Morgunblaðið - 28.07.1999, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 28. JÚLÍ 1999 19
VIÐSKIPTI
Ofullnægjandi tilkynningar um utanþingsviðskipti
til Verðbréfaþings Islands
Fjórða tilvikið á tæpu ári
KOMIÐ hefur í ljós að tilkynningar
Kaupþings Norðurlands hf. um við-
skipti með skráð verðbréf utan
Verðbréfaþings Islands hafi verið
ófullnægjandi frá 26. mars 1999.
Kaupþing Norðurlands hefur í sam-
ráði við starfsmenn Verðbréfaþings
Islands unnið að því að taka saman
þau viðskipti sem ótilkynnt voru og
liggur sá listi nú fyrir. Viðskiptin
verða tilkynnt í viðskiptakerfmu eft-
ir nánari ákvörðun starfsmanna
Verðbréfaþings Islands.
Er þetta í fjórða skiptið sem tilvik
af þessu tagi kemur upp á tæpu ári.
í hinum tilvikunum var um misbrest
að ræða hjá Landsbanka Islands,
Kaupþingi og Búnaðarbanka Is-
lands. Ekki liggur fyrir um hve háa
fjárhæð er að ræða í þetta sinn.
Astæðan fyrir þessu er einkum sú
að í kjölfar innleiðingar nýs upplýs-
ingakerfis var vinnureglum varð-
andi þessar tilkynningar á utan-
þingsviðskiptum ekki breytt á full-
nægjandi hátt. Þessu hefur nú verið
kippt í liðinn og verða tilkynningar
utanþingsviðskipta hér eftir með
eðlilegum hætti, að því er fram kem-
ur í tilkynningu frá Kaupþingi
Norðurlands.
Verðbréfaþing lítur þetta mál al-
varlegum augum, enda hefur komið
í Ijós á síðustu misserum að vinnu-
brögðum þingaðila við tilkynningar
utanþingsviðskipta hefur verið áfátt
og þingið hefur ítrekað vakið athygli
þeura á málinu.
I tilkynningu frá Verðbréfaþingi
Islands kemur fram að samkvæmt
lögum um starfsemi kauphalla og
skipulegra tilboðsmarkaða er heim-
ilt að eiga utanþingsviðskipti með
verðbréf sem skráð eru í kauphöll,
enda séu viðskiptin tilkynnt með
þeim hætti sem kveðið er á um í
reglum kauphallar um viðskipta- og
upplýsingakerfi. í reglum þingsins
segir, að þingaðilar skuli skrá utan-
þingsviðskipti í viðskipta- og upplýs-
ingakerfi þingsins eigi síðar en fyrir
hádegi næsta viðskiptadag eftir að
viðskiptin áttu sér stað. Öll viðskipti
fyrir milligöngu þingaðila með skráð
verðbréf á eftirmarkaði eru tilkynn-
ingarskyld til þingsins. Þó hefur
þingið beint þeim tilmælum til þing-
aðila eigi þeir viðskipti utan þings
sín á milli, að sá sem kaupir tilkynni
í þeim tilgangi að útiloka tvískrán-
ingar viðskipta.
„Vanræksla tilkynninga brýtur
gegn þeirri gagnkvæmishugsun að
hver þingaðili fái upplýsingar um
viðskipti allra hinna þingaðilanna
gegn því að leggja fram allar upp-
lýsingar um eigin viðskipti. Van-
ræksla tilkynninga veldur því að
aðrir þingaðilar geta ekki gert sér
eins glögga mynd af markaðnum og
sá þingaðili sem ekki tilkynnir.
Útanþingsviðskipti þingaðila
mynda gjaldstofn til veltugjalda og
eiga að stuðla að því að hver þingað-
ili beri sinn hlut af rekstrarkostnaði
þingsins í samræmi við þau við-
skipti sem hann á með skráð bréf,
enda má ætla að í öllum slíkum við-
skiptum njóti þingaðilinn ávinnings
af verðmyndun og upplýsingagjöf
þingsins," að því er fram kemur í
tilkynningu frá Verðbréfaþingi ís-
lands.
Nýtt upplýs-
ingakerfí gefur
goða
LANDSSÍMINN, íslandspóstur og
Nýherji tóku um síðustu áramót í
notkun nýtt viðskipta- og fjárhags-
upplýsingakerfi frá hugbúnaðarfyr-
irtækinu SAP AG (System App-
lications and Products) í Þýskalandi
sem þykir eitt fullkomnasta kerfi
sinnar tegundar sem í boði er í
heiminum. Kerfið nefnist R3 og ger-
ir kleift að samtengja fjölmarga
ólíka þætti í rekstri fyrirtækja.
Kerfið gerir það að verkum að upp-
lýsingar um rekstur í einni deild fyr-
irtækis, s.s. um sölu á tiltekinni
vöru, berast til annarra deilda og
þannig uppfærast allar breytingar
sjálfkrafa í þeim deildum sem hlut
eiga að máli, til dæmis birgðahaldi
og bókhaldi. Einnig gerir kerfið það
mögulegt að aðgreina nákvæmlega
mismunandi kostnaðarþætti í
rekstrinum, sem gerir eftirlit
virkara og getur stuðlað að auknum
sparnaði í rekstri. Ennfremur auð-
veldar kerfið fyrirtækjum að halda
saman upplýsingum sem tengjast
starfsmönnum og vinnuferlum og
getur þannig eflt þekkingarvirkjun í
fyrirtækinu.
