Morgunblaðið - 13.07.1999, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚLÍ 1999 35
Rannsóknarverkefni frá Yale-háskóla
Er Island
fyrirmynd
í skógrækt?
Tveir nemendur við Yale háskólann
í Bandaríkjunum vinna nú að rannsóknum
sínum í vistfræði í Hallormsstaðaskógi.
Meðal annars er spurt um hæfni lerkis,
furu og íslenska birkisins til að safna
og varðveita kolefni innan vistkerfísins.
Anna Ingólfsdóttir innti þessa nemendur
eftir fyrstu niðurstöðum.
RAGNHILDUR Sigurðar-
dóttir og Brooke Parry eru
báðar að vinna að doktors-
verkefni í vistkerfa-vist-
fræði (ecosystem ecology) frá Yale-
háskóla í Bandaríkjunum. Þrátt fyrir
nám við erlendan háskóla hafa þær
valið að vinna verkefni sín á íslandi.
Ragnhildur lýkur námi sínu í lok
næsta árs, en Brooke er að hefja sitt
doktorsverkefni. Ragnhildur hóf há-
skólanám sitt við Háskóla íslands,
þaðan sem hún lauk BS-prófum bæði
í líffræði og jarðfræði. Hún hefur
einnig mastersgráðu í skógarvísind-
um frá Yale-háskóla. Ragnhildur
starfar ennfremur sem sérfræðingur
hjá Rannsóknarstöð Skógræktar
ríkisins á Mógilsá. Brooke hefur BA-
gráðu í líffræði frá Dartmouth-há-
skóla í Bandaríkjunum og masters-
gráðu í líffræði frá Melbourne-há-
skóla í Ástralíu.
Aðalleiðbeinendur Ragnhildar og
Brooke eru heimsfrægir vísinda-
menn á sínu sviði, auk þess að vera
prófessorar við Yale-háskóla. Þeir
eru dr. Kristiina Vogt, dr. Daniel
Vogt og dr. Bruce Larson.
Verkefnin eru unnin í samstarfi
við Skógrækt ríkisins í Hallorms-
staðaskógi og er verkefni Brooke
einnig í samvinnu við Stofnun Vil-
hjálms Stefánssonar á Akureyri.
Aðalstyrktaraðilar verkefnis
Ragnhildar eru Islenska álfélagið og
Rannsóknarnámssjóður. Brooke er í
ár og á næsta ári styrkt af Fulbright-
stofnuninni og báðar njóta þær
stuðnings Ingvars Helgasonar hf.
Varðveisla kolefnis
Rannsóknir Ragnhildar fjalla um
áhrif mismunandi skógarvistkerfa á
Nírœðisafmœli 11. júlí 1999 á Akureyri.
Síðbúnar þakkir til allra þeirra, sem voru
gleðigjafar mínir þennan dag. Öllum skyld-
mennum og vinum færi ég endalausar þakkir.
Verið œvinlega Guðifalin.
Kœr kveðja.
Sigurbjörg Ingimundardóttir,
Dyngjuvegi 12, Reykjavík.
þriðjudaginn 13. júlí kl. 20
Tónlist eftir Snorra Sigfús Birgisson
Leikin af höfundi
Aðgangseyrir kr. 500_ Mannspekifélagið
bindingu koltvísýrings úr andrúms-
lofti og næringarefnahringrásir.
Nánar tiltekið er hún að kanna hæfni
lerkis, furu og íslenska birkisins
(tegundir sem allar hafa mismunandi
einkenni með tilliti til laufforms og
laufaldurs) til að safna og varðveita
kolefni innan vistkerfisins, auk
áhrifa þessara tegunda á hringrásir
næringarefna.
Um er að ræða grunnrannsóknir á
kolefnisferlum, kolefnisbindingu og
næringarefnahringrásum. Auk þess
hefur verkefnið bæði skógræktar-
legt og náttúruverndargildi, þar sem
könnuð er hæfni íslenskra vistkerfa
á bindingu koltvísýrings úr and-
rúmslofti og hvernig hugsanlega
mætti hafa áhrif á þau ferli.
Verkefnið gefur einnig upplýsing-
ar um raunveruleg líf- og jarðefna-
fræðileg áhrif bæði innlendra og er-
lendra trjátegunda á íslensk vist-
kerfi. Að sögn Ragnhildar hafa þess-
ar trjátegundir, sem rannsakaðar
eru í verkefninu, sýnileg áhrif á bæði
kolefnisupptöku og hringrásir ým-
issa næringarefna.
Fyrstu niðurstöður benda til ótví-
ræðra áhrifa þessara tegunda á efna-
fræði jarðvegsvatns. Niðurstöðurnar
koma til með að birtast á Alþjóðlegri
jarðefnafræðiráðstefnu, sem haldin
verður í Reykjavík í ágúst á þessu
ári.
