Morgunblaðið - 28.07.1999, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 28.07.1999, Qupperneq 1
168. TBL. 87. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 28. JÚLÍ 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Gljúfraferð útivistarfólks í svissnesku Ölpunum breyttist í mikinn harmleik í gær Á1ján fórust og sex slös- uðust illa Bonigen, Interlaken. AFP, Reuters. ÁTJÁN manns biðu bana og sex slösuðust illa þegar ævintýraferð í Saxet-Bach árgljúfrið, suðaustur af Bem í Sviss, breyttist í mikinn harmleik síðla í gær. Eins til viðbót- ar var saknað og var hans leitað fram á nótt. Var talið að erlendir ferðamenn hefðu verið meðal þeirra sem létust, m.a. nokkrir Banda- ríkjamenn. Slysið átti sér stað í Liitschine- ánni nærri Interlaken í miðju Sviss en hópur fólks hafði verið í gljúfra- ferð á vegum útivistarsamtakanna Adventure World þegar miklar rigningar ollu því að vatnsmagn í gljúfrinu óx skyndilega mjög hratt, með þeim afleiðingum að öflugur árstraumur hreif fólkið með sér og það drukknaði. Að sögn svissnesku útvarpsstöðv- arinnar DRS var björgunarfólk kallað út eftir að fjöldi mannslíka sást á floti í Brienzer-vatni, sem er við ósa Lutschine-árinnar. Héldu menn í fyrstu að báti hefði hvolft of- ar í ánni. Aðstæður á slysstað voru erfiðar og notaðist björgunarfólk m.a. við þyrlur. Sýndu sjónvarpsmyndir af vettvangi þröngt árgljúfrið, þar sem slysið átti sér stað, og jafnframt mátti sjá hvar þyrla lyfti hreyfing- arlausum líkama manns upp úr vatninu nærri slysstað. Ekki hafði verið greint frá því hvaðan fórnarlömbin voru en heimamaður sagði þau flest hafa verið erlenda ferðamenn. Gljúfraferðir þykja afar hættulegar Gljúfraferðir eru vinsælar meðal ferðamanna frá Bandaríkjunum og Asíu sem heimsækja útivistarsvæði í svissnesku Ölpunum. Jafnvel við bestu hugsanlegu aðstæður eru þær hins vegar sagðar afar hættulegar, enda fela þær bæði í sér að menn klífi gljúfurveggi og stökkvi niður fossa í ám. Sund kemur einnig við sögu og ferðir upp og niður þröng árgjjúfur án aðstoðar báta. Utivistarfólkið, sem lenti í óför- unum í gær, var klætt í blautbún- inga og hafði á höfði hjálma og ýms- an fjallaklifursútbúnað, að sögn lög- reglu á staðnum. Ungur maður lést á þessum slóðum við svipaðar að- stæður árið 1997, eftir að hann hafði fest sig illa í hindrun í fossi og drukknað. Reuters BJÖRGUNARMENN stumra yfir einu fórnarlamba slyssins í gær. Sljórn N-Kóreu veitt við- vörun Singapore, Tókýó. Reuters, AFP. BANDARÍKIN, Suður-Kórea og Japan vöruðu Norður-Kóreu í gær við því að það kynni að hafa „alvar- legar af!eiðingar“ ef stjórnvöld í Pyongyang gerðu tilraunir á lang- drægum eldfiaugum á næstunni. Var N-Kóreustjóm jafnframt hvött til þess að nýta þau tækifæri sem nú gæfust og hefja viðræður við önnur ríki um úrlausnir deilumála. Madeleine Albright, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, sagði í Singa- pore í gær, þar sem hún er viðstödd alþjóðlega ráðstefnu, að N-Kóreu- stjórn myndi uppskera fyrir þjóð sína ef hún féllist á rammasamkomu- lag Bandaríkjanna, S-Kóreu og Japans þar sem fram kæmu ýmis hvatamerki til handa stjórnvöldum í Pyongyang. Hins vegar sagði hún að „önnur eldflaugatilraun [...] mun hafa aivarlegar afleiðingar“. Mönnum er enn í fersku minni síð- asta tilraun N-Kóreumanna í ágúst sl. er langdrægri Taepodong-eld- flaug var skotið af n-kóreskri grund yfir Japan, áður en hún lenti í Kyrrahafinu. Olli tilraunin mikilli spennu í samskiptum ríkja í Asíu og óttast menn nú að N-Kórea reyni brátt aðra slíka. Hong Soon-young, utanríkisráð- herra S-Kóreu, sagði í gær að N- Kórea yrði beitt refsingum ef stjórn- völd þar í landi létu verða af tilraun- um sínum. Hvorki hann né fulltrúar Bandaríkjanna eða Japans hafa þó tjáð sig um það í hverju þær refsing- ar verði fólgnar. Arafat og Barak áttu fund um Wye-friðarsamningana í gær Arafat tók rlrcDint í Reuters EHUD Barak, forsætisráðherra ísraels, og Yasser Arafat, leiðtogi Palestínumanna, heilsast fyrir fund sinn á Gasasvæðinu í