Morgunblaðið - 13.07.1999, Side 48
48 ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚLÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
OUR TEACHER 15 MAD AT
ME BECAU5E I FELL
A5LEEP WHILE 5HE WA5
READINö U5 A 5TORY
vr
Kennslukonan okkar er reið út í mig En ég lærði að minnsta kosti dálítið.. Maður á alltaf að sitja á aftasta bekk..
því að ég sofnaði á meðan hún var
að lesa sögu fyrir okkur..
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Osmekklegiir áróður
Sláturfélags Suðurlands
Frá Sigmari Þór Sveinbjörnssyni:
ÞAÐ ER með ólíkindum að fyrirtæki
eins og Sláturfélag Suðurlands skuli
með afar ósmekklegri auglýsingu
matvæla vera með rætinn áróður á
einstakling og reyndar alla Vest-
mannaeyinga. Á ég þar við auglýs-
ingu SS á pylsum frá fyrirtækinu
þar sem verið er að leika Arna John-
sen alþingismann á niðurlægjandi
hátt. Ekki veit ég hvort Árni hefur
gert eitthvað á hlut þessa fyrirtækis,
fmnst það fremur ólíklegt. Líklegra
er að þarna séu pólitískir andstæð-
ingar Ama að misnota aðstöðu sína á
ruddalegan hátt. Ég þekki Árna
Johnsen alþingismann vel og af engu
öðru en góðu, þess vegna skil ég ekki
þennan áróður Sláturfélagsins, áróð-
ur sem frekar má túlka sem pólitísk-
ar ofsóknir frekar en matarauglýs-
ingar. Árni er mikill húmoristi sjálf-
ur og hann kann manna best að taka
gríni, en þama er að mínu viti gengið
of langt og ég sé ekki tilganginn, veit
reyndar að margir em mér sam-
mála. Manni dettur í hug að Slátur-
félag Suðurlands hefði verið nær að
bæta ímynd sína með því að auglýsa
á ný upp lifrarpylsuna, þar sem sal-
an á henni hlýtur að hafa dottið nið-
ur eftir að SS þurfti að innkalla heilu
tonnin af þessum mat vegna þess að
það fundust einhver járnstykki,
varahlutir eða aðskotahlutir í matn-
um. Ég var einn af þeim sem þurfti
að gera mér ferð til að skila lifrar-
pylsu frá SS, og ég keypti mér ekki
aðra og mun ekki gera það í nánustu
framtíð.
Það era bæði gömul sannindi og
ný að duglegir og drífandi menn eins
og Ami Johnsen eru oft umdeildir,
sérstaklega af þeim sem engu nenna
og engu koma í verk. Þeir sem
þekkja Árna vita að hann hefur þann
ágæta eiginleika að fá hugmyndir og
koma þeim í framkvæmd, annað-
hvort sjálfur eða með því að virkja
þá sem í kringum hann era. Hann er
einnig alltaf boðinn og búinn að
hjálpa þeim sem leita til hans. Þess
vegna er hann vinsæll meðal þeirra
sem hann þekkja, og sjálfsagt óvin-
sæll eins og dæmin sanna hjá póli-
tískum andstæðingum, sérstaklega
þeim sem ekki þora né geta haft
framkvæðið í nokkram málum.
Margt gæti ég talið upp sem Árni
hefur beitt sér fyrir að koma í verk,
annaðhvort sjálfur eða með hjálp
annarra, en læt það vera að sinni.
SIGMAR ÞÓR SVEINBJÖRNSSON,
Heiðarhjalla 15, Kópavogi.
Viðbjóður og
smán til sölu!
Frá Nils Gíslasyni:
NÝVERIÐ heyrði ég sagt frá því
að verið sé að vinna að því að lyfta á
stall einni mestu smán sem framin
hefur verið á Islandi, og gera hana
að söluvöru til ferðamanna.
Það galdrafár sem kom yfír þjóð-
ina á sautjándu öldinni er ekki til að
minnast með stolti. Það er ótrúlegt
að hægt sé að safna saman hópi
manna og egna fyrir þá með gróða-
fíkn þannig að þeir sjái ekkert at>
hugavert við að nota smán þjóðar-
innar sem söluvöra.
Þjáningar og miskunnarleysi, ótti
og angist þeirra sem þurftu saklaus
að mæta hræðilegum dauðdaga
dæmd af þeim sem áttu að sjá um
andlega og líkamlega velferð þeirra
er meiri en verður með orðum lýst.
Glæpir sem valdamenn þjóðarinnar
og kirkjunnar frömdu á þessum
tíma eru slíkir að ég fyrirverð mig
fyrir að vera landi þeirra. Nú á að
fara að skemmta skrattanum aftur
með því að hampa þessum atburð-
um í stað þess að halda iðrunar- og
minningarathöfn með bænum um
að slíkir atburðir eða aðrir skyldir
þeim komi ekki fyrir aftur.
Það mundi lýsa þroska og réttri
breytni ef núverandi fulltrúar
þeirra sem stóðu að þessum glæp-
um stofnuðu til athafnar þar sem
þeir bæðu Guð og þjóðina fyrir-
gefningar á atburðum þessum.
Mér skildist á fréttinni að setja
eigi á svið galdraathafnir til að laða
að ferðamenn. Ég vil benda á að
galdrar eru ekkert grín. Það er til
ólánsfólk sem hefur villst til að til-
biðja djöfulinn. Þeir sem vilja
leggja honum lið með því að standa
fyrir athöfnum sem upphefja völd
myrkursins bæta sér sjálfkrafa í
hóp þann sem gefa sig djöflinum.
Ég endurtek: Galdrar eru ekkert
grín.
Ég geri mér ljóst að það er auð-
velt að gera bara grín að þessum
hlutum en fyrir það fólk sem þjáðist
og dó hræðilegum dauðdaga var
þetta dauðans alvara. Það voru yfír
20 einstaklingar sem voru brenndir
á báli á um 60 ára tímabili, það er
ekkert grín, það er ekki til að hefja
á stall, það var og verður eilíf smán.
NILS GÍSLASON,
hönnuður
Skógarhlíð 35, Akureyri.
„Húsið“ í Hnífsdal
Frá Steingrími St.Th. Sigurðssyni:
PÁLSHÚS heitir húsið - byggt
1897. Fjórar hæðir og er stórt.
Stendur í Brekkunni undir Búðar-
hyrnu. Þetta er afspyrnuglæsilegt
hús, sem lætur þó lítið yfir sér.
Páll Halldórsson, langafi Her-
manns Skúlasonar hafnarstjóra á
ísafirði, er maðurinn sem lét reisa
þetta sérstæða hús. Fjórar kynslóðir
hafa búið í Pálshúsi, eða allar götur
frá því 1897 til ársins 1994.
Nú síðast hefur hafnarstjórinn og
íyrram kapteinn, Hermann Skúla-
son, ástundað undanfarið ár að við-
halda þessu merkilega húsi. Hann
gerir það einn - segir hins vegar það
sé hollt fyrir sig vegna aðalstarfs,
sem felst í því að líta eftir fjórum
höfnum í Isafjarðarbæ.
Það vill svo til, að sá, sem þetta
skrifar, var aðnjótandi þess heiðurs
að fá að skoða slotið nýverið - og
hreifst.
STEINGRÍMUR ST.TH.
SIGURÐSSON,
listamaður.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.