður en þeir frysu
fastir við ísinn.