gær. Tveir Serbar finn- ast myrtir í Kosovo óskir um frestun Erez á Gasasvœðinu, Washington. Reuters, AP. YASSER Arafat, leiðtogi Palestínu- manna, samþykkti með semingi í gær að hugleiða ósk Ehuds Baraks, forsætisráðherra Israels, um að frestað yrði að hrinda í framkvæmd þeim ákvæðum Wye-friðarsam- komulagsins sem kveða á um að ísraelar afhendi Palestínumönnum land á Vesturbakkanum. Sagði Barak að Arafat myndi gefa svar sitt innan tveggja vikna. Barak og Arafat áttu fund saman í Erez á Gasasvæðinu, en þetta er í þriðja sinn sem þeir hittast eftir að Barak tók við embætti forsætisráð- herra í Israel af Benjamin Netanya- hu. Var ijóst eftir tveggja klukku- stunda langan fund þeirra að þrátt fyrir að Arafat samþykkti að hug- leiða málið var hann ekki ýkja hrif- inn af því að Israelsmenn fengju að draga enn frekar á langinn að af- henda Palestínumönnum það land, sem samið var um í Wye-samkomu- laginu. Á fréttamannafundi ítrekaði Barak að ísraelsmenn myndu ekki reyna að breyta skilmálum friðar- samninga án samþykkis Arafats og að þeir myndu standa við skuld- bindingar sínar varðandi afhend- ingu lands, færu Palestínumenn fram á það. Barak kvaðst hins vegar hafa fært rök fyrir því á fundinum með Arafat að rétt væri að tengja saman afhendingu lands og viðræð- ur um endanlegt friðarsamkomulag milli Israela og Palestínumanna. Barak hefur hitt marga af leið- togum arabaríkjanna síðan hann tók við forsætisráðherraembættinu af Netanyahu. Barak hitti einnig Bill Clinton Bandaríkjaforseta í síð- ustu viku. Greindu bandarískir stjómarerindrekar frá því í gær að Clinton hefði um helgina ritað Ha- fez al-Assad Sýrlandsforseta bréf þar sem hann hvatti Assad til að grípa það tækifæri, sem nú væri fyrir hendi í kjölfai- kjörs Baraks, til að mjaka friðarumleitunum í Mið- Austurlöndum áfram. Sveitir KFOR sæta harðri gagnrýni Belgrad, Moskvu. Reuters, AP, AFP. LÍK tveggja Kosovo-Serba fundust nærri Vucitm í Norður-Kosovo í gær og höfðu mennimir verið skotn- ir til bana. Ekki er vitað hverjir frömdu verknaðinn en fyrr í gær hafði rússneska utanríkisráðuneytið sakað KFOR-friðargæslusveitir, undir stjóm Atlantshafsbandalags- ins (NATO) í Kosovo, um að sinna ekki starfi sínu sem skyldi við rann- sókn á morðunum á Serbunum fjórtán sem framin voru sl. fóstudag í Gracko. Alþjóðleg friðargæsla undir stjórn NATO hefur sætt mikilli gagnrýni í kjölfar morðanna og sagði Vuk Draskovic, leiðtogi End- urreisnarhreyfingar Serbíu (SPO), í gær að Serbar væm fómarlömb þjóðemishreinsana í Kosovo sem farið hefðu fram undir „vemd Sam- einuðu þjóðanna". Sakaði hann KFOR og SÞ um að gæta ekki ör- yggis Serba og annarra en Albana í héraðinu sem skyldi. í gær kynnti hópur serbneskra hagfræðinga, stjómarandstæðinga, presta og menntamanna, er kalla sig Hóp 17 óháðra hagfræðinga, áætlun sem koma á stöðugleika á í landinu. Áætlunin kveður á um að Slobodan Milosevic, forseti Jú- góslavíu, segi af sér og að bráða- birgðaríkisstjóm verði komið á tii eins árs er skipuleggja myndi nýjar kosningar. Ráðgert er í áætluninni að höf- undar hennar sitji í bráðabirgðarík- isstjóminni, en þeir myndu einnig hafa það hlutverk að reyna að koma í veg fyrir að borgarastríð brjótist út milli stuðningsmanna og and- stæðinga Milosevies. „Heiðursmannasamkomulag" í burðarliðnum Samtök um breytingar, hópur stjómarandstöðuflokka í Serbíu og SPO, flokkur Draskovic, tilkynntu í gær að „heiðursmannasamkomulag" milli íylkinganna væri í burðarliðn- um til að styrkja stöðu þeirra gegn Milosevic. Deilur hafa staðið milli flokks Draskovics og hinna stjómar- andstöðuflokkanna um það hvemig koma eigi forsetanum frá völdum. í gær skoraði Zoran Djindjic, helsti talsmaður Samtaka um breyt- ingar, á háttsetta hershöfðingja í Júgóslavíuher að leggja sitt af mörkum við að koma Milosevic frá völdum. Sagði hann að hershöfð- ingjamir „yi’ðu að gera sér grein fyrir að Milosevic sæti ólöglega í embætti forseta og að hann væri ógn við afkomu landsins."

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.