Um íslenska
birkiskóga
Þegar Brooke Parry kom til Is-
lands í fyrsta sinn á síðasta ári
hreifst hún af þeim eldmóði og krafti
sem settur hefur verið í skógrækt á
íslandi á síðustu áratugum. Brooke
segir ísland geta verið fyrirmynd
MENNTUN
Morgunblaðið/Anna Ingólfs
RAGNHILDUR Sigurðardóttir og Brooke Parry í Hallormsstaðaskógi.
annarra þjóða, sem tapað hafa miklu
af skóglendum sínum, í landgræðslu-
skógrækt.
Ahugasvið Brooke liggur í því að
rannsaka íslensku birkiskógana.
Hún telur íslenska birkið ekki ein-
ungis hafa mikið náttúruverndar-
gildi, heldur einnig vera áhugaverða
tegund til vísindarannsókna. Vegna
þess hve íslensku birkiskógamir
hafa orðið fyrir miklu áreiti (t.d.
vegna óhagstæðra loftslagsskilyrða
og einnig fyrri og núverandi land-
notkunar), gætu þeir verið gott
dæmi um hvemig norðlægir skógar
geta bmgðist við áreiti og áföllum.
Ennfremur, þar sem íslensku birki-
skógamir eru einfaldir að tegunda-
samsetningu, auðveldi það mjög at-
huganir á áhrifum þeirra þátta sem
valdi áreiti á skógarplöntur.
Brooke telur að norðlæg vistkerfi,
eins og á íslandi, gætu verið þau
fyrstu sem verða fyrir áhrifum frá
hnattrænum umhverfisbreytingum,
eins og til dæmis gróðurhúsaáhrif-
um. Jaðarsvæði eins og efri skógar-
mörk eru talin sérlega viðkvæm fyr-
ir þessum umhverfissveiflum og hef-
ur Brooke áhuga á að beina rann-
sóknum sínum að þeim.
Brooke, sem áður stundaði rann-
sóknir í næsthæstu skógum heims
(Eucalyptus-skógum í Astralíu) er
nú komin til íslands til að rannsaka
jaðarsvæði ó einhverjum lágvöxn-
ustu skógum jarðar.
Aukin menntun
- fleiri möguleikar
NÁMSFLOKKAR Hafnar-
íjarðar og Flensborgarskól-
inn hafa tekið höndum saman
um að efla símenntun - full-
orðinsfræðslu frá og með
haustinu 1999. Væntanlega
munu fleiri skólar og fræðslu-
stofnanir koma þar að á
næstu árum, segir í fréttatil-
kynningu frá Miðstöð sí-
menntunar í Hafnarfírði.
Fyrstu skrefín verða stigin
með því að þessir aðilar bjóða
sameiginlega upp á námskeið
og flétta þannig saman nýjum
og gömlum námskeiðum til
að auka íjölbreytni og mögu-
leika nemenda.
Veturinn 1998-99 stunduðu
á sjöunda hundrað manns
nám á vegum þessara aðila
svo það er stór hópur sem
sinna þarf. Að auki var stór
hópur á öðrum námskeiðum
innan eða utan Hafnarfjarð-
ar. Mikilvægi símenntunar er
gríðarlegt. Þær breytingar
sem eru að eiga sér stað í at-
vinnulífínu og samfélaginu
kalla í æ ríkari mæli á endur-
menntun. Stöðug menntun og
þjálfun er því svar við þeim
kröfum sem gerðar eru til
einstaklingsins í samfélagi
framtíðarinnar.
Námskeið þau sem í boði
verða á hverjum tíma verða
haldin víða um bæinn en meg-
inaðsetur starfseminnar verð-
ur fyrst um sinn í Flensborg-
arskólanum. Þar er ágæt að-
staða til náms, bæði í bók-
námi og verk- og listnámi, og
gott bókasafn jafnframt því
sem verið er að tölvuvæða
skólann þannig að hann svari
ýtrustu kröfum á sviði mennt-
unar.
Stofnanir, atvinnurekend-
ur, verkalýðsfélög og önnur
félagasamtök eru minnt á að
auðvelt er að koma á laggirn-
ar námskeiðum í nánast
hverju sem er, enda bæði að-
staðan fyrir hendi sem og
kennarar og leiðbeinendur
með fjölbreytta menntun og
bakgrunn.
Með
í ferðalagið
Á öllum upplýsingamiðstöðvum
og í söluturnum víða um land
er hægt að fá Sumarferðir ‘99,
ferðahandbók Morgunblaðsins.
Taktu handbókina með
í ferðalagið!