„Kerfið er mjög öflugt og býður
upp á fjölda ólíkra lausna, allt eftir
því hvers eðlis reksturinn er,“ segir
Frosti Sigurjónsson, forstjóri Ný-
herja. „Munurinn á þessu kerfi og
þeim sem smærri eru, er að það er
allt staðlað í þessu kerfi og þess
vegna er hægt að nota mismunandi
einingar saman. Það hafa margir
hallmælt kerfinu vegna þess hve
tímaírekt og erfitt þykir að setja það
upp en yfirleitt er uppsetningartími
raun
háður flækjustigi hvers fyrirtækis en
ekki þeim hugbúnaði sem settur er
upp. Hér á landi hafa uppsetningar
gengið hratt og vel fyrir sig enda eru
flest íslensk fyrirtæki lítil í alþjóð-
legum samanburði. Þegar búið er að
setja kerfið upp, auðveldar það mjög
allt reikningshald og endurskoðun
og getur flýtt mjög fyrir reglulegu
rekstraruppgjöri fyrirtækja," segir
Frpsti.
Ólafur Stephensen, forstöðumaður
upplýsinga- og kynningarmála hjá
Landssímanum, segir að kerfið hafi í
för með sér breytingar á vinnu-
brögðum starfsmanna. Skrá verði
niður upplýsingar um starfsemina
jafn óðum og þannig verði smám
saman til öflugur upplýsingabanki
um rekstur fyrirtækisins. „Starfsfólk
hér hefur yfirleitt tekið þessum nýj-
ungum vel og eftir að fólk hefur náð
tökum á því að vinna í kerfinu hefur
það lýst ánægju með hversu öflugt
það er og býður upp á marga mögu-
leika,“ segir Ólafur. „Kerfið veitir
okkur líka möguleika á að aðgreina
kostnað við einstakar rekstrarein-
ingar og getur gefið okkur upplýs-
ingar um framlegð af einstökum
hópum viðskiptavina.“
Ólafur segir að SAP-kerfið muni
reynast mikilvægt tæki í rekstri
Landssímans í því breytta rekstrar-
umhverfi sem skapast hafi með
frjálsri samkeppni á fjarskiptamark-
aði. „Kerfið gerir okkur kleift að
starfa af ábyrgð í þessu umhverfi og
er til þess fallið að auka trúverðug-
leika Landssímans gagnvart við-
skiptavinum og keppinautum.“
30. júlí-2. ágúst 1999
Hljóðfæra- og sönghátíð í Árnesi, Gnúpverjahreppi um verslunarmannahelgina 1999
„Folkfestival11
NÚ eru not fyrir þig og hljóðfærið þitt, vasasöngbókina,
góða skapið og sönggleðina, í samspilið og alla almenna þátttöku!
Um verslunarmannahelgina verður haldin söng- og hljóðfæraásláttarhátíö í Árnesi. „Folkfestival" eins og þau gerast best austan hafs og vestan og hafa aldrei verið hald-
in á íslandi. Aldrei hefur verið reynt að laða á einn stað fólk á öllum aldri og af öllum þjóðum til að spila og syngja saman og skapa þar með einskonar alþýðustemmn-
ingu þar sem allir geta verið þátttakendur.
Árnes og umhverfi þess er kjörinn staður til að halda slíka hátíð þar sem góð aðstaða fyrir ferðafólk er fyrir hendi og hægt að hlaupa inn í hús gerist veður válynd. Við
Árnes eru góð tjaldstæði, sundlaug, heitir pottar, knattspyrnuvöllur o.fl.
Fjöldi landskunnra listamanna koma fram á hátíðinni og má þar nefna m.a. KK, Bubba, Geirfuglana, Bjartmar Guðlaugsson, Súkkat, Bláa fiðringinn, Björgvin Gísla-
son, Eyjólf Kristjánsson, Ólaf Þórðarson, Sigurð Gröndal, Wilmu Young, Björn Thoroddsen, Kuran Swing o.fl. Einnig verða þrennir klassískir tónleikar í boði fyr-
ir fólk. Á þeim koma fram dúó skipað hörpu og sellói, Strengjatríó og íslenska tríóiö, skipað píanói, fagotti og óbói.
Það er eindregin ósk mótshaldara að allir þeir sem hafa gaman af því að syngja og spila á hljóðfæri með öðrum mæti á staðinn og taki þátt. Meiningin er sú að
fólk sem þekkist ekkert spili og syngi saman og skapi þannig mjög skemmtilega og jákvæða stemningu. Þetta verður fjölskylduvæn hátíð þar sem allir sem vilja
geta verið þátttakendur og komið fram einir eða með öðrum, hvort sem þeir leika á skeiðar, önnur hljóðfæri eða vilja bara syngja. Gestir hátíðarinnar eru hvattir
til að hafa með sér hljóðfærin sín og söngbækur og gerast þátttakendur í vonandi stærstu þjóðlagahljómsveit sem hér hefur sést.
Dagskráin hefst föstudagskvöldiö 30. júlí meö dansleik í Árnesi þar sem hiö frábæra tríó Blái fiðringurinn leikur.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Míöaveröi veröur stillt mjög í hóf þúsund þjalir-umboðsskrifstofa listamanna
oq kostar aðeins 300 kr. inn á dansleikinn Allsturstræli 6 •101 Reykjavík • simar 552 4022 / 898 0120 • Fax 552 4065
Netföng olitcó 10OOth.is / siggi10OOth.is • Veffang: http://www.1000th.is